Morgunblaðið - 31.08.1986, Síða 33
' MÖlÍGÖNtíLÁÍjlÐ; stíííííÚÉÍÁGUk'§£■ ÁSSÖ§¥5tóé6
svo sem ekki annað en ein tegund
af orðheldni, en orðheldni er aftur
dæmi um mannlega reisn — það
að „standa sig". Guðmundi virðast
menn ekki eins minnugir á loforð
sín og skuldbindingar nú á dögum
og áður fýrr, „það er að verða ólíft
í þjóðfélaginu vegna þess að það
er ekki lengur hægt að treysta
fólki; maður er að hitta fleiri og
fleiri, sem virðast ekki hafa tíma
til að rifja upp fyrir sér áform sín
og loforð. Kannski er það hraðinn,
sem þessu veldur, því ekki hefur
mannlegt eðli breyst, svo mikið
er víst," segir hann.
Sé Guðmundur spurður hvað
honum finnist mest einkennandi í
eigin fari, segir hann, og hugsar
sig skemur um: „Að beita ork-
unni, reyna að gera eitthvað betur
en aðrir og betur en maður hefur
áður gert,“ og bætir svo við fyrir-
varanum: „þó er ekkert nokkru
sinni nógu gott." Þarna er kannski
komin skýringin á gífurlegum af-
köstum Guðmundar; sjálfur segist
hann hafa haldið sér í góðri heilsu
með því að skrifa eina bók á ári,
og það raunar í aukavinnu, því
lengst af starfsævi sinnar var hann
skólastjóri og ritstjóri vikublaðs.
„Vellíðan fylgir hverjum verklokum
og það er alltaf gott að fá hrós,
en slíkt endist ekki nema í mesta
lagi einn dag. Ég er strax orðinn
eirðarlaus aftur og verð að skrifa
meira," segir hann, og gefur blaða-
manni þar með færi á að spyrja út
í skriftir hans undanfarna mánuði.
Vatnið
Þeirri spurningu er svarað með
því að ná í tvær möppur, geymdar
inni í gömlu svart/hvítu sjónvarpi,
sem nú hafði fengið nýtt hlutverk
sem bókahilla við skrifborð Guð-
mundar. Blaðamaður hafði reynd-
ar veitt þessari „bókahillu"
sérstaka athygli þegar hann gekk
til stofu og hugsað sem svo að
þetta væri nú skoðun bókamanns-
ins á því hvernig sjónvarpið kæmi
að bestum notum. Aðspurður
þvertók Guðmundur fyrir það og
sagðist hafa annað í fullum lit á
jarðhæðinni.
En í möppunum voru tvö óbirt
handrit, sem Guðmundur hafði
skrifað á þessu ári og því síðasta.
Annað þeirra er „Fertugasta ár
Frosta", opinská sjálfsmynd, að
sögn Guðmundar, og fer ekki leynt
með að reynsla Frosta á þessu
fertugasta æviári hans er býsna lík
reynslu höfundarins. „Hina skáld-
söguna kalla ég einfaldlega
„Vatnið". Hún gerist á okkar dög-
um við Þingvallavatn, þótt það sé
ekki nefnt því nafni í sögunni, og
íar að því sem í vændum er. Bænd-
ur, biskupar og spíónar ríkisstjórn-
arinnar eru farnir að braska með
landið, virkja vatnið og reka stál-
sköndla tæknialdar niður í jörðina
í leit að orku. Annars er þetta ást-
arsaga. Aðalpersónan er kona,
sem býr við Vatnið. Kannski er það
fjallkonan sjálf."
Hér staldrar Guðmundur við og
kemst að þeirri niðurstöðu að
óheppilegt sé að skýra of nákvæm-
lega frá söguþræði óbirtrar skáld-
sögu í blaðaviðtali. „Ég held við
segjum ekki meira um efni bókar-
innar, þótt hún komi ekki út fyrr
en á næsta ári í fyrsta lagi," segir
hann. Blaðamaður er hins vegar
að hugsa um það hvers konar saga
þetta eiginlega sé. Og þykist skilja
að hér séu á ferðinni ýmis tákn,
sem lesandanum sé ætlað að ráða
í. Og spyr út í það.
„Eg nota táknin til að ná lífsvið-
horfi mínu inn í söguna án þess
að gera það augljóst. Hins vegar
ætlast ég ekki til að þau séu skilin
einhverjum ákveðnum skilningi. Ég
segi minn sannleika, en hver mað-
ur hefur sinn sannleika og túlkar
því söguna í Ijósi hans. Sannleikur-
inn er margbreytilegur og satt að
segja efast ég um að það sé til
nokkur endanlegur sannleikur. Það
er leitin að sannleikanum sem
mestu máli skiptir," segir Guð-
mundur og blaðamaður ákveöur
að setja punktinn aftan við viðtalið
hér til að fá ekki kvöldsólina í aug-
un á heimleiðinni. En veltir fyrir sér
á leiðinni út í bíl hvers vegna leitin
að einhverju, sem ekki er til, skipt-
ir svona miklu máli. -GPA
Enskunámskeið
Kvöldnámskeið í ensku hefjast 15. septem-
ber. Kennt er í litlum hópum tvisvar í viku.
Kennari: Anne Cosser.
Innritun stendur yfir. Uppl. alla daga í síma
36016.
Uppl. um skóla í Englandi í sama síma.
Frá Skáksambandi íslands
íslandsmeistaramót í skák í drengja- og
telpnaflokki 14 ára og yngri hefst föstu-
daginn 5. sept. kl. 19.00. Teflt verður að
Grensásvegi 46 Reykjavík.
Innritun á mótsstað kl. 18—19 5. sept.
Það er aðeins eitt sem getur umbreytt lífi þínu á aðeins 4 dögum
Þú getur sigrast á fram-
taksleysi, feimni og
óöryggi.
Þú getur eytt streitu, kviöa
og eirðarleysi.
Þú getur bætt heilsufar
þitt, marksækni og árangur.
Þú getur lært að stjórna
eigin vitund og styrkt viljann.
EK EM þjálfunin er 4 daga
námskeið sem byggir á
nýjustu rannsóknum í tón-
listarlækningum, djúp-
siökun, sjátfs-dáleiðslu,
draumastjómun og beit-
ingu ímyndunaraflsins.
Ásetningur EK EM þjálfun-
arinnar er að umbreyta
hæfileika þínum til að upp-
lifa lífið þannig að vandamál
sem þú hefur verið að
reyna að breyta eða hefur
sætt þig við hverfa í fram-
vindu lífsins sjálfs.
Skráning:
Þrídrangur, sími 622305 kl.
14.00-18.00 daglega.
Kynningarfundur:
sunnudaginn 31. ágúst kl. 20
Hótel Esja (Þerney)
Tími:
2 kvöld og 2 dagar. Byrjar 4.
sept.
Verð: 3600 (slökunarkass-
etta innifalin).
AÍJAN DACAR
AFLQRIDA.
FYRIR 25~5QO:-
F^loridaferðir Polaris hittu greinilega ímark. Eftirspurnin varslíkaðgisti-
rýmin seldust upp á svipstundu. Nú höfum við útvegað fleiri glstirými
ásérstökukynningarverði, krónur25,500.-fyrir 18 dagaá Florida. Pökk sé
hagstæðum samningum Ferðaskrifstofunnar Polaris og beinu flugi Flugleiða.
eiðin liggurbeint til Orlando og þaðan er ekið til St. Petersburg
og dvalið ígóðuyfirlæti við Mexicoflóann. Fram til 1. nóvemberer
flogið um New York til Tampa en við það hækka fargjöldin um kr. 4,000. -
Okkarfarþegarláta vel af hótelunum Alden, Sun DialogCoral
Reef. Allarhótelíbúðirnareru með velbúnu eldhúsi, smekklegum
húsgögnum, sjónvarpi og öllum þægindum. Og ekki má gleyma
sundlaugunum og hótelgörðunum.
JEJI eynslan sýnirað viðskipta vinir Polaris kunna að meta lága verðið
og góðu þjónustuna. Starfsfólk Polaris vinnur fyrirþig.
fnnifalið íþessu ótrúlega verði er flug, akstur til og frá flugvellinum í
Orlando og hótelgisting.
Disney World, Epcot Center og Sea World eru ævintýrastaðir
sem gera ferðina ógleymanlega. Florida ersamnefnari
fyrirsumarog sól.
Æk lltþetta færðu fyrir25,500.-Já, þaðereinmittþess vegnasem
fólk talar um Ferðaskrifstofuna Polaris. Pantið fljótt, núna eru
ferðirnaródýrari en ívorog þærseldust upp á svipstundu.
Þetta er ótrúlegt og ódýrt! * Verð miðað við 4 í íbúð.
FERÐASKfí/FSTOFAN
POLAfííS
Kirkjutorgi4 Sími622 011
FLUGLEIÐIR