Morgunblaðið - 31.08.1986, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 31.08.1986, Blaðsíða 31
MÓRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1986 31 Hann minntist ekki á Græningja í ræðu sinni en talaði um mikilvægi umhverfisvemdunar, afvopnunar og minni kjamorkuframleiðslu. Jafnaðarmannaflokkurinn trúði á framtíð kjamorkunnar fyrir tíu ámm og uppbygging kjamorkuvera hófst í stjómartíð hans. Hrifning flokksins af orkuverunum hefur dvínað með árunum en Rau var enn talsmaður þeirra á síðastliðnu ári. Flokkurinn sneri endanlega baki við kjamorku eftir slysið í Chemobyl. Nú hefur hann á stefnuskrá sinni að uppbyggingu nýrra vera verði hætt og starfandi kjamorkuver dragi smátt og smátt úr framleiðslu sinni og hætti henni alveg eftir tíu ár. Rau er nokkm fhaldssamari en flokkurinn í þessu máli, sem sumum öðmm. Hann sagði að draga yrði úr kjamorkuframleiðslu en nefndi ekki ákveðna tímasetningu í sam- bandi við hvenær ætti að hætta henni alveg. Hann tók í sama streng og stór meirihluti flokksins og sagði að Bandaríkjamenn ættu að fjarlægja meðaldrægar eldflaugar frá Vest- ur-Þýskalandi. En hann er í hópi þeirra sem kæra sig ekki um ein- hliða aðgerðir Vestur-Þjóðveija og sagði í ræðu sinni að Sovétmenn yrðu að fjarlægja nýjar SS 20- eldflaugar frá Austur-Evrópu um leið og Pershing II-flaugamamar og stýriflaugamar verða Qarlægð- ar. Hann er andvígur hugmyndum um geimvamarkerfi Bandaríkja- manna og sagði að stjóm hans myndi hætta þátttöku í samstarfí um það. Jafnaðarmenn geta verið ánægð- ir með landsfundinn í NUmberg. Eining ríkti að minnsta kosti á yfir- borðinu og Rau setur miðflokksbrag á flokkinn eftir nokkurra ára vinstrisveiflu. En flokkurinn á enn eftir að fóta sig. Hann hefur nú 40% fylgi kjósenda samkvæmt skoðanakönnunum. Hann talar ekki lengur máli verkalýðsins og Klaus Harpprecht, fv. ræðuskrifari Brandts, efast um að nokkur þeirra sem sóttu landsfundinn hafi unnið hörðum höndum um langt skeið. Harpprecht segir að „brúnaþungir og áhyggjufullir íbúar einbýlis- húsahverfa", kennarar og „tæki- færissinnar í framaleit" hafi sett svip sinn á fundinn og ákveði nú stefnu flokksins. Brandt, sem er 73ja ára, var endurkjörinn formaður Jafnaðar- mannafiokksins. Hans-Jochen Vogel, formaður þingflokksins, og Rau voru kjömir varamenn hans. Vogel var einkar sviplaust kansl- araefni í síðustu kosningum þegar flokkurinn hlaut 38,2% atkvæða. En Vogel nýtur trausts innan flokksins og getur unnið með Brandt. Helmut Schmidt og Brandt gátu ekki unnið saman. Þeir em á öndverðum meiði í vamarmálum en Schmidt átti hugmyndina að stað- setningu meðaldrægra eldflauga í Vestur-Evrópu. Hann nýtur lítilla vinsælda í flokknum og fékk vart meira en kurteisisklapp þegar hann talaði á landsfundinum að lokinni ræðu Raus. Hann tók undir orð hans um að flokkurinn myndi áð- eins sigra í kosningunum ef jafnað- armenn fylgdu kanslaraefni sínu eftir. Hann bætti við að flokkurinn myndi aðeins sigra ef hann stæði heilshugar að baki Ieiðtoga sínum og sagðist beina þessum orðum að nokkmm mönnum sérstaklega. Hann kvatti flokkinn til að styðja Rau í kosningabaráttunni og einnig næstu fjögur árin. Schmidt talaði af eigin reynslu. Hann tapaði stuðn- ingi flokksins og Jafnaðarmanna- flokkurinn hefur ekki náð sér á strik eftir það. Nú er að duga eða drep- ast með Rau, segja vestur-þýskir jafnaðarmenn og spyija: Ef hann getur ekki leitt flokkinn til sigurs, hver getur það þá? (Höfundur er búsettur í Sviss og er fréttaritari Morgun- blaðsins.) Lærið vélritun Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar. Ný námskeið að hefjast mánudaginn 8. sept- ember. Engin heimavinna. Innritun og upplýsingar í síma 76728 og 36112. Vélritunarskólinn Suðurlandsbraut 20 sími 685580 HEKLU-BILASALUMN ei opinn íiá kl. 13 til 17 laugardag og sunnudag 30. ■ 31. ágúst PAR GEFUR AÐ LÍTA FARARTÆKI FRAMTÍÐARINNAR UNDRABÍLINN FRÁ MITSUBISHI MP-90X Ferdamáti framtíöarinnar.- □ Leiösagnarkeríi tengt gervitungli □ Stjórnkeríi sem tekur miö af öllum umhverfisþáttum □ Útlitshönnun sem minnir á geimíar NOTADIR BÍLAR: Bfiasalan BJALLAN verður opin á sama tíma TÖLVUVÆDD BÍLAVIDSKJPTI HF Laugavegi 170-172 Simi 695500 Nú er tilvaliö aö kíkja inn hjá kaupmanninum og krœkja sér í bita af ljúfíengu fjallalambi — eöa kaupa þaö í heilum og hálfum skrokkum á ótrúlega hagstœöu veröi. Verðlœkkunin gildír í takmarkaðan tima. TlMABÆfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.