Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
3
Athugun á
utanríkis-
þjónustu okk-
ar í Asíu
Utanríkisráðherra hefur skipað
nefnd til að gera sérstaka athugun
á fyrirkomulagi utanríkisþjónustu
íslendinga í Asíu, öðru fremur f
því skyni að greiða fyrir vaxandi
viðskiptum okkar þar.
Nefndinni er ætlað að skila niður-
stöðum sínum innan sex mánaða. í
fréttatilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu segir: „Þetta er í samræmi
við áhersluatriði í skýrslu utanríkis-
ráðherra, sem lögð var fram á Alþingi
í apríl sfðastliðnum.
Japansmarkaður er nú þegar þýð-
ingarmikill markaður fyrir íslenskar
afurðir og framleiðslu og þar eru
taldir vera miklir framtíðarmöguleik-
ar. Sama máli gæti einnig gegnt um
fleiri ríki í Asíu. Einnig er horft til
aukins samstarfs við Japani á sviði
orkuvinnslu og hátækni.
Nefndinni ber í starfi sínu sérstak-
lega að hafa samráð við samtök
útflytjenda og Útflutningsráð fs-
lands, sem tekur til starfa 1. október
nk.
Formaður nefndarinnar er Davíð
Ólafsson, fv. seðlabankastjóri. Aðrir
nefndarmenn eru Pétur J. Thorsteins-
son sendiherra, Guðmundur Bjama-
son alþingismaður, Hreinn Loftsson
aðstoðarmaður utanríkisráðhera og
Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytis-
stjórri, að höfðu samráði við við-
skiptaráðherra."
Landsþing
sveitar-
EF ÞÚ ÁTT
SRARISKÍRTEINI
RIKISSJÓÐS SEM
ERINNLEYSANLEGT
10. SEPTEMBER
sJLÞÁ SKALTU
IAverjast
ITaLLRIÁSÓKN
i !Í ÞAÐ
félaganna
ÞRETTÁNDA landsþing Sam-
bands islenskra sveitarfélaga
verður haldið á Hótel Sögu i
Reykjavík dagana 10.—12. sept-
ember nk. Gert er ráð fyrir að
þingið muni sækja um 200 kjörnir
fulltrúar auk margra innlendra og
erlendra gesta ni.a. frá samtökum
sveitarfélaga á Norðurlöndum.
í fréttatilkynningu frá sambandinu
segir að formaður sambandsstjómar,
Bjöm Friðfinnsson, setji landsþingið
kl. 10 á miðvikudagsmorgun. Við
þingsetningu flytur félagsmálaráð-
herra, Alexander Stefánsson, ávarp
og forseti borgarstjómar Reykjavík-
ur, Magnús L. Sveinsson, ávarpar
einnig þingið.
Á landsþinginu mun stjómarfor-
maður gera grein fyrir starfsemi
sambandsins síðasta kjörtímabil og
flutt verða alls sjö framsöguerindi.
Magnús Ólafsson hagfræðingur
mun flytja hugleiðingar um sveitarfé-
lögin á íslandi um næstu aldamót,
Ólafur Tómasson póst- og símamála-
stjóri um samstarf sveitarfélaga og
póst- og símamálastofnunarinnar up
uppbyggingu sjónvarpsdreifikerfa.
Magnús E. Guðjónsson framkvæmda-
stjóri sambandsins mun hafa fram-
sögu um nýju sveitarstjómarlögin og
drög að frumvarpi til laga um tekju-
stofna sveitarfélaga. Sigurgeir
Sigurðsson varaformaður sambands-
ins mun ræða um starf sambandsins
á næsta kjörtímabili og Ingvi Þor-
steinsson magister og Sigurður
Blöndal skógræktarstjóri munu ræða
um sveitarfélögin og gróðurvemd.
Þá mun Þorvaldur S. Þorvaldsson
forstöðumaður Borgarskipulags
Reykjavikur flytja erindi sem hann
nefnir Vistlegri vetrarbyggðir og loks
mun Steingrímur Gautur Kristjáns-
son borgardómari flytja erindi um
stjómsýslu ríkisins í héraði.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
ÞVI RIKISSJOÐUR
BÝÐUR ÞER NÝ
SKÍRTEINI MED
6.5% ÁRSVÓXTUM
UMFRAM
VERÐTRYGGINGU
OG AÐEINS TIL
TVEGGJA ÁRA
Þú skalt hugsa þig um tvisvar áður
en þú fellur fyrir einhverjum
þeirra tilboða sem nú rignir yfir þig.
Það er þinn hagur að ríkissjóður
ávaxti peningana þína áfram - í
formi nýs skírteinis; ávöxtunin er
góð og skírteinin eru laus eftir rétt
rúmlega tvö ár (gjalddagi er 10.
janúar 1989).
En það segir ekki alla söguna.
Þótt sumir bjóði álitlegri vexti en
ríkissjóður eru spariskírteinin engu
að síður um margt betri kostur. Þau
eru innlent lánsfé og draga því úr
erlendri skuldasöfnun, þau eru eign-
arskattsfrjáls (eignarskattur er nú
1,2% á ári) og þau eru öruggasta
fjárfesting sem völ er á; þeim fylgir
engin áhætta.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS
GOTTfÓLK/SlA