Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 61
Brdr. Hansen
Værktpjsmaskiner A/S
Strandskádevej 14
DK-2650 Hvidovre
Denmark
Hringið eða heimsækið okkur á Hótel Esju
og fáið ítarlegri upplýsingar.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
V estmannaeyjar:
Bankaráð Utvegsbankans
fundar á landsbyggðinni
VAfttmannaeyjnm.
BANKARÁÐ og bankastjórn Út-
vegsbanka íslands lieimsótti
Vestmannaeyjar síðastliðinn
föstudag og fundaði þar í húsi
Útvegsbankans. Það er ný-
breytni að hálfu bankaráðsins
að sækja heim útibú bankans úti
á Iandsbyggðinni og var fyrsti
fundur ráðsins utan Reykjavíkur
haldinn í Keflavik sl. vetur.
Á fundinum í Eyjum var meðal
annars ákveðið að færa Framhalds-
skólanum í Vestmannaeyjum að
gjöf þijár Atlantis 200 tölvur til
kennslu í skólanum. Að fundi lokn-
um fóru bankaráðsmenn og
bankastjórar í skoðunar- og kynnis-
ferð í ýmis fyrirtæki í bænum.
Tveir Vestmannaeyingar eiga
sæti í bankaráði Útvegsbankans,
Kristmann Karlsson stórkaup-
maður og Garðar Sigurðsson
alþingismaður. Aðrir bankaráðs-
menn eru Valdimar Indriðason
alþingismaður, formaður, Jóhann
Einvarðsson aðstoðarmaður ráð-
herra, varaformaður, og Þór
Guðmundsson framkvæmdastjóri.
Þess má geta að tveir af núver-
andi bankastjórum Útvegsbankans
hafa áður starfað sem útibússtjórar
bankans í Eyjum, þeir Ólafur
Helgason og Halldór Guðbjamar-
son. Núverandi útibússtjóri Útvegs-
bankans í Vestmannaeyjum er
Vilhjálmur Bjamason.
-hkj.
IMotaðar járniðnaðarvélar
Bræðurnir Hansen
koma til íslands
SPLUNKUNYJAR
GLUSSADRIFNAR KLIPPUR
ÁVERÐI NOTAÐRAR
Dagana frá og með mánudeginum 29. sept. — föstu-
dagsins 3. okt. getum við hitt áhugasama á Hótel
Esju, sími 82200.
Þú ert velkominn til viðtals í hótelherbergið okkar frá kl.
16.00 — 19.00 all dagana. Eða við komum til ykkar, hafið
bara samband fyrst í síma 82200.
Við höfum meðferðis tæknilegar lýsingar og litmyndir af hinu
mikla úrvali sem við eigum af notuðum járniðnaðarvélum.
A boðstólum eru m.a.:
Rennibekkir
fræsivélar
borverk
pressur
klippur
beygivélar
sagir
slípivélar
suðuvélar
o.m.fl.
„Þetta var geysilega spennandi
keppni. Eftir smábilun á fyrsta degi
vorum við í þriðja sæti á tímabili,
en tókst að ná forystu á Fjallabaks-
leið á þriðja degi keppninnar. Þegar
við ókum sömu leið til baka vorum
við lánsamir. Lentum á gijóti og
beygðum stýrisenda. Kláruðum við
leiðina þannig og sluppum með
skrekkinn," sögðu sigurvegaramir
Þórhallur og Gunnlaugur. „Við gát-
um tekið því frekar rólega undir
lokin, en vorum þó aldrei öruggir
fyrr en við komum í endamark."
Hafsteinn og Úlfar lentu í erfíðleik-
um á Fjallabaksleið og töpuðu af
forystunni, en í byijun keppninnar
höfðu Hjörleifur og Sigurður for-
ystu. Óhapp á Kaldabaksleið á
öðrum degi setti þá í tíunda sæti,
en með góðum akstri náðu þeir upp
í þriðja sæti. Á eftir þeim kom Eirík-
ur FYiðriksson og Þráinn Sverrisson
á Ford Escort, sem ásamt fyrstu
tveimur bflunum tryggðu fyrirtæk-
inu Úlfar og Ljón sveitasigur.
Sigurvegarar í flokki óbreyttra bfla
urðu Þorsteinn Ingason og Sig-
hvatur Sigurðsson á Lada Sport.
Lokastaðan í
Ljómarallinu
Refsing klukkust.
1. Þórhallur Kristjánsson/
Gunnl. Kögnvaldss. Peugeot 7:16,36
2. Hafsteinn Aðalsteinsson/
Úlfar Eysteinsson Escort 7:20,27
3. Hjörleifiir Hilmarsson/
SigurðurJenssonToyota 7:27,05
4. Eirflcur Friðriksson/
Þráinn Sverrisson Escort 8:02,28
5. Daníel Gunnarsson/
GarðarFiygenringOpel 8:21,16
6. Guðni Amarsson/
Ægir Ármannsson BMW 8:26,19
7. Ásgeir Sigurðsson/
Bragi Guðmundsson Lancer 8:27,14
8. Þorsteinn Ingason/
Sighvatur Sigurðsson Lada 9:00,16
9. Helga Jóhannsdóttur/
Atli Vilhjálmsson Lada 10:03,09
Bankaráðsmenn og bankastjórar Útvegsbankans við upphaf fundar
f Vestmannaeyju.
Einnig fáanlegar í stærðum
3050x12 mm verð: Dkr. 298.500,-.
3050x16 mm verð: Dkr. 398.000,-
Félagarnir Hafsteinn Aðalsteinsson og Úlfar Eysteinsson á Ford
Escort RS leiddu keppnina á tímabili, en urðu á endanum að sætta
sig við annað sætið.
DIGEP, model DLB-6/3050
Lengd: 3050xdýpt: 6 mm
Mótordrifið endastopp, sniðlengdarstilling, stillanlegt millibil milli
hnífa, lýsing á hníf.
Þyngd: 7580 kgs.