Morgunblaðið - 31.08.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 31.08.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGÚR 31. ÁGÚST 1986 5 Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir Frá setningu þings Fjórðungssambands Norðlendinga á Siglufirði. Er fylgjandi þriðja slj órnsýslustiginu - sagði Steingrímur Hermannsson á fjórðungsþingi Norðlendinga Siglufirði, frá Jóliönnu Ingvarsdóttur blaðamanni Morgunblaðsins. Fjórðungsþing Norðlendinga var sett á Siglufirði á föstudag og hefur aðalumræðuefni þings- ins verið byggðamál og þá helst til hvaða ráða skuli grípa svo byggðaröskun eigi sér ekki stað. Forsaetisráðherra, Steingrímur Hermannsson, flutti framsögu á þinginu og sagðist mjög eindreg- ið vera fylgjandi því að þriðja stjórnsýslustiginu yrði komið á laggirnar. Hann sagði að nauðsynlegt væri að auka tekjur landsbyggðarinnar og færa henni verkefni í hendur. Það yrði öruygglega fljótt að skila sér í jákvæðri byggðaþróun. Hins vegar væri það staðreynd að sum sveitarfélögin væru það smá að þau hefðu ekki bolmagn til þess að standa undir slíku — þess vegna væri þriðja stjórnsýslustigið afar mikilvægt. „Það virðast þó ekki vera margar hugmyndir á lofti hjá mönnum úti á landi um hvaða verkefni skuli færð frá ríkinu og út á landsbyggð- ina,“ sagði Steingrímur. „Ekki virðist vera mikill áhugi sveitar- stjómarmanna fyrir skólaakstrinum og ég hef heldur ekki orðið var við áhuga manna á því að hémð verði sameinuð, eins og hugmyndir um þriðja stjómsýslustigið jafnvel gera ráð fyrir." Steingrímur sagðist telja að ákvörðun meirihluta stjómar Byggðastofnunar á sínum tíma, þegar ákveðið var að hafa stofnun- ina áfram í Reykjavík, hafí verið rétt. Hins vegar sagðist hann vera hlynntur þeirri hugmynd að setja bæri upp stjómsýslumiðstöðvar úti á landi, til dæmis fyrir austan, norð- an og vestan. Þá sagði ráðherrann að óhjákvæmilegt væri að auka tekjur ríkisins enn frekar til þess að geta staðið undir þeirri þjónustu sem nú þegar er fyrir hendi. Steingrímur sagði í samtali við Morgunblaðið að ríkisstjómin hefði rætt um það á fundum sínum hvem- ig haga bæri valddreifingu úti á landi og hefði til dæmis komið þar til tals að flytja anga af heilsugeir- anum þangað og ennfremur væru fleiri hugmyndir á lofti, sem hann vildi ekki ræða opinberlega fyrr en ríkisstjómin hefði átt fund með þeirri nefnd sveitarstjómarmanna, sem falið hefði verið að fjalla um þessi mál. „Það em liðin 10—12 ár síðan fyrst var farið að ræða þetta. Ég er því alls ekki bjartsýnn á að þetta takist fljótlega, nema að til komi þriðja stjómsýslustigið eða að sveit- arfélögin sameinist," sagði Steingrímur Hermannsson. TERRA HEFUR FLUTT! Ja, po TERRA se ung feroaskrífstofa, þá höfum við þegar FLUTT mikinn fjölda ánægðra farþega til vinsælla staða. EN NÚ HÖFUM VIÐ FLUTT OKKUR SJÁLF í NÝJA HÚSIÐ Á HORNI LAUGAVEGAR OG SNORRABRAUTAR Hjá okkur fáið þið farseðla um allan heim og a//a almenna feröaþjón- ustu og jafnvel svolitið meira! T.d. bjóðum við viðskiptavinum okkar nú ennþá betrí og aukna þjónustu i rúmgóðum og glæsileg- um húsakynnum. Komið eöa hringið og kynniö ykkur fjölbreytt úrval vetrarferða okkar: FLORIDA, MADEIRA, THAILAND, KANARÍEYJAR o.fl. Auk hinna sívinsælu helgar- og vikuferða til helstu stórborga heims. FERÐASKRIFSTOFAN ^jjjTerra _Snorrabraut 27-29 105 Reykiavík | Símar 2 97 40 og 62 17 40 ÝTT SÍMANÚMER 1-00 Það getur verið gaman að sleppa stundum fram af sér beislinu. Hoppa og skoppa, kasta bolta í mark, dorga fyrir vinning í veiðipottinum eða fara í hlutaveltuna. Allt þetta og miklu meira í SKEMMTILANDI. Eitthvað fyrir alla. Sjáumst á sýningunni. OGHí! Heimilið'86 Laugardalshöll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.