Morgunblaðið - 09.09.1986, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
Látum málaskakí
nú vera lokið
eftir Gísla Gíslason
Nú þegar líða fer að lokum knatt-
spymuvertíðar hérlendis fer jafn-
framt að hylla undir lok þeirra
kærumála, sem nokkur félög í 1.
deild hafa búið á hendur fþrótta-
bandalagi Akraness vegna þátttöku
Péturs Péturssonar í leikjum ÍA að
undanfömu. Nú hefur dómstóll KSÍ
kveðið upp dóm í máli FH gegn ÍA
og staðfesti dómurinn niðurstöðu
íþróttadómstóls íþróttabandalags
Hafnarfjarðar að sýkna skyldi IA
af kröfum FH. Hefur því eitt af
þeim málum, sem af stað hafa far-
ið verið til lykta leitt með þeirri
niðurstöðu að leikmaðurinn Pétur
Pétursson sé löglegur með ÍA.
Tilefni greinar þessarar er í
fyrsta lagi að koma á framfæri sjón-
armiðum Skagamanna í málinu og
í öðru lagi að fjalla nokkuð um
málflutning andstæðinga okkar í
málum þessum og ekki hvað síst
afar villandi grein Harðar Hilmars-
sonar í Morgunblaðinu þann 27.
ágúst sl.
í upphafi málafaraidurs félag-
anna áttu þau öll það sammerkt
að forráðamenn félaganna kepptust
við að lýsa því yfir að um væri að
ræða „prinsipp“-mál, en enginn
bjóst við að Pétur yrði dæmdur
ólöglegur. Allt tal um fallbaráttu
eða smugu til að leika til úrslita í
Mjólkurbikamum heyrðist ekki
nefnt. Þessi sérstaki rammi sem
félögin settu málatilbúnaði sínum
átti vafalaust að varpa sakleysis-
birtu á kærumar, en fela þær
raunvemlegu hvatir sem að baki
lágu. Hámarki náði þó hvítþvottur
kærenda með grein Harðar Hilm-
arssonar þar sem sökinni er skellt
á „óljósar og villandi" reglur KSÍ.
Ein málsástæða kærenda er sú
að Pétur Pétursson sé atvinnumað-
ur. Enginn hefur þó haldið því fram
að Pétur hafi fengið greitt fyrir
þátttöku sína í leikjum með ÍA held-
ur telja þeir sér trú um að Pétur
sé samningsbundinn félaginu Royal
Antwerpen í Belgíu. Samkvæmt
framburði Péturs sjálfs og skeyti
frá belgíska knattspyrnusamband-
inu rann samningur Péturs út hjá
Royal Antwerpen 30. júní 1984.
Félagið hefur hins vegar rétt til
þess að áskilja sér þóknun fari Pét-
ur á ný í atvinnumennsku og þess
vegna samþykkti það félagaskipti
til IA aðeins til 15. október nk. Það
að Antwerpen eigi þetta tilkall til
leikmannsins er alþekkt í Evrópu
og nægir að benda á sams konar
áskilnað í samningum Sævars Jóns-
sonar, Janusar Guðlaugssonar og
fleiri leikmanna, en gögn KSI varð-
andi féiagaskipti ieikmanna milli
landa eru öllum opin. Þrátt fyrir
dóm dómstóls ÍBH og KSÍ um að
áhugamannaleyfí það sem Pétur
fékk útgefíð með keppnisleyfi frá
KSÍ standi og ekkert bendi til at-
vinnumennsku Péturs þá hafa
Valsmenn breytt nokkuð sókn sinni
og telja KSÍ ekki hafa haft heimild
til þess að veita Pétri keppnisleyfi
og vilja nú haida því fram að Pétur
sé ekki „alvöru" áhugamaður í
„ólympískum" skilningi. Langt er
seiist til að koma höggi á andstæð-
inginn en aðferðir Valsmanna leiða
þó hugann að stöðu Sævars Jóns-
sonar með því liði sem varð Islands-
meistari á síðastliðnu ári. Hafa
Valsmenn kynnt sér hvemig félaga-
skiptum Valsstúlknanna Guðrúnar
Sæmundsdóttur og Bryndísar Vals-
dóttur er háttað? Sem kunnugt er
unnu Valsstúlkurnar bæði Islands-
mótið og bikarkeppni kvenna og
fullvíst má telja að skilyrt félaga-
skipti þeirra Guðrúnar og Bryndísar
annars vegar úr Val til Italíu og
hins vegar frá Ítalíu til Vals hefðu
átt að leiða til gagnrýnnar skoðun-
ar forráðamanna Vals á eigin stöðu.
Hvað varðar ásökun FH-inga um
atvinnumennsku Péturs þá er minnt
á stöðu þjálfara þeirra í FH, Inga
Bjöms Albertssonar, en íhuga má
hvenær hann sé að störfum sem
launaður þjálfari og hvenær leik-
maður.
Kærendur hafa þá stutt mál sitt
því, að ólöglega hafi verið staðið
að félagaskiptum Péturs. Megin
röksemd ÍA fyrir því að Pétur sé
löglegur er að félagið fékk fyrir
leik FH og ÍA skriflega leikheimild
fyrir leikmanninn sem samræmist
reglum KSÍ. Því var ætíð haldið
fram að ef ekki hafi verið rétt stað-
ið að félagaskiptunum þá væri við
KSÍ að eiga en ekki ÍA. Dómstóll
KSÍ tók af allan vafa um að ef
skrifleg leikheimild lægi fyrir þá
væri leikmaður löglegur. Að auki
töldu dómstólar KSÍ og ÍBH rétt
að félagaskiptunum staðið og ætti
það álit að duga FH-ingum, Vals-
mönnum og öðmm sem hafa hug
á að leita svars í því sem nefnt
hefur verið „prinsipp“-mál.
Telja verður það stórt skref fram
á við að telja skriflega leikheimild
KSÍ nægjanlega til að sanna lög-
mæti leikmanns. A aðalfundi KSÍ
var þetta fyrirkomulag ákveðið og
þó svo einstök félög sætti sig ekki
við þetta þá verða þau hin sömu
félög, ef þau vilja breytingar, að
gera tillögu um slíkt á réttum vett-
vangi, en ekki að þreyta einstök
félög með málssóknum.
Vitnað hefúr verið til svokallaðs
Albertsmáls kærendum til stuðn-
ings og hefur án árangurs verið
bent á að málið eigi ekkert skylt
við mál Péturs Péturssonar. í fyrsta
lagi fer Hörður Hilmarsson með
rangt mál í grein sinni þegar hann
segir að KSI hafi sent Val skeyti
um að Albert Guðmundsson væri
löglegur. KSÍ sendi ekkert slíkt
skeyti heldur voru Valsmenn sér-
staklega aðvaraðir við notkun
lcikmannsins. Þá var það skilyrði
sett fyrir félagaskiptum Alberts að
hann ætti að snúa aftur til síns
fyrra félags í Kanada í september,
sem var á þeim tíma sem KSÍ var
óheimilt að samþykkja félagaskipti
leikmanna til erlendra félaga. Loks
má benda á að mál Alberts Guð-
mundssonar leiddi til þess að sett
var reglugerð um félagaskipti
íslenskra leikmanna milli landa.
Eftir þeirri reglugerð var í einu og
öllu farið þegar Pétur skipti yfir í
sitt „gamla" félag ÍA.
í grein Harðar Hilmarssonar er
ýjað að einhveijum atburðum sem
eiga að vera að gerast bak við tjöld-
in hjá KSÍ og tæpt á orðrómi um
misnotkun valds KSÍ og spillingu.
Er þá komið til botns í allri um-
fjöllun um mál kærenda og IA. I
fyrsta lagi verður að benda á að
KSI saman stendur af fulltrúum
félganna sjálfra og allur ádráttur
um óheiðarleika þeirra er vítaverður
þegar nota á hann í þeim tilgangi
að réttlæta kærumál sem aðeins
beinist að ÍA en ekki KSÍ. í öðru
lagi er það svo að dómstóll í Hafnar-
firði, skipaður Hafnfirðingum, taldi
kröfú FH-inga ekki réttmæta. í
þriðja lagi áttu m.a. sæti í dómstól
KSÍ Valsmaðurinn Jón G. Zoega
og Frammarinn Jón Steinar Gunn-
laugsson sem staðfestu dóm
dómstóls ÍBH og ekki verða þeir
sakaðir um að ganga erinda ÍA og
KSÍ.
Ef frá er skilin grein EUerts B.
Schram í Morgunblaðinu þ. 16.
ágúst sl., þá er ljóst að umfjöllun
um mál þetta hefur einkennst af
vanþekkingu á reglum KSÍ en
hafna verður því algerlega að regl-
umar séu óljósar og óskýrar. Þeir
sem ekki hafa kynnt sér málavexti
af kostgæfni og lesið reglur KSÍ
eiga að láta það ógert að fjalla
opinberlega um málið.
Einn er sá þáttur sem minna
hefur farið fyrir en rétt er að varpa
hér fram. Það er spumingin um það
hver skuli bera hina fjárhagslegu
áhættu af því að stofna til kæm-
mála. Það færist sífellt í vöxt að
félög noti dómstóla íþróttahreyfing-
arinnar til þess að fá álit á lögum
og reglum hreyfingarinnar og virð-
ist litlu skipta þótt lög og reglur
séu settar til höfuðs slíku. Sam-
kvæmt almennum landslögum er
óheimilt að leita álits dómstóla á
lagagreinum og ætti svo einnig að
gilda hjá íþróttahreyfingunni.
Opið til kl. 19 mánudaga til fimmtudaga, til kl. 20 föstudaga og 10-16 laugardaga.
Athugið að þessi tilboð gilda aðeins út þessa viku.
Electrolux ryksuga D 720
1100 w mótor. Verð áður 11.
900 - nú 9.990.
Electrolux hrærivél Assistent
N-10 m/stálskál.
Verð áður 16.960 - nú 14.990.
Electrolux hrærivél N-15 á
vegg. Verð áður 12.097 - nú
9.500.
Electrolux uppþvottavél BW
200 fyrir 12-14 manns m/ stál-
belg, mjög hljóðlát. Verð áður
33.500 - nú 29.000.
Electrolux eldavél, 60 cm, sjálf-
hreinsandi, m/4 hellum, hita-
hólfi o.fl. Verð áður 23.250 -
nú 19.990.
Electrolux bjórtunnukæliskáp-
ur f/þrýstiloftstæmingu, kæli-
skápur á undan sinni samtíð.
Verð áður 21.000 - nú 17.990.
Electrolux slípirokkur fyrir ryk-
sugur, sýgur upp rykið um leið
og hann slípar. Ekkert ryk. Verð
áður 1.990 - nú 990.
Electrolux kæli- og hitabox í
sama stykkinu, tengist við
kveikjarann í bílnum. Tilvalið í
ferðalagið, í jeppann, á vél-
sleðann o.fl. Verð áður 3.990 -
nú 1.990.
Bjóðum einnig 25% kynningar-
afslátt af nýjasta helluborðinu
frá GAGGENAU sem er með
HALOGEN hellu, 4 hellu borð.
Verð áður 31.900 - kynningar-
verð nú 23.925.
Oster hrærivél með 30% af-
slætti meðan birgðir endast.
Sáralítið útlitsgallaðir kæliskáp-
ar á sértilboði. Frá Electrolux.
Electrolux frystiskápur TF 730
m/ 20% afslætti.
Bjóðum einnig sjónvörp,
videotæki, ferða- útvarps- og
kassettutæki frá Blaupunkt,
Xenon, Orion, Sanyo, Pana-
sonic o.fl. á sérstökum hausttil-
boðskjörum. Ekkert út og
eftirstöðvar á allt að 6 mánuð-
um.
Sértilboð á VHS óáteknum E
180 videospólum. Aðeins 595.
Mikið úrval af IGNIS kæliskáp-
um í mörgum stærðum og
gerðum, einnig á sértilboði.
Mikið úrval af húsgögnum
á lágu verði. Yfir 60 teg-
undir á hausttilboðinu.
Dæmi um verðlækkun:
Bambusstóll m/pullum. Verð
áður 5.625 - nú 3.900.
Leðursófasett, 3ja sæta sófi og
tveir stólar. Verð áður 85.900 -
nú aðeins 59.900.
Sólstóll. Verð áður 845 - nú
590.
Garöstóll. Verð áður 976 - nú
680.
Bambusstólar í rauðu, bláu og
hvítu. Verð áður 1.245 - nú
650.
Gamaldags bókahilla, antik,
hnota. Verð áður 17.084 - nú
13.667.
Eldhúsborð, brúnbæsuð, áður
7.352 - nú 5.800.
2ja sæta sófi í gráu. Verð áður
23.499 - nú 16.449.
Vegghillur m/3 hillum, hvítar
eða svartar. Verð áður 1.604 -
nú 1.123.
Kommóða með tveim skúffum
og skáp. Verð áður 8.122 - nú
4.990.
Massíft furuborð með 6 stólum.
Verð áður 47.109 - nú 29.900.
Kommóða með 5 skúffum úr
massífri furu. Verð áður 12.537
- nú 9.900.
Athugið: takmarkaðar
birgðir, þess vegna er um
að gera að koma fyrstu
dagana meðan úrvalið er
mest.
Þú kemur og semur um
kjörin.
VÖi ’umar kaður > 'inn h
Eiöistorgi 11 - sími 622200