Morgunblaðið - 17.08.1986, Page 59
,M0RgUNfiLA9I&, ,SUENURAGU%aft ÁftúST;,i986
til húðar. Söluskattur í núverandi
mynd var fyrst lagður á hér á landi
1960 og var þá nokkuð almennur
3% skattur. Frá þessum tíma hafa
aðstæður og viðskiptahættir
breytzt. Sérhæfing í atvinnulífinu,
margföldun skatthlutfallsins og
síðast en ekki sízt aragrúi undan-
þága hafa valdið vaxandi erfiðleik-
um við fullheimtu skattsins. Svo
segir í tilvitnaðri skýrslu um þetta
efni: „Það nálgast því að innheimta
söluskatts í núverandi mynd verði
óframkvæmanleg en slíkt getur
haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir
tiltrú skattþegnanna á réttláta
framkvæmd skattheimtu."
Nágrannaþjóðir hafa flestar
horfíð að virðisaukaskatti. Almennt
er talið mun erfiðara að koma við
svikum þegar virðisaukaskattur á í
hlut. Virðisaukaskattur, án undan-
þága eða án hliðarráðstafana,
myndi hinsvegar hækka verð
ýmissa nauðsynja og [matvæla] hér
á landi, þ.e. þeirra sem undan-
þegnar eru söluskatti. Hér er því
enn og aftur komið að kaupmætti
heimilanna og framfærsluvísi-
tölunni. Hætt er því við að samhliða
virðisaukaskatti þurfi hliðarráðstaf-
anir, einhvers konar, sem kæmu í
veg fyrir verðris helztu nauðsynja
fólks — eða bættu það með öðrum
hætti.
Skattastefna
Oft er talað um að stokka upp
tekjukerfí ríkis og sveitarfélaga.
Gjaman er talað um verkefnaflutn-
ing frá ríki til sveitarfélaga og
[valddreifingu] í leiðinni. í því sam-
bandi er stundum vikið að því að
ríkið haldi sig við eyðsluskatta, þ.e.
skatta í verði vöru og þjónustu, en
sveitarfélögin jrfírtaki tekjusköttun.
Eyðsluskattar hafa þann kost
fram yfir tekjuskatta að enginn
felur eyðslu sína. Reynslan sýnir
hinsvegar að dtjúgur hluti tekna fer
fram hjá skattkerfínu, hér og ann-
ars staðar. Eyðsluskattar koma
hinsvegar verr við stórar fjölskyldur
en litlar. Úr þvl má draga um al-
mannatryggingakerfið.
Hér skal ekki spáð í hver verður
ráðandi skattastefna næstu miss-
era. Hitt er æskilegt að ríkisstjómin
og stjómmálaflokkamir allir tíundi
marktæka og ábyrga skattastefnu
fyrir kosningar, svo kjósendur viti
fyrirfiram hvers konar framtíð þeir
eru að leggja drög að með atkvæði
sínu á kjördegi.
Morgunblaðið/Ingimar Sveinsson
Hótel Djúpivogur hefur verið fullsetið lengst af í sumar. Húsið var
reist um aldamót.
Djúpivogur:
Mikill ferðamanna-
straumur í sumar
Djúpavogi.
SUMARIÐ hefur verið einstak-
lega gott hér eystra, hiti og blíða
dag eftir dag. Mikill fjöldi ferða-
manna hefur farið hér um, bæði
útlendir og innlendir.
Hefur oftast verið þéttskipað á
tjaldstæðinu á Hermannastekkum.
Oftast hefur verið fullbókað á hótel-
inu til gistingar í júlí og það sem
af er ágúst, auk fjölda fólks í mat
og kaffi. Hótel Djúpivogur er starf-
rækt í gömlu sögufrægu húsi sem
Gustav Ivarsen kaupmaður og fleiri
reistu upp úr aldamótum.
Þar svífur um sali andi íslenskra
og danskra heiðursmanna frá fyrri
hluta aldarinnar. Þama verslaði
Carl Bender lengi, einn mesti heið-
ursmaður í stétt dansk-íslenskra
kaupmanna. Hann lánaði gjarnan
viðskiptavinum peninga til að kaupa
stígvél upp í kaupfélagi, ef hann
sjálfur átti ekki stígvél sem hann
taldi nógu góð og sterk.
Hótel Djúpivogur stendur á sjáv-
arbakkanum og þar hefur Sigur-
borgu Hannesdóttur hótelstjóra og
starfsliði hennar tekist að skapa
hlýlegt og gott andrúmsloft og sjáv-
arréttimir hennar Jónínu smakkast
vel.
Vinna hefur verið næg og stöð-
ug. Togaramir hafa flutt mikil
verðmæti I land. Stjömutindur kom
inn 11. ágúst sl. með 83 tonn af
frystri rækju. Auk þess hafa um
tuttugu trillubátar róið og oft aflað
vel.
í frístundum hlaupa strákamir á
völlinn og sparka og eru þar bæði
harðsnúnir liðsmenn Neista og
drengir allt niður í fimm ára.
— Ingimar.
ViÖ óskum
Reykjavíkurborg
íil hamingju með
200 ára
afmœlið
1 S/ippfé/agið íReykjavík hf
Vegna afmælisins verður öllum deildum
lokað eftir hádegi afmælisdaginn.
HASKOLABIO AUGLÝSIR
NÝ MYNDBÖND
MEÐ ÍSLENSKUM TEXTA
VV Vl
Byltingin
Ný stórmynd frá leikstjóra
Chariots of fire og Grey-
stoke, Hugh Hudson, með
úrvalsúrvalsleikurunum Al
Pacino, Donald Suther-
land og Nastassia Kinski.
BYLTINGIN
Tottt Kauta and john Candy
are butldir.g a briöge betw«en
Nýr myndaflokkur byggð-
ur á metsölubók James
Mitchener, með fjölda úr-
valsleikara. Einn vinsæl-
asti sjónvarpsþáttur
heims um þessar mundir
Sjálfboða-
liðar
Stjörnurnar úr Splash, þeir
John Candy og Tom Hanks
fara á kostum í þessari
bráðskemmtilegu
grínmynd.
Fást á öllum betri myndbandaleigum
u-
ÁVÖXTUNSf^
Ath.
Árangur
Ávöxtunar sf.
1) Hæsta ávöxtun hverju sinni.
2) Engin bindiskylda.
3) Enginn kostnaður.
4) Áhyggjulaus ávöxtun.
Kynnið ykkur qármálaráðgjöf Ávöxtunar sf.
VANTAR í SÖLU: Óverðtryggð og
verðtryggð skuldabréf.
OVERÐTRYGGÐ
SKGLDABRÉF:
Ár Ávk. 15.5% 20.0%
1. 7.00 84.3 87.6
2. 8.00 77.6 82.0
3. 9.00 71.6 76.9
4. 10.00 66.3 72.3
5. 11.00 61.7 68.2
áVftXTUNSf^
VERÐTRYGGÐ
VEÐSKGLDABRÉF:
Ár Ávk 4% 5%
1. 12.00 94,6
2. 12.25 91,1
3. 12.50 89,2
4. 12.75 86,2
5. 13.00 83,3
6. 13.25 80,5
7. 13.50 77,8
8. 13.75 75,1
9. 14.00 72,6
10. 14,25 70,1
Fjármálaráðgjöf Verðbréfamarkaður
Ávöxtunarþjónusta
Laugavegi 97 — 101 Reykjavík — Sími 621660