Morgunblaðið - 17.08.1986, Side 37

Morgunblaðið - 17.08.1986, Side 37
r MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 37 myndarfólk, sjálfstætt fyrir löngu og böm þess úr grasi vaxin. Þau Jón og Laufey voru gæfusöm í einkalífi sínu, eignuðust góða fjöl- skyldu og ánægjuríkt heimili. Andi heimilisins var glaðvær og friðsam- ur. Einhver hvíslaði í eyra mér að aldrei væri rifist á þeim bæ. Kannski hefur það verið búálfurinn. Þjóð okkar getur ekki vænst þess, að ekki dragi fyrir sólu. Þann- ig er einkalífíð einnig. Húsmóðirin fékk banvænan sjúkdóm. Hún tók því með sömu þrautseigju og þolin- mæði og hún þurfii á að halda við stjóm á stóm heimili og uppeldi bama. Laufey dó 24. nóvember 1974. Jón Guðmundsson, sem áður bjó í Skipasundi 47, lifir nú kyrrlátu lífi á Hrafnistu í Reykjavík. Hann hefur fengið ýmis áföll í lífinu en hrist þau af sér. Nú hafa starfsam- ar hendur látið undan. Þessar fátæklegu línur eru senn á enda. Þær eru lítið þakklæti fyrir mikla vináttu. Hér er að endingu atriði sem lýsir Jóni Guðmundssyni vel. Eitt sinn er ég kom til hans var þar stórt gólfteppi hálfunnið, mjög fallegt og vel gert. Þetta var hann að grípa í sér til gamans, þegar þungu og miklu verkefnin voru að baki. Kjarkmaðurinn gefst ekki upp. Bili önnur hendin vinnur hann allt með hinni, eins og viljinn heimt- ar. Vilji er allt sem þarf. Einn daginn var teppið horfíð. „Ég gaf það,“ sagði Jón og brosti gamla brosinu, brosi þeirrar kynslóðar, sem gamnaði sér við listiðnað, en hirti ekki um launin: Þessvegna eig- um við listaverk á Þjóðminjasafninu og fleira, sem þjóðin hefiir fram- leitt fremur af vilja en mætti á umliðnum öldum, við koluljós og lýsistýrur. Ég og kona mín óskum öllum ástvinum Jóns Guðmundssonar til hamingju með gamla höfðingjann, ungan í anda, sem níræður verður á morgun, 18. ágúst. Friðrik Jónasson Jón ætlar að taka á móti gestum í sal rafiðnaðar- manna, Háaleitisbraut 68, frá kl. 17-19 á afmælisdaginn. Japönsk kona, sem getur ekki um aldur vill skrifast á við konur og karla frá 12—60 ára. Emi Kimura c/o I.iternational English Aca- demy Iwashita Build 1-10-7 Jin-nan Shibuya-ku Tokyo, Japan 150. Tólf ára drengur í Ghana sem hefur áhuga á körfubolta, knatt- spyrnu, dansi og frímerkjasöfnun. Robert Lincoln Box 409 Ogues city, Ghana, W-Africa. Karlmaður frá Saudi-Arabiu, sem nefnir ekki aldur sinn, en hefur hug á að skrifast á við stúlkur 19— 23 ára. Hann segist hafa áhuga á skokki, ferðalögum, dansi, sundi, diskódansi og mörgu fleiru. Salik Ahmed Box 490, Jeddah Saudi Arabia Alsírskur karlmaður, 22ja ára og hefur gaman af því að ferðast. Skrifar á frönsku. DjiIIali Yahiat Tennis Parc, 55 Rue Hales Said, EI-Mouradia Alger 16070, Algeria. 5TÆKKUM 1 5AMDÆC5UR5 Mú stækkum við litmyndir samdægurs. Eftir að hafa framkallað litmyndir í 5 ár er okkur það sérstök ánægja að kynna þessa nýju þjónustu sem er einsdæmi hér á landi. Þú kemur með filmuna þína framkallaða fyrir kl. 11 að morgni og við stækkum myndimar samdægurs eftir þínum óskum. Að sjálfsögðu færðu ráðleggingar um myndir og myndatökur T kaupbæti. 18 x 24 cm 210 kr. 20 X 25 cm 250 kr. 24 x 30 cm 420 kr. 28 x 35 cm 570 kr. 30 X 40 cm 810 kr. Verð á stækkunum: 13 x 18 cm 140 kr. Eins 03 áður getur þú skotið filmunni þinni inn til okkar og skroppið í bæinn. Eftir klukkutíma eru myndirn^ tilbúnar og þú tekur þær á leiðinni heim! Þægilegra getur það varla verið. Póstsendum um allt land 5 ára reynsla VIÐ 5ETJUM MYMDQÆÐIM OFAR ÖLLU I T M Y N D I R I HUSI HOTEL ESJU SUÐURLANDSBRAUT 2 S. 82219 I tileíni afmœlisins frá emmess:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.