Morgunblaðið - 31.08.1986, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Lausar stöður á
dagvistarheimilum
Við höfum verið beðnir að útvega starfsfólk
til starfa í eftirtalin störf á dagvistarheimilum
borgarinnar.
Fóstrur, aðstoðarfólk á deildum,
aðstoð við börn með sérþarfir og
talkennara.
Um er að ræða störf í eftirtöldum hverfum:
Vesturbær
Hlíða- og Háaleitishverfi
Langholts- og Laugarneshverfi
Breiðholtshverfi
Árbæjarhverfi
En sérstaklega vantar starfsfólk í Iðuborg,
Laugaborg, Steinahlíð, Tjarnarborg, Val-
höll, Múlaborg
Ráðningartími er strax eða eftir nánara sam-
komulagi.
Til greina koma heilsdagsstörf og hlutastörf,
aðallega eftir hádegi.
Hugsanleg fyrirgreiðsla varðandi dagvistun.
Við hvetjum alla þá er áhuga hafa á þessum
störfum að hafa samband við skrifstofu okk-
ar og leita nánari upplýsinga.
QtðntTónsson
RÁÐCJÖF &RÁÐN1 NCARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Einkaritari
Athafnamaður með mörg járn í eldinum, í
þjónustugrein, vill ráða einkaritara til starfa,
sem fyrst.
Hún sér um bréfaskriftir, telex, daglega
skipulagningu, mætir á fundum ásamt skyld-
um verkefnum, kemur ekkert nálægt fjármál-
um eða bókhaldi.
Leitað er að sjálfstæðum aðila með reynslu
og þekkingu á þessu sviði, örugga og aðlað-
andi framkomu, skipulögð vinnubrögð.
Góð tungumálakunnátta nauðsynleg.
Góð laun verða greidd. Nánari uppl. á skrif-
stofu, en þangað skulu umsóknir sendast,
sem fyrst.
CnÐNT IÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐN 1 NCARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Skrifstofustörf
Stofnun í borginni vill ráða í nokkur laus rit-
arastörf sem fyrst.
Um er að ræða almenn skrifstofustörf ásamt
vélritun, einnig starf við gagnaskráningu.
Starfsreynsla er æskileg en ekki nauðsynleg.
Einnig vantar í ritarastarf þar sem smávegis
bókhaldskunnátta þarf að vera fyrir hendi.
í öllum störfum er möguleiki á námskeiða-
haldi. Nánari upplýsingar á skrifstofu.
ÓUDNT TÓNSSON
RÁÐCJÖF &RÁÐNINCARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍM1621322
Okkur vantar fólk f
eftirtalin störf:
1. Lagermann sem sér um hráefnislager.
2. Aðstoðarfólk í prentun.
3. Starfsfólk í pokaframleiðsludeild.
Upplýsingar gefnar á staðnum (ekki í síma)
milli kl. 13.00 og 17.00 næstu daga.
Nastoi IiF
Krókhálsi 5.
Sölu- og
markaðsstörf
Við erum að leita að starfsfólki fyrir nokkur
góð fyrirtæki í þjónustugreinum til starfa að
sölu og markaðsmálum. Góð undirstöðu-
menntun nauðsynleg, ásamt öruggri
framkomu, skipulögðum vinnubrögðum og
helst einhver reynsla á þessu sviði eða í
skyldum störfum ásamt sölumannshæfileik-
um.
Þessi störf henta jafnt konum sem körlum
og góð laun eru í boði.
Við hvetjum þá er áhuga hafa að koma við
og ræða málin, það er fyrsta skrefið.
QjðntTónsson
RÁÐCJÖF & RÁÐN I N CARÞJÓN U 5TA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Góð þjónusta
Við viljum ráða ungan, frískan mann til af-
greiðslu og sölustarfa í Húsgagnaverzlun
okkar.
Við leitum að manni á aldrinum 25-45 ára.
Lipur og þægileg framkoma nauðsynleg.
Reynsla af verzlunarstörfum æskileg.
Skriflegar umsóknir er greini aldur, menntun
og fyrri störf sendist á augldeild Mbl. fyrir
lok þriðjudags merktar: „K — 1926“.
KRisuán
SIGGEIRSSOn HE
Laugavegi 13.
Góð þjónusta
Við viljum ráða starfsmann til afgreiðslu í
gjafavöruverzlun okkar.
— Við leitum að starfsmanni á aldrinum
25-45 ára.
— Lipur og þægileg framkoma nauðsynleg.
— Starfsreynsla æskileg.
— Um hálfsdagsstarf er að ræða.
— Lifandi starf — glæsileg verslun.
Skriflegar umsóknir er greini aldur, menntun
og fyrri störf sendist fyrir lok þriðjudags á
augld. Mbl. merktar: „P -*• 1925".
f/% KRISTJfln
SIGGEIRSSOn HF.
m
Laugavegi 13, Reykjavík,
sími25870.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Rafmagnsiðnfræðingur óskast til starfa í inn-
lagnadeild Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Upplýsingar um starfið gefur starfsmanna-
stjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pótshússtræti 9, 6. hæð
á sérstökum eyðublöðunh sem þar fást.
Hjúkrunarfræðingar
velkomnirtil Osló
Lille Toyen er hjúkrunarheimili sem er mið-
svæðis á fallegum stað í Osló.
Heimilið skiptist í 3 deildir og rúmar 86 vist-
menn. Við hliðina er fjölbýlishús með starfs-
mannaíbúðum.
Hér eru lausar stöður fyrir hjúkrunarfræð-
inga. Laun eftir starfsaldri auk vakta- og
helgidagaálags 680-790 þús ísl.kr. á ári.
Skriflegar umsóknir sendist til:
Lille Teyen Sykehjem
Hovinvn. 6, Oslo 5, NORGE
NESCO var stofnaö 1968. Fyrstu 6-8 árin vann fyrirtækiö eingöngu aö
hefðbundnum innflutningi og sölu heimilisrafeindatækja hór á íslandi.
Áriö 1975 var stofnaö til sams konar rekstrar í Noregi. Var sá rekstur
síöan aukinn og færöur yfir til Svíþjóöar 1978. Frá 1980 hefur NESCO
þróaö og framleitt sínar eigin vörur, á sama vörusviöi. Fer framleiðslan
fram í verktakaverksmiðjum í Japan, Kóreu og V-Þýzkalandi, i vaxandi
mæli undir eigin vörumerkjum; NESCO og XENON.
Verktakaverksmiöjur fólagsins eru allt stórfyrirtæki, sem standa framar-
lega í tækniþróun í heiminum. Markaössvæði fyrirtækisins hefur fram til
þessa eingöngu veriö Noröurlöndin fimm, þar sem markaöshlutdeild þess
er nú um 10% á sviöi myndbandstækja, sem veriö hefur helzti vöruflokkur-
inn. Um þessar mundir er síöan veriö aö ganga frá samningum viö hollenzka
og belgiska aöila um dreifingu Benelux. Auk þess hefur NESCO hafiö sölu
á geislaspilara úrvali fyrirtækisins í V-Þýzkalandi og mun væntanlega fara
af staö meö sölu á sömu tækjum í Bretlandi á næstunni. Aö því er stefnt,
aö koma upp skipulegu dreifingarkerfi fyrir heildarvöruúrval NESCO um
alla Evrópu innan 3-5 ára.
Styrkur NESCO liggur í langri og víötækri reynslu, víöfeömri vöruþekk-
ingu, lágmarks tilkostnaði, magnframleiöslu og -sölu og tvöföldu/þreföldu
dreifingarkerfi á hverjum markaöi.
NESCO þarf nú aö ráöa í eftirfarandi stööur á utanlandssviöi félagsins:
Aðstoðar-
framleiðslustjóri
Framleiðsludeildin vinnur að tækjaþróun og
-hönnun, samningi notkunarleiðarvísa, hönnun
umbúða, gæðastýringu og -eftirliti, viðurkenn-
ingarmálum (hjá erlendum raffanga-prófunum
og öryggis-stofnunum), gerð þjónustuhand-
bóka, þjónustunámskeiðahaldi (fyrir umboðs-
menn), varahlutaþjónustu ofl., auk stjórnunar á
framleiðslumálunum sjálfum, samskipta við
verktakaverksmiðjur, vörumeðferðar, lager-
halds og vöruafgreiðslumála.
Leitað er að tæknimenntuðum manni, t.a.m. á
sviði rafeinda-, rafmagns- eða vélaverkfræði,
sem jafnframt hefði nokkra menntun á sviði
markaðssetningar og sölu. Nauðsynlegt er, að
viðkomandi sé kaupsýsluhneigður og almennt
verulega áhugasamur um þau verkefni, sem
NESCO vinnur að. Fullkomið vald á ensku,
bæði skriflega og munnlega, og gott vald á
einu Evróputungumáli (Norðurlandamáli) er
skilyrði. Viðkomandi þarf jafnframt að hafa vilja
og getu til að leggja sig allan fram í starfi og
vinna undir miklu álagi, en utanlandssvið
NESCO vinnur, auðvitað, í eitilharðri alþjóð-
legri samkeppni. Launakjör eru í samræmi við
þetta og eru framtíðarmöguleikar verulegir.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
allra fyrst.
Varnings- og
markaðsstjóri
utanlandssviðs
Til þessa hafa framleiðsludeild og söludeild
utanlandssviðs NESCO skipt með sér þessum
verkefnum, sem nú á að stofna nýja deild til
að sinna. Deild þessari er ætlað að fylgjast
náið með allri varningsþróun á viðkomandi
sviði, hafa áhrif á tækjaþróun félagsins, styðja
við bakið á sölunni með ráðum og dáð og vinna
að alhliða útbreiðslu- og kynningarmálum,
bæði hvað varðar félagið og varning þess.
Æskileg menntun er blönduð tækni-/viðskipta-
menntun. Skilyrði er mikill áhugi á heimilisraf-
eindatækjum og kaupsýslu. Að öðru leyti vísast
til þess, sem sagt er hér að ofan (undir aðstoð-
ar-framleiðslustjóri). Þó er meira svigrúm um
byrjunartíma hér, t.a.m. væri nóg að viðkom-
andi byrjaði 1. janúar nk., jafnvel síðar.
Fyrirspurnum/umsóknum um ofangreind
störf skal beina til Þórólfs Árnasonar, fram-
leiðslustjóra NESCO, Laugavegi 10, sími
27788. Verður um hvortveggja fjallað af full-
um trúnaði. Stefnt er að frágangi ráðninga
í september.
wugavegmo aÆ})
\\msími27788 /rvy