Morgunblaðið - 31.08.1986, Side 1

Morgunblaðið - 31.08.1986, Side 1
194. tbl. 72. árg. Bandaríkin; Vöruskipta- jöfnuður aldrei óhagstæðari Wahington, AP. Vöruskiptajöfnuður Banda- ríkjanna hefur aldrei verið óhagstæðari en i júlímánuði, að þvi er embættismenn sögðu í gær. Hann var 18 milljarðar Bandarikjadala, sem samsvarar um 720 milljörðum íslenskra króna. Innflutningur á unnum vörum jókst í nær öllum vöruflokkum, þrátt fyrir lækkandi verð Banda- ríkjadals, en talið hafði verið að fall hans yki sölu bandarísks iðn- varnings. Óhagstæður vöruskiptajöfnuður fyrstu sjö mánuði ársins nam tæp- lega 102 milljörðum Bandaríkja- dala, en með því áframhaldi verður hallinn samtals um 175 milljarðar dala þegar árið er liðið. Í fyrra var hann 145,48 milljarðar og hafði aldrei verið meiri. í júlí voru fluttar inn vörur fyrir 35.7 milljarða dala en í júní fyrir 32,2 milljarða. Útflutningur minnk- aði hins vegar um 1,4 milljarða og nam útflutningur júlímánaðar því 17.7 milljörðum dala. Zulu-höf ðinginn Buthulezi: Stefna Tutus leiðir til ofbeldis Durban, AP. ZULU-höfðinginn Mangosuthu Buthulezi sagði nýlega í ræðu, að vestræn ríki skyldu vara sig á mönnum eins og Desmond Tutu biskupi, þar sem stefna hans leiddi til ofbeldis. Hann sagði að fengju Tutu og hans líkar að ráða yrði ný stjóm Suður-Afríku svarinn fjand- maður Vesturlanda. Buthulezi minnti á að Tutu hefði sagt á fréttamannafundi, sem hann hélt að lokinni för sinni til Japans, Kína og Jamaíka, að hann hataði kapítalisma. Buthulezi sagði að löndin þrjú hefðu tekið við Tutu eins og handhafa friðarverðlauna Nóbels sæmdi, en hann spurði einnig að hvaða leyti Tutu ætti friðarverðlaun skilin. „Tutu hefur barist fyrir einangrun Suður- Afríku, því að erlend fyrirtæki hætti fjárfestingu þar og hann hefur barist fyrir viðurkenningu Afríska þjóðarráðsins, sem hefur valdatöku í Suður-Afríku efst á blaði hjá sér.“ Buthulezi sagði Tutu predika óumflýjanleika of- beldis og dró friðarvilja biskupsins í efa. 104 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 SUNNUDAGUR 31. AGUST 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Morgunblaðið/Ámi Sæborg „PRÓFASTUR" Herþyrla ferst und- an ströndum Noregs: Tveir látnir og sex saknað Osló, AP. TVEIR létust og sex manna er saknað eftir að bandarisk her- þyrla fórst undan ströndum Norður-Noregs í fyrrinótt. 21 maður var um borð í þyrlunni og tókst að bjarga þrettán, en tveir þeirra eru þungt haldnir. Leit er haldið áfram að þeim sem saknað er. Arlegar haustæfingar flota Atl- antshafsbandalagsins eru nýhafnar við Noreg. Þyrlan var frá banda- ríska herskipinu Saipan, sem þátt tekur í æfíngunum og var í flug- taki er hún rakst utan í aðra þyrlu með fyrrgreindum afleiðingum. ----------- » « Marokkó: Ríkjasam- bandi við Líbýu slitið Rabat, AP. HASSAN II, konungur Marokkó, sleit í gær rikjasambandi því, sem verið hefur við lýði milli Marokkó og Líbýu í tvö ár. Til- kynnti hann Moammar Gadhafi, leiðtoga Líbýu, að farið hefði verið út fyrir „mörk þess, sem unnt væri að þola“. Með þessu var konungur að skírskota til yfirlýsingar, sem birt var í Tripoli, höfuðborg Líbýu, í kjölfar heimsóknar Hafez Assad, forseta Sýrlands, þangað í vikunni. Þar var fundi Hassans og Shimons Peres, forsætisráðherra ísraels, í síðasta mánuði lýst sem svikum. 1.746 dóu vegna eitur- gassins frá Nios-vatni Þjóðarsorg í Kamerún í gær: — samkvæmt tölum Neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna Yaoundf, Kamerún, AP. FÁNAR blöktu í hálfa stöng í Afrikuríkinu Kamerún í gær er minnst var fómarlamba eitur- gassins úr gígvatninu Nios með eins dags þjóðarsorg. Ennþá er ekki fullljóst hversu margir lét- ust, en samkvæmt tölum sem Neyðarhjálp Sameinuðu þjóð- anna lét frá sér fara á föstudag- inn eru þeir hálft átjánda hundrað. Allt viðskiptalíf landsins lá niðri í gær. Útvarp flutti einungis stuttar fréttir, minningarguðsþjónustur um hina látnu voru haldnar um landið allt og öllum öðrum samkomum var aflýst Pierre Semengue, hershöfðingi, sem hefur haft yfirumsjón með neyðarhjálp á svæðinu, sagði að tala fórnarlamba eiturgassins væri nú 1.535. Sú tala væri þó ágiskun byggð á mannfjöldaskýrslum og fjölda eftirlifenda. Neyðarhjálp Sameinuðu þjóðanna segir að tala látinna sé 1.746. Umheiminum varð ekki kunnugt um það sem gerst hafði fyrr en íbúar svæðisins, sem sóttu vinnu til nágrannabæjánna Wum og Nkambe, sneru heimleiðis. 600 manns liggja í sjúkrahúsum misjafnlega þungt haldnir vegna áhrifa eiturgassins. Yfirmenn hjálparstarfsins hafa lýst yfir ánægju sinni með þá að- stoð sem borist hefur frá öðrum löndum. Allar nauðsynlegar ráð- stafanir hafí verið verið gerðar og ástand á svæðinu sé nú smá saman að komast í eðlilegt horf. Helsta vandamálið er að allt drykkjavatn verður að flytja fólki, þar sem ótt- ast er að allt vatn á svæðinu sé mengað af eiturgasi. Vísindmenn eni komnir til Nios. Þeir munu kryfja hina látnu til þess að komast að hinni raunverulegu dánarorsök og rannsaka hvort hætta sé á að atburður sem þessi endurtaki sig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.