Morgunblaðið - 09.09.1986, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingaf 1
___;_____;.... » .. __' I
B
Útboð — íbúðir aldraðara
Seltjarnarnesbær óskar eftir tilboðum í bygg-
ingu íbúða aldraðara annan áfanga. Verkið
felur í sér að gera húsið fokhelt að innan —
fullgert að utan. í húsinu sem er 3 hæða
samt. 2260 fm verða 22 íbúðir. Útboðsgögn
verða afhent á bæjarskrifstofu Seltjarnar-
ness, Mýrarhúsaskóla eldri, gegn 3000 kr.
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11.00
þriðjudaginn 23. sept. 1986.
Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi
nlÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
Útboð
Iðntæknistofnun íslands óskar eftir tilboðum
í stýribúnað (PLC/CNC) á vélalínu í tréiðnaði.
Verkið nefnist CNC-TRÉ og nær til hönnun-
ar, smíði, uppsetningar, prófunar, kennslu
og viðhalds á kerfinu.
Útboðsgögn verða afhent hjá Iðntæknistofn-
un, Keldnaholti, gegn 5.000 kr. skilatryggingu
frá og með fimmtudegi 11. september nk.
Tilboðum skal skila til Iðntæknistofnunar eigi
síðar en 10. okt. 1986 kl. 18.00.
Reykjavík, 9. sept. 1986.
Iðntæknistofnun,
trétæknideild.
Söluturn á góðum stað
í austurborginni
Til leigu er nýlegur og glæsilegur söluturn í
austurborginni með öllum tækjum. Hentugt
tækifæri fyrir fólk til að skapa sér sjálfstæð-
an atvinnurekstur. Gæti losnað strax.
Upplýsingar gefur Baldur í síma 687370 frá
kl. 13-16 í dag.
Raðveggir
Samlokuveggir í íbúðina, skrifstofuna og lag-
erinn. Auðveld lausn. Veggirnir hafa verið
beygju- og brotprófaðir hjá Rannsóknastofu
byggingariðnaðarins. Niðurstöður prófanna
eru að veggirnir lenda í 2. flokki. Veggir í
þessum flokki eru taldir vandaðir þegar um
íbúðarhús er að ræða.
Reykjavík, söluskrifstofa s. 672725.
Trésmiðjan Fjaiar,
Húsavík,
s. 96-41346.
Til sölu
Mér hefur verið falið að annast sölu á inn-
flutnings- og framleiðslufyrirtæki sem hafði
á sl. ári um 12 millj. króna ársveltu. Fyrirtæk-
ið starfar á sérhæfðum markaði þar sem
samkeppni er ekki eins hörð og gerist í flest-
um greinum viðskipta nú orðið.
Fyrirtækið hefur mörg mjög góð umboð og
selur vandaða vöru. A næstu mánuðum og
árum eru á döfinni mörg verkefni og veltu-
möguleikar því góðir. Brúttó hagnaður hefur
verið hærri en gerist almennt í innflutningi
og iðnaði þannig að auðvelt á að vera að
gera fyrirtækið mjög arðbært með auknu fjár-
magni.
Til greina kemur að selja fyrirtækið allt eða
að hluta. Núverandi eigendur væru tilbúnir
til þess að starfa við fyrirtækið áfram eftir
því sem þurfa þætti til þess að koma sér-
hæfðri þekkingu til skila til nýrra eigenda og
starfsmanna.
Virðingarfyllst
Birgir Hermannson,
viðskiptafræðingur,
sími: 686268 á skrifstofu.
íbúð óskast
25 ára viðskiptafræðingur óskar eftir íbúð
fyrir sanngjarnt verð á rólegum stað í bæn-
um. Húshjálp kæmi til greina.
Brynhildur,
vs: 22280 - hs: 32186.
Skrifstofuhúsnæði
óskast
Traust þjónustufyrirtæki óskar að taka á leigu
gott skrifstofuhúsnæði í Reykjavík. Hús-
næðið þarf að vera a.m.k. 200 fm að stærð.
Upplýsingar gefur Jóhann Frímannsson í
síma 68-73-70 á skrifstofutíma.
Einbýlishús, raðhús eða
5 herb. íbúð
óskast á góðum stað í Reykjavík fyrir 4ra
manna fjölskyldu.
Uppl. ísímum: 686070 eða
685944.
Iðnaðar- og verslunar-
húsnæði
Óskum að taka á leigu sem fyrst ca 2000
fm iðnaðarhúsnæði og 300-500 fm verslun-
arhúsnæði á sama stað. Tilboð sendist
augld. Mbl. fyrir föstudaginn 12. sept. merkt:
„Húsgögn — 444“.
Frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík
Skólinn verðursetturfimmtudaginn 18. sept-
ember kl. 17.00 í Háteigskirkju. Inntökupróf
í tónfræðadeild verða þriðjudaginn 9. sept-
ember kl. 13.00 og í aðrar deildir fimmtudag-
inn 11. september kl. 13.00 í Skipholti 33.
Getum enn bætt við nemendum.
Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans.
Skólagjöld óskast greidd 11. og 12. septem-
ber kl. 09.00-17.00.
Skólastjóri.
Frönskunámskeið
Alliance francaise
Haustnámskeiðið hefst mánudaginn 22.
september
- 13 vikna námskeið.
Kennt verður á öllum stigum ásamt bók-
menntaklúbbi, barnaflokki og unglingaflokki.
Innritun fer fram á Bókasafni A.F. alla virka
daga frá kl. 15.00-19.00 og hefst miðvikudag-
inn 10. september.
Nánari upplýsingar í síma 23870 á sama
tíma.
Námskeið
fram til áramóta
Námsgreinar Tfmabil Dagar Tími
Multiplan 1 22.09-22.10 mán.mi. 17:30-18:50
Lögfræöi/versl.rótt. 22.09-22.10 mán.mi. 17:30-19:50
Ritvinnsla 23.09-26.11 þr.mi. 19:10-20:30
Dbase III 23.09-23.10 þr.mi. 17:30-18:50
Sölumennska 29.09-13.10 má.mi. 13.30-15.00
Viðskiptaenska 1 30.09-04.12 þr.fi. 17:30-18:50
Project (verkáætl.) 13.10-17.10 má.þr.mi.fi.fö. 15:00-16:40
Tölvubókhald 13.10-17.10 má.mi. 19:10-21:20
Multiplan II 27.10-26.11 má.mi. 17:30-18:50
Dbase III 04.11-04.12 þr.fi. 17:30-18:50
Frekari upplýsingar fást og innritun fer fram
milli klukkan 10-12 og 13-16 í síma 688400.
Fulltrúaráð í Reykjavík
Almennur fulltrúaráðs-
fundur
Almennur fundur í fulltrúaráði sjálfstæöisfélaganna í Reykjavík verö-
ur haldinn fimtudaginn 11. september ki. 20.30 i Sjálfstæöishúsinu
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Dagskrá:
1. Ákvöröun tekin um hvort halda skuli prófkjör vegna komandi al-
þingiskosninga.
2. Ræöa Þorsteins Pálssonar formanns Sjálfstæðisflokksins.
3. Önnur mál.
Fulltrúaráösmeölimir eru hvattir til aö fjölmenna.
Stjórnin.
Uppslattarbók fyrir konur
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Mary Gostelow: The Complete
Woman’s Reference Book.
Útg. Pengnin 1986.
Um þessar mundir er nefnd upp-
sláttarbók að koma út í Bretlandi
og þótt sagt sé að hún sé fyrir
konur, fæ ég ekki betur séð eftir
að hafa gluggað í hana, en karl-
menn geti kynnt sér hana, öllum
að skaðlausu og fremur væntanlega
til fróðleiks. Bókin skiptist niður í
fjölda marga kafla: fjármál, eignir,
bíllinn, myndavélar, tölvur, réttur
þinn, lyf, kynlíf og mannleg sam-
skipti, upplýsingar um mannasiði
og framkomu, ferðalög, mat og
drykk. Og svo mætti lengi telja.
Það segir sig sjálft að þar sem
bókin er sniðin fyrir brezka lesend-
ur, eru í henni aðskiljanlegar
upplýsingar sem íslenzkir lesendur
hafa ekkert við að gera og kemur
ekkert við. Þó má sjálfsagt færa
sér í nyt margt af þessum ef fólk
þarf að afla sér upplýsinga um
brezkt kerfi af einhverjum ástæð-
um. Nú, kannski einhvem langp til
að skrifa konungsfjölskyldunni; þá
eru ágætar leiðbeiningar um hvem-
ig á að ávarpa hvern. Það er ekki
ónýtt.
Mary Gostelow, sem fremur
mætti kalla ritstjóra þessarar bókar
en höfund, starfar í Dorset en í
kynningu segir að hún sé á stöðug-
um ferðalögum, skrifi fyrir ýmis
merk rit, hafi komið fram í auglýs-
ingum fyrir SAS og þá er ekki allt
talið.
Uppsláttarbók af þessu tagi er
góð hugmynd og safnað saman á
einn stað fysilegum fróðleik af
ýmsum toga. íslenzk og staðfærð
og breytt útgáfa slíkrar bókar væri
kannski ekki vitlaus hugmynd. En
af hverju hún er sögð henta sérstak-
lega konum, veit ég ekki.