Morgunblaðið - 30.09.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
47
Lagnafélag
Islands
eftir Kristján Pétur
Ingiinundarson
Lagnafélag íslands verður stofnað
4. október næstkomandi á Hótel
Loftleiðum.
Stofnfundurinn verður jafiiframt
fyrsti fræðslufundur félagsins og
ijallar um varmaendurvinnslu í loft-
ræstikerfum, sögu þeirra, reynslu af
notkun og tæknilegan og §árhags-
legan grundvöll.
15. maí sl. var haldinn fundur til
undirbúnings stofnunar Lagnafélags
Íslands. Þar voru mættir aðilar frá
mörgum félögum og stofnunum. Á
þessum fundi var rætt um markmið
og verksvið félagsins og kosið í átta
manna undirbúningsnefnd.
Hlutverk félagsins er að vinna að
þróun lagnatækni á íslandi með því
að:
a) Skipuleggja fyrirlestra og nám-
skeið ásamt útgáfu fræðslurita.
b) Stuðla að rannsóknum og tækni-
legum umbótum í lagnatækni.
c) Stuðla að og fylgja eftir hæfni
og menntunarkröfum þeirra er að
lagnaframkvæmdum standa.
d) Taka þátt í alþjóðasamstarfi á
þessu sviði.
Með stoftiun félags sem þessa er
kominn vettvangur fyrir þá sem
vinna við hönnun og gerð loftræsti-
kerfa að sameina starfskrafta sína
til þess að bæta orðspor það sem
hefur fylgt þessum kerfum um all-
langan tíma.
Mikil framför hefur verið í þessari
atvinnugrein síðustu árin, bæði fag-
lega og tæknilega, enda kröfur um
loftræstingar aukist mjög í öllum
gerðum húsa. Risið hafa öflug fyrir-
tæki sem sérhæfa sig á þessu sviði
og hafa fjárfest í vélum og tækjum
af nýjustu gerð.
En í öllu því kappi um vélvæðingu
og húsbyggingar fyrirtælqanna
ásamt gegndarlausri samkeppni um
verkefnin hefur sést yfir eitt mikils-
vert atriði, þ.e. endanlegan frágang
loftræsa- og hitakerfa og eru möig
slik í dag talin gölluð eða ónýt, vegna
þess að ekki hefur verið sinnt nógu
vel frágangi, þ.e. stillingu og sam-
hæfingu stjómtækja ásamt reglu-
bundnu eftirliti.
Leggja þarf mikið meiri áherslu á
að fræða þá sem vinna við frágang
kerfanna, fræðsla þessi þarf að fara
fram í skólum og með námskeiðum
fyrir þá sem lokið hafa námi, einnig
Kristján Pétur Ingimundarson
Með stofnun félags sem
þessa er kominn vett-
vangur fyrir þá sem
vinna við hönnun og
gerð loftræstikerfa að
sameina starfskrafta
sína til þess að bæta orð-
spor það sem hefur fylgt
þessum kerfum um all-
langantíma.
þarf að kynna nýungar jafnóðum og
þær koma á markaðinn.
I nýrri byggingarreglugerð sem
var gefin út árið 1979 er kveðið á
um að blikksmiðameistarar skrifi upp
á teikningar svo sem aðrir iðnmeist-
arar gera sem fást við húsbyggingar
og þar með þarf að fá úttekt bygg-
ingafulltrúa á loftræstikerfum.
Félag sem Lagnafélag íslands er
kjörinn vettvangur til að standa fyrir
þeirri herferð sem fara þarf til að
auka veg og virðingu þessa atvinnu-
vegs og þeirra sem að honum starfa.
Höfundur er blikksmiðameistari og
forstjóri Blikkvers hf.
Nýtt fyrirtæki:
Aðstoð við útgáfu-
og félagastarfsemi
Ráðgjafar- og útgáfuþjónustan er heiti nýstofnaðs fyrirtækis í
Reykjavík. Það er til húsa á Hverfisgötu 39 og eins og nafnið gefur
til kynna hyggst fyrirtækið einbeita sér að hverskyns þjónustu við
þá er standa í útgáfu og félagastarfi.
Að stofnun fyrirtækisins standa
þrír menn, þeir Frosti Jóhannsson,
Guðmundur Sæmundsson og Þröst-
ur Haraldsson. Allir hafa þeir
reynslu á þessu sviði og hafa kom-
ið víða við sögu. Fyrirtækið getur
tekið að sér vinnslu blaða, bóka og
bæklinga allt frá upphafi til enda,
samið texta, séð um útlit, prófarka-
lestur, fylgst með vinnslu í prent-
smiðju, annast samninga við
prentsmiðjur og dreifingu. Hvers
kyns textagerð og ritvinnsla er
einnig á verksviði fyrirtækisins.
Auk stofnendanna þriggja starfar
við fyrirtækið Guðrún Arný Guð-
mundsdóttir, ritari og auglýsinga-
stjóri.
Fyrirtækið er tölvuvætt og hefur
m.a. yfir að ráða tölvum sem geta
annast umbrot á heilum síðum. Með
því að prenta þær út í leysiprentara
fást leturgæði sem gefa setningar-
tölvum lítið eftir. Með þessu móti
má lækka prentkostnað verulega.
Þá tekur fyrirtækið að sér að
annast undirbúning og skipulagn-
ingu funda og ráðstefna og býður
félagasamtökum þjónustu sína, svo
sem við tölvuskráningu á spjald-
skrám og öðrum gögnum. Loks má
nefna að fyrirtækið getur tekið að
sér úrvinnslu gagna og upplýsinga
og framsetningu þeirra í aðgengi-
legu formi — skýrslu, bæklingi eða
bók, að ógleymdum tölvudiskling-
um.
Nú er hollt að muna eftír
Skútuvogi 4
Slátur er einstaklega ódýr mat-
ur — þú kemst að því ef þú
heimsækir slátursölu SS. Eitt
slátur með hreinsuðum vömbum
kostar þar kr. 200,-. Fimm slátur í
pakka kosta þvf aðeins 1.000,-. krón-
ur. Það er ekki til önnur leið betri til
að lækka útgjaldaliði heimilisbók-
haldsins en taka
og borða slátur. CV,
Slátursala &
Skútuvogi 4 Sími 35106
Allt til sláturgerðar á einum stað.
Góðan daginn!