Morgunblaðið - 09.09.1986, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
a.
*
”>•1
Hestamót Snæfellings á Kaldármelum:
Olsarar og Hólm-
arar hirtu flest
verðlaun mótsins
Hestamannamót Snæfellings
var haldið á Kaldármelum
25/7-26/7 sl. Af áhorfenda-
fjölda mátti vel merkja að þetta
var síðasta helgin fyrir verzlun-
armannahelgina, en þó komu
mun fleiri ríðandi en oft áður.
Mótið fór vel fram og var
ágætis veður allan tímann, en
seinni daginn var sól allan dag-
inn og heldur hvasst til kapp-
reiða, þó voru tímar í hlaupum
bara þokkalegir miðað við að
6—7 vindstig voru á móti allar
kappreiðarnar.
Þetta var mót ungu reiðmann-
anna, í gæðingakeppninni komust
ungir knapar í 1. og 2. sætið í B-fl.
og 2. og 3. sætið í A-fl. En þetta
eru þeir Lárus Hannesson og Guð-
mundur Bæringsson, Stykkishólmi.
Þeir háðu einvígi í báðum þessum
greinum við Jóhannes Kjartansson
frá Olafsvík, sem sigraði í A-fl. og
varð 3. í B-fl.
Óhætt er að segja að Ólsarar og
Hólmarar hafa skipst á verðlaunum
í unglingakeppninni, en Ólsarar
sigruðu yngri flokkinn, hlutu 1., 2.
og 3. sætið, en Hólmarar 1., 2. og
3. sætið í eldri flokki.
íþróttamót nýstofnaðrar íþrótta-
deildar Snæfellings var haldið nú í
fyrsta sinn og var það sama uppi
á teningnum og í gæðingakeppn-
inni. Sömu knapar urðu í þremur
efstu sætum í fjórgangi og fimm-
gangi og í A- og B-fl. gæðinga,
þeir Jóhannes, Lárus og Guðmund-
ur. íþróttakeppnin tókst vel í alla
staði og höfðu áhorfendur gaman
af þessari nýju grein og sérstaklega
af keppni unglinganna. Það vakti
sérstaka athygli að 9 ára snáði frá
Ólafsvík, Sigurður Stefánsson,
komst þar upp á milli elstu ungling-
anna bæði í fjórgangi og tölti.
Stigahæsti knapinn varð í flokki
fullorðinna Lárus Hannesson, en í
flokki unglinga Högni Högnason,
báðir frá Stykkishólmi.
Úrslitakeppnin í tölti fór fram
eftir hópreið á laugardag og var
hún jöfn og skemmtileg. Þar sigr-
aði Ásbjöm Pálsson frá Hauka-
tungu á glæsihestinum Frama og
var Ásbjöm eini knapinn sem varð
eitthvað ágengt gegn veldi Ólsara
og Hólmara á þessu móti.
Það sem vakti kannski mesta
Högni Högnason frá Stykkishólmi
stigahæstur unglinga ásamt Gló-
faxa sínum sem hann keppti á.
Frami og Ásbjörn frá Haukatungu, sigurvegarar i tölti.
athygli var að sömu menn hirtu
þama öll verðlaun og á það við
bæði í gæðingakeppni og íþrótta-
keppni hjá fullorðnum og ungling-
unum, en þeir hafa einfaldlega verið
á bestu hrossunum og verið bestu
knapamir í þetta sinn.
Úrslit urðu sem hér segin
A-flokkur gæðinga
1. Blakkur 6 vetra, brúnn, F.: Gustur, M.:
Nótt, eigandi og knapi Jóhannes Kjart-
ansson, Ólafsvík, 8,17.
2. Eik 8 vctra, jörp, F.: Sörli 876, Stykkis-
hólmi, M.: Svarta Stjama, eigandi og
knapi Guðmundur Bæringsson, Stykkis-
hólmi, 8,15.
3. Þrymur 6 vetra, rauðstjömóttur, F.:
Þáttur 722, M.: Þema 4394, eigandi
Siguijón Helgason, Stykkishólmi, knapi
Láms Hannesson, Stykkishólmi, 7,97.
B. flokkur gæðinga
1. Blær 8 vetra, rauður, F.: Ófeigur 818,
M.: Blika, Stakkhamri, eigandi og knapi
Láms Hannesson, 8,29.
2. Straumur 7 vctra, jarpur, F.: Jarpur,
M.: Sóla, cigandi Valentínus Guðnason,
Stykkishólmi, knapi Guðmundur Bær-
ingsson, 8,23.
3. Hrefna 8 vetra, brún, F.: Hrafn 802,
M.: Stjama, eigandi Ólafur Kristjánsson,
Ólafsvík, knapi Jóhannes Kjartansson,
Ólafsvík, 8,19.
Unglingar, eldri flokkur
1. Vignir Jónasson, Stykkishólmi, á Blesa
12 vetra, rauðblesóttum, 8,16.
2. Högni Högnason, Stykkishólmi, á Gló-
faxa 8 vetra, rauðblesóttum, 8,10.
3. -4. Sæþór H. Þorbergsson, Stykkis-
hólmi, á Roða 6 vetra, rauðum, 7,92.
3.-4. Laufey Bjamadóttir, Stakkhamri, á
Þokka 6 vetra, bleikum, 7,92.
Unglingar, yngri flokkur
1. Sigurður Stefánsson, Ólafsvík, á Þokka
5 vetra, rauðum, 7,95.
2. Jónas Stefánsson, Ólafsvík, á íris 9
vetra, grárn, 7,93.
3. Kristín B. Ásgeirsdóttir, Ólafsvík, á Al-
bert 4 vetra, brúnum, 7,82.
Fjórgangur
1. Jóhannes Kjartansson, á Hrefnu, 37,5.
2. Láms Hannesson, á Kolskeggi, 45,1.
3. Guðmundur Bæringsson, á Straumi, 42.
Fimmgangur
1. Jóhannes Kjartansson, á Blakk, 48,4.
2. Láms Hannesson, á Þrymi, 53.
3. Guðmundur Bæringsson, á Eik, 26,6.
Tölt
1. Ásbjöm Pálsson, Haukatungu, á Frama,
56,6.
2. Guðmundur Bæringsson, á Straumi, 45.
3. Láms Hannesson, á Kolskeggi, 47,9.
Fjórgangur unglinga
1. Högni Högnason, á Glófaxa, 45,6.
2. Vignir Jónasson, á Blesu, 40,5.
3. Sigurður Stefánsson, á Þokka, 39,9.
Tölt unglinga
1. Högni Högnason, á Glófaxa, 57.
2. Lipurtá, eigandi Ragnar Ágústsson, Ól-
afsvlk, knapi Jóhann G. Jóhannsson,
Rvík, 16,5 sek.
3. Blær, eigandi Sigriður Stefánsson, Ól-
afsvfk, knapi Jóhann G. Jóhannsson,
17,2 sek.
Gæðingaskeið
1. Láms Hannesson, á Sjan, 70.
2. Jóhann G. Jóhannsson, Reykjavík, á Blæ,
70.
3. Jóhannes Kjartansson, á Blakk, 50.
Islensk tvíkeppni og
stigahæsti keppandinn
Láms Hannesson, 92,5 stigog 215,5 stig.
Islensk tvíkeppni og
stigahæsti keppandi unglinga
Högni Högnason, 102,6 stig.
150 metra skeið
1. Vigri, eigandi Jóhannes Þ. Jónsson,
knapi Kristján R. Kristjánsson, Hafn-
arf., 15,8 sek.
250 metra unghrossahlaup
1. Ófeig, eigandi og knapi Jens Pétur
Högnason, Gmndarfirði, knapi Öm Þór
Alfreðsson, Gmndarfirði, 19,6 sek.
2. Kóngur, eigandi og knapi Hörður Her-
mannsson, Stykkishólmi, 19,9 sek.
3. Kolbrún, eigandi Guðbrandur Reynisson,
Nýjabæ, 20 sek.
350 metra stökk
1. Ófeigur, eigandi Sturla Böðvarsson,
Stykkishólmi, knapi Vignir Jónasson,
Stykkishólmi, 27 sek.
2. Frosti, eigandi Sigurður I. Ámundason,
Borgamesi, knapi Páll Svansson, Borg-
amesi, 27,2 sek.
3. Jökull, eigandi Ámundi Sigurðsson,
Borgamesi, knapi Páll Svansson, 27,4
sek.
250 metra skeið
1. Drottning, eigandi Kristján Leósson,
knapi Ámundi Sigurðsson, Borgamesi,
23,1 sek.
2. Jökull, eigendur Kristján og Jóhannes,
knapi Kristján R. Kristjánsson, 24,9 sek.
3. Gullstjami, eigandi og knapi Gísli Guð-
mundsson, 25,3 sek.
300 metra brokk
1. Blær, eigandi og knapi Láms Hannes-
son, 35,0 sek.
2. Trítill, eigandi og knapi Jóhannes Þ.
Jónsson, 36,6 sek.
3. Kjami, eigandi og knapi Skarphéðinn
Ólafsson, Gmndarfirði, 43,2 sek.
2. Sigurður Stefánsson, á Vin, 48.
3. -4. Vignir Jónasson, á Blesu, 45,2.
3.-4. Jón B. Jónatansson, á Berki, 45,2.
•t
Kolskeggur og Lárus Hannesson frá Stykkishólmi höfnuðu í 3. sæti í tölti.
Morgunbiaðið/Bjöm, óiafsvík Jóhannes Kjartansson frá Ólafsvík á Blakk sem kosinn var fegursti
gæðingur mótsins. Jóhannes sigraði í A-flokki, þriðji í B-flokki, sigr-
aði í fimmgangi og fjórgangi. Nokkuð gott, ekki satt.