Morgunblaðið - 31.08.1986, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 31.08.1986, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1986 Bræðraminning: * Guðmundur O. Guðmundsson og Helgi Guðmundsson Fæddur 19. júlí 1906 Dáinn 13. júlí 1986 Einn af okkar elstu og mætustu félögum í UMF Vorblóm á Ingj- aldssandi, Önf., Guðmundur Óskar Guðmundsson frá Brekku, bóndi á Seljalandi í Skutulsfirði, lést af slys- förum 13. júlí sl.' Með honum er fallinn dáðadrengur félagsmála og mannúðar. Guðmundur var ætíð hlýr í viðmóti, brosmildur, frumleg- ur í leik og störfum, hjálpsamur mörgum nágrannanum við bygg- ingar á þeirri byggingaröldu er reis í sveitunum milli 1930—1960. Hjálp hans kom fram í ýmsum hagleik og iðni að tileinka sér allt það besta og nýjasta á hveijum tíma til hjálp- ar félögum sínum til mestra nota. Að leggja raflagnir í steinhús og önnur hús tókst honum ágætlega. Þessi verk öll vann hann með gleði og af mikilli innri þörf til að hjálpa. Eftir miðjan aldur gifti hann sig og gerðist bóndi í hálfri Tungu og Seljalandi, fyrrum búgarði þeirra ísfírðinga. Hann hafði fyrst allstórt kúabú, en minnkandi með árunum, en var þá meira með sauðfé. I starfi bóndans var Guðmundur maður á réttum stað, athugull, snyrtimenni og frábær skepnuhirð- ir, jafnvel frumlegur í 'verkum sínum við húsdýrin. Kom þar til þekking hans á rafmagni, til ljósa og margra smærri verka, til hag- ræðis og léttis í önn dagsins. Guðmundur Óskar var mörgum kær og fyrirmyndarsonur á heimili for- eldra sinna, svo hlýr, glaður og viljugur til allra starfa, hvort sem þurfti að fara „á ból“ og mjólka ær og kýr, eða fara fyrir móður sína eða systur niður að á eða út í læk að „skola og klappa" fata- þvottinn og helst þegar kaldast var. Þá var hann og laginn að laga allt á heimili sínu er aflaga fór „fyr- ir tímans tönn“. Ég minnist Guðmundar Óskars frá bemsku og æskuárunum, sem eins besta og andríkasta félaga í leik og starfi, og eins og fyrr segir í UMF Vorbíóm, þar áhugasamur í fundarstörfum og útkomu félags- blaðsins Ingjalds í bundnu og óbundnu máli. Þá minnist ég hans sem 12 ára drengs á skólabekk hjá mér árin 1918—1920 — bros og hlýtt handtak. Við þökkuðum hvor öðrum alla tíð þær gömlu sam- verustundir. Nú er komið að kveðjustundinni. Hinn algeri brest- ur kominn á samstarfíð, fullkominn skilnaður hafínn. Jafn ylrík hönd mun verða honum rétt ofan af himnunum eins og hann rétti vinum sínum hér á jörðinni, meðan líf ent- ist. Kær kveðja og góðar óskir til eiginkonu hans og fóstursonar. Farsæld og þökk og fyrirbænir fylgja Guðmundi frá systkinum, vinum og vandamönnum. í Guðs friði. Guðmundur Bernharðsson frá Ástúni. Helgi Guðmundsson á Brekku fæddist á Þórustöðum í Önundar- fírði 22. október 1899, en í bemsku fluttist hann með foreldrum sínum að Brekku á Ingjaldssandi. Þar ólst hann upp og þar stóð heimili hans alla ævi. Foreldrar hans voru Guðmundur Einarsson og Guðrún Magnúsdóttir kona hans. Guðmundur er þjóð- kunnur maður af þvi sem um hann hefur verið skrifað. Guðmundur Hagalín ritaði þátt um hann í bók- X-Töfðar til n fólks í öllum starfsgreinum! ina Þrek á þrautum en meira verk er ævisaga hans sem Theodór Gunnlaugsson á Bjarmalandi ritaði og heitir: Nú brosir nóttin. Það voru refaveiðamar, þekking og skilningur á refnum íslenska sem leiddu þá Theodór saman svo að bókin varð til. Börn þeirra Guðmundar og Guð- rúnar urðu alls 17 og af þeim komust 12 til fullorðinsára. Áður eignaðist Guðmundur fjögur börn með annarri konu og eru þijú þeirra á lífí. Helgi var elstur bama Guð- rúnar og yngsta systirin 27 ámm yngri. Hann vann heimilinu á Brekku alla tíð meðan systkini hans vom í ómegð og reyndist því góður liðsmaður lengur sem og vanda- mönnum sínum víðar. Helgi stundaði ekki skólanám eftir fermingu annað en það að hann sótti námskeið fyrir eftirlits- menn nautgriparæktarfélaga hjá Búnaðarfélagi íslands. Hann var ámm saman eftirlitsmaður félag- anna í Önundarfírði, Dýrafírði og Skutulsfirði. Hann var félagsmaður góður og starfaði mikið f ung- mennafélagi og skógræktarfélagi. Hreppsnefndarmaður var hann um skeið. Þegar Helgi var kominn á efri ár og lífskjör manna vom orðin rýmri og fijálslegri tók hann sér stundum orlof eins og aðrir menn. Þeim stundum varði hann einkum til að skoða land sitt og kynnast náttúm þess. Hafði hann þá jafnan myndavél með sér og notaði hana vel. Þegar ég lít um öxl fínnst mér að vandfundinn sé maður sem oftar og víðar hefur komið til hjálpar og liðs en Helgi á Brekku. Hann var lagtækur vel og vann oft við smíðar og lagfæringar á húsum eða ný- byggingar. Fannst mér alltaf að hann tæki jafnan öðm fremur mið af því hve þörfin væri brýn. Helgi var einhleypur alla tíð og lögheimili hans var á Brekku. Hins vegar var hann aufúsugstur allra systkina sinna og fjölskylduböndin traust. Og víðar náðu vinsældir hans. Helgi á Brekku naut þess að verða góðu máli að liði. Áður var minnst á ungmennafélög, skóg- rækt, búfjárrækt og náttúmskoðun. Það segir til um hver maðurinn var. Hvarvetna var hann góður þegn og einlægur liðsmaður. Við Helgi á Brekku vomm báðir framsóknarmenn. Út á við hefur kannske meira borið á mínu hlut- verki en hans. En ekki er allt sem sýnist. Helgi var reiðubúinn að taka að sér mín föstu störf svo að ég gæti vikið mér frá ef henta þótti. Sagðist hann þá gjaman geta gefíð flokknum nokkur dagsverk eins og hver annar. Hann var jafnan hinn góði þegn og ömggi liðsmaður. Það mætti rita langt mál um Helga á Brekku. Hér verða þessi fáu kveðjuorð látin nægja um land- græðslumanninn. Hann vildi vel og var hugsjónum sínum trúr í hljóð- látri hollustu. Mættu sem flestir líkjast honum. H.Kr. IHT CKJARABYLTINCp jMÝTT ENGIN ÚTBORGUN og eftirstöðvar á 11 mánuðum fyrir handhafa Eurocard-kreditkortanna V Hágæða myndbandstæki með alla rr -. Ulvllvtt, Og svo kostar það aðeins 37.980,-kr staðgreitt eða 43.980,-kr á afborgunar kjörum 83 rásir. ' 12 forvalsstillingar. ' 14 daga upptökuminni með 4 mismunandi tímum. ‘ Föst dagleg upptaka. ' Þráðlaus fjarstýring með 13 stjórnaðgerðum. ' Truflanalaus samsetning á mynd í upptöku. ' 5-föld hraðleitun fram og til baka. ' Kyrrmynd. ' Rafeindateljari. ' Teljaraminni. ' Sjálfvirk spólun til baka ' o.fl. o.fl. SKIPHOLTI 19 SIMI 29800 o ««* 0000 i j ■ n n i C ■ u u ti ÐíSPiAr ( ÍWÍEKS JPR05BAMS EURO KRIEDIT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.