Morgunblaðið - 09.09.1986, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
Tannhjól
og keðjur
Belgtengi
Skólaakstur og
póstflutningar
Á vegum samgönguráðuneytis-
ins hafa undanfarið verið starfandi
nefndir, sem unnið hafa að úttekt
á samgöngumálum í landsfjórðung-
unum. í nefndarálitum þessum er
látin í ljós sú skoðun, að rétt sé að
samræma póstflutninga og flutn-
inga á skólabörnum, eða eins og
segir í úttekt á samgöngukerfi
Norðurlands: „Nefndin telur að auð-
velt sé að sameina póstakstur
skólaakstri, þar sem nákvæm tíma-
setning á útburði pósts er ekki fyrir
hendi. Til þess þarf þó að afnema
úrelt ákvæði um póstflutninga."
Þarna mun vera átt við ákvæði um
póstleynd í II. kafla póstlaga, þar
sem segir, að þeim sem beri út
póst sé óheimilt að gefa nokkrum
óviðkomandi manni neina vísbend-
ingu um það hverjir notfæri sér
þjónustu póstsins. Landpóstarnir,
sem bera út póst á bæi í strjálbýli,
mega ekki taka með sér farþega,
þar eð farþegamir gætu séð hvaða
póst bæirnir fengju og frá hveijum.
Aðilar hjá pósti og síma, sem rætt
var við, voru ekki sammála því að
þetta væri úrelt ákvæði og auk
þess bentu þeir á, að fyrir hendi
væru nákvæmar tímaáætlanir í.
stijálbýli. Unnt mun vera, að þeirra
sögn, að samræma þessa flutninga
á stuttum og einföldum leiðum, en
hins vegar ættu landpóstar stund-
um um það langa leið að fara
(lengstu leiðir landpósta eru um 300
km) að skólabömum væri lítill
greiði gerður að fá far með þeim.
Nefndin, sem vann að úttektinni,
bendir á, að með því að samræma
skólaakstur póstflutningum fengju,
bæimir póst daglega, og sé því
mikið í húfi að vel takist til með
endurskipulagningu samgangna-
kerfis. „Aðalvandamálið sem leysa
þarf er endurskipulagning og ein-
földun á skólaaksturskerfum. Að
því fengnu ætti að vera einfaldara
að laga aðra flutninga að þeim.“
Skipulag skólamála
í strjálbýli
Það er ekki einvörðungu, að það
er bent á endurskipulagningu akst-
urskerfisins til þess að minnka
kostnaðinn. Einnig benda menn á,
að endurskipulagning skólamála í
stijálbýli gæti orðið til þess að
minnka þessi útgjöld. Ljóst er, að
niðurlagning stóm skólanna kemur
vart til greina, þó að þarna hafi
verið um offjárfestingu að ræða á
sínum tíma. Sturla Kristjánsson
fræðslustjóri Norðurlands eystra er
þeirrar skoðunar, að e.t.v. væri
heppileg leið að komið væri á lagg-
irnar litlum skólum í hreppunum
fyrir yngstu börnin, þar sem væri
daglegur heimanakstur, en í stóru
skólunum yrðu starfræktir heima-
vistarskólar á gagnfræðastigi. Með
þessu móti mætti spara í skóla-
akstri og nýta jafnframt heimavist-
imar. Guðmundur Ingi Leifsson,
fræðslustjóri Norðurlands vestra:
„í íslenskum skólum hefur lítil
reynsla fengist á uppeldislegt gildi
heimavista, enda hafa þær fram að
þessu verið það undirmannaðar,
þ.e. þær hafa lítið annað verið en
geymsla." Guðmundur efast þó um
spamaðinn í hugmynd Sturlu.
Sveitarfélögin borgi
Þeir Sturla og Guðmundur em
sammála um að hugmyndir
AF INNLENDUM
VETTVANGI
eftir SVEIN ANDRA SVEINSSON
Skólaaksturinn:
Eiga sveitarfélögin að súpa seyðið
af offjárf estingu í skólabyggingum?
menntamálaráðherra, að færa
kostnað af skólaakstrinum til sveit-
arfélaganna, séu fráleitar. Sturla:
„Það er fáránlegt að láta sveitarfé-
lögin súpa seyðið af því að rokið
var út í vanhugsaðar offjárfestingar
1 byggingu heimavistarskóla á veg-
um ráðuneytisins. Ríkið hefur neytt
þetta kerfí upp á sveitarfélögin og
því út í hött að þau standi ein að
kostnaðinum samfara því.“
Það eru aðallega tvenns konar
rök, sem menntamálaráðherra hef-
ur komið fram með til styrktar
hugmyndum sínum um að ríkið
dragi sig út úr kostnaði við heiman-
akstur; í fyrsta lagi sé rétt að
sveitarfélögin beri í auknum mæli
fjárhagslega ábyrgð á því sem gert
er í héraði og í öðru lagi að skóla-
aksturskerfið sé úr sér gengið og
þrífist þar alls kyns spilling. Nefndi
menntamálaráðherra einnig í við-
tali við Morgunblaðið, að fáránlegt
væri að greiða niður skólaakstur
til vel stæðra þéttbýlisstaða.
Sveitarstjórnarmenn hafa bent á
það í samtölum við Morgunblaðið,
að sveitarfélögin þyiftu að fá veru-
lega aukna tekjustofna til þess að
geta staðið undir þessum kostnaði
og rétt væri að byija á því að auka
tekjustofnana áður en gripið væri
til niðurskurðar.
Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga
Um þær hugmyndir ráðherrans,
að sveitarfélögin fái framlag úr
jöfnunarsjóði sveitarfélaga, eru og
skiptar skoðanir. í samtali við
Morgunblaðið sagði Magnús Guð-
jónsson framkvæmdastjóri Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, að í
fyrsta lagi hefði sjóðurinn, miðað
við núverandi tekjustofna, ekki bol-
magn til að standa undir þessum
kostnaði, í öðru lagi hefði þessi til-
færsla það í för með sér að sjóðurinn
þyrfti að koma koma sér upp sér-
stökum skrifstofum til að sinna
þessum málum og í þriðja lagi væri
þetta ekkert annað en tilfærsla úr
einum vasa í annan innan ríkis-
geirans, þar sem aðaltekjustofn
sjóðsins kæmi frá ríkissjóði.
Skólaakstur í þéttbýli
Varðandi framlög til þéttbýlis-
staða voru bæði Sturla Kristjánsson
og Guðmundur Ingi Leifsson sam-
mála um að ríkið ætti með öllu að
hætta að greiða niður skólaakstur
í þéttbýli, en það greiðir nú um
helming hans. Hins vegar ætti það
að hækka hlut sinn úr 85% í 100%
í sttjálbýli.
Gallað kerfi
Sá aðili, sem tekur lokaákvörðun
um stærð þeirra svæða, sem keyrt
er í skóla og frá, er sá sami og
ákveður gjaldskrána fyrir bílstjór-
ana, þ.e.a.s. menntamálaráðuneyt-
ið. Skólaaksturinn og kostnaður við
hann byggist því á ákvörðunum,
sem þar eru teknar.
Það er því einkennileg röksemd
fyrir niðurskurði, að kerfið sé rotið
og kostnaður mikill, þegar það er
í valdi menntamálaráðuneytisins að
breyta kerfínu eða setja nýja gjald-
skrá.
þegar fjöldi heimavista var risinn
breyttu skólamálayfírvöld um
stefnu. Horfíð var frá heimavistar-
ketfinu, en í stað þess mæltu
grunnskólalögin fyrir um að halda
skyldi uppi heimanakstri í stijál-
býli, þar sem því yrði við komið,
sbr. 4.gr.l.nr.63/1974. Nú orðið eru
samgöngur orðnar það greiðar, að
unnt er að halda uppi heimanakstri
á flestum stöðum.
Ástæðan fyrir því, að horfíð er
frá heimavistarkerfinu, er m.a. sú,
að það þykir æskilegt að börnin
hafi tök á því að dveljast í heima-
húsum á meðan þau eru ekki í
skólanum. Flestir sérfræðingar í
uppcldis- og skólamálum eru sam-
mála um þetta, en hins vegar þykir
mörgum heldur geyst hafa verið
farið í byggingu heimavista.
Offjárfestingar
Heimavistarskólarnir eru flestir
nokkuð stórar byggingar, enda var
þeim ætlað að þjóna stóru svæði.
Eðlilegt var talið að þeir þjónuðu
sem stærstu svæði til þess að gera
fjárfestinguna sem hagkvæmasta.
Því stærri svæði, því færri skóla-
byggingar. Hins vegar, þegar horfið
er að daglegum flutningum á skóla-
börnum í skóla og úr, gefur það
augaleið, að þau hagkvæmnissjón-
armið, sem að baki stóru skólunum
bjuggu, eiga ekki lengur við. Svæði
þessara fyrrum heimavistarskóla er
oft afar stórt, margir aðilar fara
margar leiðir frá mörgum stöðum
og er kostnaður við daglega keyrslu
bamanna stundum jafnhár kostnaði
við greiðslu kennaralauna.
Góð dæmi um slíka „fyrrverandi"
heimavistarskóla eru Húnavalla-
skóli í Húnavatnssýslu og Þela-
merkurskóli í Eyjafirði. I síðar-
nefnda skólanum er heildarkostnað-
ur við heimanakstur um 3 milljónir,
en í þeim fyrrnefnda um 5 milljón-
ir. Skólasvæði Húnavallaskóla, en
að honum standa sjö hreppar, er
mun stærra en Þelamerkurskóla og
kostnaðurinn því mun meiri.
Stærð skólasvæða heimavistar-
skólanna er ekki aðeins óhagstæð
að því leyti, að að keyra þarf marg-
ar og langar leiðir með skólabömin,
heldur em einnig flölmörg dæmi
þess, að bömin séu keyrð langar
leiðir í skóla, framhjá skólum sem
nær liggja. Er þetta algengt þar
sem í hlut eiga böm er búa í ná-
lægð þéttbýliskjama; í stað þess
að sækja skóla þar em þau keyrð
langan veg í annan skóla. Dæmi
um þetta em nemendur í nágranna-
sveitum Blönduóss og Hvamms-
tanga, sem látnir em stunda nám
á Húnavöllum.
Það hefur verið fullyrt, að keyrsla
skólabarna sé mikil uppgrip fyrir
þá, sem aka skólabömunum. Sitt
sýnist hveijum um þau uppgrip, en
gjaldskráin fyrir keyrsluna er
ákveðin af menntamálaráðuneytinu
og er greitt ákveðið kílómetragjald
á hvert bam. Aðili, sem vel þekkir
til, benti Morgunblaðinu á, að þeir
sem flyttu póst sömu leið og þeir
sem flytja skólaböm fengju meira
fyrir það borgað.
Flestir munu vera sammála um
að eðlilegt sé að sjá skólabömum í
stijálbýli fyrir skólaakstri og einnig
em flestir sammála um að rétt sé
að gæta sem mestrar hagsýni við
framkvæmd þessa skólaaksturs. En
sitt sýnist hveijum.
Heimavistir
Hér á ámm áður var það stefna
stjórnvalda í skólamálum dreifbýlis-
ins, að byggðar skyldu upp heima-
vistir fyrir sem flesta skóla. Á
ámnum 1950-60 vom byggðar
margar heimavistir, hver annarri
stærri og glæsilegri. í þetta var
lagður óhemju mikill kostnaður.
Fyrirkomulag þetta var fullmótað á
seinni hluta sjöunda áratugarins og
Fenner
Reimar og
reimskífur
Ástengi
Vald Poulsen
Suðurlandsbraut 10,
simi 686499.
Skólakostnaður
eftirSverri
Hermannsson
menntamálaráðherra
Menntamálaráðherra, Sverr-
ir Hermannsson, sendi Morgun-
blaðinu í gær eftirfarandi
greinargerð um skólakostnað,
„svo forðast megi misskilning“,
eins og hann orðaði það.
„1. Valddreifing er gmndvailar-
atriði í stefnuskrá Sjálfstæðis-
flokksins, með þeim hætti að
ábyrgð framkvæmdar og fjármála
fari saman.
2. Það er stefna Sjálfstæðis-
flokksins og ríkisstjómarinnar að
færa aukin verkefni á herðar
sveitarfélaganna í landinu og fjár-
magn með, þar sem þess gerist
þörf.
3. Það er eindregin stefna núver-
andi menntamálaráðherra að færa
ýmsa þætti í rekstri gmnnskóla á
hendur sveitarfélaga, bæði fram-
kvæmdir og fjármál. Á það við
um viðhald mannvirkja, skóla-
akstur, gæzlu í skólum og
mötuneyti.
4. í öllum stærri og efnameiri
sveitarfélögum hætti ríkið að
greiða fyrir skólaakstur, gæzlu
og mötuneyti, nema alveg sér-
staklega standi á. Á árinu í ár
em t.d. greiddar kr. 37 milljónir
til þessara þarfa í Reykjavík og í
Reykjaneskjördæmi.
5. Hin efnaminni sveitarfélög
verði áfram styrkt til þessara
þarfa. Það er brýnt verkefni fyrir
sveitarfélögin að endurskipu-
leggja aksturinn og bjóða hann út.
6. Það er gmndvallarstefnumið
ríkisstjómarinnar að efla skóla-
hald í landinu sem kostur er. Öllu
tali um að til standi að torvelda
bömum skólagöngu eða íþyngja
foreldrum um of, er því vísað al-
farið á bug.“