Morgunblaðið - 06.09.1986, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 06.09.1986, Qupperneq 47
Mótóu&BLAÐlÍE^ ’ílAÍjGÁlSDÁG^JR 6. ' 1986 4Íh Handknattleikur: íslendingar unnu Norðmenn ISLENSKA piltalandsliAiA í hand- knattleik sigraAi þaA norska, 19:18, á handknattleiksmóti í Noregi í gærkvöldi. Árni Friðleifs- son átti mjög góðan leik og skoraði sex mörk. Fjórar þjóðir taka þátt í þessu handknattleiksmóti sem fram fer í Sarpsborg rétt utan við Osló. Vest- ur-Þjóðverjar unnu Frakka í gaerkvöldi með 25 mörkum gegn 18. Vestur-Þjóðverjar hafa á að skipa mjög sterku liði. Leikur Islands og Noregs var lengst af mjög jafn og spennandi. Staðan í leikhléi var 8:8. í byrjun seinni háifleiks náði íslenska liðið fjögurra marka forystu og fór Árni Friðleifsson þá á kostum og skor- aöi fjögur mörk í röð. Hann var síðan tekin úr umferð seinni hluta hálfleiksins og við það riðlaðist leikur íslendinga og Norðmenn náðu að saxa á forskotið. Mörk íslands: Árni Friðleifsson 6, Héðinn Gilsson 3, Konráð Ólafs- son 3, Þorsteinn Guðjónsson 2, Páll Ólafsson 2 og Guðmundur • Ámi Friðleifsson stóð sig mjög vel f leiknum gegn Norð- mönnum f gærkvöldi og skoraði sex mörk. Guðmundsson, Sigurður Sveins- son og Óskar Helgason eitt mark hver. íslendingar leika við Vestur- Þjóðverja í dag og Frakka á sunnudaginn. Frjálsar íþróttir: Met hjá Nenow MARK Nenow frá Bandarfkjunum setti í gærkvöldi bandarískt met í 10.000 metra hlaupi á frjáls- íþróttamóti f Brussei. Nenow hljóp á 27:20.57 mínút- um. Hann hljóp án keppni síðustu 1. deild kvenna: Svandís skoraði sigur- markið KEFLAVÍK sigraði Þór 1:0 í 1. deild kvenna f knattspyrnu á Ak- ureyri í gærkvöldi. Svandís Gylfadóttir skoraði sig- urmarkið í seinni hálfleik og kom það eftir aukaspyrnu Ingu Birnu Hákonardóttur. Markvörður Þórs hélt ekki boltanum eftir skot Ingu Birnu og Svandís fylgdi vel á eftir og skoraði af stuttu færi. sex kílómetrana. Hann bætti eldra metið sem Alberto Aalazar setti fyrir fjórum árum um 5,05 sekúnd- ur. Þessi árangur Nenow er þriðji besti árangur sem náðst hefur á þessari vegalengd. Heimsmetið er í eigu portúgalska hlauparans Fernando Mamede, 27:13.81 mín. Morgunblaöiö/Júlíus • Torfi Ólafsson á æfingu f gær. Hér fer hann lótt með 305 kg f hnébeygju með tilheyrandi öskrum. „Gef ekkert eftir fyrr en I fulla hnefana" — segir Torfi Ólafsson, sem ætlar að verja heimsmeistaratitilinn í kraftlyftingum „ÉG ER f betri æfingu núna en f fyrra og ætla að bæta mig, en að sjálfsögðu stefni ég að sigri f keppninni, því heimsmeistaratit- illinn er f húfi og honum ætla ég að haldau sagði Torfi Ólafsson, heimsmeistari unglinga f kraft- lyftingum, í samtali við Morgun- blaðið í gær. Torfi er 21 árs, en heimsmeist- arakeppni unglinga í kraftlyftingum er fyrir þá sem eru 23 ára og yngri. Hann er eini íslendingurinn, sem orðið hefur heimsmeistari í íþróttinni, en því afreki náði hann í Þýskalandi í febrúar í fyrra. Torfi heldur til Cochin á Indlandi eftir helgi, en þar mun hann verja titil- inn í næstu viku. „Ég hef æft mjög stíft undan- Setur Kári Islandsmet á Bárðarbungu í dag? Akureyri. HÓPUR kraftlyftingamanna hélt f gær áleiðis inn á Bárðarbungu frá Akureyri þar sem þeir ætla f dag að halda kraftlyftingamót. Þar ætlar Kári Elísson að reyna við íslandsmet í bekkpressu. Hann á metið, 167,5 kg, en ætlar að reyna við 168 kg. Mótið fer fram f rúmlega 2000 metra hæð. Það eru þeir Víkingur Trausta- son, Flosi Jónsson og Aðalsteinn Kjartansson sem keppa á mótinu auk Kára en dómari verður Harald- ur Ólafsson. Það var um tíu manna hópur sem hélt frá Akureyri og að sögn Flosa er von á svipuðum fjölda manna úr Reykjavík á Bárð- arbungu í dag. Það er hinn kunni fjallagarpur á Akureyri, Baldur Sigurðsson, sem er leiðangursstjóri. Flosi sagði að ekki myndu fleiri en Kári reyna við íslandsmet, „en við reynum að taka vel á þessu," sagði hann. Þess má þó geta að þeir Flosi og Víkingur ætla sér að lyfta 500 kílóum af Svala á Bárðar- bungu í dag. farnar sex vikur, fimm til sex sinnum í viku, þrjá tíma í senn. Allur undirbúningur hefur miðast við heimsmeistaramótið, en ég veit ekkert um andstæðingana og því er ómögulegt að segja hvernig þetta fer. Einnig á ferðalagið til '* Indlands örugglega eftir að sitja t mér, en vonandi verð ég ekki svo þreyttur að ég eigi ekkert í keppi- nautana," sagði Torfi. Á mótinu er keppt í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. í fyrra lyfti Torfi 807 kg samanlagt, en hann hefur mest lyft 912 kg. íslandsmet hans í hnébeygju er 357 kg, en í réttstöðu 370 kg. Torfi er 148 kg aðþyngd og keppir í yfirþungavikt. „Eg er vanur að lyfta því sem er á stönginni hverju sinni, klikka sjaldan á lyftu og fer meö því hugarfari í keppnina. Þetta verður erfið keppni, en ég gef ekk- ert eftir fyrr en í fulla hnefana," sagði Torfi Ólafsson. Ólafur Sigurgeirsson, formaður kraftlyftingafélagsins, fer með Torfa til Indlands. Handknattleikur: ÍBV vann hrað- mót í Svíþjóð 2. DEILDARLIð ÍBV f handknatt- leik hefur undanfarnar tvær vikur veriö á æfinga- og keppnisferð f SvfþjóA. Fyrr f vikunni slgraAi MA- IA á fjögurra liAa móti á Gotlandi, þar sem mótherjarnir voru sænsk 2. deildarlið. Hraðmót þetta fór fram í Visby á Gotlandi og lék ÍBV þar við þrjú sænsk 2. deildarlið. ÍBV gerði jafn- tefli við Derby 21-21, en Derby lék í fyrra í alsvenskan, sænsku 1. deildinni. ÍBV sigraði síðan Sannadal 24-15 og Gute 19-18. ÍBV var því sigurvegari þessa móts og vakti frammistaða liðsins tals- verða athygli í Svíþjóð. Fékk mót þetta mikla umfjöllun í blöðum á Gotlandi. (BV hefur og leikið marga æf- ingaleiki i ferðinni við sænsk félagslið og gekk liðinu mjög vel í þeim. Liðið er væntanlegt heim um helgina eftir vel heppnaða ferð. Ljóst er að þessi æfingaferð er góður undirbúningur fyrir hand- boltavertíðana sem senn hefst. - hkj. FRAM VÍÐIR aðalleikvangi á morgun kl. 14.00 Nýtt ekta kebab Nýr matseðill AMERICAN STYLE SKIPHOLTI 70'SIMI 686838

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.