Morgunblaðið - 06.09.1986, Síða 4

Morgunblaðið - 06.09.1986, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1986 Aðalfundur Skógræktarfélags Islands: „Allur almenningnr læt- ur sig skógrækt varða“ Morgunblaðið/Kristín Gunnarsdóttir Frá aðalfundi Skógnektarfélags íslands, sem nú stendur yfir í Reynihlíð I Mývatnssveit. — segir Hulda Valtýsdóttir, formaður félagsins Mývatni, frá Kristínu Gunnarsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins. AÐALFUNDUR Skógræktarfé- lags íslands hófst í Reynihlíð í Mývatnssveit í gær og stendur hann fram á sunnudag. Fundinn sitja 120 fulltrúar aðildarfélaga frá öliu landinu og gestir. Meðal gesta á fundinum er Jón Helga- son, landbúnaðarráðherra, og Wilhelm Elsrud, framkvæmda- stjóri Skógræktarfélags Noregs. Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfélags íslands, setti fundinn og bauð gesti velkomna. Jón Helgason, landbúnaðarráð- herra, flutti ávarp og sagði meðal annars að þeim færi sífellt fjðlgandi sem gerðu sér grein fyrir að með hagkvæmni og hagræðingu gæti farið saman sauðfjárrækt og skóg- rækt og lýsti ráðherra yfír stuðningi við hugmyndir um svokallaða „bændaskóga". Um leið og hann árnaði skógræktarmönnum heilla og velfamaðar á komandi árum, sagðist hann vonast til að þeim hjá- róma röddum færi fækkandi sem ekki ynnu að skógrækt, nema að fá samtímis fullar hendur fjár. Hólmfríður Pétursdóttir, formað- ur Skógræktarfélags Mývatnssveit- ar, tók næst til máls og bauð fundargesti velkomna fyrir hönd félagsins, en skógræktarfélagið hefur séð um allan undirbúning fyrir móttöku fulltrúa og gesta. Erindreki fyrir Skóg- ræktarfélag Islands Hulda Valtýsdóttir gerði því næst grein fyrir störfum stjómar sl. ár og kom þar fram að tillaga frá síðasta aðalfundi um ráðningu er- indreka á vegum Skógræktarfélags íslands hafi hlotið góðar undirtektir ráðamanna, en tillagan felur í sér að ríkissjóður greiði að hluta laun hans eins og tíðkast þegar ráðu- nautar á vegum búnaðarsamband- anna eigi í hlut. _ Tillaga um að Skógræktarfélag íslands beiti sér fyrir því að sem minnstar hindranir verði á að skógræktarfélög eða aðrir, sem ætla að stunda skóg- rækt, fái keyptar jarðir eða jarðar- hluta til skógræktar, og lögð var fram á síðasta aðalfundi, hefur ver- ið send til landbúnaðarráðuneytis- ins, en ekki fengið afgreiðslu. Tiliaga um stofnun styrktarkerfis fyrir Skógræktarfélag íslands hefur verið til umQöllunar í stjóminni og tekið nokkrum breytingum. Engar ákvarðanir hafa verið teknar og sagði Hulda að brýna nauðsyn bæri til að ræða og taka ákvörðun um hvaða leið, eða leiðir, ætti að fara til að hægt væri að marka stefnu eftir því. í máli Huldu kom fram að ákveð- ið hafí verið við endurskoðun á fjárveitingu til landgræðslu að skjólbeltarækt fari undir landvemd og slík ræktun heyri undir jarðrækt- arlög. Önnur tillaga um vamir gegn meindýrum og hert eftirlit með inn- flutningi jólatijáa var send Skóg- rækt ríkisins, landbúnaðarráðu- neytinu og Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, en nú fer fram endurskoðun á reglugerð um inn- flutning á tijám. Af öðrum tillögum sem Hulda drap á, má nefna tillög- ur um skógræktarþing, sem ákveðið hefur verið að efna til síðla vetrar 1987 og er undirbúningur þegar hafinn. Styrkur ríkisins til félagsins var 330.000 krónur á síðasta ári og af landgræðsluáætlun fengust 67.000 krónur. Úr Þjóðhátíðarsjóði voru veittar 60.000 krónur vegna hand- bókar um skógrækt, sem er í vinnslu. I ræðu sinni vék formaður- inn síðan að þeim Qölmörgu ritum, sem gefin hafa verið út um skóg- rækt á árinu og benti fundargestum m.a. á að kynna sér drög að áætlun landbúnaðarráðuneytisins um land- nýtingu á íslandi og forsendur fyrir henni. „Staðreyndin er sú að verið er að ræða um tijá- og skógrækt hér á landi af ijölmörgum aðilum, auk þess sem allur almenningur lætur sig málið varða og ber til þess já- kvæðan hug,“ sagði Hulda og vék síðan að norrænu skógræktarráð- stefnunni, sem haldin var í Finn- STEINDÓR Árnason skipstjóri lést á Borgarspítalanum í Reykjavík að morgni föstudags- ins 5. september á 89. aldursári. Steindór fæddist 27. desember 1897 að Réttarholti í Vindheima- hreppi í Austur-Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru Árni Ámason, bóndi á Höfðahólum á Skaga, og kona hans Ingibjörg Pálsdóttir frá Syðri-Leikskála í Suður-Þingeyjar- sýslu. Steindór stundaði sjómennsku frá unga aldri, fyrst á kútter Há- koni 1912, og Langanesi, á árabát- um og mótorbátum fram til ársins 1920. Það ár lauk hann farmanna- landi í sumar, en þar hafði hún heyrt fararstjóra og fagmann hvetja menn til að missa ekki kjark þótt aðeins um 50 plöntur af 1.000 gróð- ursettum yrðu að tijám. „Ef ekki lifðu heldur þessar fímmtíu, þá væri til gott ráð. Nefni- lega gróðursetja aðrar 1.000. Svona tala menn með hundrað ára hefð- bundna skógrækt að baki. Hvað erum við þá að kvarta?" spurði Hulda. í lokin lét hún í ljós þá ósk prófí frá Stýrimannaskólanum. Eftir 1920 var hann fyrst á skonn- ortunni Skími, siðan á togaranum Þórólfí og var hann á togurum til ársins 1954. Hann var stýrimaður og skipstjóri frá árinu 1925 og alla tíð farsæll í starfí. Eftir að Steindór lét af sjó- mennsku stundaði hann hænsna- rækt á Seltjamamesi allt til ársins 1972. Hann lét félags- og hags- munamál sjómanna mjög til sín taka og skrifaði fjölda blaðagreina um þau mál. Hann var heiðraður af sjómannadagsráði fyrir störf sín. Steindór var kvæntur Guðmundu Jónsdóttur. Hun lifír mann sinn. Steindór Arnason skipstjóri látinn sína að íslenska þjóðin þekkti sinn vitjunartíma varðandi skógrækt í landinu. Umhirðu skógarreita víða ábótavant Snorri Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Skógræktarfélags íslands, sagði í ræðu sinni að umhirðu skóg- arreita væri víða ábótavant. Árið 1985 var farið um Vestfírði og skógarreiti lagfærðir og í sumar var farið um Vestur- og Austurland. Snorri vék síðan að starfí skógrækt- arfélaganna og sagði hann að þriðjungur þeirra plantna sem gróð- ursettar em ár hvert í landinu kæmu úr stöðvum Skógræktarfé- lags Eyfírðinga og Skógræktarfé- lags Reykjavíkur. í sumar komu hingað 50 norræn- ir skógræktarmenn og -konur í gróðursetningarferð og héðan hélt álíka hópur til Noregs í sams konar erindagjörðum. Slíkar ferðir eru famar á þriggja ára fresti. Loks talaði Sigurður Blöndal, skógræktarstjóri, og sagðist verða var við mikla undiröldu í þjóðfélag- inu, skógræktinni í hag. Aukinn áhugi á skógrækt leyndi sér ekki. Bændur, sem einhverra hluta vegna gætu ekki lengur stundað þann búskap sem tíðkast hefði frá land- námi, væm famir að líta á skóg- rækt sem valkost í stað þess að bregða búi og leggja sveitir þar með í eyði. Hann hvatti síðan fund- armenn til dáða og sagði: „Gmnd- völlur félaganna er harður kjami hugsjónamanna. Kjami, sem tekist hefði á við margfalt meiri erfiðleika en okkur atvinnumönnunum dytti í hug að glíma við og sigrast á þeirn." Fyrir hádegishlé gerði Þorvaldur S. Þorvaldsson, gjaldkeri, grein fyr- ir reikningum félagsins, og vom þeir samþykktir. Steindór Árnason Þau eignuðust tvo syni, Áma, sem lést 1941, og Jón, sem er kvæntur og búsettur í Reykjavík. Könnun á útvarpshlustun: Fleiri hlustuðu á Bylgjuna en rás 1 og rás 2 til samans HAGVANGUR gerði síðastliðinn miðvikudag, samkvæmt beiðni Sambands íslenskra auglýsingastofa, könnun á útvarpshlustun á meðal íbúa á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi og Selfossi. í könnun- inni kom í Ijós að nýja útvarpsstöðin nýtur mikilla vinsælda hlustenda. Könnunin náði til 250 aðila sem valdir voru úr síma- skrá og voru 150 af höfuðborgarsvæðinu en 50 af Akranesi og Selfossi. Þátttakendur í könnuninni vom spurðir á tímunum 7.00-9.00, 12.00-14.00, 15.00-17.00, 17.00-18.00 og 20.00-22.00. Tvær spumingar vora lagðar fyr- ir þátttakendur. Er kveikt á einhveiju útvarpstæki sem þú hefur tækifæri til að hlusta á þessa stundina? Ef kveikt var á útvarpstæki var vikomandi spurð- ur: Á hvaða útvarpsstöð er útvarpstækið stillt núna? Hafa ber í huga þegar niður- stöðumar em skoðaðar að Bylgj- an var nýtekin til starfa þegar könnunin var framkvæmd. Eftir- tektarvert er að enginn þátttak- enda nefndi Keflavíkurútvarpið eða Svæðisútvarp Reykjavíkur og nágrennis. Af heildamiðurstöðunum má sjá að Bylgjan hefur greinilega verið sú stöð sem mest var hlust- að á síðastliðinn miðvikudag. Af þeim sem hlustuðu á útvarp vom 35,3% með stillt á rás 1, 7,4% á rás 2 og 57,3% á Bylgjuna. Þó ber að hafa í huga að rás 2 send- ir einungis út á tveim þeirra tíma sem könnunin náði til. Á milli 17.00 og 18.00 þegar flestir hlustuðu á útvarp (51%) og fjórar rásir vom í boði höfðu 27o stillt á rás 1, 15,7% á rás 2 og 82,3% á Bylgjuna. „Ég hugsa að þetta hafi ein- hver áhrif á auglýsendur," sagði Solveig Einarsóttir, fram- kvæmdastjóri SÍA, í samtali við Morgunblaðið. „Þó má fastlega gera ráð fyrir því að menn taki þessu með nokkmm fyrirvara þar sem Bylgjan er það nýkomin til sögunar að margir hlusta eflaust á hana fyrir forvitnis sakir. Við munum framkvæma aðra könnun til samanburðar innan mánaðar þegar forvitnistíminn ætti að vera liðinn og verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr henni. Þá verða einnig tímamir sem spurt er um þrengdir. Við hjá SÍA viljum stuðla að því að komið verði á stigagjöf fyrir mismunandi útvarpsþætti og að því unnið í samráði við sérfræð- inga. Það yrði hvorki félagsfræði- leg könnun né könnun sem legði mat á gæði einstakra dagskrárliða heldur einungis til að fínna út hversu margir hlusta og horfa á einstaka þætti svo auglýsendur viti hvar þeir geti náð stærstum hópi neytenda." Útvarpshlustun eftir útsendingartíma: Kl. 7.00 - 9.00 Hlutfall Einungis þeir sem hðfðu af heildar- kveikt úrtaki áútvarpi Ekki kveikt 65,6% — rás 1 24,1% 69,9% rás2 — _ Bylgjan 10,3% 31,1% Kl. 12.00 - 14.00 Hiutfall af Eínimgis þeir heildarúr- sem höfðu taki kveikt á út- varpi Ekki kveikt 36,2% _ rás 1 34,1% 53,4% rás2 — — Bylgjan 29,7% 46,6% Kl. 15.00 - 17.00 Ekki kveikt 49,0% _ rás 1 1,0% 2,0% rás2 7,9% 15,7% Bylgjan 92,1% 82,3% Kl. 20.00 - 22.00 Ekki kveikt 83,4% _ rás 1 3,8% 22,4% rás 2 — — Bylgjan 12,8% 77,6% Heildarniðurstöður Ekki kveikt 56,7% rás 1 15,3% 35,3% rás 2 3,2% 7,4% Bylgjan 24,8% 57,3%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.