Morgunblaðið - 09.09.1986, Side 72
■vf
STERKTKDRT
ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Tæknii'rjóvgan-
ir ekki gerðar
— vegiia hertra reglna um smitvarnir
EKKI hafa verið framkvæmd-
ar tæknifrjóvganir hér á landi
um nokkurt skeið og stafar
það aðallega af nýjum reglum,
Storma-
samir
fundir
DJÚPUR ágreiningur hefur risið
á milli fuUtrúa Sjálfstæðisflokks-
ins í skólamálaráði og fræðslu-
ráði Reykjavíkur annars vegar
og fulltrúa minnihlutans, kenn-
ara og fræðslustjóra hins vegar.
Á fundi í skólamálaráði í gær var
þeirri kröfu kennara vísað frá, að
þeir ættu aðild að ráðinu og létu
fulltrúar minnihlutans bóka að þeir
teldu ráðið ekki löglegt.
Á fundi fræðsluráðs, sem einnig
var haldinn í gær, neitaði fræðslu-
stjóri að afhenda formanni fræðslu-
ráðs fundargögn, iyrr en skýr svör
hafi borist frá menntamálaráðu-
neytinu um það hvert verksvið sitt
eigi að vera.
Sjá bls. 41.
sem settar hafa verið varð-
andi smitvamir, að sögn Jóns
Hilmars Alfreðssonar, kven-
sjúkdómalæknis. Fyrsta
glasabarnafæðingin er einnig
í biðstöðu, þar sem læknar
hérlendis bíða eftir að tilraun-
ir með slíkar fæðingar erlend-
is skili betri árangri.
Jón Hilmar sagði að ekki hefðu
verið framkvæmdar tæknifrjóvg-
unaraðgerðir hér það sem af er
þessu ári, þar sem reglugerðir um
smitvarnir hafi verið endurskoð-
aðar. Tækniftjóvgun nýtur sífellt
meiri vinsælda sem lausn á ófijó-
semi karla. Þá er tekið sæði úr
öðrum karlmanni og því komið
fyrir í legi konunnar. Sæði, sem
notað hefur verið i slíkum aðgerð-
um hérlendis, kemur frá Dan-
mörku og að sögn Jóns Hilmars,
var eftirlit með sæðisgjöf þar hert,
til að koma í veg fyrir að alnæmi
geti smitast með slíkum tilfærsl-
um. íslensk yfirvöld fetuðu svo í
fótspor þeirra dönsku og hafa nú
verið settar allstrangar reglur um
tækniftjóvgunaraðgerðir hér.
Sjá bls. 41: Fimmtíu börn
hafa fæðst eftir tæknifrjóvg-
un.
15—2 0% af sláttur
á kjúklingaútsölu
Morgunblaðið/RAX
Omar Ragnarsson sjónvarpsfréttamaður slapp ómeiddur, þegar hann varð að nauðlenda
flugvél sinni, TF-FRÚ, á Esjunni á sunnudagskvöldið. Nefhjól vélarinnar og skrúfublað
brotnuðu og var „Frúin“ flutt í böndum ofan af Esjunni.
Sjá bls. 4. „Atti ekki annarra kosta völ“.
Kaupmáttur atvinnutekna eykst um 8% á árinu:
„Mjög margir launþegar
eiga rétt á leiðréttingu“
- segir Steingrímur Hermannsson
f orsætisráðherra
STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra telur að ekki sé
unnt að reikna með áframhaldandi aukningu kaupmáttar á næsta
ári, en samkvæmt endurskoðaðri þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnunar
sem kynnt var fjölmiðlum í gær er talið að kaupmáttur atvinnu-
tekna muni aukast um 8% á þessu ári. Jón Sigurðsson forstjóri
Þjóðhagsstofnunar sagði á fundi með fréttamönnum í gær, að hann
teldi það gott ef tækist að veija kaupmátt ársins í ár á næsta ári.
Talið er að hagvöxtur verði um
5% á þessu ári, í stað 3,5% sem
gert var ráð fyrir í upphaflegu
spánni. Jafnframt er talið að við-
skiptahallinn á þessu ári verði um
2,2 milljarðar króna, í stað 3,5 millj-
arða, sem fyrri spá gerði ráð fyrir.
Aðalskýringin á minnkandi við-
skiptahalla er mun meiri aukning
útflutningsverðmæta sjávarafurða
en áður var gert ráð fyrir.
Horfur eru á að verðbólga á
þessu ári verði innan við 10%, og
er það minnsta ársverðbólga í 15 ár.
Forsætisráðherra sagði á frétta-
mannafundinum í gær að stefnt
yrði að því á næsta ári að ná verð-
bólgunni enn meira niður, þannig
að hún yrði svipuð og tíðkast í ná-
grannalöndunum. Hann sagði að
stefnt yrði að því að nota þann efna-
hagslega bata sem áunnist hefur
til þess að jafna kjör manna í
landinu, veija þann kaupmáttar-
auka sem náðst hefur, lækka
erlendar skuldir og lækka verð-
bólgu.
Forsætisráðheira var spurður
hvort ekki hefði verið lag, nú í góð-
ærinu, að lækka skatta fólks: „Ég
tek undir það, að skattkerfíð þarf
að laga, og fyrst og fremst þarf
að fá þá sem eiga að greiða skatt
að greiða hann. Það verður áreiðan-
lega eitt af stærstu verkefnunum
að tryggja að svo verði.“ Þórður
Friðjónsson, efnahagsráðgjafi for-
sætisráðherra, bætti við svar
ráðherrans: „Það hefur verið við-
höfð samræmdari efnahagsstjórn
en oft áður, og sú efnahagsstjórnun
er einmitt fólgin í því að reyna að
spyma við fótum og eyða ekki strax
öllum tekjuaukanum. Ef tekjunum
hefði verið eytt í að lækka skatta,
þá hefði það haft í för með sér
annað tveggja — hærri raunvexti,
HAFIN er tímabundin útsala á
kjúklingum. Kjúklingabændur
hafa lækkað heildsöluverðið
um 15-20%, sem þýðir að al-
eða hitt, að hér hefði skapast meiri
þensla en nú er.“
Forsætisráðherra var spurður
hvort hann ætti ekki von á miklum
kröfugerðum frá launþegahreyfing-
unni þegar kjarasamningar heíjast,
í ljósi þess góðæris, sem nú stendur
yfir: „Ég held að það séu mjög
margir í launþegastétt sem eiga
rétt á leiðréttingu, en ég er jafn-
sannfærður um það, að launþega-
hreyfingin vill ekki nýja verðbólgu-
öldu.“ Forsætisráðherra vildi ekkert
um það spá, hvort stefnt yrði að
skammtímasamningum um áramót
í Ijósi vorkosninga.
Sjá á bls. 2 ummæli Björns
Björnssonar hagfræðings ASÍ:
Staðfesting á því að tekizt
hefur að ná markmiðum febr-
úarsamninganna, og spá
Þjóðhagsstofnunar á bls. 68.
gengt útsöluverð á kjúklingum
lækkar úr 294 krónum í
235-250 krónur kílóið, en dæmi
eru um enn lægra verð, eða
allt niður í 209 krónur. Ali-
fuglasláturliúsið ísfugl býður
ákveðnar tegundir kjúklinga á
sérstöku kynningarverði um
þessar mundir með 26% af-
slætti.
Alfreð Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri ísfugls hf. sagði að
útsalan myndi standa óákveðinn
tíma, færi eftir undirtektum.
Hann sagði að helstu framleiðend-
ur kjúklinga hefðu gripið til þessa
ráðs vegna dræmrar kjúklingasölu
að undanförnu og birgðasöfnunar
vegna mikils framboðs af öðru
kjöti á markaðnum. Taldi hann
að kjúklingafjallið væri nú
300-400 tonn.
Skráð heildsöluverð á kjúkling-
um hefur verið 245 krónur kílóið.
Á útsölunni verður það 15-20%
lægra, eða 196-208 krónur, eftir
því hvað mikið er keypt. Miðað
við 20% smásöluálagningu er al-
gengt útsöluverð á kjúklingum nú
235-250 krónur kíióið, í stað 294
kr. sem algengt var áður en útsal-
an hófst. Dæmi eru um enn lægra
verð, eða 209 krónur kflóið í ein-
stökum verslunum.
Alfreð sagði að ísfugl hefði
endurskipulagt vinnsluna hjá sér
og vildi láta neytendur njóta þess.
Því yrði svokallaður bakkamatur,
það er helgarkjúklingur og fleiri
réttir, boðinn með 26% afslætti á
kjúklingaútsölunni.