Morgunblaðið - 31.08.1986, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1986
67
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
á Gull- og silfurmótinu
GULL- og silfurmótið, sem er
hraðmót fyrir yngstu
knattspyrnustúlkurnar, var haldið
í annað sinn helgina 23. og 24.
ágúst. Á annað hundrað stúlkur
12 ára og yngri tóku þátt i' þessu
móti sem haldið er að frumkvæði
Gull og silfurs sem jafnframt gaf
öll verðlaun mótsins. Tilgangur
þessa móts er sá að lengja
keppnistímabil stúlknanna og sá
knattspyrnudeild Breiðabliks um
framkvæmd mótsins.
Alls tóku átta lið þátt í mótinu
og var þeim skipt í tvo riðla sem
leikið var í á laugardeginum. Tvö
efstu lið úr hvorum riðli kepptu
síöan á sunnudeginum um 1.-4.
sætið í úrslitariðli A og kepptu öll
liðin innbyrðis. Liðin sem lentu í
tveimur neðri sætum laugardags-
riðlanna kepptu síðan á sunnudeg-
inum í úrslitariðli B um 5.-8. sæti
mótsins.
Mikið leikið
Öll keppni mótsins fór fram á
grasvöllum og á sunnudeginum
var leikið á hinum upphitaða Kópa-
vogsvelli. Þegar upp var staöið
hafði hvert lið leikið 6 leiki þessa
tvo daga eða samtals i 4 klukku-
stundir. Þaö voru því þreyttar en
ánægðar stelpur sem lögðust á
koddann á sunnudagskvöldið og
svifu inní knattspyrnudrauma.
Margir komu á óvart
Þaö aö átta lið skulu mæta til
keppni í þessum yngsta aldurs-
flokki stúlkna sýnir svo ekki verður
um villst að vaxtarbroddur
íslenskrar kvennaknattspyrnu
stækkar stöðugt og er það vel. Á
Gull- og silfurmótinu mættu tvö lið
sem ekki tóku þátt í íslandsmótinu
en það eru liö Týs úr Vestmanna-
eujum og Víkings. Þessi lið komu
mjög á óvart og höfnuðu í 5. og
6. sæti mótsins.
Lið Keflvíkinga bar sigur úr být-
um og voru þær vel að þeim sigri
komnar. Þær eru með léttleikandi
liö og spila góðan fótbolta. Keflvík-
ingurinn Olga Færseth vakti mikla
athygli fyrir frábæra knattmeðferð
í leikjum ÍBK.
Keppnin um 2. sæti mótsins á
milli IA og UBK var æsispennandi
og innbyrðis leikur þeirra í úrslita-
riðli A skar úr um hvort liðið hreppti
silfurverðlaunin. ÍA nægði jafntefli
t þeirri viðureign til að hreppa 2.
sætið en UBK varð að vinna. Blika-
stelpurnar skoruðu í fyrri hálfleik
úr vitaspyrnu og virtist það mark
ætla að duga þeim til sigurs. En
Skagamenn eru nú þekktir fyrir
annað en að lýsa sig sigraða og á
seinustu mínútu náðu þeirað jafna
leikinn. Leikurinn endaði því 1:1
og silfurpeningarnir fengu dvalar-
staö á Akranesi við hlið gullpening-
anna úr íslandsmótinu. Best í liði
ÍA var Magnea Guðlaugsdóttir en
hjá Blikunum átti hinn yfirvegaði
miðvörður Unnur María Þorvalds-
dóttir góðan leik og þrumuskot
Elísabetar Sveinsdóttur fengu
áhorfendur oft til að standa á önd-
inni.
Allirfengu
viðurkenningu
í mótslok var öllum keppendum
ekið uppí íþróttahúsið Digranes
þar sem veitt voru verðlaun,
Tommahamborgarar og Hi-C. Sig-
urvegararnir fengu glæsilegan
farandbikar og liðsmenn efstu lið-
anna þriggja fengu verðlaunapen-
inga en auk þess fengu allir
þátttakendur viðurkenningaskjal
fyrir þátttökuna. Fyrirfram var
búist við að þau lið sem skipuðu
efstu sætin þrjú kæmu til með að
verma þau þannig að þær niður-
stööur komu ekki á óvart en
Úrslit
Riðill A:
ÍA — Víkingur 6:1
Týr-UBK 0:5
Vikingur —Týr 1:1
ÍA - UBK 0:1
ÍA-Týr 1:1
Víkingur — UBK 1:4
Lokastaða riðilsins varð því:
1. UBK 3 3 0 0 10: 1 6stig
2. ÍA 3 111 7: 2 3 stig
3. Týr 3 0 2 1 2: 7 2stig
4. Vík. 3 0 1 2 3:11 1 stig
Riðill B:
ÍBK - UMFA 4:0
FH-KR 1:1
UMFA-FH 0:0
ÍBK-KR 8:0
ÍBK - FH 5:0
UMFA-KR 4:0
Lokastaða ríöilsins varð því:
1. ÍBK 3 3 0 0 17: 0 6stig
2. UMFA 3 111 4: 4 3stig
3. FH 3 0 2 1 1:6 2stig
4. KR 3 0 12 1:13 1 stig
Úrslitaríðill A:
UBK-UMFA 4:2
ÍA - ÍBK 2:2
UMFA-ÍA 2:3
UBK-ÍBK 0:2
UBK - ÍA 1:1
UMFA - ÍBK 1:4
Röðun liða í sœti 1—4 varð því:
1. ÍBK 3 2 1 0 8: 3 5stig
2. ÍA 3 1 2 0 6: 5 4stig
3. UBK 3 1 1 1 5: 5 3 stig
4. UMFA 3 0 0 3 5:11 Ostig
Úrslitariðill B:
Týr - KR 3:0
Vík. - FH 1:1
KR - Vík. 0:4
Týr-FH 4:0
TýrVík. 2:1
KR-FH 1:2
Röðun liða í sœti 5-8 varð því:
5. Týr 3 3 0 0 9:1 6 stig
6. Vík. 3 1 1 1 6:3 3 stig
7. FH 3 111 3:6 3 stig
8. KR 3 0 0 3 1:9 Ostig
frammistaða Aftureldingsstúlkn-
anna gerði það hins vegar. Þær
stúlkur hafa sýnt geysilegar fram-
farir í sumar og er greinilega vel
að málum staðið í Mosfellssveit-
inni.
Hvað tekur við?
Mjög ánægjulegt er að sjá
Morgunblaðið/VIP
• Hrönn Guðmundsdóttir markvöröur FH stendur hór í ströngu við að handsama flughálan knöttinn. En
ef eitthvað skyidi fara úrskeiðis hjá henni eru félagar hennar í FH-liðinu við öllu búnir á marklínunni.
• Sigurvegarar Gull- og silfurmótsins varð lið Keflavíkur. Þær eru
Gunnhildur Albertsdóttir, Anna María Sigurðardóttir, Ásdís Þorgils-
dóttir, Sunneva Sigurðardóttir fyrirliði, Olga Færseth, Ingibjörg
Emilsdóttir, Anna Maria Pétursdóttir, María Rut Reynisdóttir, Lilja
Sæmundsdóttir, Guðlaug Hallbjörnsdóttir, Áslaug Einarsdóttir og
Harpa Guðnadóttir. Þjálfari stúlknanna er Freyr Sverrisson.
Morgunblaðið/VIP
• Sara Smart átti mjög góöa leiki meó KR á Gull- og silfurmótinu
og gerði varnarmönnunum marga skráveifu. Hér sjáum við FH-inginn
reyna nýja varnaraðferð sem felst í því að ulla á andstæðinginn.
hversu margar stúlkur yngri en 12
ára eru farnar að stunda knatt-
spyrnu en því miður virðast fáar
þeirra halda áfram alla leið uppí
meistaraflokk. Því hlýtur sú spurn-
ing að vakna hvers vegna. Það er
álit margra að e|n helsta ástæðan
sé sú að þegar þessar stúlkur
koma uppí 2. flokk sé aldursmun-
urinn á þeim og elstu stúlkunum
í þeim flokki sem eru 16 ára of
mikill. Því hefur komið fram sú
hugmynd að 11 ára stúlkur og
yngri myndi einn flokk, 12-14 ára
og 15-17 ára þann þriðja. Það
væri mjög sorglegt að sjá stóran
hluta þessara knattspyrnustúlkna
hverfa úr íþróttinni strax um ferm-
ingu og því verður að skoða þessi
mál mjög vel.
Morgunblaöiö/VIP
• Þú ferð sko ekkert framhjá mér, góða. Stelpur úr Viking og Tý,
Vestmannaeyjum eigast við en þessi lið komu mjög á óvart á mótinu.