Morgunblaðið - 06.09.1986, Blaðsíða 44
© 1984 Universal Press Syndicate
M Ef þkrer Zarna. pó cg seg\ pc&, henrx.,
pá. vW Kílnn aleirei Qóiar í vtaréKoldi
ást er.
... aðplanta með henni ígarð-
inn.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
01986 Los Angeles Times Syndicate
Með
moiminkaffinu
Húsnæðismál
Kæri Velvakandi.
Nú er búið að setja ný lög, eða
reglugerð um lán til húsnæðiskaupa
og má margt gott segja um það.
Þær leysa vanda margra, en fjöldi
manna er þó settur hjá, eins og svo
oft áður.
A landinu er fjöldi fólks sem
ekki er í lífeyrissjóðum, sérstaklega
í smærri stéttarfélögum, og aðrir.
Þeir fá lakari Iq'ör. Kökunni er mis-
skipt. Mér finnst að allir ættu að
sitja við sama borð hvað þetta snert-
ir, en svo er ekki.
Þeir sem setja þessi lög eru þó
vel menntaðir menn og það er ekki
annað en gott um það að segja, en
mannkærleika og réttsýni skortir,
eins og svo oft áður. Mér fínnst að
allir Islendingar eigi að hafa sama
rétt til þessara lána.
Nú bregður svo við að verð á
húsnæði rýkur upp úr öllu valdi af
þessum sökum. Eiga húsabraskarar
að hagnast á þessu? Er ekki kominn
tími til að setja hámarksverð á
húsnæði f samræmi við rúmmetra
og sömuleiðis á leiguhúsnæði? Ég
heyrði fyrir nokkru um ung hjón,
sem bæði eru við nám, að þau urðu
að greiða kr. 12.000 fyrir tveggja
herbergja íbúð með eldunaraðstöðu,
sem þó var af lakara taginu. Nær
þetta nokkurri átt? Hver getur
borgað svo háa húsaleigu? Á fólk
að svelta og líðá skort af þessum
sökum? Ég segi nei. Þessu verður
að kippa í lag sem allra fyrst.
Vinsamlegast,
Eggert E. Laxdal,
Ási, Hveragerði.
Takið tillit til barnanna
Seðlaveski tapaðist
Atli Sigurjónsson hringdi og
sagðist hafa týnt peningaveski með
verðmætum við Garðsapótek, nú
fyrr í vikunni. Skilvís fínnandi getur
hringt í síma: 695640. Fundarlaun-
um er heitið.
Krakkar úr Laugarneshverfi
skrifa:
„Við erum hér nokkrir krakkar
úr Laugameshverfí við Sundahöfn-
ina.
Við erum óánægð með að hvergi
virðist gert ráð fyrir að böm geti
leikið sér í boltaleikjum eða öðrum
leikjum þar sem nauðsynlegt er að
hafa nóg pláss og stétt eða malbik.
í innkeyrslum er ekki hægt að
leika sér út af bílum og í görðum
er heldur ekki hægt að vera vegna
gróðurs, og svo skoppa boltar ekki
á grasinu.
Við biðjumst afsökunar á ókurt-
eisinni en við viidum gjaman að
eitthvað yrði gert í málinu."
Víkverji skrifar
Umferðin í miðborg Reykjavíkur
hefur verið svo mikil undan-
fama daga, að menn verða að ætla
sér góðan tíma til að komast á
milli staða. Ekki bætir úr skák að
starfsmenn Reykjavíkurborgar em
önnum kafnir við að malbika marg-
ar helstu umferðaræðamar. Á
miðvikudaginn brá Víkveiji sér
síðdegis í ökuferð frá höfuðstöðvum
sínum við Aðalstræti inn á Kringlu-
mýrarbraut. Var hann rúmar
fímmtán mínútur að komast þennan
spotta. Á Hverfisgötunni var sam-
felld bílaröð alveg frá hominu á
Lækjargötu og Kalkofnsvegi, sem
miðaði svo hægt að sá kostur var
valinn að fara upp Klapparstíg og
aka síðan austur eftir Grettisgöt-
unni. Þegar komið var að Rauðar-
árstíg náði bílaröðin suður að
Háteigsvegi, svo að segja má, að
öngþveiti hafí verið samfellt í aust-
ur og vestur átt bæði á Laugavegi
og Hverfísgötu.
Á hinni fróðlegu Tæknisýningu,
sem efnt var til í tilefni 200 ára
afmælis borgarinnar, kom fram, að
24.000 bílar fara um Laugaveginn
á sólarhring en 42.000 bílar fara á
sama tíma um Kringlumýrarbraut-
ina. Þegar starfsemi hefst í stór-
markaðnum í Kringlunni og aðrar
byggingar á því svæði hafa verið
teknar í notkun á bílaumferð á
Kringlumýrarbraut og Miklubraut,
þar sem nú fara um 30.000 bílar á
sólarhring, enn eftir að aukast.
Hlýtur það að vera yfirvöldum
umferðarmála töluvert umhugsun-
arefni, hvemig á að bregðast við
þeim aukna umferðarþunga.
TiIIitssemi hefur heldur aukist í
umferðinni í Reykjavík; a.m.k.
er það algengara en áður, að menn
víki, þótt ekki sé það skylt sam-
kvæmt umferðarreglum. Þetta
dregur úr spennu, þegar öngþveitið
er mikið og stuðlar að jöfnum hraða,
þar sem þess er á annað borð kost-
ur að halda honum. Á hinn bóginn
er enn of varasamt að treysta því
að stefnuljósum sé beitt af þeirri
nákvæmni að þau komi að fullum
notum í umferðinni. Þá ber talsvert
á því, að menn einbeiti sér ekki
nægilega að akstrinum og séu svifa-
seinir og ekki viðbragsfljótir, þegar
tækifæri gefast. Þá er áberandi,
hve margir láta undir höfuð leggj-
ast að virða almennar reglur um
að víkja fyrir umferð frá hægri, þar
sem það er skylt.
Áður hefur Víkvetji vakið máls
á því, að meira ber á því en áður,
að ménn virði ekki rauðu ljósin að
fuliu á gatnamótum. Kann það að
stafa af því, að hér virðast ljósin
stillt með þeim hætti, að við hvetja
skiptingu líða nokkrar sekúndur,
þar sem rauð ljós loga alls staðar
samtímis. Færa sumir sér þetta í
nyt og halda áfram akstri, þótt
rautt ljós blasi við þeim.
xxx
Niels nokkur Houkjer, sem er
dálkahöfundur í Berlingske
Tidende segir frá því hinn 26. ágúst
sl., að hann hafí dvalist 14 daga í
óbyggðum íslands nú í sumar og
verið í sömu flugvél til Kaupmanna-
hafnar og Bertel Haarder, mennta-
málaráðherra Dana, þegar hann
kom héðan eftir að hafa ritað und-
ir endanlegan samning við íslend-
inga um skiptingu handritanna.
Þetta verður Houkjer tilefni til að
láta orð falla um það, að sér hafí
reynst best að tala við íslendinga
á ensku og að bókmenntamenn á
íslandi séu fyrir löngu staðnaðir í
„amerikansk kiosklitteratur", þ.e.
amerískum blaðsölubókmenntum.
Þá er hann þeirrar skoðunar, að
betra hefði verið að geyma handrit-
in áfram í Kaupmannahöfn. Og enn
heldur hann því fram, að það sé
misskilningur að unnt sé að læra
norræna sagnahefð af Islendingum.
Það er svo sem ekkert nýmæli
að lesa vangaveltur í þessum dúr
um íslenska menningu eftir nor-
ræna menn, sem vafalaust eru skær
menningarljós í löndum sínum. Þó
kemur á óvart að lesa nú grein af
þessu tagi í Berlingi í tilefni af
þessari heimferð Bertels Haarder.
Hljótum við að vona, að Niels
Houkjer verði fljótur að ná sér eft-
ir 14 daga dvöl í íslenskum
óbyggðum innan um amerískar
blaðsölubókmenntir og hann rekist
ekki á þær í Kaupmannahöfn!
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1986
Tekur dómarinn það illa
upp þó ég hvetji hann að
fara til augnlæknis?
HÖGNIHREKKVISI
KATTAFÓPOR
(fþ. I' ií
FJB
J,VIV PuRrUAA AÐ MAFA EUMNi í STJORNIMM/
SEM eTUR VÖKOHA . "