Morgunblaðið - 17.08.1986, Side 38

Morgunblaðið - 17.08.1986, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 38 Afmælisbakkelsi „Þá er Ingólfur sá ísland, skaut hann fyrir borð öndvegissúlum sinum til heilla. Hann mælti svá fyrir, at hann skyldi þar byggja, er súlurnar kæmi á land.“ Svo ritar Ari í Landnámabók um að- draganda þess að fyrsti landnámsmaður íslands setti bú sitt í Reykjavík, hvar nú er höfuðborg vor með því sama heiti og Ing- ólfur gaf bæ sínum. Þá er Ingólfur skaut fyrir borð öndvegissúlunum var það í annað sinn er hann leitaði sér leiðsagnar í sambandi við landnáms- för sína hingað til lands, svo vitnað sé á ný í Landnámabók: „Þenna vetr fekk Ingóifur at blóti miklu ok leitaði sér heilla um forlög sín, en Hjörleifr vildi aldri blóta. Fréttin vísaði Ingólfi til íslands. Eftir þat bjó sitt skip hvárr þeirra mága til íslandsferðar.“ Á morgun halda Rey kvíkingar upp á 200 ára afmæli kaupstaðar- réttinda sinna og bjóða öllum íslendingum í tertukaffi með sér í hlaðvarpanum hjá Ingólfi. Aldrei er það þó svo að allir eigi heimangengt og er því stungið upp á að þeir sem heima verða að sitja leggi í afmæliskringlu eða aðra köku tengda afmælinu svo allir hafi eitthvað til að gleðjast við og gæða sér á. I þessum þætti er valið milli afmæliskringlu, eða afmælisköku í liki svans, merki afmælisins, eða þá að deigið er mótað í tölustafina 200. Allar þessar kökur eru búnar til úr gerdeigi, sem mjög auðvelt er að móta að vild. Hjartanlegar afmælisóskir! Afmæliskring-la 500 g hveiti, xh dl sykur, 1 tsk. salt, 1 kúfuð msk. þurrger, 2 egg + 1 eggjahvíta, 100 g smjörlíki, l'/z dl mjólk, 4 kardimommur eða lh tsk. dropar, 50 g smjör inn í kringluna, 1 dl rabarbarasulta, 2 epli, 1 eggjarauða, 3 tsk. vatn, 50 g heslihnetur eða möndlur, 2 msk. sykur. 1. Sigtið hveiti í skál, setjið salt saman við. Setjið þurrgerið út í. 2. Hrærið eggin, eggjahvítuna og sykurinn saman þar til það er ljóst og létt. Hellið út í hveitið, setjið kardimommur út í. 3. Bræðið smjörlíkið, takið af hellunni og hellið mjólkinni út í. Hellið síðan strax í skálina með hveitinu og eggjunum. Hnoðið vel saman. 4. Leggið stykki yfir skálina og látið þetta lyfta sér í 20—30 mínútur. 5. Sláið deigið niður, hnoðið síðan örlitlu hveiti upp i. Mótið eina langa lengju, 80—90 sm að lengd og 25 sm á breidd. Smytjið helm- ing smjörsins yfír lengjuna, leggið saman, fletjið út á ný þannig að hún nái sömu breidd og smyijið síðari hluta smjörsins yfir. 6. Smyijið sultunni á lengjuna. Afhýðið eplin, stingið úr þeim kjarnann, rífið síðan gróft á rif- jámi og setjið yfir sultuna. 7. Vefjið lengjuna saman. Setjið á smurða bökunarplötu eða bök- unarpappír. Mótið kringlu. Látið samskeytin snúa niður. 8. Hrærið eggjarauðuna út með vatninu og smyijið kringluna. 9. Saxið hnetumar, blandið sykri saman við þær og stráið yfir kringluna. 10. Leggið hreina diskaþurrku r A L u 3 Ig. I Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON 3. Bræðið smjörlíkið, takið af hellunni og hellið mjólkinni út í. Látið kólna örlítið en hellið síðan saman við það sem er í skálinni. Hnoðið vel saman. 4. Leggið stykki yfír skálina og látið þetta lyfta sér í 20—30 mínútur. 5. Sláið deigið niður, hnoðið síðan með örlitlu hveiti. Mótið 2 lengjur 40x20 sm og 30x20 sm. Smyijið helmingi smjörsins á lengjumar, Ieggið saman og fletjið út aftur í sömu breidd. 6. Smyijið því sem eftir er af smjörinu yfir lengjurnar, stráið á þær kanilsykri og síðan rúsínum. Rúllið saman. Mótið síðan svan, hausinn og einn sveig úr stærri lengjunni en tvo minni sveiga úr þeirri styttri. Togið örlítið í enda fyrri lengjunnar til að mynda gogg. Stingið síðan einni rúsínu í augastað. yfir kringluna, látið hana lyfta sér nálægt bakaraofninum. 11. Hitið bakaraofninn í 210°C, blástursofn í 190°C, setjið kringl- una neðarlega í ofninn og bakið í 20 mínútur. Athugið: Best er kringlan volg, hana er hægt að frysta og hita upp. m-m Svanurinn 300 g hveiti, ’h tsk. salt, 1 msk. þurrger, ’h dl sykur, 1 egg, 'h eggjarauða + 1 hvíta, 50 g smjörlíki, 1 dl mjólk, 30 g smjör til að smyija deigið með, 2 msk. kanilsykur, 1 dl rúsínur, ’h eggjarauða, 2 tsk. vatn, 30 g heslihnetur, 3 tsk. sykur. 1. Sigtið hveiti í skál, setjið salt saman við. Setjið þurrgerið út í. 2. Hrærið eggið, hálfa eggja- rauðu og hvítuna með sykrinum þar til það er ljóst og létt. Hellið út í hveitið. 7. Hrærið hálfa eggjarauðu út með vatninu, smyijið síðan jafnt yfir svaninn. 8. Saxið hnetumar, setjið sykur saman við þær og stráið yfir svan- inn. 9. Leggið hreina diskaþurrku yfir svaninn, setjið hann nálægt bak- araofninum meðan hann er að hitna. 10. Hitið bakaraofn í 210°C, blástursofn í 190°C, setjið plötuna neðarlega í ofninn og bakið í 20 mínútur. Athugið: Best er þetta nýbakað, en það má frysta og hita upp. Stafirnir „200“ 250 g hveiti, 'h tsk. salt, 1 sléttfull msk. þurrger, 1 egg + 1 eggjarauða, 2 msk. sykur, 20 g smjörlíki, 'h dl mjólk, safi úr 1 appelsínu, 1 eggjahvíta, 2 msk. sykur saman við hvítuna, 2 msk. kókosmjöl, rifínn börkur af 1 appelsínu. 1. Sigtið hveiti og salt í skál. Setjið þurrgerið út í. 2. Hrærið egg, eggjarauðu og sykur þar til það er ljóst og létt. Setjið síðan út í hveitið. 3. Bræðið smjörlíkið, setjið í skál, hellið mjólkinni út í. Setjið síðan saman við hræmna. Kreistið saf- ann úr appelsínunni og setjið út í hræruna. Hnoðið saman. Leggið stykki yfir skálina og látið deigið lyfta sér í 20—30 mínútur. 4. Sláið deigið niður, mótið þijár lengjur. Mótið töluna 2 úr einni lengjunni en 0 úr hinum tveimur. Leggið á smurða bökunarplötu eða bökunarpappír. Látið lyfta sér við hliðina á bakaraofninum með- an hann er að hitna. 5. Þeytið hvítuna, setjið sykurinn saman við. Smyijið þessu síðan- jafnt á stafina. 6. Blandið saman rifnum app- elsínuberki og kókosmjöli og stráið yfir. 7. Hitið bakaraofninn í 210°C, blástursofn 190°C, setjið plötuna neðarlega í ofninn og bakið í 15 mínútur. Athugið: Þetta er best nýbakað, en það má ekki frysta. Alþjóðaráðstefna um kjarnorkumál: Ríkjum gert að til- kynna kjamorkuslys Vín, AP. SAMKVÆMT málamiðlunartillögu, sem samþykkt var í gær á al- þjóðaráðstefnu 62 ríkja um kjarnorkumál í Vín, er stjórnum þeirra gert að tilkynna flest kjarnorkuslys. þar á meðal óhöpp af völdum kjarnorkuvopna. Hér er um að ræða drög að samkomlagi, sem lagt verður fyrir Alþjóðakjarnorkumálastofnunina, sem hélt ráðstefnuna, en aðild að henni eiga 112 ríki. Ráðstefnan var haldin á vegum Alþjóðakjarnorkumálastofnunar- innar, en hugmynd um að skuld- binda þau líki, sem hafa yfir kjarnorkuvopnum að ráða, til að skýra opinberlega frá öllum slysum, sem rekja má til slíkra vopna, náði ekki fram að ganga vegna andstöðu Sovétmanna og Bandaríkjamanna. Að sögn stjómarerindreka studdu fulltrúar risaveldanna af- stöðu sína þeim rökum að yrði þeim gert að tilkynna um öll kjarnorku- vopnaslys gæti haft það í för með sér að öryggi ríkjanna væri stefnt í hættu. Frakkar greindu ekki frá afstöðu sinni til málsins, en Banda- ríkjamenn, Bretar og Frakkar buðust til þess að skýra opinberlega frá hugsanjegum kjamorkuvopna- slysum af fúsum og fijálsum vilja, ef það þjónaði öryggishagsmunum þeirra. Samkvæmt samkomulagsdrög- unum er t.d. stjómvöldum þeirra ríkja, sem standa að samþykktinni, skylt að gera ýtarlega grein fyrir því ef stórslys hendir kjarnorkukaf- báta. Þar kemur ennfremur fram að aðstoði stjórn eins ríkis annað ríki vegna kjarnorkuslyss ber að líta svo á að allar upplýsingar þar að lútandi séu trúnaðarmál. Líbanon: Nætur átök Bcirút, AP. SKÆRULIÐAR kristinna manna og múhameðstrúar skutu úr sprengjuvörpum á hvora aðra á mörkum Austur- og Vestur- Beirút aðfaranótt sl. föstudags. Skothríð hæfði kaþólska kirkju í Vestur Beirút og líbanskur prestur lést. Lögregluyfirvöld sögðu að a. m.k. einn annar maður hefði látist og 10 særst. Vopnahléi var komið á um sólarupprás.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.