Morgunblaðið - 09.09.1986, Blaðsíða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
" Endurskoðun þjóðhagsspár fyrir árið 1986:
Hagvöxtur meiri en
gert var ráð fyrir
ar orðið mun meiri en ætlað var í
kjölfar kjarasamninga í ársbyrjun.
Nú er því spáð, að atvinnutekjur á
mann hækki um allt að 31% að
meðaltali frá því í fyrra í stað 25'/2%
í fyrri spá. Kauptaxtar, að með-
töldum áhrifum lq'aradóms og
sérkjarasamninga, eru taldir hækka
um 25% að meðaltali á þessu ári,
samanborið við 20% í fyrri spá. Auk
þess er gert ráð fyrir að launaskrið
og aðrir þættir launamyndunar
bæti 5% við hækkun kauptaxta.
★ Kaupmáttur atvinnutekna verð-
ur samkvæmt þessum tölum mun
meiri á árinu. 1986 en áður var
reiknað með og er hann nú talinn
munu aukast um 8% á mann að
Morgunblaðid/Emilía
Frá fundi forsætisráðherra og efnahagssérfræðinga í gær þegar
endurskoðuð þjóðliagsáætlun var kynnt. Frá vinstri: Þórður Friðjóns-
son efnahagsráðgjafi forsætisráðfierra, Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra, Jón Sigurðsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar og
Bolli Bollason hagfræðingur í Þjóðhagsstofnun.
HÉR FER á eftir fréttatilkynn-
ing Þjóðhagsstofnunar vegna
hinnar endurskoðuðu þjóðhags-
^ spár sem Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra
kynnti á fundi með blaðamönn-
um í gær:
Efnahagshorfur fyrir árið 1986
hafa nú verið endurmetnar í ljósi
framvindunnar fyrstu sjö til átta
mánuði ársins. Nánari grein verður
gerð fyrir þessari endurskoðun í
riti Þjóðhagsstofnunar, Ágripi úr
þjóðarbúskapnum, á næstunni en
hér á eftir eru nefndar nokkrar
helstu niðurstöður:
★ Hagvöxtur á mælikvarða lands-
framleiðslu verður fyrirsjáanlega
talsvert meiri en gert var ráð fyrir
í síðustu spá frá því í apríl, eða um
_ 5% í stað 3 ’/2. Þetta má fyrst og
' fremst rekja til aukins afla og auk-
innar framleiðslu sjávarafurða. Þar
sem áfram er reiknað með 4—5%
bata í viðskiptakjörum hefur þetta
í for með sér meiri aukningu þjóðar-
tekna en áður var spáð eða allt að
7% í stað rúmlega 5%.
★ Viðskiptahallinn á þessu ári er
nú talinn verða mun minni en reikn-
að var með í síðustu spá, 2,2
milljarðar króna í stað 3,5 millj-
arða. Viðskiptahallinn yrði þá U/2%
af landsframleiðslu í stað 2-lh% eða
minni en áður á þessum áratug.
Sem fyrr má alfarið rekja hallann
til mikilla vaxtagreiðslna af erlend-
um skuldum. Að þeim frátöldum
yrði tæplega 4 milljarða króna af-
gangur á viðskiptum við útlönd, eða
rúmlega 2‘/2% af landsframleiðslu.
Meginskýringin á minnkandi við-
skiptahalla er mun meiri aukning
útflutningsverðmætis sjávarafurða
en áður var gert ráð fyrir. Almenn
innflutningseftirspum virðist á hinn
bóginn svipuð og fyrr var spáð.
★ Erlendar skuldir til lengri tíma
en eins árs verða í loks ársins um
74 milljarðar króna, eða sem svarar
til tæplega 52% af landsframleiðslu.
Þetta er nokkru hærra skuldahlut-
fall en spáð var fyrr á árinu, enda
hafa erlendar lántökur verið meiri
en ætlað var. Það má fyrst og
fremst rekja til aukinnar lántöku
einkaaðila. Skuldahlutfallið var
hærra í lok síðasta árs eða tæplega
BYLTING
í BÍLARYÐVÖRN
Ekkert ryð þýðir hátt
endursöluverð!
Hefurþúefniáað
láta bílinn þinn ryðga
niður?
Stöðvar ryð — Hindrar ryð
RUSTEVADER-RAFEINDARYBVÖRN
10 ára
RYÐVARNARÁBYRGÐ
Bileigendur? Lokslns er komin varanleg lausn á ryðvandamállnu. Nú er komið á markaðinn rafelndatækl sem hindrar
ryðmyndun. Þetta athyglisverða ryðvarnartaekl ver nýja Jafnt sem gamla bíla gegn ryði á áhrifaríkari hátt en þekkst
hefur hingað tll. Tæklð hlndrar einnig ryðmyndun út frá rispum á lakkl og króml.
Þessu til staðfestlngar bjóðum við 10 ára ryðvarnarábyrgð á allt að 3 mánaða gömlum bilum og 8 ára ábyrgð á 3—6
mánaða gömium bílum. Tll að vlðhalda ábyrgðlnni þarf aðeins að færa billnn til eftirllts einu slnni á ári. til að yfirfara
búnaðinn og loka skemmdum á lakkl.
Þetta er því ódýrasta og Jafnframt besta ryðvörnln sem völ er á.
Hringlð og leitið upplýsinga. vlð sendum vandaðan upplýslngabækling til allra sem þess óska.
Verðum við símann
til kl. 22.00 í kvöld.
STÁLVÉLAR HF.
Tunguhálsi 5, Reykjavík, sími 673015
Mynd 1
Kaupmáttur þjóðartekna og ráðstöfunartekna
heimilannaámann 1978- 1986
Heimild: Þjóðhagsstofnun 'Spá
55%. Greiðslubyrði af erlendum lán-
um á árinu er áætluð tæplega 19%
af útflutningstekjum, eða hálfu pró-
sentustigi lægri en í fyrra. Vaxta-
byrðin hefur lést að undanförnu
vegna vaxtalækkunar erlendis en á
móti vega þyngri afborganir.
★ Hagur botnfiskútgerðar er góð-
ur um þessar mundir og betri en
um langt árabil. Hér veldur mestu
aukinn afli án þess að veiðiskipum
hafi fjölgað, lækkun olíuverðs og
hátt ferskfiskverð á Evrópumark-
aði. Við þessi skilyrði ætti útgerðin
að geta grynnkað á skuldum sem
safnast hafa undanfarin ár. Hagur
botnfiskvinnslu er í heild erfiður líkt
og var í fyrra. Frystihúsin standa
víða höllum fæti vegna lækkunar á
gengi Bandaríkjadollars. Þrátt fyrir
góða afkomu útgerðar og saltfisk-
verkunar eiga mörg sjávarútvegs-
fyrirtæki í greiðsluerfiðleikum, sem
oft má rekja til tapreksturs á fyrri
árum eða framkvæmda, sem Ijár-
magnaðar hafa verið með skamm-
tímalánum.
★ Verðlagshorfur innanlands hafa
breyst lítillega frá því í vor, en það
stafar einkum af því að óhagstæð
gengisþróun á alþjóðamarkaði hef-
ur leitt til heldur meiri verðhækkun-
ar en áður var búist við. Horfur
virðast þó á því að verðhækkun frá
ársbyrjun 1986 til ársbytjunar 1987
fari niður fyrir 10% sem er minnsta
ársverðbólga í hálfan annan áratug.
Meðalhækkun verðlags milli 1985
og 1986 er á hinn bóginn talin verða
um 21%.
★ Launabreytingar hafa hins veg-
meðaltali frá því í fyrra í stað 4V2%
í fyrri spá. Kaupmáttur atvinnu-
tekna yrði þar með meiri en nokkru
sinni fyrr. Sama máli gegnir um
kaupmátt ráðstöfunartekna heimil-
anna.
★ Atvinnuástand hefur verið gott
þetta ár. Skráð atvinnuleysi er talið
verða innan við 1% af mannafla að
meðaltali á árinu. Jafnframt bentu
síðustu athuganir á eftirspum eftir
vinnuafli til þess, að fjöldi lausra
starfa væri um eða yfir 2% af sömu
stærð.
★ Þjóðarútgjöld virðast munu
aukast heldur meira en spáð var í
apríl, eða um rúmlega 4% í stað
3'/2%. í þessu felst að kaupmáttar-
aukningin komi ekki öll fram í
auknum útgjöldum á þessu ári,
heldur einnig í auknum spamaði,
sem meðal annars lýsir sér í mun
meiri aukningu innlána en útlána í
bankakerfinu. Peningalegur spam-
aður hefur farið vaxandi í kjölfar
lækkandi verðbólgu og hækkandi
raunvaxta og er hlutfall bankainni-
stæðna af þjóðartekjum nú hærra
en um mörg undanfarin ár.
Víterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!