Morgunblaðið - 09.09.1986, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
I ÞINGHLÉI
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Kröfluvirkjun:
Mismunur sölu-
verðs og skulda
tveir milljarðar
— Skuldir 3.200 m.kr. — söluverð 1.170 m.kr.
Krafla, eitt umdeildasta
mannvirki í orkusögu íslend-
inga, er Þingeyingur, enda býr
hún yfir ómældum krafti, sem
framtíðin ein fær úr skorið
hvaða þýðingu hefur fyrir
virkjunina og þjóðina. Við hana
vóru miklar vonir bundnar um
ljós og yl í kuldum og myrkri
framtíðar. En það var ekki
síður talað um Kröflu sem
dæmi um óarðbæra fjárfest-
ingu og sumir fullyrtu, að
óarðbærar fjárfestingar, sem
skila kostnaði sínum seint og
illa, væru gildur þáttur í lakari
lifskjörum hér á landi en vonir
stóðu til, ef arðsemissjónarmið
hefðu ráðið framkvæmdaferð.
Á síðasta þingi lagði ríkisstjórn
íslands fram frumvarp, sem nú
er orðið að lögum, sem heimil-
aði henni að selja þetta „vand-
ræðabarn", Kröfluvirkjun.
Kaupandinn var Landsvirkjun,
sem er sameign ríkisins og
nokkurra sveitarfélaga.
Sala Kröfluvirkjunar
Rétt fyrir jóiafrí Alþingis á
síðastliðnu ári, eða nánar til tekið
18. desember 1985, samþykkti
Alþingi lög um heimild til „að
selja Kröfluvirkjun í Suður-Þing-
eyjarsýslu, sem til var stofnað
með lögum nr. 21. frá 10. apríl
1974, til Landsvirkjunar, sam-
kvæmt samningi milli ríkisstjóm-
ar Islands og Landsvirkjunar um
kaup á Kröfluvirkjun, dags. 26.
júlí 1985. - Með mannvirkjum
Kröfluvirkjunar skal fylgja réttur
til virkjunar og hagnýtingar á
þeirri jarðhitaorku, sem finnast
kann á Kröflusvæðinu, að afli sem
svarar allt að 70 MW eins og um
ræðir í nefndum samningi.“
Jafnframt var ríkisstjóminni
heimilað að selja Landsvirkjun
„eignir Jarðvarmaveitna ríkisins
við Bjamarflag og Námaskarð í
Suður-Þingeyjarsýslu ásamt rétti
til virkjunar og hagnýtingar jarð-
hitaorku á því svæði, innan marka
sem um semst, í samræmi við
ákvæði í framangreindum samn-
ingi.“ Landsvirkjun bar að taka
við gufuveitunni í Bjamarflagi til
eignar og rekstrar „ásamt skuld-
bindingum um gufuöflun til kísil-
gúrverksmiðjunnar við Mý-
vatn . . . svo og skuldbindingum
um gufuafhendingu vegna Hita-
veitu Skútustaðahrepps og Létt-
steypunnar hf., samkvæmt
samningum ríkissins við eigendur
jarðanna Reykjahlíðar og
Voga . . .“.
Lögin tóku gildi um síðastliðin
áramót.
Aðdragandi sölunnar
Með lögum nr. 42/1983 var
lögum um Landsvirkjun breytt.
Breytingin fól m.a. í sér stað-
festingu á nýjum sameignarsamn-
ingi um Landsvirkjun (ríkið,
Reykjavíkurborg, Akureyrar-
kaupstaður). Hin breyttu lög fólu
jafnframt í sér staðfestingu á
samningi milli ríkisstjómar og
Landsvirkjunar, varðandi yflrtöku
Landsvirlqunar á undirbúningi
virkjunarframkvæmda við
Blöndu, Villinganes og Fljótsdal.
í lögum þessum var orkusvæði
Landsvirkjunar skilgreint sem
Iandið allt, eftir því sem raforku-
ver hennar og stofnlínur spanna.
Samkvæmt lögunum bar Lands-
virkjun að hafa forgöngu um
virkjanir á orkusvæði sínu, „svo
að tryggt verði að afl- og orku-
þörf viðskiptavina fyrirtækisins
sé ávallt fullnægt".
Lög þessi festu Landsvirkjun í
sessi sem meginvirkjunarfyrir-
tæki landsmanna. Landsvirkjun
Krafla í vetrarbúningi
Kröfluvirkjun var seld Landsvirkjun fyrir rúmlega þriðjung áhvílandi skulda. Ríkið deilir síðan
áhættu með nýjum eigendum vegna hugsanlegra jarðhræringa, eldsumbrota eða annarra náttúru-
hamfara. En engpnn veit hvaða spor þessi tilraunavirkjun markar í orkusögu okkar, þegar til
lengri tíma er litið. Þar um spá að vísu margir en veruleikinn hefur síðasta orðið. Hér leikur hitinn
og kuldinn, gufan og ísinn, um Kröflu (sjá mynd), rétt eins og í þrefi landsmanna, skrafi og skrifi.
hefur, í skjóli þessara laga, þann
höfuðtilgang „að reisa og reka
öll meiriháttar raforkuver í
landinu", eins og segir í athuga-
semdum með frumvarpi að
heimild til sölu Kröfluvirkjunar.
Þessi framvinda mála var megin-
röksemd ríkisvaldsins fyrir því að
leita eftir heimild til sölu á Kröflu-
virkjun til Landsvirkjunar. En í
bland hlýtur ástæðan að hafa ver-
ið sá vandi, sem ríkinu var á
höndum, með dýra en tekjulitla
eign (virkjun) á Mývatnsöræfum.
Kaupverð og
áhættuskipting
í greinargerð með frumvarpinu
segir svo um kaupverðið:
„Kaupverðið, sem greiðist með
skuldabréfi til 25 ára, er samtals
1.170 milljónir króna miðað við
verðlag í apríl 1985. Skuldin sam-
kvæmt skuldabréfínu er verð-
tiyggð miðað við lánskjaravísitölu
í apríl 1985 og ber 3% ársvexti".
Framangreind upphæð er fullnað-
argreiðsla. Landsvirkjun tekur
ekki á sig ábyrgð af fjárhagsleg-
um skuldbindingum vegna Kröflu-
virkjunar.
Um áhættuþátt vegna jarð-
hræringa og/eða eldsumbrota á
Kröflusvæðinu segir svo í samn-
ingi ríkisstjómarinnar og Lands-
virkjunar:
„Verði jarðhræringar, eldsum-
brot eða aðrar náttúruhamfarir á
Kröflusvæðinu er valda verulegu
tjóni á Kröfluvirkjun eða ein-
stökum hlutum hennar, skuld-
bindur ríkið sig til að greiða
Landsvirkjun allan kostnað sem
leiðir af tjóninu og þeirri röskun
á rekstri virkjunarinnar, sem því
er samfara. Með tjóni þessu er
einnig átt við skemmdir á einstök-
um borholum .... Þessi
greiðsluskylda ríkisins takmark-
ast við ógreiddar eftirstöðvar
kaupverðs, skv. 5. gr., eins ogþær
eru með verðbótum og vöxtum í
gjalddaga á því ári, er tjónið verð-
ur, og fer greiðslan fram með
greiðslujöfnuði við skuldabréfið.
Tjón telst vemlegt í þessu sam-
bandi, ef kostnaður þess vegna
nemur meira en 40 milljónum
króna, umreiknuðum samkvæmt
verðtryggingarreglu 5. gr. frá í
apríl 1985 til þess árs að tjónið
verður, og verða tjón undir þess-
ari fjárhæð í eigin áhættu
Landsvirkjunar, sem takmarkast
við 200 m.kr. á greiðslutíma
skuldabréfsins, umreiknaðar á
framangreindan hátt til uppgjörs-
dags.
Verði áhrif náttúruhamfara svo
stórfelld, vegna einstaks tjóns eða
endurtekinna minni tjóna, að
Landsvirkjun telji ekki á það hætt-
andi að halda áfram rekstri
aflstöðvarinnar við Kröflu, skal
Landsvirkjun eiga rétt til þess að
ógreiddar eftirstöðvar kaupverðs,
skv. 5. gr, falli niður, án þess að
kostað sé til frekari úrbóta, og
verður þá virlqunin eins og hún
er þá á sig komin aftur eign ríkis-
ins svo og aðrar eignir og réttindi
samkvæmt samningi þessum."
Heildarskuldir
Kröfluvirkjunar
Heildarskuldir Kröfluvirkjunar
námu 3.207 milljónum króna
þann 1. apríl 1985, en fram að
þeim tíma vóru þær færðar á sér-
stakan lið í ríkisreikningi. Sam-
hliða sölunni hefu ríkissjóður þá
yfirtekið skuldir umfram kaup-
verð, samtals 2.037 milljónir
króna miðað við verðlag 1. apríl
1985.
í tilvitnaðri greinargerð segir
„Það var grundvallarforsenda
fyrir samningsgerðinni, að yfir-
taka Landsvirkjunar á Kröflu-
virkjun yrði ekki til þess að valda
hækkun á orkuverði frá Lands-
virkjun. Er það sameiginlegt álit
samningsaðila, að með ofan-
greindum samningskjörum hafí
þetta verið tryggt."
Byggingarsaga Kröfluvirkjun-
ar verður ekki rakin hér, enda
þjóðkunn. Hinsvegar þótti rétt að
rifja upp örfá meginatriði varð-
andi yfirtöku Landsvirkjunar á
þessari sögufrægu virkjun sem
og tölulegar staðreyndir varðandi
skuldakvaðir vegna Kröflu.
Dómsorð verða engin upp kveð-
in, enda sjálfboðaliðar til þess
verkefnis nægir fyrir.
Fölnaðar fjólur
Ógleymanlegt sumar er önnur mynd hjónanna Sissy Spacek og leik-
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Stjörnubíó. Ógleymanlegt sumar
— Violets are blue ☆ ☆
Leikstjóri John Fisk. Aðalhlut-
verk Sissy Spacek, Kevin Kline,
Bonnie Bedelia. Bandarísk. Col-
umbia 1986.
Ógleymanlegt sumar hefst í
smábæ á Atlantshafeströnd Banda-
ríkjanna. Kevin Kline og Sissy
Spacek eru að hefja fullorðinsárin.
Pau eru ástfangin en greinir á um
framtíðaráætlanir. Hún vill sjá
heiminn en hann sitja heima.
Það slitnar uppúr sambandinu
því Spacek hleypir heimdraganum
og verður frægur blaðaljósmyndari
og snýr loks heim í frí eftir 13 ára
ijarveru. Þá er Kline giftur með
bam og heimili. Það heldur þó ekki
gömlum elskendum frá því að rifja
upp notalegar samverustundir.
Ógleymanlegt sumar er ósköp
hæversk mynd, spuming um grund-
völl fyrir endumýjuðu sambandi
eftir langan aðskilnað. Hér er svar-
ið neikvætt. Kline telur það of mikla
fóm að yfírgefa Qölskyldu, atvinnu
og umhverfi er honum stendur til
boða að láta draumana rætast og
vinna erlendis á heimsblaðinu með
Spacek.
Ég dreg í efa að allir sætti við
þessa niðurstöðu. Ógleymanlegt
sumar er fyrst og fremst um undra-
krafta ástarinnar en er hún ekki
orðin ansi deyfðarleg þegar menn
hrinda henni frá sér? Handritið er
of veikbyggt til að hægt sé að taka
það alvarlega, sama máli gegnir
um peráonumar. Aðal hennar er
hinsvegar leikurinn. Kevin Kline og
Sissy Spacek fara vel með hlutverk
elskendanna og Bonnie Bedelia
(Heart Like a Wheel), sú alltof
fáséða leikkona, skilar einkar lag-
lega hinni kokkáluðu eiginkonu,
þorpsstúlkunni sem álítur sig sigr-
aða af heimskonunni.
Ógleymanlegt sumar er heldur
óvenjuleg miðað við þær mjmdir
sem í dag njóta hvað mestra vin-
sælda og veitir örugglega mörgum,
stjórans Jack Fisk (Raggedy Man).
ekki síst eldra fólki, kærkomna til-
breytingu frá síbylju unglinga- og
ofbeldismynda. Hún kemur á óvart
sakir hreinskilni við velþekktan
efniviðinn en það vantat tilfinnan-
lega meiri dýpt í umfjöllunina og
skarpari persónur til að hún snerti
mann einsog til er ætlað. Umhverf-
isvemdarþátturinn er dauft inn-
!egg, að því er virðist eingöngu til
þess ætlað að knýja fram drama-
tískt uppgjör.
Blikur á lofti í hjónabandi er
gustmeira efni en hér birtist. Jack
Fisk er vonandi betri eiginmaður
Spacek en leikstjóri.