Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
27
„Hitti ég þig ekki á síðustu sýningu?**
Hundasýning í Reykjavík
„Við skulum stinga saman nefjum ...
Til í slaginn ...
HUNDARÆKTARFÉLAG íslands hélt hundasýningii í Reykjavík
sl. sunnudag. Um 70 hundar voru skráðir til keppni, 7 hundakyn
alls. Að sögn Guðrúnar Guðjohnsen, formanns Hundarsektarfé-
lagsins, tókst sýningin mjög vel. Þetta er þriðja sýningin sem
haldin er í ár og sagði Guðrún mikinn áhuga vera að vakna fyr-
ir hundarækt hérlendis. Þetta er þó í fyrsta sinn sem hundasýning
er höfð í Reykjavík.
Á sýningunni var valinn besti hundur sýningarinnar, en áður er
keppt í mörgum flokkum innan tegunda. Besti hundur sýningarinnar
var írskur Setter, Bruno að nafni. Eigandi hans er Hreiðar Karlsson. í
2. sæti var Kóra — Cocker Spaniel hundur, eigandi Helga Finnsdóttir.
í 3. sæti var Vigga — Labrador Retriever hundur í eigu Stefáns Gunn-
arssonar. í 4. sæti var Poodle — hundurinn Kolla, eigandi Fanný
Erlingsdóttir.
Dómari var frá Danmörku, Ebba Aalegaard, en hún hefur dæmt hér
á landi nokkrum sinnum áður.
„Ég vona að þeir kunni fótum sínum forráð.“
„Ekki tekin
ákvörðun
um hvort
krafist
verði af-
kynjunar“
-segir Hallvarður
Einvarðs son,
ríkissaksóknari
„ÉG hef fengið erindi lög-
mannsins i hendur og það
verður afgreitt samhliða
annarri afgreiðslu þessa
máls. Engin ákvörðun hef-
ur verið tekin enn sem
komið er,“ sagði Hallvarð-
ur Einvarðsson, er hann var
inntur eftir því hvort til
greina kæmi að hann hefði
uppi þá kröfu að kynferðis-
afbrotamaður gengist
undir afkynjunaraðgerð.
Svala Thorlacius ritaði grein í
Morgunblaðið á föstudag þar sem
hún rakti feril kynferðisafbrota-
manns, en Svaia er lögmaður
foreldra drengs sem í vor varð fyr-
ir árás hans. í niðurlagi greinar
sinnar sagðist Svala ætla að mæl-
ast til þess við embætti ríkissak-
sóknara að ákæruvaldið hafí uppi
í ákæru sinni kröfu um það að
maðurinn verði dæmdur til að gang-
ast undir afkynjunaraðgerð.
Heimild til þess að slík aðgerð sé
gerð er að fínna í lögum nr. 16 frá
1938, en þar segir m.a.: „Afkynjun
skal því aðeins leyfa, að gild rök
liggi til þess, að óeðlilegar kyn-
hvatir viðkomandi séu líklegar til
að leiða til kynferðisglæpa eða ann-
arra óbótaverka, enda verði ekki
úr bætt á annan hátt.“
MJUKSALA!
í ár köllum við Álafossútsöluna Mjúksölu, því þar er mýktin í íyrirrúmi. Mjúkar og hlýlegar ullarvör-
ur eru þar í miklu úrvali á góðu verði. Þar færðu m.a. gam í peysu á 280 kr., fallegar peysur lrá 400
kr., vœrðarvoðir í mörgum litum ffá kr 450, trefla, sokka, húfur og ótal margt fleira - og auðvitað
allt úr ylvolgum Álafosslopa Þá er bara að drífa sig inn í hlýjuna í H húsinu Auðbrekku 9 Kópavogi.
Mjúksalan stendur til 29. október og er opin virka daga frá kl. 10 til 19 og frá 10 til 16 á laugardögum.
yilafoss
G1
o
=1
3
I
CD
>'
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.