Morgunblaðið - 31.08.1986, Page 47
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridssamband
Austurlands
BSA minnir á að skráning í Bik-
arkeppnina á Austurlandi er nú í
fullum gangi. Þátttökutilkynning-
um skal komið til Pálma Krist-
mannssonar, Egilsstöðum eða
Kristjáns Kristjánssonar, Reyðar-
firði.
Eins og áður hefur komið fram
er um firmakeppni að ræða, auk
hins hefðbundna útsláttar. Skrán-
ingarfrestur er til 5. sept. en þá
mun dregið í 1. umf. Þátttökugjald
verður kr. 6.000 á sveit og verður
mestum hluta varið til endur-
greiðslu ferðakostnaðar sveita.
Aætlað er að keppni Ijúki í byijun
október.
Þjóðviljamótið
Skráning í Opna Þjóðviljamótið
sem spilað verður laugardaginn 20.
september í Gerðubergi hefur farið
mjög vel af stað. Þegar eru yfir 20
pör skráð til leiks, en búast má við
að takmarka þurfi heildarþátttöku
við 36—40 pör vegna skorts á hús-
næði. Olafur Lárusson annast
skráningu.
Spilað verður eftir Mitchell-fyrir-
komulagi, tvær umferðir, og hefst
spilamennska kl. 13 á laugardegin-
um, síðan matarhlé og síðar,
umferðin um kvöldið. Þátttökugjald
er aðeins kr. 600 pr. spilara, en góð
verðlaun eru í boði auk silfurstiga.
Keppnisstjóri verður Ólafur Lárus-
son en Vigfús Pálsson mun annast
tölvuvinnslu.
Vestfjarðamót
í tvímenningi
Opna Vestíjarðamótið í tvímenn-
ing 1986 verður spilað á Þingeyri
um næstu helgi. Skráning er þegar
hafin hjá Gunnari Jónassyni á Þing-
eyri (s. 3100 vinna og 3124 heima).
Mótið er opið öllum félögum á Vest-
fjarðasvæðinu. Spilaður verður
Barometer með þremur spilum (eða
fjórum, fer eftir þátttöku) milli
para, samtals um 90—100 spil.
Keppnisstjóri verður Ólafur Lárus-
son frá Reykjavík.
Spilamennska hefst kl. 13 á laug-
ardeginum og lýkur tímanlega á
sunnudeginum. Allar nánari upplýs-
ingar veitir Gunnar Jóh. á Þingeyri.
Spilarar á Vestfjörðum eru
minntir á að láta þetta mót í
tvímenningi ekki fara framhjá sér,
því ef að líkum lætur verða þau
ekki ýkja mörg yfir veturinn vestra.
Nv. svæðismeistarar eru þeir Amar
Geir Hinriksson og Einar Valur
Kristjánsson ísafírði.
MORGUNBLAÐH), SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST .1986
sv47
Við eigum 40 ára afmæli á morgun 1. september og ætlum að bjóða gestum og gangandi að
njóta með okkur veitinga og léttrar tónlistar í Samvinnutryggingahúsinu Ármúla 3, í tilefni
Veitingar verða einnig á boðstólum á stærstu
umboðsskrifstofum okkar úti á landi.
Sjáumstámorgun
5AMVINNU
TRYGGINGAR
10—25°/o
^RLORDABðKUM
Bókabúd
.MÁLS &MENNINGAR.
LAUGAVEGI 18 SÍMI 24242