Morgunblaðið - 09.09.1986, Side 2

Morgunblaðið - 09.09.1986, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986 Reikningar listahátíðar lagðir fram: Rekstrarafgangur nam 300 þús. króna REIKNINGAR Listahátíðar 1986 voru lagðir fram í gær á fulltrúaráðsfundi hátíðarinnar, að viðstöddum borgarstjóra og menntamálaráðherra. í ljós kom að rekstrarafgangur nam um 300.000 þúsundum króna. Halli á Listahátíð 1984 var á sjöundu milljón króna, að sögn Hrafns Gunnlaugsson- ar, formanns Listahátíðar. „Þetta mun vera í fyrsta skipti í fjölda ára sem hátíðin skilar rekstrarafgangi," sagði Hrafn í samtali við Morgunblaðið í gær. Kostnaður við Listahátíðina nam 26 milljónum króna, en Hrafn sagði að rekstrarafgangurinn kæmi m.a. frá sýningunni á verk- um Pablos Picasso og frá popptón- leikum. Hrafn sagði helstu ásta>ðuna fyrir því, að hátíðin tókst svo vel núna, vera að boðið hafi verið boðið upp á mjög góða listamenn sem almenningur vildi sjá og hafí því aðsókn verið mjög góð. „Það er gaman að geta skilað hátíðinni með svona útkomu, nú þegar ég læt af störfum sem for- maður,“ sagði Hrafn. Fram kom á fulltrúaráðsfundinum að Davíð Oddsson borgarstjóri og Sverrir Hermannsson menntamálaráð- herra hefðu orðið sammála um að leita til Hrafns um að halda áfram sem formaður Listahátíðar. Hann hafí hins vegar ákveðið að gefa ekki kost á sér aftur, en þakkaði traustið. Menntamálaráðherra mun á næstu dögum skipa formann næstu Listahátíðar og borgarstjóri varaformann, en þeir tveir skiptast á um að skipa formann og vara- formann hátíðarinnar. Einnig verður skipað í nýja framkvæmda- stjóm á næstu dögum, en enginn úr núverandi stjóm gaf kost á sér aftur. Hún var skipuð þeim Birgi Sigurðssyni rithöfundi, Kristni Hallssyni óperusöngvara, Kristínu Jóhannesdóttur kvikmyndaleik- stjóra og Stefáni Baldurssyni leikhússtjóra, en framkvæmda- stjóri var Salvör Nordal. Sagði Hrafn að það bæri vitni um ein- drægni stjómarinnar að aldrei kom til atkvæðagreiðslu innan hennar á þeim tíma sem hún starf- aði. Morgunblaðið/Börkur Fjögvrra bíla árekstur FJÓRIR bflar lentu í sama umferðaróhappinu á Hverfisgötu í Reykjavík í blíðviðrinu síðdegis í gær. Bflamir skemmdust nokkuð en engin meiðsli urðu á fólki. Að öðru leyti gekk umferðin í höfuð- borginni áfallalítið í gær, skv. upplýsingum lögregl- unnar í Reykjavík. Eins og greinilegt er af myndinni er aldrei of varlega farið — og rétt að minna ökumenn á það eina ferðina enn, að fulls öryggis er ekki gætt nema rúmt sé á milli bfla á fjölfömum umferðargötum. Sjálfstæðis- flokkurinn: Lokað próf- kjör á Norður- landi eystra Akureyri. ÁKVEÐIÐ var á aðalfundi kjördæmisráðs Sjálfstæðis- flokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra um helgina að halda prófkjör um val frambjóðenda á lista flokksins í kjördæm- inu fyrir næstu alþingis- kosningar. Prófkjörið fer fram laugardaginn 18. október. Alþingismennimir Bjöm Dagbjartsson og Halldór Blöndal hafa báðir ákveðið að taka þátt í prófkjörinu svo og Vigfús Jónsson á Laxa- mýri, 1. varaþingmaður flokksins í kjördæminu. Tveir aðrir hafa lýst yfir því, að þeir muni taka þátt í prófkjör- inu, Stefán Sigtryggsson viðskiptafræðingur á Akur- eyri og Tómas Ingi Olrich, menntaskólakennari á Akur- eyri. Framboðsfrestur er til 20. september næstkomandi. Prófkjörið verður lokað, þ.e. þátttaka er bundin við þá, sem gengið hafa í flokk- inn áður en kjörfundi lýkur að kvöldi 18. október. Endurskoðuð þjóðhagsspá fyrir árið 1986: Tekist hefur að ná mark- miðum fehnia.rsa.mninga.nna. - segir Björn Björnsson, hagfræðingur Alþýðusambandsins BJÖRN Bjömsson, hagfræðingur Alþýðusambands íslands, telur að hin nýja þjóðhagsspá, sem forsætisráðherra kynnti í gær, staðfesti, að tekist hafi að ná markmiðum kjarasamninganna í febrúar. I sam- tali við Morgunblaðið benti hann jafnframt á, að næstu kjarasamning- ar verði gerðir við allt aðrar og hagstæðari aðstæður en fyrr og kvaðst trúa því að þar tækist samkomulag um að treysta þennan ávinning. „Markmiðin með kjarasamning- unum í febrúar voru í meginatriðum tvíþætt," sagði Bjöm. „Annars veg- ar að tryggja kaupmátt og stigvax- andi kaupmátt á árinu 1986. Hins vegar að ná tökum á verðbólgu og ná henni niður fyrir það, sem við höfum haft kynni af sl. fimmtán ár eða svo. Þessi nýja áætlun eða spá Þjóðhagsstofnunar er enn ein staðfesting á, að það eru allar horf- ur á að þessi markmið náist. Það er niðurstaða Þjóðhagsstofnunar, að verðbólga verði innan við 10 af hundraði á árinu og kaupmáttur vaxi um 8% á árinu. Þegar samn- ingamir vora gerðir í vetur var miðað við það, að kaupmáttur kaup- taxta yrði 3-4% betri í lok ársins en hann hefur verið að meðaltali s.l. tvö ár. Það er ljóst af verð- lagsspám, sem fyrir liggja, að allt bendir til þess að svo verði, en þá eram við vel að merkja bara að tala um almennar launabreytingar. Það hafa síðan verið gerðir ýmsir sérsamningar, sem fela í sér sér- stakar hækkanir til afmarkaðra hópa, og þegar tekið er tillit til þess, era núna horfur á því að kaup- máttur taxtakaups verði í lok ársins um 7% hærri en hann hefur verið síðustu tvö árin. Þetta virðist ætla að takast án Gott verð á gámafiski MJÖG gott verð hefur fengist fyrir gámafisk á Bretlandsmarkaði að undanförnu. A mánudagsmorgun vora seld 215 tonn af gámafiski fyrir 68 krónur að meðalverði, sem er mjög gott verð. Forstöðumaður neyðarvarna NATO á fundi í Reykjavík INNLENT WOLF Ehrt heitir forstöðumað- ur neyðarvarnaráðs Atlantshafs- bandalagsins (NATO Civil Emergency Planning Com- mittee), sem í gær hélt óformleg- an fund með íslenskum embættismönnum og öðrum þeim, sem hafa stjórn á fyrir- tækjum og stofnunum er gegna þýðingarmiklu hlutverki á stríðstímum. Meðfylgjandi mynd var tekin á fundinum, sem hald- inn var í ráðstefnusal ríkisins í gömlu Rúgbrauðsgerðinni. Á fundinum með Ehrt vora liðs- menn Almannavamaráðs ríkisins, hagvamaráðs og fleiri. Hann kynnti þeim hlutverk og starfsemi neyðar- vamaráðsins en það er sú stofnun NATO, sem hefur yfiramsjón með ýmsum borgaralegum viðbúnaði í stríðsátökum,. svo sem flutningi matvæla, olíu, mannafla o.fl. Wolf Ehrt er hér á vegum vamar- málaskrifstofu utanríkisráðuneytis- ins en fundurinn í gær var haldinn í samvinnu skrifstofunnar og Al- mannavama ríksins. í dag hitta Ehrt og íslenskir almannavama- menn foiystumenn vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli. þess að verðlagsmarkmiðum sé hnikað til svo nokkra nemi og ég vil því fullyrða að þau meginmark- mið sem lágu febrúarsamningunum til grundvallar hafi náðst og það era engar horfur á því að það rask- ist svo nokkra nemi á næstu mánuðum," sagði Björn. Björn Björnsson var spurður um samningshorfur í ljósi þessara að- stæðna. „Það er ljóst, að við göngum til næstu samninga við allt aðrar kringumstæður en gert hefur verið á undanfömum árarn," sagði hann. „Það er ljóst, að það hefur verið mikill vöxtur í fram- leiðslustarfseminni hjá okkur og það er jafnvægi í viðskiptum okkar við útlönd, auk þess sem verðbólga er komin niður á viðráðanlegt stig. Allt þetta ætti að gera okkur kleift, að gera samninga sem skila okkur áfram vaxandi kaupmætti án þess að verðbólga fari vaxandi á nýjan leik. Aðstæður era líka allt aðrar nú, að því leyti að í undangengnum samningum höfum við byijað á því að „semja okkur upp á eitthvað núll“, ef svo má komast að orði, en við göngum til þessara samninga með veralega kaupmáttaraukningu nýafstaðna. Við eram betur staddir að því leyti,“ sagði Bjöm Bjöms- son. „Hitt er svo annað mál, að við stöndum frammi fyrir miklum skiptavandamálum í okkar þjóðar- búskap. Það er ekki bara teflt um skiptingu afrakstrar milli launþega og atvinnurekenda, heldur líka um skiptingu innbyrðis milli atvinnu- greina og þar vitum við að aðstæður eru mjög mismunandi. Loks erþetta spuming um skiptingu innbyrðis milli launafólks. Það er erfitt og flókið mál að taka á þessum skipta- málum, hvemig sem litið er á þau. Hins vegar trúi ég því og treysti, að menn vilji ganga til næstu samn- inga með það markmið að tiyggja og treysta þann mikla árangur sem náðst hefur frá því samningar vora gerðir í febrúar."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.