Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 1
80 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
201. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Rekið til réttar í Miðfirði. sjá frásögn á bis. 4i.
Morgunblaðið/RAX
Sviss:
Föður Ashken-
azys beðið
fararleyfis
Zurich, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
PIERRE Aubert, utanríkisráð-
herra Sviss, nefndi ferðaleyfi
föður Vladimirs Ashkenazy,
píanóleikara, sem dæmi um brot
Sovétmanna á mannréttindamál-
um á fundi hans með Eduard
Schewardnadse, utanríkisráð-
herra Sovétrikjanna, í Moskvu i
síðustu viku.
Vladimir Ashkenazy yfirgaf Sov-
étríkin árið 1963. Faðir hans fékk
að heimsækja hann 1967 og báðir
foreldrar hans fengu leyfi til að
heimsækja Ashkenazy-fjölskylduna
til íslands 1976 og til Sviss þremur
árum seinna. Móðir Ashkenazys er
nú látin. Umsókn um fararleyfi foð-
ur hans, sem er sjötugur, hefur
verið endilrnýjuð árlega í tíu ár án
árangurs.
Þetta var fyrsta heimsókn svissn-
esks utanríkisráðherra til Sovétríkj-
anna. Þórunn Jóhannsdóttir og
Vladimir Ashkenazy hafa búið í
Sviss síðan 1978.
Daniloff-málið:
Reagan íhugar
gagnráðstafanir
Los Angeles, Moskvu, AP.
SOVÉSK stjórnvöld hafa
formlega ákært bandaríska
blaðamanninn Nichoias Dan-
iloff fyrir njósnir en mestu
viðurlögin við þeim eru dauða-
dómur. Reagan forseti skoraði
í gær á Sovétmenn að bregð-
ast skjótt við og af ábyrgð til
lausnar deilunni. Annað gæti
Banatilræði
við Pinochet
Santiago, AP.
Herforingjastjórnin í Chile
lýsti yfir neyðarástandi í landinu
eftir að bilalest Augustos Pino-
chet, forseta, var gerð fyrirsát,
seint sl. sunnudagskvöld. Forset-
inn særðist aðeins á hendi, en
fimm menn úr fylgdarliði hans
voru drepnir og ellefu særðir.
Reuters-fréttastofunni hefur ver-
ið bannað að senda fréttir frá
landinu, útgáfa nokkurra blaða hef-
ur verið bönnuð, allmargir hafa
verið handteknir og leitað var á
mánudag í hvetju húsi tveggja fá-
tækrahverfa.
Bílalest forsetans var á leið yfir
brú suðaustur af höfuðborginni er
sprengja sprakk og skothríð hófst
úr öllum áttum.
Vinstri sinnuð skæruliðasamtök
hafa lýst ábyrgð á árásinni á hend-
ur sér og sagði talsmaður þeirra
er hringdi til fjölmiðla að næsta til-
raun myndi takast.
haft ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar.
Sovéska stjórnarmálgagnið Iz-
vestia skýrði frá því í gær, að
Nicholas Daniloff hefði verið form-
lega ákærður fyrir njósnir og var
farið um hann hinum hörðustu
orðum. Var hann sagður hafa unn-
ið með einhvetjum útsendara
bandarísku leyniþjónustunnar í
Moskvu og komist yfir hernaðar-
leyndarmál um Afganistan.
Bandarísk stjómvöld neita því
þverlega, að Daniloff sé njósnari
og segja, að hann sé eins og hver
annar gísl í höndum Sovétmanna.
Það, sem fyrir þeim vaki, sé að
hafa skipti á honum og sovéskum
embættismanni hjá SÞ, sem fvrir
nokkru var handtekinn fyrir njósn-
ir.
Haft er eftir bandarískum emb-
ættismönnum, að Reagan forseti
sé að velta fyrir sér ýmsum gagn-
ráðstöfunum vegna handtöku
Danilofs. Meðal annars að reka úr
landi sovéska embættismenn hjá
Sigur Kasparovs
í sjónmáli
Kasparov og Karpov tefldu í gær
14. skákina í einvíginu um
heimsmeistaratitilinn. Skákin
fór í bið eftir 40 leiki.
Sjá bls. 61 Sigur í sjón
máli hjá Kasparov.
SÞ, nokkra hveiju sinni þar til
Daniloff verður látinn laus og einn-
ig, að hætt verði við fyrirhugaðan
fund utanríkisráðherra ríkjanna
síðar í þessum mánuði. James A.
Baker, fjármálaráðherra, sagði
auk þess í gær, að ef ekki finnist
skjót lausn á Daniloff-málinu verði
mjög erfitt að halda fund með leið-
togum þjóðanna en vonir stóðu til,
að hann yrði fyrir árslok.
^ Símamynd/AP
Utför Urhos Kekkonen
Vigdís Finnbogadottir, forseti íslands, og Ólafur Noregskonungur
taka sér sæti við útför Urhos Kekkonen, fyrrum forseta Finnlands.
Athöfnin fór fram í Dómkirkju Helsinkiborgar. Viðstaddir hana
voru fulltrúar 40 þjóða. Hinn látni forseti var borinn til hinstu hvílu
í Hietaniemix-þjóðargrafreitnum.
Stj ornarkreppu
afstýrt í Israel
Sharon dregur ásakanir sínar til baka
Tel Aviv, Istanbul. AP.
ARIEL Sharon, viðskiptaráðherra i stjórn Israels, dró í gær til baka
ásakanir um, að undanlátssemi Shimons Peres, forsætisráðherra,
gagnvart palestínskum hryðjuverkamönnum væri um að kenna morð-
in í bænahúsi gyðinga í Istanbul. Var þar með komist hjá stjórnar-
kreppu í ísrael. 21 maður lést í árásinni á bænahúsið, þar af báðir
hryðjuverkamennirnir.
í skriflegri yfirlýsingu, sem Shar-
on sendi Peres, forsætisráðherra, í
fyrrakvöld, segist hann taka aftur
orð sín um, að hryðjuverkið í Istan-
bul í Tyrklandi megi rekja til
undanlátssemi forsætisráðherrans
við arabíska og palestínska hryðju-
verkamenn. Varð þessi yfirlýsing
til að afstýra stjórnarkreppu en
Peres hafði ákveðið að boða ekki
til ríkisstjórnarfundar fyrr en Shar-
on hefði tekið orð sín aftur.
Lögregluyfirvöld í Tyrklandi hafa
enn ekki komist að þjóðerni hryðju-
verkamannanna, sem réðust á
bænahús í Istanbul, en þeir eru
taldir vera arabar. Blöð í Tyrklandi
segjast aftur á móti hafa heimildir
fyrir því, að vopnin hafi komið til
landsins með sendiráðspósti og að
lögreglan hafi sérstakan augastað
á sýrlenska, íranska og líbýska
sendiráðinu.