Morgunblaðið - 09.09.1986, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
63
Lafðinni leiðist
iangdregnar veisiur
gamla manninum, að mér fínnst það
bara mikill heiður að vera þekkt
sem dóttir hans Charlies. Frægð
hans og frami er mér miklu meira
virði en eigin ferill og geti ég á
einhvem hátt haldið nafni hans á
loft, þá er það vel,“ segir Gerald-
ine, „því þó svo hann hafi alls ekki
verið neitt snobbaður, þá var honum
svolítið mikið í mun að vera viður-
kenndur sem iistamaður. Þeir voru
nefnilega til, menningarvitamir, í
gamla daga, sem álitu hann algjör-
an trúð — myndir hans ættu ekkert
skilið við list af neinu tagi, þær
væm aðeins einn allsherjar skrípa-
leikur, bjánagangur, sem hver sem
er gæti sett á svið. Þetta sámaði
honum skiljanlega og fátt held ég
að hafi verið honum meira virði en
þegar hann var sleginn til riddara
í Buckingham-höllinni. Það atvik
stendur mér líka ljóslifandi fyrir
hugskotssjónum. Ég stóð þá fyrir
framan höllina og fylgdist með og
gleymi aldrei hversu stolt ég var
af honum. Sú tilfinning var yfír-
þyrmandi — svo yfirþyrmandi að í
hvert sinn sem ég sé mynd af höll-
inni minnist ég þessa dags.“ — En
af hveiju valdi Geraldine hejdur að
leika í alvarlegri myndum? „Ég vissi
að mér myndi mistakast að vera
fyndin," segir hún. „Hefði ég reynt
að hasla mér völl í þess skonar
myndum, hefði ég ávallt verið borin
saman við hann — og ég hefði að
sjálfsögðu verið fyrirfram dæmd til
að tapa. Auðvitað hef ég samt
kímnigáfu og það meira að segja
heldur ríflegan skammt af henni —
en eins og pabbi, er ég líka svolít-
ill hugsuður í mér — ótrúlega
viðkvæm og þeim þáttum í eðli
okkar vil ég koma á framfæri,"
bætir hún við. „En sé ég eitthvað
niðurdregin, döpur eða svartsýn,
þá skelli ég alltaf mynd með pabba
í myndbandstækið mitt. Ég á allar
myndirnar hans og horfi oft á þær.
Þær koma mér alltaf í gott skap
og ég virðist aldrei ætla að fá leið
á þeim.“
Geraldine Chaplin er nú orðin
42ja ára gömul og býr í Madrid.
Eiginmaður hennar er spænskur að
ætt og uppruna og ekki alls óþekkt-
ur — leikstjórinn Carlos Saura.
Anna María Grikklandsdrottning
með fimmta barnið í fanginu,
soninn sem skírður var Philippos
á dögunum.
ANNA
MARÍA
FERTUG
Miðað við allt það sem hún Anna
María Grikklandsdrottning
hefur upplifað í gegnum tíðina virðist
manni ótrúlegt að hún sé nú aðeins
nýorðin fertug. Hún giftist Konst-
antín aðeins 18 ára að aldri og hefur
síðan eignast 5 böm, búið í útlegð
síðustu tuttugu árin í London þar sem
fímmta bam þeirra konungshjóna var
fyrir skömmu vatni ausið og gefíð
nafnið Philippos. Já, það er óhætt
að fullyrða að líf hennar Önnu Maríu
hefur verið æði viðburðaríkt — og
nú er frúin sem sagt orðin fertug.
og syngur með rokk-
hljómsveit í staðinn
Dálítið djarfar og grófar rokk-
söngkonur geta vart talist
neitt ofboðslega sérkennilegar —
þær em til í hundraðatali úti um
allan heim. En söngkonur af þess-
ari gerð, sem einnig em hertoga-
dætur, em hinsvegar sjaldséðar.
Það er því ekkert undarlegt þó svo
söngkonan Lady Theresa hafí kom-
ist á forsíður fjölda tímarita, er hún
skyndilega kom fram á sjónarsviðið
sem forsprakki feikilega fjömgrar
hljómsveitar, „Business Connecti-
on“. Reyndar em allir meðlimir
hljómsveitarinnar vel stæðir fjár-
hagslega og þyrftu því í rauninni
ekki að standa í þessu basli. En
hvers vegna lögðu þau þá út á þessa
braut? „Ja, með þessu eram við
kannske að sanna það, fyrir sjálfum
okkur og öðmm, að við höfum fleira
til bmnns að bera en titlana og
peningana. Við höfum hæfíleika,
rétt eins og annað fólk og þá viljum
við nota. Það getur nefnilega verið
æði þreytandi að sitja alla daga og
sötra te með hefðarfólki, klæða sig
svo upp á kvöldin og stunda sam-
kvæmislífið af krafti. Það má vel
vera að þetta sé nokkurs konar
uppreisn hjá okkur, uppreisn gegn
öllum þeim fordómum sem fólk
hefur í okkar garð,“ segir Lady
Theresa. „Okkur er því fyllsta al-
vara með þessu öllu saman, ætlum
okkur að verða lífseig innan þessa
heims, sem rokkið er. Við höfum
æft stíft og gefíð út bara nokkuð
góða hljómplötu. Ekki ætiumst við
þó til að við okkur verði færð frægð-
in á silfurfati — við viljum fá að
vinna okkur virðingu, hægt og
sígandi, fara sömu leið og allir þeir,
sem við þetta fást,“ bætir hún við.
Þessi fullyrðing kann að virðast
dálítið fáránleg, sérstaklega þegar
haft er í huga, að það er einmitt
sakir stöðu hennar í þjóðfélaginu,
sem sveitin hefur vakið hvað mesta
athygli.
„Auðvitað veit ég að hefði ég
verið einhver Jóna Jóns af götunni,
hefðum við ekki fengið svona mikla
auglýsingu," viðurkennir hún, „en
við því er ekkert að gera. Með
tímanum vona ég hinsvegar að
uppmni minn fari að skipta minna
máli og gagnrýnendur leyfí okkur
að sitja við sama borð og hinir
hljómlistarmennirnir."
Lady Theresa ólst upp í mjög
vemduðu umhverfí, eins og flestir
þeir, sem teljast til aðalsins í Bret-
landi. „Eiginlega hafði mér aldrei
dottið í hug að leggja sönginn fyrir
mig. Ég glamraði svolítið á gítarinn
þegar ég var yngri og raulaði þá
gjaman með. Það var hinsvegar
ekki fyrr en Bill, sá sem stofnaði
hljómsveitina, heyrði í mér fyrir til-
viljun og bað mig að syngja
bakraddir á plötu sinni, sem ég fór
að hugsa um þetta fyrir alvöra. En
það liggur í augum uppi að ef ég
tiyði því ekki að ég hefði hæfileika,
þá væri ég ekki að rembast við
þetta og ef ég hefði ekki trú á hljóm-
sveitinni, þá myndi ég heldur ekki
leggja nafn mitt við hana. Ég geri
mér grein fyrir að við eigum öll
margt ólært, enda nýkomin fram á
sjónarsviðið, en með tímanum held
ég að við munum öðlast töluverðar
vinsældir, enda emm við vandvirk
í vinnubrögðum, eigum skilið að
okkur gangi vel,“ segir hin stórætt-
aða söngkona Lady Theresa.
COSPER
Þú verður að fá launahækkun. Það tekur mig ekki nema hálftíma
að eyða öllu kaupinu þínu.
með færanlegum rimlum
HURÐIR HF
Skeifan 13 •108 Reykjavík-Sími 681655
ARNARHÓLL HvSS