Morgunblaðið - 09.09.1986, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
4
Pína o g purpuri
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
AusturbæjarbSó: Purpuraliturinn
— The Color Purple ★ ★ ★ lh.
Leikstjóri Steven Spielberg.
Framleiðandi Spielberg, Quincy
Jones o.fl. Tónlist Jones. Handrit
Menno Meyjes, byggt á verð-
launaskáldsögu Alice Walker.
Aðalhlutverk Danny Glover,
Whoopi Goldberg, Margaret
Avery, Oprah Winfrey, Williard
Pugh, Akosua Busia, Adolph
Ceasar, Rae Dawn Chong.
Bandarisk, Wamer Bros. 1985.
U.þ.b. 120 mín.
Purpuraliturinn hefst á fyrsta
áratugi aldarinnar í samfélagi þel-
dökkra í Georgiu. Celia er að
eignast annað bam sitt með föður
sínum, sjálf vart af bamsaldri. Karl-
inn kemur þeim báðum fyrir í
höndum ókunnugra. Skömmu síðar
gefur hann nágrannabónda, ekkju-
manni með §ögur böm, þessa
vansælu dóttur sína sem nú fær
að þola enn meiri rangsleitni og
auðmýkingar en nokkru sinni fyrr.
Hald hennar og traust er systir
hennar Nettí, en hún er snögglega
hrakin á brott. Þá á Celia ekkert
eftir annað en óbilandi trú á hið
góða í gráum heimi.
Það er síðan gömul vinkona hins
nýja húsbónda Celíu, blússöng-
konan Shug, sem hrífur Celíu upp
úr þjáningum sínum og þrenging-
um. Vekur hana til meðvitundar
um eigið manngildi og möguleikana
í kringum hana. Smá saman rís hún
upp á fætuma.
Spielberg hefur vaxið sem leiksfjóri með Purpuralitnum. T.d. er
stjórn hans á leikurum eins og nýliðanum Whoopi Goldberg hreint
undraverð. Enda er maðurinn fjölhæfur, forríkur — og hataður.
INNLAUSN SPARISKÍRTEINA ÞANN 10. og 15. SEPTEMBER!
VIÐ BJOÐUM
EIGENDUM
SPARISKÍRTEINA
HÆRRIVEXTIEN
RÍKISSJÓÐUR
BYÐUR
MEÐ
„SKIPTI-
BREFUM”
SINUM
í stað „skiptibréfa" bjóðum við þér hærri vexti í
staðinn fyrir spariskírteinin þín.
Sérfræðingar Fjárfestingarfélagsins innleysa spari-
skírteinin fyrir þig og aðstoða þig við val á nýjum
sparnaðarleiðum, sem þér henta.
Við hjá Fjárfestingarfélaginu veitum þér sérfræði-
lega aðstoð og ráðleggingar við val á sparnaðar-
leiðum, sem tryggja þér örugga fjárfestingu og háa
vexti. Hafðu samband við skrifstofu okkar í Hafnar-
stræti 7 eða hringdu til okkar í síma 28566.
Sparifjáreigendur, leitið fyrst til okkar áður en þið
ráðstafið sparifé ykkar - við gefum ykkur góð ráð!
Q2>
FJÁRFESTINGARFÉIAGIÐ
VERÐBRÉFAMARKAÐURINN
Hafnarstræti 7 101 Reykjavík 0(91) 28566
Það er ljóst að með Purpuralitn-
um vildi galdramaðurinn Steven
Spielberg sýna umheiminum að
hann gæti annað og meira en stýrt
og skapað með eindæmum vinsælar
ævintýramyndir fyrir böm og full-
orðna (ET., Jaws, o.s.frv.). Nú var
kominn tími til að snúa sér að alvar-
legri og metnaðarfyllri verkefnum.
Og undrabamið réðst ekki á garð-
inn þar sem hann var lægstur. Fyrir
valinu varð umtöluð Pulitzer-verð-
launaskáldsaga Alice Walker,
ljóðræn, viðkvæm lýsing á uppreisn
þeldökkra kjmsystra hennar í óvin-
veittum Suðurríkjum fyrri hluta
aldarinnar.
Og Spielberg þarf ekki á neinum
hundakúnstum að halda né heljar-
brellum til að skapa eftirtektar-
verða mynd og ná til milljónanna.
Purpuraliturinn staðfestir að
hann er jafnfær og gera listrænar
myndir um líf og örlög dauðlegra
manna sem geimálfa og goðumlík
ofurmenni. Spielberg hefur vaðið
greinilega fyrir neðan sig. Hefur
slævt ástarsamband Shugs og Celí-
ar svo naumast vottar fyrir því í
myndinni, en í bókinni er það eitt
undirstöðuatriðanna, markaði ein
stærstu tímamótin í lífi Celíar.
Veitti henni, auk ástar og unaðar,
virðingu og sjálfstraust til að byija
að leggja í ormstu við umhverfíð.
Spielberg er semsagt hlynntur æv-
intýrinu, líkt og fýrri daginn. Mörg
önnur meginatriði eru einnig böðuð
talsverðum ævintýraljóma einsog
bréfasamband systranna og endur-
fundir Shugs og föður hennar,
sveitaklerksins.
En Spielberg er enginn skussi
og hann er ekki að klúðra hinni
myndríku og hjartnæmu sögu Wal-
kers. Hefur einfaldlega valið þann
kostinn að slfpa niður suma þá
kanta hennar sem farið geta fýrir
brjóst manna — andstætt ævintýr-
inu. Straumiínulagað hana að
smekk fjöldans. Þetta er aukaat-
riði. AðaJatriðið er að Purpuralit-
urinn er hrífandi kvikmynd um
fegurð mannsálarinnar sem ekki
lætur bugast heldur berst til sigurs
á átakanlegu mótlæti og bágbomu
umhverfí.
Og hvílíkur leikur! Whoopi Gold-
berg rís hæst. Er stórkostleg
þungamiðja myndarinnar sem brýst
á móti straumnum. Hún túlkar
þessa yndislegu manneskju af ótrú-
legri, hrífandi innlifun, hverrar kjör
minna lengi framan af á íslenska
niðursetninginn. Oprah Winfrey
gefur henni lítið eftir í hlutverki
hinnar ógæfusömu Soffíu og Marg-
aret Avery er sannfærandi sem hin
frelsandi Shug. Danny Glover sann-
ar það hér, sem í Places in the
Heart að hann er mikilhæfur leik-
ari og Adolph heitinn Ceasar er
gustmikill að vanda.
Allt þetta ágæta fólk, auk tónlist-
arsnillingsins Quincy Jones, (sem
reyndar hvatti Spielberg manna
mest til að ráðast í gerð myndarinn-
ar og er einn af framleiðendum
hennar), hefiir skapað minnisstæða
mynd um harla óvenjulegt efni;
mannréttindabaráttu — einkum
kvenna — í Suðurríkjunum á önd-
verðri öldinni. Þrungin hlýjum til-
fínningum og göfgandi, jákvæðum
hugsunarhætti. Jafn mannbætandi
og notalegar myndir sem The Col-
or Purple eru orðnar harla
fágætar, ég mæli með henni fyrir
alla.