Morgunblaðið - 09.09.1986, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
Golfkeppni ræðismanna
Eins og að vera kom-
in heim í svona veðri
segir Lyberopulos sem er frá Grikklandi
UNGUR piltur að nafni Lyber-
polous, sem talaði íslensku eins
og ekkert væri sjálfsagðara,
vakti athygli okkar er við fylgd-
umst með golfmóti ræðismanna
á fimmtudaginn var í Grafar-
holtinu. Ekki minnkaði undrunin
þegar hann tjáði okkur að hann
væri frá Grikklandi. Hvernig
stendur á því að 15 ára gamall
Grikki talar íslensku?
„Móðir mín er íslensk og heitir
Emilía Koofoed-Hansen, en faðir
minn er grískur og hann er ræðis-
maður Islands í Aþenu. Eg er
fæddur í Grikklandi en við komum
hingað til íslands svona tvisvar á
ári og þá tala ég alltaf íslensku en
við mamma tölum einnig mikið
saman á íslensku þannig að ég held
málinu við þannig. Þetta er þó í
fyrsta sinn í langan tíma sem ég
kem að sumrinu til því oftast kom-
um við um jólin og páskana en það
er langt síðan ég hef verið hér um
rumar."
— Er ekkert erfitt að halda
íslenskunni við?
„Nei, nei. Við mamma tölum allt-
af íslensku þegar við tölum saman
og svo tala ég auðvitað íslensku við
vini mína hér á landi þegar ég er
í heimsókn. Mér finnst þetta ekkert
erfítt og ég held að það verði ekk-
ert erfiðara með árunum. Ef maður
er bara nógu duglegur að tala á
íslensku þá gleymir maður málinu
ekki.“
— Leikur þú golf í Grikklandi?
„Já, ég reyni það og mér finnst
það gaman en það eru bara svo
fáir krakkar sem leika golf þar og
það er ekki gaman að leika golf
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
John Lyberopulos frá Grikklandi missir hér pútt og er að vonum
vonsvildnn. Tómas Arnason fylgist með úr fjarlægð.
einn. Þetta er í fyrsta sinn sem ég
leik golf hér á landi og mér fannst
völlurinn bara góður. Hann er tals-
vert styttri en vellimir í Grikklandi.
Veðrið? Þetta er bara eins og að
vera kominn heim þegar það er
svona rok og rigning, en ef það
væri svona veður í Grikklandi þá
hvarflaði ekki að mér að fara út
og leika golf.“
Hefði viljað leika meira
— sagði frú Wiesley ræðismannsfrú frá Mexíkó
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
Einar Benediktsson sendiherra í Lundúnum slær hér sitt fyrsta högg
í „Icelandic Consular Golf“ hjá GR en Einar átti hugmyndina að
þessu móti.
NOKKRIR ræðismannanna
komu liingað til lands með eigin-
konur sínar og sumir með alla
fjölskylduna. Nokkrar eiginkon-
ur mættu til leiks í Grafarholtinu
og við ræddum við eina þeirra
og var hún komin hingað alla
leið frá Mexíkó. Wiesley heitir
hún og lét sig ekki muna um að
leika golf þrátt fyrir rok, rign-
ingu og kulda, sem er nokkuð
sem hún er ekki vön frá sínu
heimalandi.
„Þetta er í fjórða sinn sem ég
kem til íslands en þetta er þó í
Byrjunin á því að við
gerum golfinu hér
eitthvað til gagns
— segir Einar Benediktsson sendiherra í London
fyrsta sinn sem ég leik golf og ég
hefði helst viljað halda áfram að
leika en sumir eru að fara af landi
brott á eftir og því urðum við að
hætta þessu. Völlurinn hér er mjög
skemmtilegur og þið ættuð endilega
að auglýsa ferðir hingað fyrir er-
lenda ferðamenn þannig að þeir
gætu leikið hér golf. Það er fullt
af fólki í heiminum sem hefði áhuga
á að leika golf hér á landi og völlur-
inn hér er fullboðlegur hverjum sem
er,“ sagði þessi skemmtilega frú frá
Mexíkó.
— Er mikið að gera hjá ykkur í
Mexíkó?
„Varðandi ræðismannsstarfið?
Já, já, það er alveg nóg að gera.
Það eru alltaf talsvert margir ís-
lendingar sem eru í námi í Mexíkó
og síðan eru það ferðamennimir en
það er þó ekki hægt að segja að
það sé mikill fjöldi. Við höldum allt-
af hátíð þann 17. júní og bjóðum
þá öllum íslendingum sem við vitum
að eru í Mexíkó og þá er mjög
gaman.
Maðurinn minn hefur verið ræð-
ismaður í rúm 30 ár og við kunnum
þessu mjög vel. Starfið er ekki erf-
itt en það koma þó alltaf tímar
þegar mikið er að gera við að kynna
land og þjóð.“
— Leikur þú golf í Mexlkó?
„Já, það máttu bóka. Ég leik
golf á hveijum degi ef ég kem því
við og það má eiginlega segja að
ég búi á golfvellinum. Þessi völlur
héma er mjög skemmtilegur og það
hefði verið gaman að leika meira.
Ég var með lánssett og það tók
mig fjórar holur að venjast því en
ég vildi gjaman leika hér með mínu
setti og reyna hversu lágu skori ég
næði. Veðrið var talsvert annað en
maður á að venjast en það kemur
á móti að kylflngar Ieika golf í
hvemig veðri sem er og láta það
ekki hafa áhrif á sig. Þetta var
mjög skemmtilegt."
EINAR Benediktsson sendiherra íslands í Lundúnum átti hugmynd-
ina að þvi að bjóða ræðismönnunum til golfkeppni og eins og sönnum
kylfingi sæmir þá lék Einar auðvitað með. Eftir mótið spurðum við
Einar hvernig hugmyndin hafi kviknað.
„Ég fékk þessa hugmynd í sam-
bandi við ferðalag þessara heiðurs-
manna hingað til íslands. Ég hef
svolítið leikið golf sjálfur og þá
bæði í Englandi og Skotlandi og
þangað koma margir erlendir kylf-
ingar til að leika golf enda er
Skotland fóstuijörð golfsins. Sann-
leikurinn er sá að á allra síðustu
ámm hefur verið gert mikið átak í
uppbyggingu golfsins hér á landi
og þetta sá ég vel í fyrra er við
hjónin fómm hringinn um landið
og komum þá við á nokkmm golf-
völlum. Þá sá ég að hingað til lands
ættu erlendir ferðamenn einnig að
geta komið til að leika golf.
Þetta verður auðvitað ekki nema
reynt sé að vekja athygli á þessum
þætti' ísjjenskra ferðamála og því
vaj; þaðrað mér datt -í hug að ef
■,.hægt væri að fá ræðismennina til
að koma hér og leika golf; og fá'
fjölmiðla til að taka á þessu með
okkur, þá gætum við byijað svolítið
á fjölmiðlun út á við fyrir íslensku
golfi. Ég ræddi við forseta GSÍ og
GR, en þar er ég meðlimur, og það
vom allir mjög ánægðir með þetta
þannig að ég hafði samband við vin
minn, ræðismanninn í Hollandi, R.
Van Erven Dorens, sem er fremsti
kylfingur þeirra í mörg ár. Hann
tók þessu vel og síðan var slegið
til. Við buðum síðan þeim sem
áhuga höfðu að koma og leika og
ég er þess fullviss að þetta er byij-
unin á því að við gerum golfínu hér
eitthvað til gagns. Þetta tókst allt
mjög vel og menn em mjög ánægð-
ir með völlinn."
— Hversu eru ræðismannsráð-
stefnur sem þessar?
„Þetta er þriðja ráðstefnan sem
utanríkisráðuneytið efnir til. Það
hefur ekki veri&r neinn ákveðjrin
áráfjöldi á niilli þefrra. Það vom
eins 5-6 ár milli fyrstu og annarrar
og nú er farið að saxast á áratug-
inn frá því hún var haldin. Þetta
er að sjálfsögðu mikið fyrirtæki og
þó nokkur kostnaður við þetta.
Ræðismennimir kosta sig sjálfir
hingað heim en ráðuneytið sér um
dvöl þeirra hér. Þetta er míkil fyrir-
höfn og kostnaður fyrir þá og aðra
þannig að það er ekki hægt að
gera þetta mjög oft, enda gera eng-
in lönd það.
Ég er þeirrar skoðunar, og ég
hef engan hitt sem ekki er á henni,
að það sé mjög gagnlegt fyrir okk-
ur að halda svona ráðstefnur. Við
sem störfum í utanríkisþjónustunni
læmm mikið af svona ráðstefnu og
að auki er það mikilvægt að ræðis-
mennirnir hittist regluíega hér á
landi og að þar sé tekið vel á móti
þeim og dvölin gerð sem ánægjuleg-
ust og þessi ferð hefur verið hreint
frábær. Það em rúmlega 180 ræðis-
menn starfandi í heiminum og á
þessa ráðstefnu komu um 130
manns hvaðanæva úr heiminum.
Mest^ var þátttakan í þeim, londum
sem næst okkur lrggja e'n þó nokk-
uð um að menn kæmu langan veg.“
““ * • . - ,
>A-
a’ Morxunblaðið/Ámi Sœborx
'Frú Wiesley frá Mexíkó vildi helst vera lengur hér á landi til að
spila golf og sagði að við ættum að selja golfferðir hingað til lands.