Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 4

Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986 Stöð 2: Páll Magnússon fréttastjóri „ÞAÐ MÁ reikna með að við munum reka harðari frétta- mennsku en tíðkast á ríkisfjöl- miðlunum - verðum nokkru aðgangsharðari og ákveðnari. Jafnframt verður yfirbragðið væntanlega léttara en fólk á að venjast og við munum geta leyft okkur að velja og hafna frétta- efni í ríkari mæli en hægt er á sjónvarpinu." Þannig lýsir Páll Magnússon væntanlegri fréttaþjónustu Stöðvar 2, hinnar nýju sjónvarpsstöðvar Is- lenska sjónvarpsfélagsins hf., sem ætlunin er að hefja starfrækslu á í byijun næsta mánaðar. Páll var ráðinn fréttastjóri Stöðvar 2 á sunnudagskvöldið og lét þá um leið af starfi varafréttastjóra fréttastofu sjónvarpsins. Hann sagði í gær að ráðning sín hefði átt sér alllangan aðdraganda en að allt fram á sunnudag hefði hann tekið þunglega í að fara frá sjónvarpinu. Þá hafi sér verið gert ákveðið tilboð, sem hann hafi ákveðið að taka, og fréttastjóri sjón- varpsins, Ingvi Hrafn Jónsson, hefði verið svo vinsamlegur að leyfa sér að hætta störfum fyrirvaralaust. Páll sagði að hann myndi í þess- ari viku hefja viðræður við hugsan- lega samstarfsmenn á fréttastofu nýju sjónvarpsstöðvarinnar en ætl- unin væri að ráða fimm fréttamenn auk sín. „Eg geri mér vonir um að við munum fljótlega fara að taka daglegar fréttamyndasendingar er- lendis frá en við hvaða erlendu fréttaþjónustu við munum skipta er ekki endanlega ákveðið. Sömu- leiðis er enn ekki fyllilega Ijóst hversu mikinn tíma fréttimar eiga eftir að taka í dagskrá stöðvarinnar en meginuppistaðan í þeim verður innlendar fréttir,“ sagði hann. Morgunblaðið/RAX Átti ekki annarra kosta völ - sagði Ómar Ragnarsson sem nauðlenti á Esjunni ÓMAR Ragnarsson fréttamað- ur nauðlenti flugvél sinni, TF-FRÚ, á Esju á sunnudags- kvöld. „Vélin tók ekki við sér þegar ég ætlaði að taka hana á loft aft- ur,“ sagði Ómar, er Morgunblaðið spurði hann um ástæður óhapps- ins. Ómar sagðist hafa verið að kanna svæði á fjallinu, en ætlað að hverfa frá því, þegar vélaraflið brást. Hefði hann þá ekki átt neinna kosta völ, annarra en að lenda. Flugvélin skemmdist ótrú- lega lítið miðað við aðstæður að sögn Ómars, sem slapp ómeiddur. Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug með vélina í böndum niður af fjall- inu og síðan var hún flutt á bifreið til Reykjavíkur. Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg Omar Ragnarsson og „Frúin“ á Esjunni í gær. Kaf f ibaunamálið: Tvöfalt reikningskerfi var „neyðar- ráðstöfun vegna sérstakra aðstæðna“ YFIRHEYRSLUR í „kaffibaunai í Sakadómi í gær. Þá var haldið son og síðan voru Sigurður Arni yfirheyrðir. Hjalti Pálsson, fyrrum yfírmað- ur innflutningsdeildar SÍS, var spurður að því hver hefðu verið hans persónulegu afskipti af kaffiviðskiptunum á þeim tíma sem málið snýst um. Hann sagði að kaffimál hefðu lítið komið inn á borð til sín á þessum tíma þar sem engin vandamál sköpuðust og hlutir gengu eðlilega fyrir sig. Sagði Hjalti að öll telex og önnur skeyti sem starfsmenn innflutn- ingsdeildar hafi sent eða tekið við hafi komið inn á borð til sín dag- inn eftir, en bunkinn verið svo stór að hann hafí ekki alltaf lesið öll skeytin og stundum engin. Þá var Hjaita bent á að hann hefði kallað viðskipti SÍS og Kaffi- brennslunnar „samráðsviðskipti" við meðferð málsins, en við yfír- heyrslur hjá rannsóknarlögreglu sagði hann viðskiptin hafa verið umboðsverslun. Kvað Hjalti ekki hafa verið farið nákvæmlega í eðli viðskiptanna í yfirheyrslum lögreglunnar. Þessu næst var Hjalti inntur eftir því hvort rétt væri að hann hefði vitað um tilvist avisos-kerfis í kaffibaunaviðskiptunum. Sagð- málinu" svokallaða héldu áfram áfram að yfirheyra Hjalta Páls- Sigurðsson og Gísli Theódórsson ist hann hafa vitað um það frá upphafí, en þetta hafi verið svo lítið í fyrstu að hann hafi ekki gert sér grein fyrir að það skipti máli. Þá sagði Hjalti að sér hafi ekki verið kunnugt um umboðs- laun þau er Kaffibrennslan greiddi fóðurvörudeild SÍS, sem sá um innflutning kaffibauna. Sigurður Ámi Sigurðsson, fyrr- verandi deildarstjóri fóðurvöru- deildar SÍS og núverandi forstöðumaður skrifstofu SÍS í London, var yfirheyrður næst. Hann sagði að sig minnti að avis- os-kerfið hafi fyrst verið notað árið 1978, en hann tók við stöðu deildarstjóra árið 1977. Hafi hann fyrst heyrt um kerfi þetta í boðum frá NAF í Kaupmannahöfn. Þá sagði Sigurður að verðfallsbætur hafi einnig tíðkast, en sagðist ekki muna hvenær það var fyrst. Um starf sitt í fóðurvörudeild sagði Sigurður að hann hefði haft mjög frjálsar hendur varðandi inn- flutning og hefði ekki þurft að hafa náið samráð við yfirmann sinn. Þetta hafi þó ekki átt við um kaffiinnflutning, því þar hafi hann jafnan haft samráð við Hjalta Pálsson, yfirmann sinn, þar eð miklir Qármunir voru í húfi. Taldi Sigurður að hann hafi sagt Hjalta frá avisos-kerfinu um leið og það var notað fyrst. Öll tilboð sem bárust um sölu á kaffi hafi hann rætt við Hjalta, sem hafi jafnan verið með í ráðum þegar endanleg ákvörðun var tekin um hvaða tilboði skyldi tekið. í skeyt- um frá NAF, þar sem sagt var frá tilboðum, hafi jafnan komið fram hver avisos dagsins væri, en hann var breytilegur eftir heimsmarkaðsverði. Sigurður sagðist ekki muna nákvæmlega hvenær fyrst var farið að nota tvöfalt kerfí vöru- reikninga og hafí ekki tekið ákvörðun um það sjálfur. Það hljóti að hafa verið gert í samráði við yfirmann hans, Hjalta. Hafí sú ráðstöfun, að hafa tvöfalt kerfi, verið talin neyðarráðstöfun vegna sérstakra aðstæðna þá, þar sem ekki var talið að avisos- kerfíð yrði langvarandi. Kvaðst Sigurður gera ráð fyrir því að hann hefði sjálfur gefíð fyrirmæli um að senda hærri vörureikninga í Landsbankann á Akureyri til innheimtu hjá Kaffíbrennslunni, en fyrirmæli um þetta hafi hann fengið hjá Hjalta Pálssyni. Sagð- ist hann einnig gera ráð fyrir að það hafí verið að fyrirmælum Hjalta að hann ræddi ekki um afslátt af verði kaffisendinga við forráðamenn Kaffibrennslunnar. Sagðist Sigurður aldrei hafa orðið þess var að forráðamenn Kaffí- brennslunnar hafí vitað um avisos-kerfið. Þegar Sigurður var inntur eftir því hvort hann hafí einhvem tíma rætt um tvöfalt kerfí vörureikn- inga við Erlend Einarsson, fyrrum forstjóra Sambandsins sagði hann að svo hafí ekki verið. Hann hafi tvívegis átt fund með Erlendi og Hjalta Pálssyni báðum um kaffí- viðskiptin. Fyrra skiptið var sumarið 1979 og var þá rætt um auknar tekjur af kaffiviðskiptun- um. Minnti Sigurð að það hafí einnig verið rætt á fundi þeirra þriggja við áramót 1980-1981. Loks var Gísli Theodórsson yfírheyrður. Hann var forstöðu- maður skrifstofu SÍS í London frá aprílbyijun 1977 til ársloka 1980. Kvaðst hann fyrst hafa vitað af avisos-kerfinu árið 1979, þegar vörureikningar bárust skrifstof- unni í London, en þeir voru síðan sendir Landsbankanum á Akur- eyri til innheimtu hjá Kaffi- brennslunni. Ekki kvaðst Gísli minnast þess að hafa séð minnst á verðfallsbætur á reikningum. Sagðist hann fyrst hafa fengið vitneskju um tvöfalt kerfi vöru- reikninga síðla árs árið 1979, er hann fékk boð frá fóðurvörudeild um að hann ætti von á tvenns konar vörureikningum fyrir sömu sendingu kaffibauna, á öðrum reikningnum yrði avisos gefinn upp, en á hinum yrði aðeins gefíð upp brúttóverð vörunnar og ætti að senda þann reikning til Akur- eyrar. Sagðist Gísli hafa fengið boð þessi frá Sigurði Ámá Sig- urðssyni, þáverandi deildarstjóra fóðurvörudeildar. Taldi Gísli fyrir- mæli þessi hafa komið frá Hjalta Pálssyni, en ekki vildi hann full- yrða það. Hann hefði aldrei rætt þessi mál við Hjalta fremur en um avisos-kerfið. Ekki minntist Gísli þess að hafa rætt þessi mál við Erlend Einarsson heldur. Afsláttargreiðslur kvað Gísli hafa verið greiddar inn á umboðs- launareikning fóðurvörudeildar- innar í London og síðan yfirfært á reikning SÍS í Reykjavík. Sagð- ist hann aldrei hafa litið svo á að tvöfaldir vörureikningar hefðu verið notaðir í blekkingarskyni, heldur hefðu þeir verið bókhalds- skjöl, sem sýndu stöðu viðskipt- anna við Brasilíumenn. Yfírheyrslum yfir Gísla Theo- dórssyni verður fram haldið í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.