Morgunblaðið - 09.09.1986, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 09.09.1986, Blaðsíða 58
Wá i, MffiJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986 Sigríður L. Hjalte- sted — Kveðjuorð Fædd 31. júlí 1970 Dáin 25. ágúst 1986 Með hlýjum huga hugsum við til okkar ástkæru frænku, en í návist hennar ríkti ávallt ánægja og gleði. Hún fæddist 31. júlí 1970 og vann hug og hjörtu allra fram til síðasta dags. Fyrstu tvö árin bjó hún með for- eldrum sínum, Báru Guðmunds- dóttur og Lárusi E. Hjaltested, á heimili móðurömmu sinnar og þar af leiðandi í návist minni, en síðan flutti hún með foreldrum sínum á næsta bæ, Syðstu-Grund. Þannig að ekki var langt á milli okkar. Við stóðum í mikilli þakkarskuld við hana þegar hún bauð okkur að vera hér heima og passa Fannar og litla Sindra okkar, enda var það fyrsta nafn sem hann gat sagt og kallaði Sigga öllum stundum, hvort sem Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnar- stræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. hún var í nálægð eða ekki. Þá var hún að bíða eftir sínu eigin bami, sem fæddist 25. nóvember síðastlið- inn, Birgi Þór Þorsteinssyni. Með sínu blíða og ljúfa viðmóti laðaði hún öll böm að sér. Við get- um ekki skilið þetta óréttlæti, en það hlýtur að hafa einhvem tilgang sem við skiljum ekki enn. Hún átti alltaf hlýju og blítt bros til að miðla öðmm. Það em ekki allir sem búa yfir slíku hjarta. Að vera kippt í burtu í blóma lífsins frá níu mánaða litlum dreng og unnusta er meira en nokkur fær skilið. Ekki líður sá morgunn er ég vakna, að ég hugsi ekki og voni að þetta hafi bara verið vondur draumur. Þeir deyja ungir sem guðimir elska. Syni, unnusta, foreldmm og systkinum viljum við votta okkar dýpstu samúð. Guðbjörg, Alexander og synir. Elskuleg vinkona okkar er dáin. Það er erfitt að horfast í augu við þá staðreynd að hún sé farin frá okkur, hún sem ávallt var svo hress og kát og aðeins 16 ára gömul. Maður fmnur svo mikið hvers virði góður vinur er þegar eitthvað bjátar á, þá var hún öll af vilja til að hjáipa. Sigga horfði björtum augum til framtíðarinnar. Henni ólst sonur 25. nóvember 1985, og fórst henni móðurhlutverkið mjög vel úr hendi, eins og allt annað sem hún gerði. Sigga og unnusti hennar, Þor- steinn, ætluðu að fara að stofna heimili úti á landi. En svo gerist það, sem engin skilur. Við viljum þakka elsku vinkonu okkar fyrir samfylgdina í gegnum þessi ár, minninguna um hana munum við geyma í hjarta okkar. Hún var okkur meira virði en marg- an grunar. Við biðjum góðan guð að styrkja fjölskyldu hennar heima á Mið- Grund, unnusta og son og aðra vini. Linda, Hugrún og Heiða. Elsku frænka mín og vinkona er látin, svo hljóðlega eins og lauf sem tölnar og fellur af greinum tijánna á haustin hvarf hún úr okkar til- veru og eftir er aðeins minningin ein. Sigga var góð og skemmtileg stelpa, hún átti til mikla gleði og kátínu sem maður smitaðist ósjálf- rátt af, og hún átti mjög auðvelt með að kynnast fólki. 011 hennar sextán ár sem eru ekki mörg af heilli mannsævi var mikill trúnaður og vinskapur okkar á milli og er mjög sárt að horfa á eftir svo góðri vinkonu sem átti allt lífið framund- an með unnusta sínum og litla syni. Það hefur verið höggvið stórt skarð í líf okkar allra sem hana syrgjum. Eg veit að það á eftir að vera erf- itt að koma að Mið-Grund og hitta ekki Siggu, söknuður minn er meiri en orð fá lýst. Þetta eru fátækleg orð um svo yndislega stelpu. Þakka ég Siggu alltof stutta en yndislega samfylgd, ég votta Lalla, Báru, systkinum, unnusta, litla syni og öðrum ættingjum og vinum, mína dýpstu samúð og bið Guð að blessa þau og styrkja á þessari erf- iðu stundu, blessuð sé minning hennar. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér. Hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sælu draumur hár minn sáttmáli við Guð um þúsund ár. (Halldór Laxness) Með kveðju Margrét Einarsdóttir Karl E. Jóns- son — Minning Mig langar til að minnast með nokkrum orðum æskuvinar míns og mágs, Karls E. Jónssonar. Hann var tvíburabróðir konu minnar, Jónu G. Jónsdóttur. Foreldrar hans voru Jón Eyjólfsson og Þórdís María Jónsdóttir, sem eru bæði látin. Karl fæddist 20. júní 1910 og lést laugardaginn 30. ágúst 1986 á Akranesspítala. Hann var orðinn rúmlega 76 ára gamall. Eftirlifandi kona hans heitir Aslaug Bachmann, bráðmyndarleg og dugleg kona. Foreldrar hennar voru Guðjón Bachmann vegavinnuverkstjóri og Guðrún Guðmundsdóttir. Kalli og Asa eignuðust sex böm, sem öll eru á lífl og vel gefin og hin myndarlegustu. Vinátta okkar Kalla, eins og hann var oftast nefndur, hefur var- að frá þ_ví að við vorum litlir hnokkar. í þá daga, þegar við vor- um að alast upp í Borgamesi, unnu ungir menn alla venjulega verka- mannavinnu. Kalli var um tíma háseti á Lax- fossi, sem gekk á milli Reykjavíkur og Borgamess, en fljótlega réðst hann til Vegagerðar ríkisins undir stjóm tengdaföður síns, Guðjóns Bachmann, og starfaði hann þar, þangað til hann hætti vegna aldurs. Kalli var mjög verklaginn maður. Það fór því svo, að hann var oft settur í vandasamari störf en aðrir, til dæmis vann hann mikið við það að smíða vinnuskúra og sitthvað fleira, sem laghentum mönnum ein- um er lagið. En honum var aldrei tamt að trana sér fram. Hann var ætíð hlédrægur en hafði engu að síður sínar ákveðnu skoðanir og var fastur fyrir, ef því var að skipta. Kalli var góður sögumaður og músíkalskur, enda var hann í lúðra- sveit, sem stofnuð var í Borgamesi á unglingsámm hans. Kalli söng í karlakór um árabil og í kirkjukór Borgamess var hann ámm saman. Leiðir okkar skildu þegar við giftum okkur. Þá fluttum við Jóna til Reykjavíkur, en þrátt fyrir það rofnaði ekki samband okkar, því við skiptumst á heimsóknum eins oft og við höfðum tækifæri til. Leið- ir okkar hjónanna lágu oftast nær í sumarfríum upp í Borgames. Þá var alltaf gott að koma til Kalla og Asu, því þau vom bæði með afbrigðum gestrisin, enda var oft gestkvæmt á heimili þeirra. Að endingu þakka ég vini mínum, Kalla, fyrir allar þær skemmtilegu samverustundir, sem við höfum átt saman og bið Guð að varðveita hann. Áslaug mín. Við hjónin vottum þér og Qölskyldunni innilega samúð okkar og biðjum Guð að blessa ykkur öll. Ág. H. Kristjánsson Ljósmynd/Gísli Úlfarsson Kiwanismenn sáu um ad koma 10 grilluðum fjallalömbum og 1500 pylsum til skila í maga bæjarbúar. Með drukku menn ómælt appelsínudjús og var slanga leidd úr næsta húsi, sem vatn var fengið úr í stórar fötur, sem menn jusu svo úr í glös sín. Fráafmælisdegi ísafjarðar Ljósmynd/Gísli Úlfarsson Mikill mannfjöldi kom saman á afmælisdaginn á Silfurtorgi á ísafirði sunnudaginn 17. ágúst til að sýna sig og sjá aðra og gleðjast saman.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.