Morgunblaðið - 31.08.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.08.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1986 Aðalfundur Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi: Skipulag og hlutverk sam- bandsins endurskoðað 20 ára afmælis SSA minnst á föstudag TVEGGJA DAGA aðalfundi Sambands sveitarfélaga í Austurlands- kjördæmi var slitið á föstudag á Egilsstöðum. Rúmlega 90 manns sóttu fundinn, en auk atkvæðisbærra fulltrúa voru allir þingmenn kjördæmisins viðstaddir og fjöldi gesta. Fundinum lauk með stjómar- kjöri og nefndarkosningu, og var Björn Hafþór Guðnason, sveitar- stjóri á Stöðvarfirði, endurkjörinn formaður sambandsins. Að SSA eiga aðild 34 sveitarfé- lög. Bjöm Hafþór sagði að á fundinum hefði komið fram tillaga um að skipa nefnd til að endur- skoða skipulag og hlutverk sam- bandsins með hliðsjón af nýjum sveitarstjómarlögum. Samþykkt var að fela stjórninni þessa endur- skoðun, með sérstöku tilliti til hlutverks „þjónustusvæðanna" átta innan kjördæmisins. Sambandið leggur til að lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga verði breytt, þannig að tekjur hans mið- ist við ákveðinn hundraðshluta af tekjum ríkissjóðs. Fundurinn taldi að framlag til þeirra sveitarfélaga sem veita afslátt frá hámarksnýt- ingu útsvars beri að skerða sem því nemur, og sjóðurinn eigi að einbeita sér að því að jafna tekjur sveitarfé- laganna. Af öðrum tillögum sem fundurinn samþykkti nefndi Bjöm Hafþór ítrekaða áskomn til Vega- gerðar ríkisins um að hefja nú þegar undirbúning á lagfæringu heilsárs- vegar milli Vopnafjarðar og Héraðs. Aðalfundurinn skoraði einnig á yfírvöld heilbrigðismála. Austfírð- ingar vilja aukin fjárframlög til heilsugæslustöðva með einn lækni, þannig að hægt sé að bæta öðmm lækni við hálft árið. Þá taldi fundur- inn rétt að sérfræðingar á sviði tannlækninga heimsæki kjördæmið með reglubundnu millibili. „Fjöldi þeirra sem þurfa að leita til Reykjavíkur eða Akureyrar vegna tannréttinga er mjög mikill," sagði Bjöm. „Á fundinum kom fram að á Neskaupstað einum þurfa 30 böm að fara mánaðarlega til Reykjavík- ur í þessum erindagjörðum, og ástandið er svona víðar. Okkur fínnst hagkvæmara að Múhameð komi til fjallsins en það þurfí að færa sig úr stað.“ Sambandið er tvítugt á þessu ári. Var þess sérstaklega minnst í lokahófí sem haldið var í Hótel Valaskjálf á föstudagskvöld. Heið- ursgestur aðalfundarins, Jóhann Clausen fyrrum bæjarstjóri á Eski- fírði, sem er eini eftirlifandi maðurinn úr fyrstu stjóm SSA, hélt þar erindi um tildrögin að stofnun sambandsins og fyrstu starfsárin. Auk Björns Hafþórs verða stjóm- armenn næsta starfsárið þessir: Snorri Geirsson, Neskaupstað, Hrafnkell Á. Jónsson, Eskifírði, Sigfús Guðlaugsson, Reyðarfírði, Birgir Hallvarðsson, Seyðisfírði, Aðalbjöm Bjömsson, Vopnafírði, Ólafur Ragnarsson, Búlandshreppi, Þór K. Sigurðsson, Nesjahreppi, og Þráinn Jónssson, Fellahreppi. Framkvæmdastjóri sambandsins, Sigurður Hjaltason var endurráð- inn. Trúður er meðal skemmtikrafta á sýningunni og hefur hann vakið kátinu yngstu gestanna. Heimilið ’86: Góð aðsókn það sem af er Ríkissjóður: Hallinn 0,5% minni af landsframleiðslu HALLI ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsframleiðslu fyrstu sex mánuði þess árs er 1,2%, en var á sama tíma í fyrra 1,7% og eru endurlán ríkissjóðs ekki talin með. Eins og kom fram í frétt Morgun- blaðsins í gær er halli ríkissjóðs fyrri hluta ársins um 2.583 milljón- ir króna. Af hallanum stafa 917 milljónir króna af vaxtahalla end- urlána ríkissjóðs, sem fram til þessa hafa ekki verið talin með. Að þessu leyti eru tölur um halla ríkissjóðs ekki sambærilegar við fyrri ár. Sé endurlánum hins vegar sleppt, þá kemur í ljós að hallinn er 0,5% minni af landsframleiðslu en á síðasta ári. Árið 1984 var hallinn hins vegar 0,20% af vergri lands- framleiðslu. AÐSÓKN að Heimilissýningunni ’86 sem nú stendur yfir í Laugar- dalshöll hefur verið ágæt til þessa. „Þetta hefur gengið mjög vel,“ sagði Þorsteinn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri sýningarinnar, í samtali við Morgunblaðið. „Það komu hátt í tvö þúsund manns að sjá sýninguna fyrsta daginn og erum við að vona að aðsóknin taki undir sig stökk um helgina." Um 500 boðs- gestum var boðið til opnunarinnar á fimmtudaginn og var hún síðan opnuð almenningi eftir ldukkan 18. „Fyrstu tveir dagamir eru alltaf gengið hingað til,“ sagði Þorsteinn. rólegir, en svo fer fólkið að streyma inn eftir það, sérstaklega um helg- ar,“ sagði Þorsteinn. Heimilið ’86 verður opin virka daga frá kl. 16 til 22, en um helg- ina frá klukkan 13 til 22. Aðgangs- eyrir er 350 krónur fyrir fullorðna og 150 krónur fyrir böm. „Taugastrekkingurinn er svona að fara úr manni eftir allan undir- búninginn og við emm mjög ánægðir með hvemig þetta hefur Hann sagðist vonast til' þess að kostnaðaráætlun við framkvæmd sýningarinnar stæðist, en til þess að dæmið gengi upp, þyrfti nokkra tugi þúsunda gesta. „Okkur virðist sem fólk sé ánægt með sýninguna og ég veit að fyrir- tækin eru að undirbúa ýmsar uppákomur fyrir gestina. Veðurspá- in var góð fyrir helgina og svo verður úrslitaleikur á Laugardals- velli, þannig að ég spái því að helgin verði góð,“ sagði Þorsteinn að lok- um. Margeir Pétursson, stórmeistari, tefldi við á þriðja tug gesta á opnun- ardegi sýningarinna og tefldi hann fyrstu skákina við Albert Guð- mundsson, iðnaðarráðherra. Margeir vann skákina, en sagði að iðnaðarráðherra hefði varist vel og komist út í endatafl. Hafi þá verið jafnt á mönnum, en ráðherra hafí haft heldur lakara endatafl. Mar- geir tapaði einungis einni skák af þeim tæpu 30 sem hann tefldi og hafði sá sýningargestur unnið skák- ina á forgjöf. í frétt um sýninguna í Morgun- blaðinu á föstudag, var Þorsteinn Sigurðsson ranglega nefndur Þor- steinsson, og biðst blaðið velvirðing- ar á því. Sýning á alþjóðlegum fréttalj ósmyndum Fréttaljósmyndasýningin „World Press Photo ’86“ var opnuð í gær, laugardag, i Lista- safni ASÍ, Grensásvegi 16. Á sýningunni eru þær 180 ljós- myndir er hlutu verðlaun í ár í alþjóðlegri samkeppni World Press Photo Foundation í Amst- erdam. Sýningin verður opin daglega til 14. september, virka daga kl. 16.00—20.00 og um heigar frá kl. 14.00—22.00 og verður kaffistofa safnsins opin, a.m.k. um helgar. í tengslum við sýninguna verða flutt bæði erindi og tónleikar. Hörmungamar í Kólombíu, þegar þorpið Armero grófst undir leðju í kjölfar eldgoss og þúsundir létu lífið, voru viðfangsefni margra Ijósmyndara er myndir eiga á sýn- ingunni, m.a. er fréttaljósmynd ársins, „Þjáningar Omairu Sanch- ez“ úr samnefndum myndaflokki, tekin þar. Sunnudaginn 31. ágúst, kl. 16.00, mun Guðmundur Sig- valdason, jarðfræðingur, flytja erindi um náttúruhamfarir þær i Kólombíu er ollu hörmungunum. Sunnudaginn 7. september kl. 16 mun séra Bemharður Guðmunds- son tala um ástandið í Afríku, sem einnig hefúr verið fréttaljós- myndurum hugleikið viðfangs- efni, og ræða á hvem hátt það ástand varðar íslendinga. Þá verða haldnir píanótónleikar í tengslum við sýninguna, sunnu- daginn 14. september kl. 16.00 þar sem Halldór Haraldsson leikur verk eftir Franz Liszt, en í fyrra voru liðin 175 ár frá fæðingu tón- skáldsins og voru veitt sérstök verðlaun, kennd við Liszt, fyrir þá ljósmynd er best þótti túlka þýðingu tónlistar í menningar- samfélagi og áhrif hennar á daglegt líf. Fyrstu verðlaun í flokki ljós- mynda úr Iistaheiminum og einnig Franz Liszt-verðlaunin hlaut þessi mynd Svians Thor- björns Anderson frá Expressen í Stokkhólmi af hinum sjö ára gamla Michael Olsson, Önnur verðlaun í flokki augnabliksmynda voru veitt fyrir þessa Ijósmynd Carol Ann Guzy, ljósmyndara blaðsins Miami Herald, Miami í Bandaríkunum, af síðasta lífsmarki fómarlambs nátt- úruhamfaranna í Armero í Kólombíu. En margar Ijósmyndir frá harmleiknum í Armero voru meðal þeirra er hlutu verðlaun. Þessi myiid Davids Parker frá Kalifomíu hlaut fyrstu verðlaun í flokki augnabliksmynda eða „Spot news“. Hún sýnir hvar sjö ára stúlku, Shannon Jones, er bjargað úr klóm föður sfns, sem hélt böraum sínum fjómm i gíslingu i sex klukkustundir, vegna þess að móðir þeirra hafði yfirgefið hann, en gafst upp að lok- um án blóðsúthellinga. Ljósmyndari bæjarblaðsins Yuba-Sutter Appeal Democrat festi frelsunina á filmu og lýsir sjálfur mynd- inni þannig að hún túlki spennu þá og ofbeldi sem fylgir mannráninu á táknrænan hátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.