Morgunblaðið - 09.09.1986, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
2$
Helgi Hálfdanarson:
Prósentustig
í útvarpsþætti Guðmundar
Sæmundssonar um íslenzkt mál
var nýlega flallað um orðið pró-
scntustig, sem fyrir skömmu
fór á kreik. Guðmundur fann
að þessu orði, og þar var ég
honum sammála. Síðan urðu
mætir menn til að leggja orðinu
lið með rökum sem áður hafa
fram komið.
Það hefur verið málvenja, að
hvorugkynsorðið prósent merki
sama og hundraðshluti; en
kvenkynsorðið prósenta merki
tiltekinn fjölda hundraðshluta.
T.d.: þijátíu og þijú prósent eru
býsna há prósenta, þegar um
verðhækkun er að raeða.
Þegar talað er um prósent
eða prósentu, þarf að sjálf-
sögðu að vera ljóst, af hvaða
heild prósentið er reiknað.
Stundum helgast það af venju.
Ég hygg að engum hafí bland-
azt hugur um það, að tveggja
prósenta vaxtahækkun merki
hækkun vaxta um tvö prósent
af höfuðstól, fyrr en einhveijir
góðir menn bömuðu söguna
með því, að það gæti allt að
einu átt við tvö prósent af fyrri
vöxtum. Og til þess að koma í
veg fyrir slíkan misskilning var
hleypt af stokkunum orðinu
prósentustig, sem mér skilst
að vísu, að báglega hafí gengið
að skilgreina á þokkalegan hátt,
en ætti víst að merkja eitt pró-
sent þeirrar heildar, sem sú
prósenta, er um ræðir hefur
verið reiknuð af.
Ekki tókst þó betur til en
svo, að í stað þess að þau mál
skýrðust, sem raunar vom nógu
skýr fyrir, hefur af sprottið
ruglingur. Þess má geta, að
sams konar fyrirbæri og orðið
prósentustig hefur skotið upp
kollinum víðar en á íslandi, en
það er engu skárra fyrir það.
í orðliðnum stig felst engin
vísbending um það, af hveiju
prósentan er reiknuð; enda hef-
ur orðið verið notað af algeru
handahófí og skilningsleysi í
íjölmiðlum, svo sem vænta
mátti. Hér hefur stig raunar
enga merkingu nema hún sé sú
sama og felst í orðinu prósent,
svo prósentustig er ekki annað
en klaufalegt staglyrði.
Ef á annað borð væri þörf á
slíku nýyrði í vaxtareikningi,
væri kannski nær að klína því
á þau prósent, sem nú er allt í
einu farið að reikna af vöxtun-
um en ekki af höfuðstólnum.
Trúlega yrði vandfundið orð,
sem ekki væri hægt að mis-
skilja, ef látið væri ósagt, af
hvaða upphæð er reiknað. Þó
mætti e.t.v. taka nokkru skýrar
til orða um hvortveggju þessi
prósent. Ef t.d. vextir hækka
úr tíu prósentum í tólf prósent,
mætti kannski segja, að þeir
hækkuðu um tvö stofnprósent,
en hins vegar um tuttugu eig-
inprósent. Ef þau orð (eða
önnur markvísari) væru notuð,
léki síður á því vafí, um hvað
væri rætt, og yrði þá jafnvel
girt fyrir þann rugling, sem
blessað „prósentustigið“ hefur
valdið með þarflausri tilkomu
sinni.
Bandaríkin:
Ekkert
niðurgreitt
korn enn
verið selt
Rússum
Washington, AP.
MÁNUÐUR er nú liðinn síðan
Reagan Bandaríkjaforseti tók þá
umdeildu ákvörðun að bjóða Sov-
étríkjunum að kaupa bandarískt
korn á niðurgreiddu verði. Sovét-
stjórnin hefur samt virt þetta boð
að vettugi til þessa og nú fer að
líða á þann tima, sem því var
ætlaður.
Richard Lugar, öldungadeildar-
þingmaður úr flokki republikana og
formaður utanríkismálanefndar
deildarinnar, sagði í fyrradag, að
þetta kæmi Bandaríkjunum í mjög
vandræðalega aðstöðu. Lugar, sem
var andvígur fyrirhugaðri komsölu,
skýrði svo frá, að Reaganstjómin
hefði lækkað komverðið enn meira
á fíistudaginn var, sem gerði málið
enn „auðvirðilegra" en áður.
Ef Sovétmenn hafa ekki ákveðið
kaup á kominu fyrir 1. október,
verður ekkert af þeim að svo
komnu, því að þá rennur út fjár-
hagsár ríkissjóðs Bandaríkjanna
fyrir árið 1986. Vilji Sóvétmenn
halda komkaupunum til streitu eft-
ir þann tíma, verða niðurgreiðslum-
ar að koma á fjárlögum ársins 1987
og því engin heimild til þeirra að
svo stöddu.
Fer rnn á lang
flest
heimili landsins!
Fleira þarf í dansinn
en fagra skóna
Hefur þú lengi ætlaö að læra að
dansa en ekki látið verða af því? Pá er
þér óhætt að láta drauminn rætast því
nÝI DAnSSKÓLinn er rétti staðurinn
fyrir þig. Hvers vegna? í fyrsta lagi er
nÝI DAnSSKÓLinn nútímaskóli sem
stenst alþjóðlegar kröfur. í öðru lagi
kappkostum við að sinna hverjum og
einum nemanda persónulega með sí-
vökulli leiðsögn, enda er fjöldi nem-
enda í tíma takmarkaður við 26!
Kennarar skólans sækja reglulega
námskeið erlendis og skóiinn hefur
hlotið viðurkenningu n.D.U. (samnor-
ræna danskennarasambandsins).
Vld kennum barnadansa með leik-
rænni tjáningu, gömlu dansana, sam-
kvæmisdansa, jassdans, rokk og bugg
(tjútt í nýjum búningi).
Kennsla hefst 15. september í Ár-
múla 17, Reykjavík og á Linnetstíg 3,
Hafnarfirði.
Innritun daglega kl. 10—12 og
14 —18 í síma 38830 og 52996.
Munið systkina- og fjölskylduaf-
sláttinn.
Takmarkaður nemendafjöldi
tryggir betri árangur.
m 1)MSSlCDUNN
Ármúla 17, ReykjavíK og Linnetstíg 3, Hafnarfirði