Morgunblaðið - 19.11.1986, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1986
19
f-
landi eða eigi. Bjami svaran „Þat
er mitt ráð, at sigla í nánd við
landit." Ok svá gera þeir ok sá þat
brátt, at landit var ófjöllótt ok skógi
vaxit, ok smár hæðir á landinu, ok
létu landit á bakborða ok létu skaut
horfa á land. Síðan sigla þeir tvau
dægr, áðr þeir sá land annat. Þeir
spyija, hvárt Bjami ætlaði þat enn
Grænland. Hann kvazk eigi heldr
ætla þetta Grænland en it fyrra, -
„því at jöklar em mjök miklir sagð-
ir á Grænlandi." Þeir nálguðusk
brátt þetta land ok sá þat vera slétt
land ok viði vaxit. Þá tók af byr
fyrir þeim. Þá ræddu hásetar þat,
at þeim þótti þat ráð, at taka þat
land; en Bjami vill þat eigi. Þeir
þóttusk bæði þurfa við ok vatn. „At
engu em þér því óbirgir," segir
Bjami; en þó fekk hann af því nokk-
ut ámæli af hásetum sínum. Hann
bað þá vinda segl, ok svá var gört,
ok settu framstafn frá landi ok sigla
í haf útsynnings byr þrjú dægr ok
sá þá land it þriðja; en þat land var
hátt ok fjöllótt ok jökull á; þeir
spyija þá, ef Bjami vildi at landi
láta þar, en hann kvazk eigi þat
vilja, - „því at mér lízk þetta land
ógagnvænligt." Nú lögðu þeir eigi
segl sitt, halda með landinu fram
ok sá, at þat var eyland; settu enn
stafn við því landi ok heldu í haf
inn sama byr.“
Bjami og hans menn fundu síðan
Grænland eftir fjöggura dægra sigl-
ingu. Settist Bjarni að í Heijólfsnesi
á Grænlandi hjá föður sínum og
hætti siglingum. I skýringum með
Eyrbyggju í útgáfu þeirra Einars
Ólafs Sveinssonar og Matthíasar
Þórðarsonar segir svo:
„Þótt menn vildu líta svo á, að
fyrsta landið, sem þeir Bjami eiga
að hafa séð, kunni að hafa verið
t.a.m. Nýfundna-land og annað
landið Markland verður ekki bent
á neitt land, er þriðja landið hafí
getað verið, - fjöllótt eyland og jök-
ull á, fjögra daga sigling í útsynn-
ingsbyr fyrir suðvestan Heijólfsnes,
á suðurodda Grænlands. - Sé nokk-
ur fótur fyrir þessari frásögn um
þessa landafundi, er líklegast að
þún sé sprottin af frásögn um
landafundi Leifs að sumu leyti og
'Þorfinns karlsefnis að öðm leyti."
STÓRHUGA
NORÐMENN
Aftur til nútímans.
Á EPCOT-svæðinu í Disney-landi
í Orlando standa Norðmenn í mikl-
um framkvæmdum. Tíu þjóðir hafa
þegar byggt mikil mannvirki til að
kynna land sitt og þjóð. Eftirlíking-
ar af gömlum eða frægum bygging-
um em notuð til að kynna það bezta
í menningu þjóðanna auk þess sem
þau hýsa veitingastaði og verzlanir.
Norðmenn verða eina Norðurlanda-
þjóðin á þessu svæði og fengu
úthlutað landi á milli Kína og Mexf-
kó. Formlega hófust framkvæmdir
síðastliðið vor, en byijað verður á
byggingunum í janúar á næsta ári.
í september 1988 er fyrirhugað að
norska svæðið verði tilbúið og tekið
í notkun.
Noregur hefur 100 þúsund fer-
metra til ráðstöfunar, en fyrst í
stað verður byggt á sex þúsund
fermetrum. Á skeifulaga svæðinu
geta gestir skoðað eftirlíkingar af
Akershus-höll, gömlu bryggjuhús-
unum í Bergen, húsunum við
höfnina í Álasundi, gömlu ráðhúsi
frá Viktoríutímanum og stafkirkj-
unni í Gol í Hallingdal. Þama verða
veitingahús, bakarí, verzlanir, upp-
lýsingaþjónusta um Noreg, mennta-
og ráðstefnumiðstöð, hægt verður
„að ferðast í gegnum sögu Noregs
á víkingaskipi" og kvikmyndasalur
er fyrirhugaður þama. Norðmenn
kynna þennan sýningarglugga sinn
sem leiðina til eða hliðið að Skand-
inavíu - „Gateway to Scandinavia".
Norðmenn spara hvergi við þess-
ar framkvæmdir og er áætlað að
kostnaður nemi um 40 milljónum
dollara eða sem svarar til um 1,6
milljarða íslenzkra króna. Að fyrir-
tækinu standa meðal annars
bankar, útgerðarfyrirtæki, iðnfyrir-
tæki, norska ríkið og fleiri. Þeir
hafa reiknað út að af þeim 12 millj-
ónum, sem heimsækja EPCOT
árlega muni um helmingurinn fara
í gegnum norska svæðið og stór
hluti þeirra verzla þar. Búist er við
að um 300 þúsund manns kaupi
norskan mat í veitingastöðunum
eða bakaríinu svo eftir nokkru er
að slægjast.
LEIFUR HEPPNI
EFTIR 14 ÁR
í 75 ár hefur „Nordmanns-For-
bundet" starfað í Noregi. Fyrst í
stað var tilgangurinn að koma á
sambandi milli Noregs og Norð-
manna sem flutzt höfðu til annarra
landa. í seinni tíð hafa samtökin
einkum reynt að styðja við norska
listamenn erlendis og reynt að koma
Noregi á framfæri úti í hinum stóra
heimi. Samtökin tóku þátt í að fjár-
magna smíði víkingaskipsins til
minningar um Bjama Heijólfsson
Ingstad-hjónin ásamt þremur „víkingum" úr áhöfninni.
og siglinguna meðfram strönd
Bandaríkjanna. Við athöfnina á
EPCOT-svæðinu í Orlando var
framkvæmdastjóri „Nordmanns-
Forbundet", Johann Fr. Heyerdahl
meðal viðstaddra.
„í ár minnumst við Bjama Her-
jólfssonar, en eftir aðeins 14 ár
kemur að Leifí Eiríkssyni," sagði
Johan Heyerdahl í samtali við
Morgunblaðið. „Þess afmælis vilj-
um við minnast með sérstökum og
eftirminnilegum hætti. Okkur er
mikið í mun, að íslendingar
undirbúi þau tímamót með okkur
ýg með það í huga fömm við til
Islands í vetur til að ræða við for-
seta ykkar og fleiri," sagði Johan
Heyerdahl.
Grein og myndir:
Ágúst Ingi Jónsson
ÁVEGI
JAFNTSEM
VEGLEYSUM
LAND CRUISER
Á vegi jafnt sem vegleysum og við öll veðurskil-
yrði hefur Toyota Land Cruiser sýnt og sannað að
hann stenst öðrum fremur íslenskar aðstæður.
Toyota kynnir nú Land Cruiser með nútímalegra
útlit, nýrri, léttari og aflmeiri vél, bættum fjöðrunar-
búnaði og vandaðri innréttingu.
Land Cruiser uppfyllir ströngustu kröfur
um fullkomna tækni og vandaðan frágang.