Morgunblaðið - 09.09.1986, Qupperneq 34
H
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
George P. Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna:
Varar við vaxandi
einangrunarhyggj u
Afleiðingin getur orðið ófarnaður um alian heim
Washington, AP.
GEORGE P. Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, seg-
ir, að ófarnaður geti blasað við öllum heimi ef Bandaríkja-
menn láti enn einu sinni freistast af verndarstefnu og
annarri einangrunarhyggju.
„Það er kominn tími til að bregða
blundinum . . . áður en við stefn-
um okkar eigin framtíð og alls
heimsins í voða,“ sagði Shultz.
„Hættumar birtast í mörgum
myndum en allar einkennast þær
af flótta frá veruleikanum, frá
ábyrgðinni, af löngun til að gleyma
því að við erum háð umheiminum
og hann okkur."
Þessi ummæli Shultz koma fram
í ræðu, sem hann mun flytja á 350
ára afmæli Harvard-háskólans, en
fréttamenn fengu fyrir helgi út-
drátt úr ræðunni.
Sem dæmi um aukna einangr-
unarhyggju nefndi Shultz ýmsar
vemdaraðgerðir, tilhneigingar til
„þótta og sjálfumgleði", vaxandi
löngun til að sleppa samningaleið-
inni í samskiptum við önnur ríki
og „stórkostlegan" niðurskurð
þingsins á framlögum til utanríkis-
þjónustunnar. Þegar allt þetta
legðist á eitt yrðu afleiðingar
„skelfílegar" fyrir samskipti
Bandaríkjamanna við umheiminn
og „einangrunin, sem af þessu leið-
ir, getur ýtt heiminum út á ystu
nöf“.
Shultz sagði, að þóttafull sjálf-
umgleðin kæmi hvergi betur í ljós
en í umræðunni um Suður-Afríku
og gagnrýndi harðlega refsiaðgerð-
imar, sem Bandaríkjaþing hefur
samþykkt. „Til að leysa Gordíons-
hnútana í þessum heimi verða
menn að brynja sig með biðlund
og þrautseigju, skilja, að það em
tvær hliðar á hveiju máli og að
samningaleiðin er ein fær,“ sagði
Shultz og átaldi jafnframt þá, sem
krefjast samninga en skeyta engu
um samningsstöðuna. „Aðrir,"
sagði hann, „segja réttilega, að
ekki skuli gengið til samninga með
veikleikann einan að vopni en telja
svo, þegar vígstaðan er góð, að
óþarfí sé að setjast að samninga-
borðinu."
Um niðurskurðinn á framlögum
til utanríkisþjónustunnar fór Shultz
mjög hörðum orðum. „Það er sagt,
að án sé ills gengis nema heiman
hafí. Við emm sjálf að grafa okkur
gröf, eyðileggja getu okkar til að
vera í fararbroddi meðal þjóðanna,
bægja frá ófriði og beijast fyrir
frelsi, lýðræði og mannlegum fram-
fömm.“
Sem dæmi um það, sem Shultz
kallaði ábyrgðarleysi þingsins,
nefndi hann, að í fjárlögum stjóm-
arinnar væri aðeins gert ráð fyrir,
að 2% þeirra fæm til utanríkis-
þjónustunnar. Þá upphæð ætlaði
þingið að skerða um 27%.
Tire$tone
Torfæruhjólbarðar
sem skila
þérá leiðarenda
Þessir hjólbarðar hafa verið marg-
prófaðir við erfiðustu aðstæður og
útkoman er stórkostleg. Þeir eru
þrælsterkir og gripmiklir I torfæru-
akstri en samt þýðir og hljóðlátir á
malbiki.
Fáanlegir á mjög hagstæðu
verði.
Stærðir:
215/75 R 15
235/75 R 15
30x9.50 R 15
31x10.50 R 15
32x11.50 R 15
33x12.50 R 15
255/85 R 16
JOFUR HF
NVBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600
Moammar Gaddafi Líbýuleiðtogi heilsar hér Seya A1 Khameini, for-
seta Irans, eftir að sá fyrmefndi flutti magnþrungna ræðu á
lokafundi Samtaka óháðra ríkja. Henni lauk með því að Gaddafi
hótaði úrsögn lands síns úr samtökunum á þeim forsendum að nokk-
ur aðildarríkjanna hefðu viðurkennt ísrael.
Zimbabwe:
Lítil eining
á ráðstefnu
óháðra ríkja
Harare, Zimbabwe, AP.
RÁÐSTEFNU Samtaka óháðra ríkja lauk í Harare í Zimb-
abwe sl. sunnudag en aðild að þeim á 101 þjóð. í lokaályktun-
inni var Bandarikjastjórn sökuð um hryðjuverk, skorað á
leiðtoga stórveldanna að stöðva vigbúnaðarkapphlaupið og
hvatt til, að öUum þjóðum yrði gert að skyldu að beita Suð-
ur-Afríku efnahagsþvingunum. Engin samþykkt var hins
vegar gerð um, að aðildarríkjunum sjálfum bæri skylda til
ákvörðun tekin um, að aðildarríkj-
unum væri skylt að grípa til
refsiaðgerða. Var þeim það í sjálfs-
vald sett. Þá var heldur ekki
samþykkt að styðja sérstaklega við
bakið á þeim blökkumannaríkjum,
sem eru háð Suður-Afríku efna-
hagslega, og hjálpa þeim til að
ijúfa þau bönd.
Ráðstefnan fordæmdi mjög
harkalega loftárásir Bandaríkja-
manna á Líbýu og voru þeir sakaðir
um að standa fyrir hryðjuverkum.
Voru þeir hvattir til að greiða
Líbýustjóm skaðabætur og að
hætta flotaæfíngum í Sidra-flóa.
Flestum ráðstefnugestum fannst
þó sem Gaddafi, Líbýuleiðtogi,
kynni lítt að meta þennan stuðning
því að í ruglingslegri ræðu sagði
hann um samtökin, að þau væru
úrelt og misheppnuð og gegnsósa
af „njósnurum og leppum" heims-
valdasinna og síonista. Fulltrúar
írana og Iraka höfðu einnig stór
orð hvorir um aðra og grunnt var
á því góða með Indveijum og Pak-
istönum.
Fimmtíu þjóðarleiðtogar sóttu
ráðstefnuna en 34 þeirra fóru heim
áður en henni lauk. Nýkjörinn
formaður samtakanna er Robert
Mugabe, forsætisráðherra
Zimbabwe.
ao gnpa ni rersiaogerda.
Á áttundu ráðstefnu Samtaka
óháðra ríkja var ákveðið að stofna
sjóð til að styrkja baráttu svartra
manna í Suður-Afnku en engin
f KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAR
VEXTIR
UMHAR
- Appelsfnur - Appelsfnur USA - Mandarfnur
— Mandarfnur Argentína — Epll rauð USA — Epli rauð Tassman —
Epli rauð Chile - Eplf gul FR — Epli gul SP — Epli gríen Granny
Epli grœn Tassman - Srtrónur spánskar - Sftrónur Uru-
guay - Greipfruh hvftt og rautt - Melónur gular SM - Melónur
Cantlop USA - Melónur Honey USA - Vatnsmelónur IT - Vfnber
grœn GR - Vfnber græn IT - Vfnber blá FR - Vfnber blá IT -
Vfnber rauð USA — Perur FR - Plómur IT — Plómur grænar FR —
Plómur rauðar SP - Ferskjur FR - Nektarfnur IT - Avocado -
Mangó — Ananas — Kókoshnetur — Kiwl — Ume — Ný frönsk gul
6dIÍ. Svarti svanurínn
KARTÖFLUR OG GRÆNMETÍIÚRVAU.
MAIA HF
rl600
121 REYKJAVÍK