Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 39

Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986 Æ Moixunblaðið/Ámi Sæberg Meðal þess er settí svip á heimilissýninguna í Laugardalshöllinni Heimilið '86 var risabaka sú með sjávarréttum, sem fyrirtækið Marska á Skagaströnd stóð fyrir bakstri á. Sjávarréttabakan var tíu fermetrar að stærð og var að bakstri loknum hlutuð niður í fjögur þúsund bita, sem gestum gafst kostur á að bragða. Fyrirtækið mun hafa kostað þá er að því stóðu á sjöunda hundrað þúsund krónur, en fyrir vikið fer bakan Iíka að öllum líkindum í Heimsmetabók Guinness. Rýmkar um embætti ríkissak- sóknara SAKASKRÁ ríkisins hefur verið flutt niður á neðstu hæð hússins við Hverfisgötu 4-6, þar sem embætti rikissak- sóknara er til húsa. Þangað hefur einnig verið flutt mála- skráning og almenn skrif- stofa rikissaksóknaraemb- ættisins en áfram á þriðju hæðinni eru saksóknarar og lögfræðingar aðrir. „Þetta er óneitanlega talsverð bót á starfsaðstöðu embættisins," sagði Hallvarður Einvarðsson, ríkissaksóknari, í samtali við blm. Morgunblaðsins um þessa flutn- inga. „Þetta gerir okkur til dæmis kleift að hafa í sama húsi alia lög- 'ræðinga embættisins en til þessa íefur verið nauðsynlegt að hafa vo og þrjá menn í seli úti í bæ, irengslin hafa verið slík.“ Ríkissaksóknari sagði ennfrem- ir að þegar fram í sækti yrði akskrá ríkisins tölvuvædd og lálaskrá embættisins að öðru ■yti. Áskrifkirsirninn er 83033 Heimilið ’86: Fjörutíu þós- und gestir „DÆMIÐ gekk upp og menn eru ánægðir, þó að við hefðum e.t.v. ver- ið búnir að gera ráð fyrir enn fleiri gestum en þeim 40.000 sem komu," sagði Þorsteinn Sigurðsson, framkvæmdastjóri sýningarinnar Heimilis- ins ’86, sem Iauk í fyrradag í LaugardalshöIIinni, í samtali við Morgun- blaðið í gær. Unnið var í alla fyrrinótt við að taka sýninguna niður og verðúr það líkast til tveggja daga verk til við- bótar. Sagði Þorsteinn að sýningin hefði staðið undir sér þó að útkoman hefði verið í neðri kanti þeirra áætl- ana er gerðar höfðu verið. Það var fýrirtækið Kaupþing sem skipulagði sýningarhaldið og munu vonir hafa staðið til að sýningargestir yrðu um 50.000. Eina ástæðuna fyrir því að svo varð ekki taldi Þorsteinn vera þá hve margt annað hefði verið á boðstólum fyrir íbúa höfuðborgar- svæðisins upp á síðkastið í tengslum við hátíðahöld vegna 200 ára af- mælis Reykjavíkurborgar. Til stendur að halda næstu heimil- issýningu haustið ’87, en að sögn Þorsteins Sigurðssonar verður næsta verkefni Kaupþings að skipuleggja „Vorsýningu" í Laugardalshöll um næstu páska. Verða þar kynntar sum- arvörur ýmiss konar, útillf og ferða- iðnaður. Morgunblaðifl/Helgi Bjamason BíIIinn hafnaði á toppnum eftir kollhnisinn utan vegar og sneri öfugt miðað við akstursstefnu. Búið var að velta bilnum aftur á hjólin þegar myndin var tekin skömmu eftir óhappið á sunnudag. Endastakkst á Kaldármelum BÍLVELTA varð á þjóðveginum á Kaldármelum i Kolbeinsstaðahreppi á sunnudag. Bílstjóri bifreiðar á vesturlcið missti vald á bifreiðinni í lausamöl svo hún endastakkst og hafnaði á toppnum á melunum tölu- vert fyrir utan veginn. Tvennt var í bifreiðinni og var far- ið með þau í sjúkrahúsið í Stykkis- hólmi. Kona sem ók bílnum slapp að mestu ómeidd en farþeginn, sem var karlmaður, fékk höfuðhögg og skrámur á andlit. Bæði voru þau í bílbelti þegar óhappið varð og telur lögreglan í Stykkishólmi að það hafi forðað fólkinu f-á mun verri meiðsl- um. Bíllinn, sem er nýlegur, skemmd- ist mikið og er jafnvel talinn ónýtur, samkvæmt upplýsingum lögreglunn- ar. 011 sömun Við erum Af því það er gaman að geta boðið þér hjónarúm með svampdýnum Pantaðu rúm strax því við fengum aðeins 30 sett. Út- borgun 4.720 og 2.250 á mánuði húsgagna höllin BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91-681199 og 681410 HÚSCÖGIM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.