Morgunblaðið - 31.08.1986, Side 9
MÖRGÍJNBLAÐIÐ, SUNNUD'aGUR SlJ'AÖUST 1986§
HUGVEKJA
„Heldur frelsa
oss frá illu“
eftir EINAR J. GÍSLASON
„Heldur frelsa oss frá illu,“
er áttunda og síðasta bæn Faðir-
vorsins. Það gegnir furðu hve
það illa er mannkyninu tamt og
aðgengilegt. Á dögum Nóa sá
Guð að illska mannsins var mik-
il á jörðunni og allar hugrenn-
ingar hjarta hans væru ekki
annað en illska alla daga. Upp-
skeran af slíku hugarfari varð
eyðing í Nóaflóði. Illska, harka
og mannvonska er mikil víða um
heim í dag og kærleikur alls
þorra manna hefur kólnað. Last-
alíf með klámi og siðleysi flæðir
yfir. Blygðunarlaust tala menn
um feimnismál og athugasemda-
laust er það látið viðgangast,
að karlmaður leggist með karl-
manni. í 3. Mósebók 20 kap.
versið 13, stendur svo: „Og legg-
ist maður með karlmanni, sem
kona væri, þá fremja þeir báðir
viðurstyggð. Blóðsök hvílir á
þeim“. Voru einhverjir að tala
um Aids, blóðsjúkdóm, sem
kemur fram einkanlega meðal
slíkra? Þetta er einkenni okkar
tíma og samkvæmt Biblíunni,
þá var varað stranglega við slíkri
viðurstyggð. „Frelsa oss frá
illu“.
Daniel spámaður gaf Beltsas-
ar konungi í Babel góð ráð, svo
vel mætti fara fyrir honum.
Danielsbók 4. kapituli, versið 27:
„Lát þér því konungur geðjast
ráð mitt: Losa þig af syndum
þínum, með réttlætisverkum og
af misgjörðum þínum, með líkn-
semi við aumingja. Ef hamingja
þín yrði við það langærri." Spá-
dómur um Jesúm Krist hjá
Jesaja spámanni 7. kap., versið
15. „Við súrmjólk og hunang
skal hann alast. Þá er hann fer
að hafa vit á að hafna hinu illa
og velja hið góða.“ Þannig er
saga okkar allra. Við verðum
að hafna hinu illa og velja hið
góða. Páll postuli kennir „Að
vorir menn eigi að læra að
stunda góð verk, — sem prýða
kenningu Guðs vors frelsara í
öllum greinum." „Berið hver
annars byrðar og uppfyllið þann-
ig lögmál Krists. Því að sá sem
sáir í hold sjálfs síns, mun af
holdinu uppskera glötun. En sá
sem sáir í andann, mun af and-
anum uppskera eilíft líf.
Margt illt mætir mannkyninu
í dag. Furðu gegnir um eiturlyf
og örvandi efni, sem selt er með
IJllska, harka og mannvonska er mikil
víða um heim í dag og kœrleikur alls
þorra manna hefur kólnað. “
okri meðal fólksins. Þeir sem
slíka iðju stunda eru með því
að leggja fjölda lífa í rúst. Þetta
kitlar og vekur forvitni. Fyrr en
maður veit af er hann orðinn
fastur í vímunni. Þá eru sjálfsvíg
eina lausnin hjá alltof mörgum.
Foreldrar og aðstandendur
standa magnþrota gegn þessum
vágestum. Davíð konungur átti
þessa bæn, að mega frelast frá
hinu illa. En hvemig? í Davíðs-
sálmi 119, vers 9, stendur svo:
„Með hvetju getur ungur maður
haldið vegi sínum hreinum? Með
því að gefa gaum að Orði þínu.“
Hann vildi og hafa fyrirbyggj-
andi aðgerðir í sínu lífi og hann
bætti við: „Eg geymi Orð þín í
hjarta mínu til þess að ég skuli
ekki syndga gegn þér.“
Drengir og stúlkur eru ekki
há í loftinu þegar þeim mætir
freisting og þá til að gjöra hið
illa í svo margvíslegum mynd-
um. Þá þarf bænin að koma
fram: „Frelsa oss frá hinu illa.“
Foreldrar þurfa að hjálpa börn-
um sínum og standa fast með
þeim. Jafnvel í hógværri ögun.
Mikilhæfur prestur var spurður
eitt sinn af ungum foreldrum:
„Eigum við að nota vönd við
ögun bama okkar? Ég gerði það
í örfáum tilfellum, þegar brýn-
asta réttlæti krafðist þess. Ég
vildi heldur gera það við dreng-
inn minn þegar hann var
ósanngjarn við systur sína held-
ur en að stefnt yrði með agaleysi
að lögreglan þyrfti að beija hann
með kylfum síðar meir.“ „Frelsa
oss frá illu.“
BORNIM VEUA
pkiymobil
TOmSTUnDRHUSID HF
lcugouegilCí-Rcutjouit s^lSOl
FJARFESTINGARFELÁGD
ulRÐBRIFAMARKAÐUMMM
U.
31. ÁGÚST 1986
Markaðsfréttir
Veðskuldabréf - verðtryggð
Lánst. 2 afb. áári Nafn- vextir HLV Sölugengi m.v. mism. ávöxtunar- kröfu
12% 14% 16%
1 ár 4% 95 93 92
2ár 4% 91 90 88
3 ár 5% 90 87 85
4ár 5% 88 84 82
5ár 5% , 85 82 78
6ár 5% 83 79 76
7 ár 5% 81 77 73
8ár 5% 79 75 71
9 ár 5% 78 73 68
10 ár 5% 76 71 66
Veðskuldabréf - óverðtr.
Lánst. 1 afb. áári Sölugengi m/v. mism. nafnvexti
20% HLV 15%
1 ár 89 84 85
2 ár 81 72 76
3ár 74 63 68
4 ár 67 56 61
5 ár 62 50 56
KJARABRÉF
Gengl pr. 29/8 1986 = 1,673
Nafnverð
5.000
50.000
Söluverð
8.365
83.650
Þetta stendur á bak við
KJARABRÉFIN í dag:
Bankabréf o.fl. 8,2%
Óverðtryggð bréf 5,2%
Sjálfskuldar-
ábyrgðarbréf o.fl. 14,9%
Verötryggð
veðskuldabréf 41,3%
Spariskírteini
ríkissjóðs 30,4%
GÓÐ ÁVÖXTUN
FRAMUNDAN FYRIR
EIGENDUR
KJARABRÉFA:
Lækkun á vöxtum eldri
flokka spariskírteina mun
leiða til aukinnar ávöxtunar
KJARABRÉFA vegna
gengishagnaðar.
f jármál þín - sérgrein okkar
Fjárfestinqarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. ® (911 28566, ■£? (91) 28506 simsvan aiian sóiarhnnoinn