Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
33
Kína:
Rúmur milljarður manna
Tíu ár liðin frá and-
láti Maós formanns
Pcking, AP.
YFIRVÖLD í Kína minnast Maós formanns með blendn-
um tilfinningum en í dag eru liðin tíu ár frá dauða
hans. I tímaritinu Peking Review sagði að þáttur hans
í byltingunni í Kína væri mikilvægari en stjórnarstefna
sú sem hann fylgdi síðar. Tímaritið birti einnig um-
mæli þau sem Deng Xiaoping hefur látið falla um Maó
formann í gegnum tíðina. „Við álítum að framlag hans
til byltingarinnar skipti meiru en þau mistök sem hann
gerði,“ sagði Deng m.a. árið 1980.
Að sögn talsmanna
kínverska utanríkisráðuneytis-
ins munu yfirvöld ekki minnast
Maós sérstaklega. Þess í stað
verður hafín sala á bókum, sem
nýlega hafa verið gefnar út og
eru þær ýmist um eða eftir
Maó formann. Kínversk blöð
og tímarit hafa birt ljóð og rit-
gerðir eftir Maó en þess hefur
verið vandlega gætt að í skrif-
um þessum sé ekki minnst á
menningarbyltinguna eða
„stóra stökkið" en svo nefndist
áætlun formannsins um mið-
stýrða iðnvæðingu Kína, sem
endaði með ósköpum.
Dagblaðið Beijing Ribao
sagði í grein að kenningar
Maós væru „hinn andlegi fjár-
sjóður" kommúnistaflokksins. í
blaðinu sagði að hugmyndir
hans skiptu enn miklu varðandi
lausn ýmissa vandamála þrátt
fyrir að flokkurinn hefði hafnað
kenningum hans um hina
áframhaldandi stéttabaráttu og
skipulagningu efnahagsmála.
íbúafjöldi
Kína
byltingunni
542 milljónir árið 1949
1 milljarður og 50 milljónir
árið
1986
1,000
1949 1954 1959 1964 1969 1974 1979 19841986
Áætlaftur fbúafjöldi við næstu aldamót: 1 milljarður og 190 milljónir
Heimild: Mannfjöldastofnun Kínverska alþýðulýðveldisins
Sprengjutiiræði í Köln:
RAF tald-
ar ábyrgar
Köln, AP.
RAUÐU herdeíldirnar eru grun-
aðar um að hafa staðið að baki
sprengjutilræðis við aðalstöðvar
gagnnj ósnaþj ónustu Vestur-
Þýskalands. Sprengjan sprakk
klukkan 3.45 á mánudagsnótt en
henni var komið fyrir í bifreið,
sem lagt var í grennd \.ð Stjórn-
arskrárverndarstofnunina.
Sprengingin olli verulegu tjóni,
en einn vegfarandi slasaðist lítillega
þegar hann varð fyrir fljúgandi
glerbrotum. Ónefndur heimilda-
maður sagði að nokkrar skrifstofur
í byggingunni hefðu skemmst veru-
lega, aðallega af völdum glerbrota.
Maður, sem sagðist vera fulltrúi
„Byltingarsellanna" lýsti yfir
ábyrgð þeirra á sprengjutilræðinu,
en lögregluyfirvöld drógu það í efa
og benda á að „byltingarsellumar"
noti ekki svo öflugar sprengjur, auk
þess sem ekki var hringt fyrr en
töluvert var um liðið frá því að sagt
var frá sprengjunni.
Holland:
Frjálslyndi flokkurinn
kynnir helztu þingmál sín
Wageningen, frá Eggerti H. Kjartanssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMDRATTUR í ríkisútgjöldum samfara minnkandi halla ríkissjóðs
er ekki lengur efst á Iista frjálslynda floksins (WD) í Hollandi.
Mikilvægustu málaf lokkarnir, sem flokkurinn mun taka upp á þing-
inu og í ríkisstjórn í vetur, eru lækkun skatta, fækkun ríkisstarfs-
manna samfara samdrætti í yfirbyggingu ríkisstofnana auk nýrrar
löggjafar varðandi liknardauða. Einnig munu þeir ætla sér að draga
verulega úr útgjöldum til heilbrigðisþjónustunnar, þó þannig að það
komi ekki niður á þeirri þjónustu sem veitt verður.
Það hefur vakið mikla athygli
að krafan um samdrátt í ríkisút-
gjöldum og minnkandi halla ríkis-
sjóðs hefur verið látin falla.
Jafnframt hefur það vakið upp
spumingar um það hvað Ruding,
núverandi fj ármál aráðherra, muni
Veður
víða um heim
Lægat Hæst
Akureyri 9 léttskýjað
Amsterdam 8 15 skýjað
Aþena 18 30 heiðskírt
Barcelona 28 skýjað
Bertín vantar
Briissel 9 16 skýjað
Chicago 16 19 heiðskírt
Dublin 7 19 skýjað
Feneyjar 24 þoku-
móða
Frankfurt 6 19 heiðskírt
Genf 11 26 heiðskírt
Helsinki 9 14 skýjað
Hong Kong 27 30 skýjað
Jerúsalem 18 28 heiðskírt
Kaupmannah. 7 14 rigning
Las Palmas 28 heiðskírt
Lissabon 17 27 heiðskfrt
London 11 18 skýjað
Los Angeles 17 30 heiðakírt
Lúxemborg 14 léttskýjað
Malaga 26 hálfskýjað
Mallorca 28 skýjað
Miami 28 31 rigning
Montreal 9 15 skýjað
Moskva 9 14 skýjað
NewYork 12 23 heiðskírt
Osló 14 léttskýjað
Paris 17 skýjað
Peking vantar
Reykjavík 11 heiðskírt
Rió de Janeiro vantar
Rómaborg 11 18 heiðskírt-
Stokkhólmur 8 13- heiðskirt
Sydney vantar
Tókýó 24 29 heiðskírt
Vinarborg 11 22 heiðskírt
Pórshöfn 9 alskýjað
gera ef hann getur ekki reitt sig á
stuðning Frjálslynda flokksins í
þessu máli. Ruding hafði nefnilega
gert það að skilyrði áður en að
hann tók að sér embætti fjármála-
ráðhera í sumar að árið 1990 yrði
halli ríkissjóðs ekki meiri en 5,25%
á ársgrundvelli.
Greinilegt er að Frjálslyndi flqkk-
urinn sem var næsta máttlítill allt
síðasta stjómartímabil hefur ákveð-
ið að láta heyra meira frá sér. Hinir
nýju leiðtogar flokksins, þeir dr.
Korte og dr. Voorhoeve munu gera
það sem í þeirra valdi stendur til
koma í veg fyrir að flokkurinn
gjaldi annað eins afhroð í næstu
kosningum eins og þeim í maí
síðastliðnum.
Gengí
gjaldmiðla
London, AP.
GENGI bandaríkjadollars hækk-
aði gagnvart öllum helstu gjald-
miðlum, nema kanadískum
dollar, á gjaldeyrismörkuðum
Evrópu í gær. Gullverð lækkaði.
Síðdegis í gær kostaði sterlings-
pundið 1,4865 dollara (1,4979), en
annars var gengi dollarans þannig
að fyrir hann fengust 2,0645 vest-
ur-þýsk mörk (2,0410); 1,6835
svissneskir frankar (1,6492);
6,7525 franskir frankar (6,6800);
2,3280 hollensk gyllini (2,3025);
1.424,63 ítalskar límr (1.407,875);
1,3850 kanadískir dollarar (1,3860)
og 155,75 japönsk jen.
Verð á gulli var 414,50 dollarar
únsan (421,25).
ERLENT
ÝMSARUPPLÝSING
Stórkostleg nýjung
sem sparar pláss.
vær
og þurrkar.
kemur sérein-
staklega vél þar serri
15 misi
Tekur
AR UM
muna
inn á
ndi þvottastillin
Sig heitt og ka t
húsrými er lítið
t d. að þvo
þvottana
íbaðherberginu.
VÉLINA:
igar, þar af ein fyrir
vatn
jllarþvótt
tækjðbí
íði
bg
0$
★Ytri
★Tekur
★ Allt að
innri belgur ur ryðfríu stál
5 kg af þvottf
1000
er að
kkium
ma m
snumng
i/elja tvi
þurrktii
a vind'
enns
nartímai
a
konar htastig
nn
við þurrkunina þannig að raða
IERUIUI
SAM
SVEI
NIN
GJANLEGIR
GUM
Heimili
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI8- S: 27500