Morgunblaðið - 09.09.1986, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 09.09.1986, Qupperneq 41
MORGUNBLAftfÐ, ÞRIÐJUDAGUR <9.í SEPTEMBER 1Ö8S «b Morgunblaðið/RAX RETTAÐIMIÐFIRÐINUM Staðarbakka. RÉTTAÐ var í Miðfjarðarrétt á sunnudaginn I ágætisveðri, sólskini og hægri golu. Sama góða veðrið hafði verið gangnadagana, föstu- dag og laugardag. Hér gömul málvenja að tala um göngur og gangna- stjóra o.s.frv. en ekki flail eða ijallkónga. Mun það vera til komið af því að afréttarlöndin eru mjög votlend víðast og verður þar af leiðandi að leita mikið gangandi. Um fimmtíu býli eiga rétt á þess- um afrétti, sem er Tvídægra á Arnarvatnsheiði. En Borgfirðingar eiga land á móti og eru merki nálægt miðlínu. í fyrstu leit fara fimmtíu til sextíu menn í göng- umar og leita á tveimur dögum og er þá smalað bæði fé og hrossum, en fátt er rekið af hrossum núorðið. Sama má raunar segja um sauðfé, að þeir sem hafa ráð á stórum og grösugum heimahög- um reka ekki á afrétt. Á þessu hausti mun meiga gera ráð fyrir 30.000 fjár á svæðinu, en vart hef- ur helmingur af því komið til réttar þar sem það var aðeins af heiðarlöndunum. En réttarstörfín gengu mjög vel. Bytjað var að rétta stóðið og búið um klukkan níu fyrir hádegi. En um hádegi var fyrsti fjárreksturinn rekinn í réttina og öllum fjárdrætti lokið um klukkan fimm. Fé er ýmist rekið eða flutt á bílum og flestir munu hafa náð heim um kvöldið með fé sitt . Mikill fjöldi af fólki og bílum var við réttina, víðs vegar að, og um kvöldið var réttardansleikur í félagsheimilinu Ásbyrgi með tilheyrandi gleðskap og réttarstemmningu. Benedikt Bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal: Mikil aðsókn í fiskeldisnámið FYRSTU nemendurnir úr sjálf- stæðu fiskeldisnámi (sporðbraut) í Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal útskrifuðust í vor. 25 nemendur stunda nám á sporð- brautinni í vetur, komast færri að en vilja. Blaðamaður ræddi við Jón Bjarnason skólastjóra á ferð sinni um Skagafjörð fyrir nokkru. Bændaskólinn á Hólum hefur verið brautryðjandi í kennslu í fisk- eldi hér á landi. Um fímm ár eru síðan kcnnsla í fiskeldi hófst á Hólum og hefur það þróast á þess- um tíma, þannig að nú er búfræði- námið orðið tvískipt, fiskeldið sjálfstætt á svokallaðri sporðbraut. Sameiginlegur kjarni er fyrir sporð- brautina og almenna búfræðinámið. Fiskeldisnámið er byggt þannig upp að fyrra árið er stundað grunnnám og síðan verknám á fiskeldisstöð. Síðara árið er bóklegt nám og verk- legt á Hólum. í fiskeldiskennslunni nýtur bændaskólinn nálægðarinnar við fiskeldisstöðina Hólalax hf: og Norðurlandsútibú Veiðimálastofn- unar. Fyrstu nemendurnir af sporð- braut útskrifuðust síðastliðið vor, 7 talsins. Nú eru 10 nemendur að hefja sitt annað ár, og 15 sitt fyrra í fiskeldisnáminu, og komast færri að en vilja. Jón Bjamason sagðist vera að útskrifa eldismenn, starfs- menn í eldisstöðvum sem með viðbótarreynslu gætu orðið verk- stjórar og jafnvel veitt stöðvunum forstöðu. Sagði Jón að þetta fólk væri eftirsótt til vinnu við fiskeldis- stöðvar. Fyrirlestur um grænlenzka biskups- dæmið á miðöldum ÁTTUNDI fyrirlesturinn á veg- skóla Islands í dag, þriðjudaginn um Minningarsjóðs Ásu Guð- 9. september kl. 17.15, en þá mun mundsdóttur Wright, sein er í prófessor Louis Rey tala um eigu Þjóðminjasafns Islands, grænlenzka biskupsdæmið á mið- verður haldinn í hátiðasal Há- öldum og sýna litskyggnur. Fundir skólamálaráðs og fræðsluráðs í gær: Árekstrar á milli meirihluta- fulltrúa og fræðslustjóra Fræðslustjóri telur skólamálaráð ólöglegt FUNDIR voru haidnir í gær bæði hjá skólamálaráði Reykjavíkur- borgar og fræðsluráði. Þar urðu árekstrar á milli fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins, sem skipa meiri- hluta i báðum ráðunum, annars vegar og fulltrúa minnihluta- flokkanna í ráðunum, fræðslu- stjóra og fulltrúa kennara hins vegar. Samþykkt fræðsluráðs l.september Tildrög málsins eru þau, að á fundi fræðsluráðs Reykjavíkur þann fyrsta september sl. samþykkti meirihluti ráðsins, að tillögu formannsins, Ragnars Júlíussonar, að skólamála- ráð fari með öll málefni borgarinnar varðandi þá skóla, sem ríki og borg reki sameiginlega, svo og fullorðins- fræðslu. Er það í samræmi við samþykkt borgarstjómar, frá 15. júlí sl., þar sem verksvið skólamála- ráðs var ákveðið. Á fundinum 1. september mót- mæltu fulltrúar minnihlutans samþykktinni harðlega. Áslaug Brynjólfsdóttir fræðslustjóri Reykjavíkur lét þar bóka fjölda at- hugasemda, þar sem hún telur stofnun Skólamálaráðs bijóta í bága við grunnskólalög. Fulltrúar minni- hlutans tóku undir röksemdir hennar, svo og fulltrúar kennara. Kennara- fulltrúamir lögðu einnig fram bókun, þar sem þeir töldu að þeir ættu rétt til aðildar að skólamálaráði. Bókun formanns skólamálaráðs Fundurinn í skólamálaráði í gær hófst kl. 12.15 og með því að Ragn- ar Júlíusson lagði fram eftirfarandi bókun varðandi aðild kennara að skólamálaráði: „Á fundi skólamála- ráðs Reykjavíkurborgar, 16. júlí síðastliðinn, sbr. 47. lið fundargerð- ar, var rætt um 4. gr. samþykktar fyrir skólamálaráð Reykjavíkurborg- ar, sem Ijallar um tilnefningu áheymarfulltrúa á fundum ráðsins. Út frá því var gengið, að tillaga um þetta efni yrði lögð fram á þessum fundi, en mál hafa skipast þannig, að Kennarafélag Reykjavíkur hefur sent borgarráði Reykjavíkur erindi varðandi rétt kennara til setu á fund- um ráðsins, og var því vísað til umsagnar borgarlögmanns. Rétt þykir að fresta tillögugerð sbr. 4. gr. samþykktarinnar þar til umsögn borgarlögmanns og afstaða borgar- ráðs til hennar liggur fyrir." Samþykkt borgar- stjórnar um fulltrúa kennara og foreldra 4. gr. samþykktarinnar hljóðar svo: „Skólamálaráði skal heimilt að veita fulltrúum kennara og foreldra rétt til setu á fundum sínum með málfrelsi og tillögurétti skulu fulltrú- ar valdir eftir reglum, sem borgar- stjórn setur eftir tillögum ráðsins en skólamálaráð skal þar m.a. hafa í huga 18. gr. grunnskólalaga.“ Tillaga Þorbjörns og Kristínar Þegar hann hafði lagt fram þessa bókun, lögðu Þorbjöm Broddason og Kristín Arnalds fram tillögu, sem er svohljóðandi: „Við leggjum til, að gert verði hlé á fundi Skólamálaráðs þar til náðst hefur til fræðslustjóra og kennarafulltrúa og þannig tryggt lögmæti þessa fundar. Vísað er til 58. gr. sveitarstjómarlaga og erindis forstöðumanns lögfræði- og stjóm- sýsludeildar frá 15. júlí 1986 og álitsgerðar Guðríðar Þorsteinsdóttur hdl. dagsettrar 15. ágúst 1986 sem lögð var fram í fræðsluráði þann fyrsta þessa mánaðar." Þessi tillaga var felld með þremur atkvæðum gegn tveimur, „enda höfðum við enga heimild til þess að boða fulltrúa á fund, sem ekki var búið að sam- þykkja af borgarráði eða borgar- stjórn," sagði Ragnar Júlíusson. Bókun minnihlutans Eftir að þessi tillaga var felld, lögðu þau Þorbjöm og Kristín fram eftirfarandi bókun: „Við hörmum þessa afstöðu meirihluta skólamála- ráðs og lýsum því yfir að vefengja megi allar ákvarðanir þessa fundar. Við setjum því hér með alvarlega fyrirvara um allar ákvarðanir þessa fimdar. Við munum eigi að síður sitja þennan fund til enda þar eð hvorki hefur fengist úrskurður ráðuneytis né borgarlögmanns varðandi það deilumál sem upp er komið." Ragnar lagði að því búnu fram bókun, þar sem hann vísaði til fyrri bókunar sinnar og héldu fundarstörf síðan áfram. „A dagskránni voru einungis mál, sem varða framhalds- skólana í Reykjavík, sem reknir eru af ríki og borg í sameiningu, og fjár- mál Reykjavíkurborgar, þ.e. aðeins var rætt um mál, sem ótvírætt heyra undir skólamálaráð," sagði Ragnar. Fundur fræðsluráðs. Ragnar Júlíusson boðaði síðan til fundar í fræðsluráði að kröfu Þor- bjöms, Kristínar og fræðslustjóra frá fundi fræðsluráðs þann 1. septem- ber. Sá fundur hófst kl. 14.00 og voru þar mættir kennarafulltrúar og fræðslustjóri svo og kjömir fulltrúar, sem em þeir sömu og í Skólamála- ráði. Fundurinn hófst með bókun frá kennarafulltrúunum og Þorbimi og síðan kom fræðslustjóri með nýja dagskrá, „sem var umfram þá dag- skrá sem ég hafði sent út og sem var með níu mál á dagskrá og af þeim þrjú afgreidd og þremur vísað til skólamálaráðs," sagði Ragnar. Þegar afgreidd höfðu verið þau sex mál, sem ekki höfðu verið afgreidd eða vísað til Skólamálaráðs, lýsti fræðslustjóri því yfir að tilgangslaust væri að halda áfram og óskaði þess að fundi yrði frestað, en lýsti því jafnframt yfir að hún myndi ekki afhenda fundargögnin, sem henni hefðu borist, fyrr en úrskurður hefði komið um starfssvið sitt. Ragnar sá ekki ástæðu til þess að halda áfram og sleit fundinum. Bréfaskriftir fræðslu- stjóra til mennta- málaráðherra Áslaug Brynjólfsdóttir sendi menntamálaráðherra bréf í byijun ágústmánaðar, þar sem hún gagn- rýnir stofnun skólamálaráðs, og segir hana ólögmæta. Jafnframt hefur hún ítrekað skrifað ráðherra bréf og far- ið fram á að hann skilgreindi starfs- svið sitt að nýju í ljósi þeirra breytinga, sem orðið hafi á stjórn fræðslumála í Reylq'avík. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur menntamálaráðherra ekki svarað bréfum Áslaugar. Hann og borgar- stjóri munu nýlega hafa átt fund um málið, en komust ekki að niðurstöðu. Fimmtíu börn hafa fæðst eftir tæknifrjóvgun „Við vonumst til að fara aftur í gang í haust,“ sagði Jón Hilmar Alfreðsson, læknir í samtali við Morgunblaðið, en eins og fram kemur í frétt á baksiðu hafa tæknifijóvganir hér á landi verið stöðvaðar vegna hertra reglna um smitvarnir. Tilraunir með tækni- frjóvganir hófust á íslandi fyrir sex árum og hafa um 50 börn fæðst eftir að mæður þeirra gen- gust undir slíka aðgerð. Jón Hilmar sagði hins vegar að niikið fleiri hefðu reynt meðferðina og væri árangurinn nálægt 70 af hundraði. „Þetta er fremur venjulegt hlut- fall miðað við það sem tíðkast almennt og og getur talist góður árangur miðað við margar aðrar aðferðir sem notaðar eru gegn ófrjó- semi. Tæknifijóvgun gefur bestan árangur í þeim tilfellum,“ sagði hann. Eftirspumin eftir tækniftjóvgun- um er töluverð og er biðlistinn orðinn í lengra lagi, einkum vegna þess að engar aðgerðir hafa verið fram- kvæmdar á þessu ári. „Við erum að vona að við önnum þessari eftirspum og getum gengið á þennan biðlista," sagði Jon Hilm- ar. „Ég geri ráð fyrir því að þessar aðgerðir geti orðið almennari. Eftir- spumin er að aukast eftir því sem fólk fær betri vitneskju um þetta og telur biðlistinn nú nokkra tugi.“ Sem stendur er Jón Hilmar eini læknirinn sem framkvæmt hefur tæknifijóvganir á íslandi, en hann sagði að fleiri þyrfti til, ef anna ætti eftirspuminni. Einhver bið verður á því að fyrsta „glasabarnið" fæðist á íslandi og sagði Auðólfur Gunnarsson, kven- læknir á Landsspítalanum, að enn hefði undirbúningur að slíkum fæð- ingum ekki hafist að ráði. „Við emm aðallega að bíða eftir því að árangur tilrauna með glasa- bamafæðingar erlendis batni, áður en við fömm að reyna þetta hér. Eins og er, heppnast svona fæðingar einungis í undantekningartilfellum og á meðan höldum við að okkur höndunum og fylgjumst náið með.“ sagði Auðólfur. Hann sagði að ekki væri þess að vænta að slíkar fæðingar fæm fram íslandi innan tveggja ára, nema til kæmu einhveijar stórtækar fram- farir í þessum efnum erlendis. „Svona fæðingar em talsvert dýr- ar og við höfúm ekki talið það svara kostnaði að fara útí þetta af fullum krafti, á meðan árangurinn er ekki betri annars staðar," sagði Auðólfur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.