Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 13

Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986 13 = HEÐINN = VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER NÝR — segir Sturla Friðriksson formaður íslensku undirbúningsnefndarinnar OG FULLKOMNARI OFNHITASTILLIR FRÁ DANFOSS Alþjóðleg ráðstefna um landuppgræðslu: „Menn gleyma oft hversu mikilvægt hánorrænt gróðurfar er sem und- irstaða lífs á norrænum slóðum“ Rétt val á sjálfvirkum ofnhitastillum heldur orkukostnaði í lágmarki. Leitið ráða hjá okkur. svæði og sýna fram á mikilvægi þeirra fyrir vistkerfíð." Islensku fyrirlestramir fjalla að- allega um það, hvemig náttúran fer sjálf að því að klæða auð land- svæði. Eyþór Einarsson fjallaði um gróðursnauð lönd sem hafa komið undan jöklum. Annaðhvort í kjölfar jökla sem eru á undanhaldi eða jök- ulris sem koma uppúr jöklum þegar þá leysir. Dr. Hörður Kristinsson flutti fyr- Morgunbladið/Þorkell Frá ráðstefnunni á Hótel Loftleiðum. Sturla Friðriksson flytur erindi sitt um Surtsey. irlestur um uppbyggingu og framgang gróðurs á hraunum, sem eru einnig nýskapaður berangur, og hvernig fléttur og mosar eru frumherjar í að nema land á ný- sköpuðu landi eftir eldgos. Andrés Arnalds talaði um gróðurskemmdir á íslandi. Hvernig landið hefur gengið úr sér eftir landnám og hvaða þættir hafa stuðlað að gróðu- reyðingu eftir að maðurinn nam hér land. Sturla Friðriksson flutti erindi um gróður þann sem smám saman er að leggja undir sig Surtsey, sem er nakið land myndað af náttúruöfl- um. „Það er fróðlegt að fylgjast með þvi hvemig gróður fer að því að komast inn á ey sem Surtsey og nema þar land. Það getur einnig haft mjög hagnýta þýðingu fyrir okkur að fylgjast með því hvemig náttúran sjálf fer að við land- græðsiu og auðveldar okkur að líkja eftir aðferðum hennar. Jafnvel mætti finna nýjar landgræðsluað- ferðir út frá svona rannsóknum, sem dæmi má nefna að ef til vill væri hentugra að nota melaplöntur s.s. fjöruarfa við landgræðslu í stað grass." Ennerhitastillta baö- blöndunartækiðfrá Danfoss nýjung fyrir mörgum. Hinirsemtil þekkjanjótagæða þeirra ogundrast lágaverðið. = HÉÐINN = SELJAVEGI 2, REYKJAVÍK. Alþjóðaráðstefna um upp- græðslu lands á norðurheim- skautssvæðinu var sett í gær á Hótel Loftleiðum. Á ráðstefn- unni verður fjallað um efnið „Uppgræðsla, endurbætur á landi og þróun gróðurs á norð- lægum slóðum sem orðið hefur fyrir röskun af völdum náttúru- afla eða manna". Það var Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, sem setti ráð- stefnuna en að henni stendur Alþjóðanorðurheimskautsráðið, „Comité Artique Intemational", sem hefur aðsetur í Mónakó. „Þessi ráðstefna mun standa hér út þessa viku og á henni verða flutt á sjöunda tug erinda um málefni norðurheimskautssvæðisins, meðal annars munu nokkrir .íslenskir vísindamenn flytja erindi um upp- græðslumál og skógrækt hér á landi,“ sagði Sturla Friðriksson formaður íslensku undirbúnings- nefndarinnar í samtali við Morgun- blaðið. „Það er því miður svo í dag, að mönnum yfirsést að minnast þess hversu mikilvægt hánorrænt gróð- urfar er sem undirstaða lífs á norrænum slóðum og á heimsmæli- kvarða fyrir jafnvægi í umhverfi jarðarinnar. Það er meira talað um súrt regn og eyðingu skóga í Amaz- on þó að nokkrir áhugamenn um gróður á norðurskautum hafi unnið heilmikið starf í að rannsaka þessi Von-Veritas opnar meðferðarheimili í Danmörku: Lækna áfengissjúklinga með íslenskum aðferðum Kynningarstarf meðferðar- heimilisins Vonar á Norðurlöndun- um hefur borið góðan árangur. Þann 14. september nk. verður opnað meðferðarheimili fyrir áfengissjúklinga í bænum Vester- berg í Danmörku sem ber nafnið „Von-Veritas“. Að sögn Skúla Thoroddsen, framkvæmdastjóra, hefur allt starfsfólk heimilisins hlotið þjálfun hér á landi, og þau vinnubrögð sem notuð eru við meðferð dönsku sjúklinganna eru fengin héðan. Samhliða stofnun heimilisins hefur Von opnað skrif- stofu í Kaupmannahöfn sem aðstoðar fjölskyldur og aðstand- endur áfengissjúklinga. Von- Veritas er í eigu danskra fjárfestingaraðila, en verður háð Von á íslandi að mörgu leyti. Danska meðferðarheimilið var inn- réttað í gömlu skólahúsi. Fullbúið á það að geta tekið við 65 sjúklingum. Meðan þjálfun starfsfólks stendur enn yfir verður þó aðeins hægt að hýsa 25 manns. Yfirlæknir Von- Veritas, Gert Holm, hlaut þjálfun hér á landi, og meðferðarstjórinn, Gunnar Þorsteinsson, hefúr starfað fyrir Von frá upphafi. í starfsliðinu verða fleiri íslendingar sem allir hafa verið bú- settir í Danmörku. Skúli sagði að danska sjúkrasam- lagið viðurkenndi ekki enn aðferðir Vonar. Sjúklingar sem njóta með- ferðarinnar verða því að ljármagna lækninguna sjálfir. „Eigendur Von- Veritas munu bjóða áfengissjúkling- unum hagstæð lán til 4-5 ára,“ sagði Skúli. „Það gerist æ algengara að fyrirtæki í Skandinavíu borgi meðferð starfsmanna sinna sem stríða við áfengissýkina. Einnig viðurkenna sumar sveitarstjórnir aðferðir okkar og styrkja sjúklinga til meðferðar. Lán til drankere der vil fri af flasken Minnesota- kuren til Danmark Af Nils Thorsen Et lille hejloflet værelse, hvidt og tomt. En pyja- mas. en seng. Uden for , vinduet, fuglesang. Oven- ; fra, den knagende lyd af fodtrin fra andre alkoho- Iiltere. som allerede er færdige med afgiftningen og kan bevæge sig rundt pA blede gulvtsepper i de- res eget tej. 1*1 stuMtsftns nejn* julv bliver de (ersu iven tkndt W« I den Ubynnt. lom over kslvdelen (orleder. uden nogen sinde et rore alkobol i*en Hernede ryster hænderne ttadif eíter mrre a( den alkohol, tom hurtift trappes ned Hverdaferder imi Gunnar Thunlnnrton af Htnrik Btrndrrn — hlbydtr nu MmntiOla kuren $om h/&lp hl darukr alkohohktrt Drt re dyrt mf nok Mhtrrr i dtt bnfr iet Ognukan manlintlil brhandlinttn Foto — Lart Danskir fjölmiðlar hafa fjallað mikið um starfsaðferðir Vonar að undan- förnu. Hér sést úrklippa úr dagblaðinu „Politiken". Blaðamaðurinn vekur sérstaka athygli á því að sjúklingar þurfi að fjármagna með- ferðina á Von-Veritas-heimilinu sjálfir, en lýkur lofsorði á árangursríkar aðferðir íslendinga. Á myndinni er Gunnar Þorsteinsson, meðferðar- stjóri, ásamt Henrik Berndsen. Ég á því von á því að einstaklingarn- ir þurfi í fæstum tilvikum að borga meðferðina sjálfir.“ f Danmörku og Svíþjóð er vaxandi áhugi fyrir þeim aðferðum sem ís- lendingar nota við meðferð áfengis- sjúklinga. Skúli sagði að þess yrði ekki langt að bíða að Von opnaði meðferðarheimili í Svíþjóð. Fer hann utan í næsta mánuði til viðræðna við sænska aðila, en þekkt stórfyrirtæki hafa sýnt verkefninu áhuga. Sem kunnugt er eru starfsaðferðir SÁÁ og Vonar sniðnar að bandarískri fyr- irmynd. „Við höfum þróað þessar aðferðir og aðlagað þær íslenskum aðstæðum. Þær falla þvi miklu betur að skandinavískum hugsunarhætti, og hafa gefist betur en sjúkrastöðvar sem Bandaríkjamenn reka á Norður- löndunum," sagði Skúli. Meðferðarheimili Vonar í Reykjavík hóf starfsemi sína á síðasta ári. Það hafa m.a. gist áfengissjúkl- ingar frá Svíþjóð, Danmörku, og Færeyjum. „Von-Veritas er ekki síst mikilvægt fyrir starfsemi Vonar hér á landi. Við höfum nú tryggt að hing- að komi áfram sjúklingar frá Norðurlöndunum, og getum stjómað streymi þeirra. Þannig getum við einnig haldið starfsfólki okkar í stöð- ugri þjálfun, og stjórnað frekari verkeftium erlendis," sagði Skúli. m IAUSAR STÖÐURKJÁ 'I' REYKJAVÍKURBORG Starfsfólk óskast I eftirtaldar stöður: 1. Forstöðumannsstöðu við leikskólann Fella- borg, Völvufelli 9. 2. Forstöðumannsstöðu við leikskólann Lækja- borg v/Leirulæk. 3. Forstöðumannsstöðu við dagh./leikskólann Grandaborg v/Boðagranda (nýtt heimili). Fóstrumenntun áskilin. Umsóknarfrestur um stöð- urnar er til 20. sept. nk. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri og umsjónar- fóstrur í síma 27277 og 22360. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.