Morgunblaðið - 09.09.1986, Side 47

Morgunblaðið - 09.09.1986, Side 47
MORGUNBLAÐIg, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986 47 Tálknafj örður: „Vantar ekki fisk í sjóinn“ — segir Guðjón oddviti Indriðason TÁLKNAFJÖRÐUR hefur verið sjávarpláss í stöðugum uppgangi undanfarin ár, en i fyrra gerðist það í fyrsta skipti að fólki fækk- aði þar, að vísu litið, eða úr 370 í 364. Guðjón Indriðason oddviti var inntur eftir því hvort það væri farið að halla undan fæti fyrir byggðarlaginu. Hann sagði að engin feigðar- merki væru sjáanleg á byggðarlag- inu. Atvinna væri næg og unga fólkið settist jafnt að eins og það færi burtu. Að vísu hafi lítið verið byggt síðustu tvö árin, en þeim mun meira hefði verið byggt árin á und- an. Atvinnurekstur gengi eins vel og mönnum leyfðist fyrir ofstjóm- inni að sunnan. A staðnum væri hraðfrystihús sem gerði út einn togara, fiskverkun sem væri með þijá báta, vélsmiðja og vélaverk- stæði. Þá era nokkrir aðilar famir af stað með tilraunir með laxeldi. Guðjón er frá Grenivík við Eyja- Qörð, en fluttist til Tálknaijarðar fyrir 13 áram. Hann er sjómaður að atvinnu, og taldi hann að sjávar- útvegur gæti enn staðið undir uppbyggingu atvinnulífsins. Leyndi sér ekki að hann var mjög ósáttur með kvótakerfið, „að menn skuli ekki lengur fá að físka eins og þeir era menn til“. Sagði hann að afli gengi alltaf í bylgjum. „Kvótinn er alltof naumt skammtaður. Það vantar ekki fisk í sjóinn núna. Mað- ur sér það af því að vertíðin sem áður stóð til 15. maí er nú búin á páskum. Við getum náð árskvótan- um á fjóram mánuðum. Það er alrangt að ofQárfesting í sjávarút- vegi valdi erfíðleikum þjóðarinnar núna. Ég er viss um að ef jafnstór hluti þjóðarinnar væri í físki í dag Magnús Bjðrasson oddviti Bflddælinga lítur velþóknunaraugum á vinnu- brögð f frystihúsinu. Bíldudalur: Guðjón Indriðason oddviti Tálkn- firðinga telur ekki vanta fisk í sjóinn, og þvi mætti kvótakerfið alveg missa sín. og var um aldamót, með núverandi samgöngutækni, þá væram við ís- iendingar ríkasta þjóð í heimi." Guðjón er einn af þeim sem era famir af stað með fískeldi. Sagði hann að þeir hefðu farið út í þetta þegar kvótinn var settur á til að hafa eitthvað að gera. Sagði hann það hafa gengið þokkalega, en eng- ir framtíðarmöguleikar væra til sem ekki fylgdi áhætta, en það ætti að geta verið rekstrargrandvöllur fyrir þessu. Guðjón var sáttur við samgöngur í lofti og á sjó, en flogið er sex daga í viku á Patreksfjörð og Bíldudal, og skip Skipaútgerðar ríkisins koma vikulega við, en vegimir eru að hans mati lélegir þótt þeir hafí að vfsu faríð batnandi. Sagði hann að lokum, að Tálknafjörður væri stað- ur sem ætti mikla framtíð fyrir sér, og þar ættu að öllu eðlilegu að búa miklu fleira fólk. Næg atvinna og góðar tekjur BÍLDUDALUR er staður sem má muna tfmanna tvenna. Um aldamót var hann einn blómlegasti þétt- býlisstaðurinn á landinu, en á sfðasta áratug var svo komið að Bfldudalur átti einna erfiðast upp- dráttar af sjávarplássum hér við land. Sfðustu árin hefur svo ræst úr fyrir Bíldælingum. f fyrra fækkaði þó fbúunum úr 360 f 341. Þá var togari sá sem hafði séð byggðarlaginu fyrir fiski, Sölvi Bjamason, boðinn upp sl. haust, en heimamenn keyptu hann aftur í vor, en áður var hann í eigu aðila á Tálknafírði. Þá hætti Kaupfélag Vestur-Barðstrendinga á Patreksfirði I sumar rekstri verslunar sinnar á Bfldudal, en hlutafélag heimamanna leigði hana til nokkurra mánaða til að byrja með. Blm. Morgunblaðsins hitti Magnús Bjömsson oddvita Suðurfíarðar- hrepps að máli og spurði hann fyrst hvemig hljóðið væri í mönnum. „Það er gott. Mönnum lfður vel héma, meðaltekjur eru háar, slagar hátt í landsmet, og atvinna hefur verið næg,“ sagði Magnús. íbúafjöld- inn hefur staðið f stað í nokkur ár. Fólk kemur í staðinn fyrir það sem flytur burt. Fiskvinnslan hf. sem rekur fíysti- hús og litla fiskimjölsverksmiðju, er aðalatvinnuveitandinn, en þar að auki er rekin hér rækjuvinnsla og svo era þessi venjulegu þjónustufyrirtæki, vélsmiðja, trésmíðaverkstæði, banka- útibú og svo framvegis. Samgöngur era þokkalegar í lofti, en vegakerfíð er voðalegt, maður heyrir að það fæli ferðamenn frá. Þá vantar fé í höfnina héma.“ Þar sem Magnús starfar sem skrif- stofustjóri Fiskvinnslunnar hf. var hann spurður hvemig reksturinn gengi. „Hann gengur bara þokkalega, það hefiir oft gengið verr. í fyrra var slæmt ár og við misstum togarann á uppboð, en við keyptum hann aftur f mars á 150 milljónir. Þaraf er eigið fé 30 milliónir en við skuldum 120 milljónir. Ovissan með togarann var erfíð, en nú er betra hljóð í mönnum. Það var viss léttir að málum skuli hafa verið komið á hreint. Dauða- stríðið var orðið ansi Iangt. Það gengur ágætlega að reka skipið enda aðstæður allt aðrar eftir að olíuverð lækkaði. Það verður erfíðast að standa undir viðhaldinu þegar þar að kemur." Texti: BIRGIR ÞÓRISSON Myndir: ÞORKELL ÞORKELS- SON OG FLEIRI Innritun fer fram dagana 1.—11. september kl. 10-19 í símum 40020 og 46776. Kennsluönnin er 15 vikur, kennsla hefst 11. september og önninni lýkur með jólaballi. Til að tryggja góða kennslu er fjöldi nemenda í hverjum hópi takmarkaður. FÍD - Betri kennsla - betri árangur. Við kennum þér alla almenna dansa, bæði samkvæmisdansa l og gömlu dansana. Bamadansar fyrir yngstu kynslóðina. Byrjenda- og framhaldsflokkar. % Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar Auðbrekku 17, Kópavogi. Símar 40020 og 46776. Sex eininga Salix hillusamstæða frá VIÐJU á kr. 23.800,- Hvít með bláum eða rauðum skúffum og skápahurðum. 20% UTBORGUM 12 MÁHAÐA QREIÐ5LUKJÖR HUSGAGNAVERSLUNIN Þar sem góðu kaupin gerast Smiðjuvegi 2 Kópavogi simi 44444 ■ li 111 $ ♦ IIIP / ] w 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.