Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 22

Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986 Maðurinn sem vél — líkaminn sem gang-virki Samtímamaður þeirra Úrsagnar- manna sem hér hefur verið minnst á var Þjóðverjinn Oskar Schlemmer (1888—1943), en sýningu á verkum hans í IBM-salnum hér í borg lauk um sama leyti og „Vín 1900“ hófst. Schlemmer var einn þeirra sem Walter Gropius fékk til kennslu við hinn fræga Bauhaus-skóla og lagði gjörva hönd á margt: málaralist, skúlptúr, hönnun og leikhúslistir. Eins og fleiri á þeim undraverðu gróskuárum í list þýskumælandi þjóða frá 1900 fram að valdatöku nazista, var hann hugfanginn af tækni og vélvæðingu og flest þeirra verka sem þama voru sýnd bera það með sér. „Lífið er orðið svo vélvætt," kvað hann hafa sagt, „að við getum ekki komist hjá að líta á manninn sem vél og líkamann sem gangvirki.“ Þannig málar Schlemmer til dæmis ekki lifandi fólk, heldur mismunandi uppstill- ingar á fígúrum sem líta út eins og trékallar eða gluggagínur og nær oft umtalsverðum árangri. En miklu forvitnilegri eru þó leikhús- teikningar hans: grímur, búningar og leikmyndir — og alveg sérstak- lega gerfí þau sem dansendur klæddust í Þrenningarballettin- um hans (Triadische Ballett) frá 1922 við tónlist Pauls Hindemith. Gerfi þessi, mörg sett saman úr keilu-, hólk-, hnatt- og bjöllulaga formum, voru svo þung og bosma- mikil að dansaramir gátu ekki framið annað en einföldustu hreyf- ingar — gönguskref, handapat og annað látbragð. Þetta var reyndar það sem Schlemmer hafði í huga, sem sagt meira eða minna vélrænar hreyfingar. Á sýningunni mátti sjá ballettinn á sjónvarpsskermi. Schlemmer er allrar athygli verð- ur sem skapandi listamaður, en hefur sennilega haft meiri áhrif sem kennari við Bauhaus. Sum málverk hans minna ósjálfrátt á franska málarann Georges Seurat, þótt varla sé þar um bein áhrif og því síður stælingu að ræða. Hreyfing og kraftur Bréf þetta er nú orðið alllangt, og munu flestir ætla að mál sé til komið að venda kvæði í kross. En áður en ég ákalla Sánkti Máríu til halds og trausts, langar mig að minnast lítillega á íslenska lista- menn sem hér hafa sýnt. Þannig getur bréfið bitið í sporð sér eins og títt er í fomu flúri. Vignir Jóhannsson heitir málari sem verið hefur hér vestra um nokk- urra ára skeið, fyrst trúi ég norður í Nýja-Englandi en síðar hér í New York. Hann er auðvitað engan veg- inn óþekktur heima en ég kynntist honum fyrst fyrir fjórum eða fímm ámm, þegar hann átti nokkrar myndir á samsýningu norrænna listamanna sem haldin var hér á vegum Amerísk-skandinavísku stofnunarinnar. Þar bar hann á áberandi hátt af öðmm sýnendum fyrir sakir þróttmikils myndmáls og djarflegrar beitingar lita. Það var ólga og kraftur í þessum mynd- um sem stundum jaðraði við of- beldisdýrkun. (Maðurinn er sjálfur eins og samþjappaður böggull af hans á eigin leikriti, Mörder Hoffnung der Frauen (Morðingi, von kvenna — hvemig sem það ber nú að skilja) vísa fram á við til Picassos og Georgs Grosz. Og -—kannski sýna myndir hans og Schi- eles betur en flest annað þá rotnun sem var að grafa um sig í aust- urríska keisaradæminu (sbr. Vín: Gleðihús) og endaði með ósköpum í tvífasa heimsstytjöld (I og II). Nazistar sökuðu Kokoschka auðvit- að um úrkynjun og útskúfuðu honum. Hann gerðist þá breskur borgari. Af öðmm listamönnum sem verk eiga á sýningunni tók ég helst eftir Alfred Kubin. Eftir hann em þar nokkrar teikningar — kynlegar myndir af veröld einhvers staðar á mörkum drauma, ímyndunar og óhrjálegs vemleika, sem verða und- arlega minnisstæðar þeim sem augum líta. Egon Schiele. Tvær stúlkur í fléttu (tvær fyrirsætur). Blýantsteikning með gúassi. Hallberg Hallmundsson: New York-bréf Frá Úrsagnarmönnum Vín aldamótanna hefur annars verið furðu ofarlega í hugum manna hér vestra undanfarið, hvaða ástæður sem til þess em. Rétt áður en sýningum lauk á Vín: Gleðihúsi hófst mikil sýning á myndlist, arkí- tektúr og hönnun í Museum of Modem Art (Nútímalistasafninu) undir heitinu „Vienna 1900“, eða „Vín 1900“. Þama er samankominn sægur málverka, myndskreytinga, auglýsingaspjalda, skartgripa, vefnaðarmynstra, húsmuna og húsateikninga frá aldamótunum og allt fram að heimsstyijöldinni fyrri. Mest af þessu er eftir þá sem árið 1897 drógu sig út úr aðalsamtökum þátímalistamanna, sem kölluð vora Kunstlerhaus (Listamannahús), og stofnuðu samtökin Secession (Úr- sögn) undir kjörorðinu: „Öldinni list sína; listinni frelsi sitt.“ Á þessum tíma vora augsýnilega samankomnir í Vín margir mikil- hæfír listamenn á ýmsum sviðum. Af verkum hönnuða sem á sýning- unni era þykir mér einna mest til koma vefnaðarmynstra Kolomans Moser, sem og margra myndskreyt- inga hans. Ég er óhrifnari af húsbúnaði þeim sem eftir hann ligg- ur. Annar áberandi hönnuður er Joseph Hoffmann, sem þama á stílhrein húsgögn, skartgripi og fleira. En ekki kynni ég við hnifa- pörin hans á mínu borði. Stíll þeirra er of klunnalegur fyrir minn smekk. Saman stofnuðu þessir tveir hönn- uðir verkstæði í Vín, sem þeir nefndu Wiener Verkstátte og mikil áhrif mun hafa haft á húsgagna- arkitektúr þessara ára. Hoffmann var reyndar einn fremsti húsameistari síns tíma. At- hyglisverðasta bygging hans, sem þama er sýnt módel af, auk fjölda teikninga og ljósmynda, er Stoclet- höllin í Brussel, sem var að öllu leyti sköpunarverk hans og félaga hans á Vínar-verkstæðinu, húsgerð, innanstokksmunir og skreyting, jafnvel garðurinn umhverfís. Aðrir arkitektar sem hlut eiga að sýning- unni eru þeir Otto Wagner, Adolf Loos og Joseph Maria Olbrich. Mest áberandi hluti Vínar 1900 er þó helgaður málaralist og þar gnæfa þrír listamenn hæst: Gustav Klim, Egon Schiele og Oskar Kok- oschka. Hinum síðastnefnda var ég allvel kunnugur áður en hinir voru mér að mestu ókunnir, þótt ég hefði að vísu oft heyrt þeirra getið. Einna mest verður sennilega tekið eftir Klimt, enda er kannski best við hann gert. Undir hann hefur verið lagt heilt herbergi til sýningar á hinum „gullna stfl“ hans, sem svo er nefndur. Sú nafngift er tilkomin af því að hann notaði mikið af gull- Iituðum flötum í þessum málverkum sínum, sem annars eru athyglisverð fyrir sameiningu á fíngerðum nat- úralisma og abstrakt-mynstrum. Þannig málar hann til dæmis and- litsmyndir sem minna á brothætt- asta postulín en klæðir svo persónurnar í efnismikla kjóla eða skikkjur sem líkastar eru klæða- eða vefnaðarhönnun bara hreinum skreytimynstram. Þar verða gull- fletirnir mjög áberandi. Þótt mér fínnist Klimt heldur of dekoratífur, er hann óneitanlega hugtækur málari. Hann hefur glöggt auga fyrir dramatískum andstæðum, svo sem myndir hans af ýmsum femmes fatales sýna: annars vegar lostfagur fínleiki kvenlegs yndisþokka, hins vegar afhöggvinn haus Hólófemesar eða Jóhannesar skírara. Og í flestum þeim myndum öðram sem til sýnis eru má sjá annars vegar mjúka, milda liti andlitsmyndanna og hins vegar gljáandi málmliti mynstur- gerðanna, sem gefa þeim harðan, hvassan blæ. Sýningin væri þess verð að sjá þótt ekki kæmi annað til en að kynnast Klimt lítillega. Mér þykir þó meira til verka Egons Schiele koma. Schiele á margar myndir á sýningunni, bæði teikningar og málverk, sem allar eru athyglisverðar sökum þeirrar spennu sem í þeim ríkir — sam- bland kynorku og einmanaleiks. Margar mynda hans eru af honum sjálfum í ýmsum gerfum og aðstæð- um: Það út af fyrir sig er þess vert að eftir sé tekið. Mér virðist sem hann muni hafa verið maður mjög órór og leitandi. Það er sálræn hleðsla í myndunum, sem hann nær einhvem veginn fram — ég veit ekki hvemig — með sérlega beina- berum, hnútumiklum útlimum, hálfkræklóttum höndum og ein- kennilegum vindum og uppvafning- um á líkamanum. Að öllu samanlögðu er Schiele, sem varð ekki nema 28 ára gamall (dó 1918) furðulega ásækinn og eftirminni- legur listamaður. Oskar Kokoschka á þama mynd- ir frá fyrstu málara- og námsárum sínum, sem þegar sýna þá frum- stæðu, stundum hrottafengnu orku sem einkennir margar myndir hans. Teikningar eins og myndskreyting Oskar Schlemmer. Fjórar manneskjur og teningur. 1928. Olíulitir. orku og þrótti og vafalaust góður fótboltamaður þar sem hann er ofan af Skaga.) Áhugi minn var undir eins vakinn. Vignir hafði opið hús í vinnustofu sinni og bústað í Brooklyn einn sunnudag í vor, og ég lét vitaskuld ekki á mér standa, þótt ég sé ekki svo efnaður að ég geti fjárfest í listaverkum. Og ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Það er enn sami kraft- urinn í málverkum hans, sama kvikan í myndbyggingunni, sama dramatíkin í litabeitingu. Sem fyrr velur listamaðurinn sér oft svifti- lega atburði að viðfangsefni. Þannig voru þarna tvær gríðarstór- ar myndir (sennilega 5—6 fermetr- ar) af atvikum úr Njálssögu — önnur af hinum írska hundi Gunn- ars á Hlíðarenda, Sámi, þar sem hann bítur undan Þorkatli í 76. kafla, en hin af Skarphéðni á ísi Markarfljóts í 92. kafla. Stór syrpa minni mynda (ca. 40x60 sm), sem Vignir kallaði „dagbókina" sína, prýddi einn vegginn — skemmtileg- ar fantasíur í líflegum litum. (Ein þeirra minnti mig óðar á smásögu Svövu Jakobsdóttur, „Þegar skrúf- að var frá krananum í ógáti“.) Þijár þessara mynda keypti hérlendur maður þá dagsstund sem ég stóð við. Hann á vafalaust eftir að hagn- ast á þeim kaupum. Þetta var ánægjuleg sýning. Þeg- ar ég var að reika fram og aftur á milli myndanna, komu mér ósjálf- rátt í hug hendingar Einars Benediktssonar úr „Fákum“: „ ... augans leit gegnum litanna sjóð/ — allt er lífsins þrá eftir hreyfíng og krafti." Þær eiga vel við málverk Vignis. Raddir úr pípulögn Kristján Guðmundsson heitir annar íslenskur listamaður sem hér hafði sýningu í vor. Vafalaust er hann einnig vel kunnur heima með- al þeirra sem fylgjast með framúr- stefnulist, en mér var hann að mestu óþekktur þar til á þessari sýningu. Þó var hann meðal þess hóps sem hér sýndi í galleríinu Franklin Fumance fyrir tveim árum eða svo og ég gat þá um í öðru bréfí. En ekki man ég eftir verkum hans þar enda var þar samankom- inn slíkur fjöldi — um fímmtíu manns ef ég man rétt — að æra mætti óstöðugan að reyna að minnast alls sem þar var. Ég man betur eftir einu verki sem hann átti á samsýningu með öðra nor- rænu fólki hjá Amerísk-skandinav- ísku stofnuninni í fyrrahaust. Það var G-lykill á vegg með hinum til- heyrandi fímm nótnalínum (gerðum úr pakkagjörðum) og mátti kallast hljóðlátt verk þar sem allar nótur vantaði. En í vor átti Kristján hér sem sagt einkasýningu á vegum sömu stofnunar. Sýning þessi var kölluð „Milli ljóða og mælingar" (Between Poetry and Measurement) og var sú síðasta í röð sams konar atburða sem stofnunin stóð fyrir í tilefni af 75 ára afmæli sínu. Heitið var vel til fundið, að minnsta kosti „mæl- ingar“hluti þess eins og síðar mun vikið að, en ekki varð ég sérlega var við Ijóðin; þau munu þegar hafa verið lesin og hljóðnuð þegar mig bar að garði. Bókmenntir komu mér þó strax í hug, því að þegar inn var komið í fyrri salinn barði ég fyrst alls augum nokkur vatns- rör skrúfuð saman af miklu list- fengi. „A-ha,“ hugsaði ég á ameríska vísu: „Átta raddir úr pípu- lögn“, og ég hélt kannski ég hefði mislesið nafn listamannsins; þetta væri auðvitað Vésteinn Lúðvíksson. Mér skjátlaðist sem löngum fyrr. Kristján var það og pípulagnimar voru ekki nema þijár. Hin fyrsta lá á gólfinu: stórt og mikið E úr þriggja tommu rörum (eftir augn- mælingu minni). Þetta verk bar titilinn „Eyjólfr hét maðr", sem ku höfða til upphafs einnar íslendinga- sagnanna, en ekki man ég nú lengur hverrar, læt mér sögufróðari les- endur um að grafast eftir því. En mér þótti vænt um þessar upplýs- ingar, því að ég hafði strax látið mér detta í hug „Ekkert" — haus- inn tómur að vanda. Næst féllu augun á öllu mjó- slegnari pípulögn (varla nema

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.