Morgunblaðið - 17.08.1986, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 17.08.1986, Qupperneq 64
j|T EUROCARD^ JgRB* SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Sfldarverksmiðjur ríkisins: 10% hærra kaup á Rauf- arhöfn og Sig’lufirði EFTIR helgina munu verka- lýðsfélögin á Siglufirði og Raufarhöfn taka afstöðu til nýs samnings fyrir starfsfólk í loðnuverksmiðjum Síldar- verksmiðja ríldsins, sem gerður var á fimmtudaginn. Samningurinn er í samræmi við nýlegan samning um kaup og kjör í SR-verksmiðjum á Austurlandi, skv. upplýsingum, sem Morgun- blaðið aflaði sér í gær, og færir starfsfólkinu um 10% hærri laun fcfen gildandi ASI-samningar. í nýja samningnum eru aðeins tveir kauptaxtar, sá lægri gefur um 130 krónur í tímakaup í dag- vinnu en sá hærri um 140 krónur. í verksmiðjunum er unnið á tvískiptum vöktum og vinnur hver vakt um 20 tíma í dagvinnu á viku, um fímm tíma í eftirvinnu og um 50 tíma í næturvinnu. Sam- kvæmt nýja samningnum, verði hann samþykktur í verkalýðsfé- —Ip.gunum og af stjóm Síldarverk- smiðja ríkisins, verður vikukaupið í verksmiðjunum á milli 25 og 30 þúsund krónur — fyrir 72—75 stunda vinnuviku. Formlega er samningurinn á milli Síldarverksmiðja ríkisins og Alþýðusambands Norðurlands. ' Morgunblaðið/Ámi Sæberg BORGARSKALDIÐ AFTUR A STALL Styttan af borgarskáldinu Tómasi Guðmundssyni er nú aftur komin á stall í Austurstræti eftir breytingar, sem gerðar voru á stöpli stytt- unnar. Að sögn Davíðs Oddssonar borgarstjóra þótti stöpullinn, sem áður var, of hár og var styttan því tekin niður á síðasta ári. Arkitekt- amir Dagný Helgadóttir og Guðni Pálsson hönnuðu nýjan stöpul undir styttuna og er hann úr blágrýti. Jafnframt hönnuðu þau marm- arastöpul, þar sem á eru letruð erindi úr kvæði Tómasar, „Austur- stræti", og var honum komið fyrir við hlið styttunnar. Meðfylgjandi mynd var tekin á föstudag eftir að hinir nýju stöplar höfðu verið reistir í Austurstræti. Morgunblaðið/Ami Sæberg Andrés Hafberg, vélstjóri á Hilmi, með einn af gulllöxunum. Hilmir: Framleiða marn- ing úr gulllaxinum HILMIR SU landaði 42 tonnum í Reykjavik a föstudag og var mikill hluti aflans gulllax. í sumar hefur báturinn stundað tilraunaveiðar á gulllaxi. Jóhann Antoníasson sagði að úr fiskinum yrði unninn marningur til sölu í Bretlandi og Noregi. Markaðsverð á þessu hráefni er hátt. Gulllax hefur ekki verið nýttur hér á landi til þessa og renndi útgerð Hilmis því blint í sjóinn. Jóhann taldi aflabrögðin lofa góðu. Frá marsmánuði fram í júni, áður en fískurinn hrygnir, ganga þéttar torfur á miðin suður af landinu. Færeyingar sækja í gull- laxinn og gera tvo togara út á veiðarnar yfir vetrartímann. Hilmir fer nú á loðnuveiðar, en Jóhann sagði að tekið yrði til við gulllaxinn að vori. „Fiskmamingurinn úr gulllax- inum er svona verðmætur vegna þess að hann er einstaklega hreinn og hvítur," sagði Jóhann. „Gulllaxinn á það sameiginlegt með kolmuna að hann þolir ekki geymslu og verður að vinna úr honum innan þriggja daga. Þess vegna heilfrystum við hann og afþíðum fyrir vinnslu." Ætlunin var að vinna fiskinn um borð, en vél sem útgerðin hafði fengið reyndist ekki henta til þess. I næstu viku kemur ný flökunarvél til iandsins og verður þá unnið úr aflanum. Löng bið eftir heyrnartækjum NÆR ÞRJÚ hundruð manns eru nú á biðlista eftir heyrnartækjum, en Heyrnar-og talmeinastöðin, sem er opinber stofnun, annast inn- flutning slíkra tækja. Vegna fjárskorts hefur ekki verið möguleiki á að koma upp birgðum af tækjum. Ingimar Sigurðsson er stjómar- formaður stöðvarinnar og jafnframt lögfræðingur heilbrigðisráðuneytis- ins. Að sögn hans eru framlög á fjárlögum til heyrnartækja afhent stöðinni, sem síðan úthlutar fénu í samræmi við reglur er settar voru í mars síðastliðnum. Samkvæmt þeim fá börn og unglingar að átján ára aldri nú heymartæki án endur- gjalds. Um aðra gildir að greidd eru 60% af verði tækis fyrir eitt eyra, en sé nauðsyn á tæki fyrir hitt eyr- að einnig greiðast 70% af þeim kostnaði. I fyrra tilvikinu er þó ekki greidd hærri upphæð en sjö þúsund krón- ur, í seinna tilvikinu er hámarkið 16 þúsund krónur. Heymar-og talmeinastöðin flytur nær eingöngu inn vönduð, dönsk tæki og hefur náð hagstæðum samningum um þessi kaup. Vill stöðin tryggja sér þau kjör áfram, með því að endurgreiða aðeins kostnað við kaup á dönsku tækjun- um. Þetta hefur sætt gagnrýni. Ekki hefur bætt úr að stöðin hefur aldrei fengið nægilegt fjármagn til að sinna fyllilega eftirspurninni, allt frá því að hún tók við þessari þjónustu, sem áður var í höndum Tryggingastofnunar ríkisins, árið 1980. Hafa jafnvel verið dæmi um, að fólk hafi farið til útlanda til að kaupa sér heyrnartæki, þegar bið- lundina hefur þrotið. Ingimar vildi ekki kannast við, að um einokun væri að ræða, leyfi- legt væri að flytja inn tæki frá öðrum aðilum. Danir væru núna í fararbroddi í framleiðslu á heyrnar- tækjum, en vel gæti þó komið til greina, að stofnunin leitaði hófanna um kaup hjá öðrum fyrirtækjum t.d. í Bandaríkjunum. Varðandi fjárskortinn vildi Ingi- mar leggja áherslu að síðan 1980 hefði þjónusta við heymarskerta verið stóraukin. Mestu skipti að úti á landsbyggðinni hefði verið leitað uppi heyrnarskert fólk, einkum börn, sem ella hefðu getað átt í miklum námserfiðleikum vegna fötlunar sinnar. Á öllu landinu er talið að séu um 5 þúsund manns, sem þurfa á heyrnarþjónustu að halda. Varðandi Ijárskortinn sagði Ingimar, að með 1,5 milljóna króna viðbótarfjárveit- ingu frá því í vor myndi takast að halda í horfinu með núverandi þjón- ustu. I sumar var heilbrigðisráð- herra afhent skýrsla stöðvarinnar um ástand og horfur í málefnum heyrnarskertra. „Til þess að koma upp í eitt skipti fyrir öll viðunandi birgðum af heymartækjum þyrfti aukafjár- veitingu, er næmi um 10 milijón- um,“ sagði Ingimar að lokum. Þrjú tilboð bárust í Norðurstjörnuna FRESTUR til að skila kauptil- boðum í fiskvinnslu og niður- suðufyrirtækið Norðurstjörnuna í Hafnarfirði rann út í gær og bárust þijú tilboð. Framkvæmdasjóður ásamt ríki og Hafnarfjarðarbæ er stærsti hluthafínn og sagði Tómas Arna- son, stjómarmaður sjóðsins, að á þessu stigi málsins væri farið með tilboð þessi sem trúnaðarmál með- an verið væri að meta þau og kanna þau veð sem kaupendur koma til með að setja. Vildi hann því ekki ræða nánar um málið að svo stöddu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.