Morgunblaðið - 09.09.1986, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986
71
Morgunblaðið/SPE
Meðal fulltrúa á aðalfundi Skógræktarfélags íslands að þessu sinni var þessi hópur skógræktarmanna
sem einnig sat aðalfund félagsins þegar hann var haldinn í Mývatnssveit fyrir 30 árum. Fremri röð
frá vinstri: Sigurður Blöndal skógræktarstjóri, Sigurlaug Sveinsdóttir, Jóhann Þorvaldsson, Helga
Guðmundsdóttir, Jón Magnússon og Snorri Sigurðsson. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Vilhjálmsson,
Isleifur Sumarliðason, Haukur Ragnarsson, Jón B. Jónsson og Brynjólfur Skarphéðinsson.
nauta Búnaðarsambandanna, þ.e.
Ví hluta launa og % hluta ferða-
kostnaðar.
Eftirfarandi tillaga var einnig
samþykkt: „Aðalfundur Skógrækt-
arfélags íslands 1986 telur brýnt
að skógrækt verði sem allra fyrst
gerð að virkum lið í búskap bænda
á þeim svæðum landsins þar sem
vaxtarskilyrði eru góð. Nauðsynlegt
er að skógræktarbændum verði
tryggðar sambærilegar tekjur og
bændum í hefðbundnum búgreinum
með opinberum fjárveitingum, t.d.
úr framleiðnisjóði landbúnaðarins,
enda dragi þeir úr hefðbundinni
búvöruframleiðslu jafnframt því
sem atvinna við skógræktina vex.
Fundurinn telur ótvírætt að
skógrækt sem atvinnubúgrein
mundi styrkja til muna atvinnulíf
og búsetu í sveitum. Vísar hann til
ályktunar aðalfundar stéttarsam-
bands bænda 9. til 11. júní 1986
um atvinnumál, lið 4, máli þessu
til stuðnings.
Fundurinn skorar á stjómvöld
að gera nú þegar nauðsynlegar ráð-
stafanir til þess að unnt verði að
heija þessa atvinnustarfsemi á ár-
inu 1987.“
í fundarlok fór fram stjómar-
kjör. Kristinn Skæringsson skógar-
vörður á Suðvesturlandi gaf ekki
kost á sér en hann hefur setið í
stjóminni sl. 15 ár. Bjarni K.
Bjamason hafði einnig hætt stjórn-
arstörfum að eigin ósk er hann tók
við embætti hæstaréttardómara á
sl. vetri. í stað þeirra tveggja vom
nú kosnir Sveinbjöm Dagfinnsson
ráðuneytisstjóri í Landbúnaðar-
ráðuneytinu og Baldur Helgason
stjómarmaður í Skógræktarfélagi
Kópavogs. Núverandi stjóm félags-
ins skipa Hulda Valtýsdóttir, Jónas
Jónsson, Þorvaldur S. Þorvaldsson,
Ólafur Vilhjálmsson, Tómas Ingi
Olrich, Sveinbjörn _ Dagfinnsson og
Baldur Helgason. I várastjóm vom
kosin Jón Bjamason skólastjóri að
Hólum og Olafía Jakobsdóttir for-
maður Skógræktarfélagsins
Merkur, Kirkjubæjarklaustri. Fyrir
í varastjórn er Arni Jóhannsson
garðyrlq'ustjóri á Akureyri.
Ný sjálfvarmaveita í
fiskiðjuveri KASK
Höfn í Homafirði.
TEKIN var í notkun sjálfvarma-
veita í fiskiðjuveri Kaupfélags
Skaftfellinga á Hornafirði
sunnudaginn 31. ágúst. Arngrím-
ur Gíslason yfirvélstjóri ræsti
nýju vélarnar í viðurvist kaup-
félagssljóra og gesta.
Þessar nýju vélar nýta kælivatn
frá frystivélum, sem áður var dælt
í sjóinn. Vatninu, sem er um 30
gráðu heitt, er dælt í 100.000 lítra
tank. Þaðan fer það í varmavélar
og síðan inn á miðstöðvakerfi húss-
ins, um það bil 60-69 gráðu heitt.
Þegar vatnið hefur verið notað til
upphitunar hússins, er það notað
til kælingar á frystivélum aftur.
Starfsmenn fiskiðjuversins hafa
séð um alla uppsetningu á nýju
vélunum, sem em frá Þýskalandi.
Að sögn Péturs Valdimarssonar
kostuðu vélamar 3,5 milljónir og
er ætlað að þær muni borga sig
upp á réttum tveimur ámm; fer það
að vísu nokkuð eftir orkuverði.
Haukur
Morgunblaðið/Haukur Þ. Sveinbjömsson.
Arngrímur Gíslason yfirvélstjóri ræsir nýju sjálfvarmaveituna.
DAVlÐSJÖNSSON. HEILD.V.
ÞAÐ BESTA. NÆST ÞER SÆissS