Morgunblaðið - 31.08.1986, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 31.08.1986, Blaðsíða 64
64 MORGUNBLAÐH), SUNNUDAGUR Sffi AGÚST 1986 ’ t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HELGA HJÖRDÍS HJARTARDÓTTIR, Hamraborg 30, Kópavogi, sem lést þann 24. þ.m., verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriöjudaginn 2. september kl. 13.30. Siguröur Siggeirsson, Jónas Guðmundsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Rúnar Guðmundsson, Hjördís Davi'ðsdóttir, Hjördis Guðmundsdóttir, Hilmar Guðbjörnsson, Kristín H. Guðmundsdóttir, Herluf Griiber, barnabörn og barnabarnabörn. t GUÐMUNDUR MAGNÚSSON bókari, Álftamýri 10, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 2. september kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabameins- félag íslands. Jóhanna Kristjánsdóttir, Guðlaugur Guðmundsson, Sigriður Guðmundsdóttir, Helga G. Guðmundsdóttir, Hjálmtýr Sigurðsson, Anna G. Guðmundsdóttir, Guðjón Steinþórsson og barnabörn. t Bróðir minn, mágur okkar og frændi, EINARJ. EIRÍKSSON, verður jarðsunginn frá Aðventkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 2. september kl. 15.00. Ragnheiður S. Jónsdóttir, Björgvin Kristófersson, Hólmfrfður Þórhallsdóttir, Guðmundur Sigurðsson. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIGERÐUR GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR Sólvallagötu 45, Keflavik, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 2. september kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hjartavernd. Ingólfur Eyjólfsson, synir, tengdadætur og barnabörn. t Útför eiginkonu minnar, LÁRU PÁLSDÓTTUR, verður gerð frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 2. sept. kl. 13.30. Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna, barnabarna og barnabarna- barna, Leó Sigurðsson. > t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR J. ARADÓTTUR frá Seljalandi, Brekkuhvammi 2, Búðardal. Jón E. Hallsson, Hallur Jónsson, Ástaug Bragadóttir, Lóa Björk Hallsdóttir, Jón Eggert Hallsson, Ingunn Þóra Hallsdóttir, Helgi Rafn Hallsson. Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASON HF STEINSÍnlÐJA SKEMMUÆGI 48 SiMI 76677 Kurt Juuranto — in memoriam Mánudaginn 18. ágúst síðastlið- inn fór bifreið út af veginum rétt vestan við Helsinki. Okumaður hennar var Kurt Juuranto, aðalræð- ismaður íslands, og lést hann í sjúkrahúsi skömmu síðar. Þannig gerðist það í annað sinn, að ísland missti sviplega og fyrir aldur fram aðalræðismann í Helsinki. Hinn fyrri var faðir Kurts, Erik Juur- anto, sem lést sextugur á sjúkra- beði. Síðan heimsstyijöldinni lauk fyrir Úórum _ áratugum hafa opinber tengsl Islands við Finnland mjög tengst nafninu Juuranto. Þeir feðg- ar voru aðalræðismenn, og um árabil hefur yngri bróðirinn Kai verið ræðismaður í Helsinki. Hófust þessi tengsl, er sendiherra íslands í Stokkhólmi á stríðsárunum, Vil- hjálmur Finsen, kynntist finnskum kaupmanni, Erik Juuranto. Hafði hann keypt síld og fleiri vörur frá Islandi, og varð hugfanginn af landinu. Varð hann áhugasamur fulltrúi fyrir ísland í Finnlandi, ekki síður í menningarmálum en við- skiptum, virtur og kunnugur fyrir- mönnum beggja ríkja. Juuranto stofnaði um tvítugt Lejos Oy, sem er eitt stærsta inn- flutningsfyrirtæki Finna. Synir hans hófu báðir störf við það og tóku við stjóm þess að honum látn- um. Kurt varð ræðismaður 1960 og aðalræðismaður eftir lát föður síns. Gegndi hann því starfi hátt á þriðja áratug með reisn og virðu- leik. Hann hafði og tekið ástfóstri við ísland og íslendinga, fór þangað margar ferðir og hafði ætlað sér að vera í Reykjavík nú um mánaða- mótin. íslendingar standa í mikilli þakkarskuld við Kurt Juuranto fyr- ir allt það, sem hann gerði fyrir þá. Kurt var hvers manns hugljúfí í persónulegum kynnum, hógvær og vinfastur. Hann stýrði fjölskyldu- fyrirtækinu af dugnaði, en utan viðskiptaheimsins átti hann sér áhugamál í listum og bókum. Um það, svo og tengslin við ísland, ber hið fagra heimili í Helsinki glöggt vitni. Kona hans, Leona, er glæsileg athafnakona, sem rekur annað fyr- irtæki á öðru sviði af miklum þrótti. Þau eiga einn son, Juha. Kurt Paul Erik Juuranto fæddist 21. júní 1927 í Helsinki. Hann var því 59 ára gamall er hann lést svo sviplega. Við hið óvænta fráfall Kurts syrgi ég góðan vin og félaga, og horfi á bak traustum og fómfúsum aðalræðismanni, sem vann mikið ævistarf fyrir samband Islendinga og Finna, báðum þjóðum til gagns. Islendingar munu lengi geyma minningu hans. Benedikt Gröndal, sendiherra. Kurt Juuranto, aðalræðismaður Islands í Finnlandi, er látinn. Hann fórst af slysförum mánudaginn 18. ágúst sl. 59 ára að aldri. Kurt Juur- anto var annar tveggja góðra manna er veitti mér liðsinni við fyrstu komu mína til Finnlands 4. júlí 1961. Kunningsskapur okkar nær yfir aldarfjórðung. Árið 1961 var hann nýtekinn við störfum af föður sínum, Erik Juuranto. Mér er það enn ljóslifandi fyrir hugskotssjónum er ég kom með allan farangurinn inn á skrifstofu hans við Kaisaniemigötu í miðborg Helsingfors þennan sólríka júlídag fyrir 25 ámm. Kurt var fljótur að útvega mér þak yfír höfuðið á stúdentagarði við Estnásgötu og það var hann sem var innan handan við að útvega atvinnu. Oftsinnis var gengið við á ræðismannsskrifstofunni það sum- ar, þangað komu íslensk blöð og var jafnan boðið kaffi er Kurt var við. Oft sátum við að spjalli yfir kaffi- bolla, enda var Kurt viðræðugóður maður. framkoma hans var fáguð og bar merki áhugamála hans, sem vom listir og bókmenntir. Hann var hlédrægur maður að eðlisfari, lítt gefinn fyrir gleðskap í margra manna hópi. Þeim mun minnisstæð- ari em í dag þægilegar samræður yfir kaffíbolla, þar sem saman fór fáguð framkoma og hlýtt hjartalag. Við höfðum nefnt það fyrir ári að minnast 25 ára afmælis okkar fyrsta fundar á þessu sumri. Sumarleyfi og annir höfðu dregið að af því yrði. Nú verður það því miður ekki. En minningin um góðan dreng fylgir þeim sem eftir lifa. Eiginkonu hans, syni og öðmm aðstandendum votta ég djúpa sam- úð. Borgþór S. Kjæmested Kveðjuorð: SigríðurL. Hjaltested Fædd 31. júlí 1970 Dáin 25. ágúst 1986 Mig langar til þess að festa minn- ingar mínar á blað um þetta elskulega bamabam mitt. Hún fæddist 31. júlí 1970, fyrsta bam foreldra sinna, Bám Guðmunds- dóttur og Lámsar Hjaltested. Fyrstu mánuði iífs síns bjó hún með foreldrum sínum á heimili mínu og tók þar sín fyrstu spor. Síðan hófu þau búskap á næsta bæ, Syðstu-Gmnd, og var þar stutt á milli vina. Hún átti bágt með að vita ömmu sína eina á dimmum vetramóttum og ég minnist þess að eitt sinn er þessi litli geisli var kominn í rúmið sitt og átti að fara að sofa, þá varð að klæða hana aftur og austur í Blömastofa fnöfinm Suöurlandsbrairt 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvötd til kl. 22,- éíiinig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. & bæ til Siggu ömmu varð hún að komast svo amma yrði ekki ein. Síminn hringdi, í símanum var móðir hennar og sagði: „Uttu vest- ur fyrir, það er lítil stúlka á leiðinni til þín.“ Svona var öll hennar hugs- un, eins og allir sem henni kynntust vita vel. Alltaf var hún eins og bros- andi sólargeisli hvar sem hún kom. Allt var svo bjart í kringum hana, eftir því sem hún komst á legg fannst mér myndast æ sterkari vinabönd okkar á milli. Það er erfitt að trúa því að svona sé komið, við skiljum ekki þann til- gang lífsins að taka hana svo unga frá okkur, þegar allir töldu að lífíð væri rétt að byija. Sigga mín var óvenju bráðþroska til lífs og sálar og 25. nóvember síðastliðinn eignaðist hún lítinn dreng, Birgi Þór, og var hún þó ung væri mikil móðir svo eftir var tek- ið. Síðustu helgi lífs hennar voru þau unnusti hennar, Þorsteinn Birg- isson, í mikilli eftirvæntingu að ræða upphaf búskapar síns og höfðu tekið ákvörðun þar að lút- andi. Mikill er missir þeirra, ég bið Guð almáttugan að gefa þeim stjrrk í þessari miklu reynslu, einnig for- eldrum hans, Birgi og Jóhönnu, sem reyndust litlu stúlkunni minni svo vel. Draumur sem hana dreymdi og sagði frá rétt fyrir andlát sitt er okkur sem eftir lifa huggun harmi gegn þar sem við vitum að Guð- mundur afí tekur á móti henni. Elsku foreldrar hennar og litlu systkin, Guð megi vaka yfír heimili ykkar og gefi ykkur styrk í því sálarstríði sem á ykkur hefur verið lagt. Blessuð sé minning hennar. Sigga amma LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 681960
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.