Morgunblaðið - 19.11.1986, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1986
27
*
Ovænt bað
Nemendur menntaskólans í Sac City í Iowaríki fengn óvænt bað á dögnnum, þegar brú,
sem þeir fjölmenntu út á, lét undan þunganum. Taka átti mynd i árbók skólans af 48
nemendum, sem útskrifast í vor. Vart höfðu þeir stillt sér upp er brúin brast skyndilega
svo að flestir þeirra féllu í vatnið. Engum varð meint af baðinu þó kalt væri.
Noregur:
Flóttamönn-
um illa tekið
Iraskar fjölskyldur flúðu dvalar-
stað sinn vegna kulda
6sló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðains.
TVÆR íraskar fjölskyldur, sem sótt hafa um hæli í Nor-
egi, flúðu úr skólanum, sem þeim var fenginn sem dvalar-
staður meðan fjallað væri um mál þeirra. Fannst þeim hann
ekki vera mönnum bjóðandi vegna kulda.
„Það var svo kalt, að við gát-
um ekki sofíð á nóttunni. Mörg
bamanna þurftu læknishjálp en
fengu enga og við fengum enga
kennslu í norsku eins og okkur
hafði verið lofað,“ sögðu fjöl-
skyldufeðumir.
Þegar mennimir snem sér til
flóttamannamiðstöðvarinnar
vildi enginn við þá tala og þeim
var ekki boðin önnur vist. Mú-
hameðskur söfnuður í Ósló varð
svo loks til að hjálpa þeim en
fólkinu hafði verið komið fyrir í
Gjövik.
Norska flóttamannahjálpin
hefur verið harðlega gagnrýnd
að undanfömu innanlands sem
utan enda hafa Norðmenn smám
saman verið að loka landinu fyr-
ir flóttamönnum. Fyrir hálfum
mánuði var t.d. kúrda frá Tyrk-
landi snúið aftur og sendur með
feijunni til Danmerkur. Stökk
hann þá fyrir borð en nærstadd-
ur fískimaður bjargaði hopnum
á síðustu stundu. Hefur hann
nú fengið dvalarleyfí í Noregi.
í síðustu viku var indverskur
ritstjóri berháttaður og látinn
dúsa í fangaklefa í marga
klukkutíma þótt hann hefði
vegabréfsáritun til Noregs, al-
þjóðlegt blaðamannaskírteini og
pantað viðtal við eiginmann Gro
Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra. Langflest norsku
sveitarfélaganna, sem beðin em
um að taka við flóttamönnum,
neita því þverlega.
PRAVDA
EiiiiiriaiiLtMa
Wh«l w»» «Kt>«r€f«r4 whoí w«* Mtrhiovod
{----— -----—-------E—w
■ íwwftww í.**?) itogmt » w
' wwí ***** Á* íp. t.
Forsíða nýjasta heftis hinnar
ensku útgáfu Pravda.
Pravda
gef ið út
á ensku
HAFIN er útgáfa Pravda,
málgagns sovéska kommún-
istaflokksins, á ensku. Enska
útgáfan kemur út einu sinni
í mánuði og hefur hún að
geyma valið efni úr málgagn-
inu.
í nýjasta heftinu er að fínna
14 blaðsíðna grein um Reykjavík-
urfund þeirra Mikhails S. Gorb-
achev og Ronalds Reagan.
Litmynd af þeim félögum prýðir
forsíðu blaðsins.
Þá er einnig að fínna frétt um
tengsl bandaríska blaðamannsins
Nicholas Daniloff við bandarísku
leyniþjónustuna, CLA, og ítarlega
frásögn af hetjudáðum þriggja
sovéskra hermanna „við alþjóðleg
skyldustörf* í Afganistan. Enn-
fremur er sagt frá fundi Gorb-
achevs með verkamönnum í
Stavropol og ber grein sú yfir-
skriftina „Vandamálin gerð
opinber." Auk þessa er að fínna
greinar um landbúnaðarmál og
nauðsyn „sósíalískrar enduskipu-
lagningar." Þá eru í heftinu fastir
dálkar svo sem „Ljósmyndasam-
keppnin", „smáfréttir" og ýmis-
legt „léttmeti".
Keltnesk-
ur bronz-
skjöldur
fundinn
Lundúnum, AP.
KELTNESKUR skjöldur, sem
talinn er vera allt að 2.300
ára gamall, hefur fundizt í
malarnámu í Chertsey í suð-
vestuxjaðri Lundúna, að sögn
talsmanns brezka náttúru-
gripasafnsins. Hefur enginn
skjöldur af þessu tagi fundizt
í betra ásigkomulagi, að sögn
talsmanna safnsins.
„Slqoldurinn hefur líklega
aldrei verið notaður í bardaga,
heldur verið fleygt í Tempsá við
helgiathöfn," sagði aðstoðar-
minjavörður safnsins. Skjöldur-
inn fannst í malamámu í fomum
farvegi árinnar. Gröfustjóri tók
eftir skildinum er hann var við
jarðvegstekju í gryfjunni.
Skjöldurinn er úr bronzi og
hefur fundurinn að því leyti vak-
ið mikla athygli þar sem fyrri
skildir Kelta, sem fundizt hafa,
vom úr tré en styrktir með
málmplötum. Hann er spor-
öskjulaga og 70 sentimetra
breiður. Tókst að aldursgreina
skjöldinn þar sem viðarbútur var
í handföngunum. Reyndist hann
milli 2.100 og 2.300 áragamall.
HRINGDU
og fáðu áakriftargjöldin
skuldfærð á greiðslukorta
immnmniifiínin-nirrf
SÍMINN ER
691140
691141
JlsjiírgiMilfrítóifo
KOSTA
ÍBODA)
\____I_/
Klingjandi kristall-kærkomin gjöf
Bankastræti 10. Símar: 13122 — 621812
Garðatorgi, Garðabæ. Sími: 656812