Morgunblaðið - 19.11.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1986
23
Fiskíþing’:
Skömm að fjársvelti
Hafrannsóknastofnimar
FJÁRVEITINGAR til Hafrann-
sóknastofnunar voru talsvert
til umræðu á Fiskiþingi á
þriðjudag. Þingfulltrúar voru
flestir sammála því, að skömm
væri að fjársvelti stofnunarinn-
ar, enda væri svo komið, að
fjárskortur stæði mörgum mik-
ilvægum þáttum hennar fyrir
þrifum. Samkvæmt fjárlaga-
frumvarpi fyrir næsta ár
aukast fjárveitingar ríkisins til
Hafrannsóknastofnunar um
9%, til Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins um 27% og
Rannsóknastofnunar fiskiðnað-
arins um rúmlega 30%.
Dr. Jakob Magnússon, aðstoð-
arforstjóri Hafrannsóknastofnun-
ar, kom meðal annars inn á þetta
í erindi, sem hann flutti á þinginu
á þriðjudagsmorgun. Hann sagði,
að Qárskortur stæði úthaldi rann-
sóknarskipanna verulega fyrir
þrifum. Að vísu mætti benda á
nokkum spamað í rekstri þeirra
vegna lækkandi olíuverðs, um 9%,
sem stjómvöld reiknuðu stofnun-
inni til tekna. Það breytti þó ekki
þeirri staðreynd, að það væri fyrst
og fremst viðhaldi skipanna, sem
væri ábótavant. Hann sagði, að
Ámi Friðriksson væri nú orðinn
um 20 ára og Bjami Sæmundsson
litlu yngri. Skipin þyrftu því mik-
ið viðhald og til stórvandræða
horfði á næsta ári, fengist engin
úrlausn. Hann benti einnig á það,
að verkefnum stofnunarinnar
hefði fjölgað, en þrátt fyrir það
hefði ekki fengizt leyfi til ráðning-
ar starfsfólks í samræmi við það.
Slíkt hlyti að standa nokkuð í
vegi fyrir þróun. Þá mætti einnig
benda á, að að fmmkvæði stjóm-
valda hefði verið byijað á aðstöðu
til rannsókna á fiskeldi í
Grindavík, sem kallaði á framhald
til að geta skilað árangri. Fé til
þess hefði ekki fengizt og því
væri það mál í biðstöðu.
Auk Jakobs fjölluðu þingfull-
trúar nokkuð um þessi mál og
töldu að skömm væri að því hvem-
ig búið væri að þessari mikilvægu
stofnun. Rannsóknir á fiskistofn-
um væm forsenda þess, að nýta
mætti þá af nokkurri skynsemi,
en því miður væm fjárveitingar
ekki í samræmi við það.
Karfastofninn fer minnkandi
Dr. Jakob Magnússon, að-
stoðarforstjóri Hafrannsókna-
stofnunar fjallaði á Fiskiþingi
um ástand karfastofnsins og
mögulega nýtingu ýmissra
djúpsjávarfiska. Hann lýsti yfir
áhyggjum með ástand karfa-
stofnsins, sem hann sagði fara
hægt minnkandi. Stofninn væri
sameiginlegur íslendingum,
Færeyingum og Grænlending-
um og samkomulag um nýting-
um stofnsins hefði ekki náðst
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
Islendinga. Undanfarin ár hafa
íslendingar veitt 65 til 80% úr
þessum sameiginlega stofni.
Samkvæmt reglugerð um afla-
mark fyrir næsta ár verður leyfi-
legt að veiða 95.000 lestir af
karfa, en fiskifræðingar höfðu
lagt til að aflinn yrði ekki meiri
en 75.000 lestir. Leyfilegur afli á
þessu ári var 100.000 lestir, en
þá lögðu fiskifræðingar til 85.000
iesta afla.
Dr. Jakob Magnússon sagði,
að karfaaflinn hefði minnkað
verulega við Austur-Grænland og
ísland, en aukizt við Færeyjar,
aðallega vegna aukinnar sóknar
heimamanna í karfann. Svo virtist
sem karfastofninn minnkaði hægt
og bítandi en óvíst væri hvenær
hann yrði komin í verulega lægð.
Ástæðan virtist fyrst og fremst
vera sú, að síðan 1975 hefðu kom-
ið mörg léleg seiðaár og lítið hefði
verið um smákarfa á landgrunn-
inu við Austur-Grænland, en þar
hefði áður verið mikið um hann.
Menn yrðu að átta sig á því, að
sveiflur í stofninum væru hægar
vegna þess hve gamall fiskurinn
yrði og hve seint hann yrði kyn-
þroska. Þess vegna hefði í raun
þurft að minnka sóknina í hann,
þegar stofninn hefði verið í há-
marki.
NOKKRAR umræður hafa orðið
um það á Fiskiþingi hver áhrif
kvótakerfið hafi haft á þorskafla
í einstökum landshlutum. Sam-
kvæmt Útvegi, riti Fiskifélags
Islands, virðist þorskafli hafa
skerzt hlutfallslega mest á Suð-
urlandi og Reykjanesi, en aukizt
Heimild Útvegnr 1985.
„Við eigum í vandræðum með
stjórn á sókninni í stofninn vegna
þess, að við sitjum ekki einir að
honum,“ sagði Jakob. „Þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir til að ná sam-
komulagi um nýtinguna, fyrst við
verulega á Norðurlandi vestra.
Hlutur Reyknesinga úr þorsk-
aflanum árið 1985 er 34,2% minni
en hann var að meðaltali á árun-
um 1981 til 1983, en árið 1985
var þorskaflinn alls 14,8% minni
en meðaltal áranna 1981 til 1983.
Evrópubandalagið og síðan Græn-
lendinga sjálfa, hefur þetta ekki
gengið. Það er því eðlilegt að Is-
lendingar sætti sig illa við það,
að þurfa einir þessara þriggja
þjóða að sætta sig við veiðitak-
markanir," sagði Jakob.
Jakob fjjallaði einnig um mögu-
lega nýtingu á öðrum djúpsjávar-
fískum. Hann nefndi meðal
annars gulllax, langhala, háffiska
og blálöngu, sem er að nokkru
leyti veidd og nýtt hér við land.
Jakob sagði, að um þessar mund-
ir virtist vænlegasti kosturinn að
veiða og vinna gulllax, en tilraun-
ir til þess hefðu verið gerðar í
sumar. Hins vegar þyrfti sérstak
leyfi til þeirra veiða vegna nauð-
synjar á smærri möskva í trollinu
en annars væri leyfilegt. Möguleg
leið væri að leyfa karfaskipum að
vera með smærri möskva á svæð-
um, þar sem ekki væri hætta á
smáfiski, en talsvert væri af gull-
laxi. Hann gæti þá orðið talsverð-
ur búhnykkur við karfaveiðina.
Ennfremur mætti vel gera út á
gulllaxinn einan, en þá yrði jafn-
framt að gera ráð fyrir öðrum
afla með honum, sem einnig
mætti nýta. Hafrannsóknastofn-
un hefði mörg undanfarin ár lagt
til að gulllaxstöfninn yrði rann-
sakaður til að kanna veiðanlegt
magn og skynsamlega nýtingu.
Þar sem fé hefði verið af skomum
skammti, hefðu rannsóknir þessar
setið á hakanum fyrir öðrum, sem
mikilvægari væru taldar.
Skipting þorskafla
meðal þorskafliþorskafli Breyting
1981-1983 1985
Tonn Tonn Tonn Hlutfall
Suðurland 42.570 29.038 -13.532+31,7%
Reykjanes 91.881 60.485 +31.396+34,2%
Vesturland 42.248 37.391 + 4.857+11,5%
Vestfírðir 55.161 44.073 +11.088 +20,1%
Norðurl. V 20.744 26.529 + 5.785+27,9%
Norðurl. E 65.920 59.674 + 6.246+ 9,5%
Austfirðir 46.289 40.241 + 6.048+13,1%
Erlendis 14.076 25.377 +11.031+80,3%
378.889 322.768 +56.351 +14,8%
Skipting þorskafla
eftir löndunarsvæðum
Blönduvirkjun flýtt um ár ef samningar tak-
ast um kísilmálmverksmidju á Reyðarfirði
FRAMKVÆMDA- og rannsóknaáætlun Landsvirkjunar fyrir næsta
ár gerir ráð fyrir 550 milljónum króna. Af þeirri upphæð eru fjár-
festingar vegna Blönduvirkjunar 510 milljónir kr. og er þá miðað
við að virkjunin verði gangsett árið 1991. Þyki hinsvegar sýnt áður
en langt um líður að samningar takist um byggingu hinnar fyrir-
huguðu kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði þyrfti að flýta gangsetn-
ingu Blönduvirkjunar um eitt ár miðað við að kísilmálmverksmiðjan
taki til starfa 1989. Gangsetning Blönduvirkjunar 1990 mundi kalla
á auknar framkvæmdir í þágu virkjunarinnar á næsta ári og fjár-
þörfin á því ári þá aukast um 50 millj. kr. vegna þess.
Þetta kom m.a. fram í máli Hall-
dórs Jónatanssonar, forstjóra
Landsvirkjunar, á fundi Sambands
íslenskra rafveitna í síðustu viku.
Hann sagði að rannsóknir vegna
nýrra virkjanamöguleika yrðu á
næsta ári í lágmarki en gert er ráð
fyrir átta milljónum í rannsóknim-
ar. í lánsQárlagafrumvarpi er gert
ráð fyrir þvf að Landsvirkjun taki
lán á næsta ári vegna framkvæmda
og rannsókna að fjárhæð 400 millj-
ónir króna og að 150 millj. kr. af
fjárfestingum ársins verði fjár-
magnaðar með fé úr rekstri
Landsvirkjunar.
Þá standa yfir viðræður við Hita-
veitu Suðumesja um samrekstrar-
samning með tilliti til áhuga
hitaveitunnar á að setja upp hinar
svonefndu ORMAT vélar til aukinn-
ar rafmagnsframleiðslu, en þær
mundu jafnframt bæta gufunýt-
ingu, draga úr mengun og tæringu
vélbúnaðar. Landsvirkjun hefur
einnig fallist á tilmæli Áburðarverk-
smiðju ríkisins um að taka raf-
magnssamning fyrirtækjanna til
endurskoðunar.
Halldór sagði að athugun á upp-
byggingu gjaldskrár Landsvirkjun-
ar væri langt komin og hefðu átt
sér stað gagnlegar umræður þar
að lútandi milli fulltrúa Landsvirkj-
unar og almenningsrafveitna.
„Landsvirkjun hefur fengið sænsk-
an ráðgjafa til aðstoðar í lokameð-
ferð þessa máls og er þess að vænta
að hann skili áliti og tillögum um
viðfangsefnið snemma á næsta ári.
Athugun og samanburður tilboða
í tölvubúnað nýrrar stjómstöðvar
fyrir allt raforkukerfi Landsvirkjun-
ar er nú að verða lokið, en núverandi
kerfí krefst orðið endumýjunar.
Ákvörðunar má vænta upp úr ára-
mótunum einnig."
Að lokum minntist Halldór á _að
hugmyndin um sæstreng milli Is-
lands og Skotlands hefði aftur
skotið upp kollinum og væri Lands-
virkjun nú að gera það upp við sig
hvort það gæti verið álitlegur kost-
ur að hyggja þannig á rafmagnssölu
til Skotlands í samkeppni við þar-
lenda orkugjafa, einkum kol og
kjamaorku. Fmmathuganir á þess-
um möguleika em þegar hafnar og
reynist þær gefa jákvæðar niður-
stöður kemur vel til greina að halda
athugunum áfram á breiðum
gmndvelli, að sögn Halldórs.
Hörður Þorgilsson
Hörður Þor-
gilsson doktor
í sálfræði
HÖRÐUR Þorgilsson varði dokt-
orsritgerð sína við bandaríska
háskólann „University of
Connecticut“ 31. október sl. Rit-
gerðin ber nafnið „Subjective
and Objective Aspects of Emoti-
ons in Social Competence“ og
fjallar hún um hlutverk tilfinng-
inga í félagshæfni.
Hörður lauk BA-prófi í sálfræði
frá Háskóla íslands árið 1979.
Hann lauk síðan kandidatsprófi árið
1984 frá University of Connecticut.
Þá kom hann heim til Islands og
hefur starfað á undanfömum tveim-
ur ámm við Geðdeild Landspítalans
auk þess sem hann rekur sálfræði-
stofu í Lækninga- og sálfræðistof-
unni að Skipholti 50c í Reykjavík.
Hörður er 33 ára að aldri og em
foreldrar hans Þorgils Stefánsson
og Ingibjörg F. Hjartar, sem búsett
em á Akranesi.
Getum rakið
símtöl hvenær
sólarhrings
sem er
- segir Ágúst Geirs-
son, símstjóri
ÁGÚST Geirsson, símstjóri, hafði
samband við Morgunblaðið
vegna fréttar i blaðinu í gær um
að símalínum lögreglu hefði ve-
rið haldið uppteknum á laugar-
dagskvöld og aðfaranótt
sunnudags.
í fréttinni er haft eftir varðstjóra
á fjarskiptamiðstöð lögreglunnar
að Landssiminn hafi ekki vaktir til
að rekja síma um helgar. Þess
vegna hafi lögreglan tekið þá ák-
vörðun að halda ekki einni símalín-
unni til að láta rekja símtalið. Ágúst
sagði, að frá kl. 8-17 virka daga
væm við menn sem gætu rakið
símtöl. „Jafnfvel þótt haft sé sam-
band við okkur á öðmm tímum, þá
getum við kallað út tæknimenn eft-
ir þörfum. Þetta á lögreglan að vita
og það hefði verið hægur vandi
fyrir starfsmenn á fjarskiptastöð-
inni að láta rekja simtölin," sagði
Ágúst. „Þetta kvöld var hringt einu
sinni í okkur frá lögreglunni, sem
óskaði eftir að það væri kannað
hvort vissar línur væm í sambandi.
Svo reyndist ekki vera, en við heyrð-
um ekki frá lögreglunni aftur."
Ágúst sagði að það kæmi oft
fyrir, utan venjulegs vinnutíma, að
fólk hefði samband við símstöðina
vegna þess að einhver væri að ón-
áða það og slökkviliðið ætti stund-
um í vanda vegna hringinga frá
fólki sem væri með gabb. „Við sinn-
um þessu ef þörf er á og lögreglan
á að vita að þessi möguleiki er fyr-
ir hendi, jafnvel þótt tæknimenn séu
ekki við þá stundina.“