Morgunblaðið - 17.08.1986, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986
t*
Á slóðum Ferðafélags íslands
Sögurerð um
Reykjavík
EFTIR HÖSKULD JÓNSSON
Ferðafélag íslands óskar íbúum Reykja-
víkurtil hamingju með 200 ára afmælið.
í tilefni þessara tímamóta efnir félagið
til sérstakrar söguferðar um Reykjavík
og nágrenni. Ferð þessi verður farin
sunnudaginn 17. ágúst kl. 10 frá Um-
ferðarmiðstöðinni undir leiðsögn Páls
Líndal. Ekið verður um miðbæinn - elstu
byggð Reykjavíkur - vestur eftir Vesturgötu að Örfíris-
eyjargranda en til baka um Ægisíðu og Suðurgötu. Því
næst verður haldið austur á bóginn um nýju hverfín eft-
ir því sem tími vinnst til en í bakaleiðinni verður farið
niður Laugaveg og Bankastræti og síðan suður Lækjar-
götu. Gert er ráð fyrir að komið verði að Umferðarmið-
stöðinni um kl. 12.
Ferðafélag Islands er féiag allra landsmanna. Rætur
þessa félags liggja um allt land og er það ánægjuefni
að hitta félaga nánast hvar sem leiðir iiggja. Ferðafélag-
Unnið við
aðhlynningu
plantna.
Norðurá vaðin fyrir neðan Laxfoss. Og eitthvað hafa þeir orðið varir á Eyrinni...
Stórgóð veiði í Laxá
í Leir
„Þetta hefur verið gott í sum-
ar, virkilega gott og enn er áin
að gefa vel og full af físki," sagði
Haukur Garðarsson veiðivörður í
Laxá í Leirársveit í samtali við
Morgunblaðið í gærdag. Erlendir
veiðimenn eru enn að veiðum í
ánni og flugan því eina agnið enn
sem komið er. Sagði Haukur að
rigningin á dögunum hefði farið
vel í ána, hún hefði þá aukist
nokkuð og væri nú mátuleg.
„Það eru komnir á þrettánda
hundrað laxar á land og það er
enn að reytast upp fískur úr sjón-
um. Þetta er yfirleitt smálax í
seinni tíð, 4-7 punda, en einstaka
stærri laxar veiðast, t.d. kom ein
virkilega falleg 13 punda hrygna
á land í morgun og sá sem hana
veiddi missti annan lax, stóran
hæng sem var ekki langt frá 20
pundum. Það eru nokkrir slíkir
fantar í ánni nú, kannski að þeir
veiðist er það kemur stuð í þá í
haust. Enn þá hofur ekki veiðst
stærri lax en 18 pund,“ bætti
Haukur við. Um veiðnustu flug-
urnar sagði Haukur, að Green But
væri mikið notuð, einnig Hairy
Mary og Blue Charm, auk þess
sem flugur með gulu hafi gefíð
vel um tíma, Þingeyingur og
Blaek Sheep. Þó sagði Haukur,
að svarta rollan hefði ekki gefíð
nálægt því eins vel og í fyrrasum-
ar þegar menn mokveiddu á hana.
Getum þess að lokum, að í fyrra
veiddust 860 laxar í Laxá og
síðast veiddust yfír 1.000 laxar í
henni sumarið 1978, þá 1.252
laxar. Haukur sagði að áin hefði
einu sinni gefíð 2.200 laxa, líklega
1972, en þá hefði ein stöng veitt
um helminginn á svæðinu frá
Eyrarfossi og upp í Eyrarvatn.
Haukan„pökkuð“
af laxi
„Þetta hefur gengið vel, áin er
pökkuð af laxi og það eru komnir
um 680 laxar á land auk nokk-
urra físka úr ánni ofan vatns,"
sagði Torfí Ásgeirsson umsjónar-
maður með veiðum í Haukadalsá
í samtali við Morgunblaðið í gær-
dag. Til samanburðar má geta
þess, að í ánni allri veiddust í
fyrra 499 laxar, en það var reynd-
ar óvenjulega lélegt og stakk í
stúf við góða veiðibata víðast hvar
annars staðar. Torfí sagði að það
væri lax að ganga í ána nær dag-
lega og þá um morguninn hefðu
t.d. veiðst 8 laxar, margir þeirra
lúsugir.
Um stórlaxa fer ekki mörgum
sögum í Haukinni í sumar, þrír
17 punda fískar eru enn stærstir
og hafa verið það í þó nokkrar
vikur. Hins vegar sagði Torfí að
menn væru að reyna myrkranna
á milli við mikið ferlíki í svokölluð-
um Myrkva, físk sem álitinn væri
25-30 pund, en hylurinn er erfíður
og ekki gjöfull. „Þeir eru þar
margir saman og sumir þeirra
griðarvænir. Það náðist einn í
fyrramorgun, hann var 15 pund,
en svo leginn og horaður orðinn
að hann hefur örugglega verið
19-20 pund nýgenginn. Þetta var
meters langur lax, en nánast kvið-
laus orðinn og lítið annað eftir
en roð og bein,“ sagði Torfi.
Góður heildarsvipur
í Norðurá
Norðurá hefur gefið rétt rúm-
lega 1.500 laxa og styttist nú til
loka vertíðarinnar, en það er að-
eins veitt út mánuðinn. Veiðin
hefur verið frekar dauf að undan-
förnu, enda besti tíminn liðinn í
ánni. Þó hafa ýmsir fengið góð
skot, enda var áin vatnslítil mik-
inn hluta „besta tírnans" og það
ástand hefur batnað. Mikill lax er
í ánni og er hann dreifður um
allt. Best veiðist nú frammi í dal
og „milli Fossa“, en lítið fyrir
neðan Laxfoss þó þar sé víða tals-
vert af laxi.