Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
51
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
„Gætir þú sagt mér eitthvað
um mig, þ.e.a.s. um atvinnu,
heimili, ástina og börn? Ég
er fæddur þann 12.01. 1956,
kl. 10.30, á Húsavík. Gætir
þú einnig sagt mér hvemig
persónuleiki ég er og hvemig
ég ætti við konu sem fædd er
í Ljóninu 25.07. 1960? Ein-
lægur.“
Svar:
Þú hefur Sól, Tungl og
Rísandi merki í Steingeit,
Merkúr og Venus í Vatnsbera
og Mars, Satúmus saman í
Sporðdreka.
Atvinna
Þar sem þú ert margföld
Steingeit má segja að atvinna
sem hefur með skipulagsmál,
stjómun og margskonar hag-
nýtar framkvæmdir eigi vel
við þig. Steingeitin er jarð-
bundið merki sem þarf að
byggja upp og ná áþreifanleg-
um árangri. Þú gætir því t.d.
notið þín sem framkvæmda-
stjóri á viðskiptasviði, sem
smiður eða verktaki eða við
stjómarstörf hjá traustum
fyrirtælg'um. Verkfræðingur
(tæknifræðingur), bygginga-
meistari og framkvæmda-
stjóri eru nokkur táknræn
lykilorð fyrir persónuleika
Steingeitar. Aðalatriði er að
starf veiti þér öryggi, sé hag-
nýtt og uppbyggjandi og veiti
þér útrás fyrir stjómunar- og
skipulagshæfileika.
Heimili
Tungl í Steingeit táknar að
þú þarft öryggi í daglegu lífi
og vilt eiga fallegt, virðulegt
og „gróið" heimili.
Ást
Venus í Vatnsbera og Úranus
í 7. húsi táknar að þú laðast
að sjálfstæðu og heldur
óvenjulegu fólki. Þú vilt sjálf-
ur visst frelsi í ástamálum og
því er líklegt að þú laðist að
fijálslyndu fólki. Ástamálin
geta verið þér snúin vegna
þess að þörf þín fyrir öryggi
og varanleika _ (Steingeitin)
samræmist illa Úranusarþörf-
inni fyrir frelsi.
Börn
Tungl Rísandi táknar að þú
ert bamgóður og vemdandi í
eðli þínu og hefur þörf fyrir
að eiga böm. Þeir sem eru
minnimáttar kalla fram í þér
hlýju og umhyggju. Líklegt
er að þú sért nærgætinn en
samt sem áður frekar strang-
ur faðir, leggir t.d. áherslu á
aga og góða framkomu bama
þinna.
Persónuleikinn
Þú ert jarðbundinn persónu-
leiki, agaður og formfastur.
Sem sterk Steingeit þarft þú
að varast ákveðin þyngsli, að
ætla þér að axla ábyrgð
heimsins og láta sterka
ábyrgðarkennd leiða til þess
að þú nýtur ekki lífsins. Þú
þarft að varast að vera of
alvörugefinn og stífur.
Konan
Hún hefur Sól, Tungl og Ven-
us í Ljóni, Merkúr í Krabba
og Mars í Nauti. Því miður
vantar fæðingartímann en
útfrá þeim upplýsingum sem
eru fyrir hendi má segja að
þið virðist ólíkir persónuleik-
ar. Steingeit og Ljón eru
andstæð en geta eigi að síður
gefið hvort öðru margt. Ljónið
býr yfir hlýju og opnun sem
Steingeitin dáist að. Stein-
geitin getur gefið Ljóninu
jarðsamband og öryggi. Bæði
merkin eru stolt, vilja virðu-
lega framkomu og ákveðinn
glæsileika i lffsstil sinn. Skap-
gerðir þeirra eru hins vegar
það ólíkar að bæði verða að
leggja töluvert á sig og gera
málamiðlun til að vel gangi.
X-9
TOMMI OG JENNI
f HVEKNIG FyNPIST
ýéiz AV V£KA
SKIPST3ÓK.Í 'A
\ þESSO SKIPL / -i
V To,vlAðl U
ítl
UOSKA
FERDINAND
á A***? © 1986 Unlted Feature Syndlcate.lnc. v : ■• • •)■• • >l
SMÁFÓLK
GREAT NEW5( SIRÍ V0U VE
6EEN SELECTEP TO BE OUR
"QUEEN OF TUE MAY"/
I KNEU) IT! I KNEW IP
BE CHOSEN! JUST
loait 'tiltmey see me
LEAP THE PANCE
AR0UNP THE MAYP0LE
THEY CANCELEP THE
MAYP0LE PANCE, 5IR...
OUR SCHOOL L05T IT5
UABILITY IN5URANCEÍ
-------------------
Rosafréttir, herra! Þú hef-
ur verið valin „Maídrottn-
ingin" okkar!
Ég vissi það! Ég vissi að Dansinum var aflýst, Skólinn okkar missti
ég yrði valin! Bíddu bara herra ... ábyrgðartrygginguna
þangað til þið sjáið mig sína!
leiða dansinn kringum
Maístöngina___
Áður en ógæfan dundi yfir
sveit Polaris í úrslitaleiknum við
Samvinnuferðir á sunnudaginn
höfðu liðsmenn sveitarinnar spi'-
að eins og englar og hirt hveija
siemmusveifluna á fætur ann-
arri. Hér er til dæmis falleg
slemma sem Ásmundur Pálsson
og Karl Sigurhjartarson sögðu
í fyrstu lotunni.
Suðurgefur; enginn á hættu.
Norður
♦ 42
VK3
♦ ÁD1076
♦ KD54
Suður
♦ ÁD108
♦ Á82
♦ G5
♦ ÁG82
Ásmundur var í norður, en
Karl í suður.
Vestur Norður Austur Suður
— 1 grand
3 tígtar 4 lauf
4 tfglar 4 hjörtu
4 grönd 6 lauf
Pass
Grandopnunin lofaði 15—17
punktum og þrír tíglar sýndu
láglitina. Karl tók svo undir lauf-
ið, Ásmundur sýndi fyrirstöðu í
tígli og Karl í hjarta. Fjögur
grönd er einnig fyrirstöðusögn
í stöðunni, sýnir hjartavald, en
neitar stoppi í spaða. Karl réð
hins vegar fullkomlega við spað-
ann og sagði slemmuna.
Sex lauf er mjög góður samn-
ingur og mun betri í suður-
hendinni. Ef slemman er spiluð
í norður og spaði kemur út verð-
ur að svína drottningunni. Þá
verður annaðhvort sú svíning að
ganga eða svíningin fyrir tígul-
kóng. En í suður er spilið nánast
öruggt éf trompið liggur ekki
þeim mun verr.
Ásmundur og Karl voru verð-
launaðir fyrir þessar sagnir
sínar, því báðir kóngamir lágu
vitlaust. Karl fékk reyndar út
spaða frá kóngnum, tók þrisvar
tromp og gaf síðan einn slag á
tígulkóng.
Á hinu borðinu létu Jón Bald-
ursson og Sigurður Sverrisson
sér nægja að spila þijú grönd.
Á heimsmeistaramóti ungl-
inga í Gausdal í Noregi í síðasta
mánuði, kom þessi staða upp í
skák þeirra Javie Gil, Ástralfu,
og Þrastar Þórhallssonar, sem
hafði svart og átti leik. Hvftur
lék siðast slæmum leik, 25.
Rf3-d2?, en staða hans var að
vísu þá þegar orðin lakari.
25. — Bd3! (Vinnur skiptamun,
því 26. Dx3 gengur auðvitað
ekki vegna 26. — Bxh2+) Df3
— Bxfl, 27. Rxfl — e5 og
Þröstur vann auðveldlega. (Lok-
in urðu: 28. Re3 — e4, 29. De2
— f4, 30. Rd5 - De6, 31. Hel
— Hde8, 32. f3 — Bc5+, 33.
Khl - Dh6! 34. fxe4 - f3 og
hvítur gafst upp.) Þröstur stóð
sig vel á mótinu, náði m.a. jafti-
tefli með svörtu við nýja ungl-
ingaheimsmeistarann, Arencibia
frá Kúbu og í næstsíðustu um-
ferð vann hann Ungveijann
Horvath, mjög reyndan skák-
mann f unglingaflokki. Tap i
síðustu umferð þýddi það að
Þröstur féll niður í 20. sæti, en
hann hafði verið ofar mestallt
mótið og fengið erfiða mótheria.